Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Blaðsíða 10
28 MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 2000 Sport i>v Tugþrautarmótiö í Götzis um helgina: Jón Arnar níundi - tryggði sig örugglega inn á Ólympíuleikana í Sydney með 8206 stigum Pórey Edda Elisdotlír, FH, tryggöi scr sæti i islenska Olympiu- hópnum um helgina. Úrslitin í Götzis 1. Tomas Dvorak, Tékkl. 8900 stig 100 m hlaup ........10,54 sek., 966 Langstökk .............8,03 m, 1068 Kúluvarp .............16,68 m, 893 Hástökk ..............2,09 m, 887 400 m hlaup............. 48,36 sek., 892 110 m grind .........13,89 sek., 989 Kringlukast .......... 47,89 m, 827 Stangarstökk ..........4,85 m, 865 Spjótkast .............67,21 m, 847 1500 m hlaup .....4:42,33 mín., 666 2. Roman Seberle, Tékkl. 8757 stig 100 m hlaup ........10,64 sek., 942 Langstökk .............7,88 m, 1030 Kúluvarp .............15,19 m, 801 Hástökk ...............2,15 m, 944 400 m hlaup ........ 49,05 sek., 859 110 m grind .........13,99 sek., 976 Kringlukast ..........47,21 m, 812 Stangarstökk ..........4,75 m, 834 Spjótkast ........... 67,23 m, 847 1500 m hlaup ..... 4:35,06 min., 712 3. Erki Nool, Eistlandi . 8742 stig 100 m hlaup ........10,69 sek., 931 Langstökk .............7,78 m, 1005 Kúluvarp .............14,14 m, 737 Hástökk ...............1,97 m, 776 400 m hlaup .........47,18 sek., 949 110 m grind .........14,37 sek., 927 Kringlukast ..........44,16 m, 750 Stangarstökk ..........5,55 m, 1083 Spjótkast ............67,21 m, 847 1500 m hlaup ..... 4:42,33 mín., 666 4. Alexandr Yurkov, Úkraínu .. 8574 5. Attila Zsivotsky, Ungverjal. .. 8554 6. Frank Busemann, Þýskal. 8531 7. Mike Maczey, Þýskal......8461 8. Stefan Schmid, Þýskal. . . . 8445 9. Jón A. Magnússon, ísl. 8206 stig 100 m hlaup .........10,81 sek., 903 Langstökk .............7,68 m, 980 Kúluvarp .............15,64 m, 829 Hástökk ................2,00 m, 803 400 m hlaup .........48,15 sek., 902 110 m grind .........16,17 sek., 714 Kringlukast ..........46,68 m, 801 Stangarstökk ..........5,05 m, 926 Spjótlkast ...........58,85 m, 721 1500 m hlaup .......4:48,64 min. 627 10. Philiipp Htiber, Sviss . . .8153 Jóni Arnari Magnússyni tókst það ætlunarverk sitt að ná lágmarkinu á Ólympíuleikana í Sydney á tugþrautarmótinu í Götzis um helgina. Jón lauk þrautinni með 8206 stig og varð í níunda sæti. Sig- urvegari á mótinu varð Tékklendingurinn Tomas Dvorak með 8900 stig sem er annar besti árangur hans á eftir heimsmetinu sem er 8994 stig. Annar varð landi Dvoraks, Roman Seberle, með 8757 stig, sem er hans besti árangur til þessa, og þriðji varð hinn geðþekki Eistlendingur, Erki Nool, með 8742 stig, en það er jafnframt hans besti árangur og eistneskt met. Strax í fyrstu þraut virtist sem Jón væri ekki í fullu formi fyrir keppnina en hann lauk 100 metra hlaupinu á 10,81 sek., sem er langt frá hans besta, og aðeins einu sinni áður hefur Jón hlaupið á lak- ari tíma í tugþraut þar sem hann hefur náð átta þúsund stigum. Sigurvegari i hlaupinu varð Banda- rikjamaðurinn Chris Huffins sem reyndar kláraði ekki þrautina. Dvorak varð annar á 10,54 sek. Langstökkið gekk betur en nokkru sinni áður hjá Jórii í tugþraut. Hann stökk 7,68 m, sem er bæt- ing um einn sentímetra í tugþraut, en ís landsmet Jóns i greininni er 8 m. Dvorak kom sterkur til leiks í langstökkinu og bætti sig um fimm sentímetra, stökk 8,03 m, tiu sentímetrum lengra en næsti maður, hinn ungi Alexandr Yurkov frá Úkraínu. Dvorak varð aftur hlut- skarpastur í kúluvarpinu, með 16,68 m, en Jón Am- ar var talsvert frá sínu besta, kastaði 15,64 m. Ungverjinn Attila Zsivotsky stökk hæst manna í hástökkinu, 2.18 metra, sem var við- búið því hann átti best an árangur keppenda fyrir þrautina í Götzis. Jón Amar náði nokkuð góðum árangri, stökk tvo metra slétta. í fimmtu og síðustu grein á fyrri degi, 400 m hlaupi, hefur Jón Arnar verið einna sterkastur þeirra sem á mótinu vora á undanfomum árum og á bestan tíma þeirra, 46,49 sek. Að þessu sinni var það hins veg- ar Eistlendingurinn Nool sem stakk aðra keppendur af, hljóp á 47.18 sek., tæpri sekúndu betur en Jón sem varð þriðji á 48,15. Jón lauk fyrri degi með 4417 stig sem er 72 stig- um lakara en þegar hann setti íslandsmetið 1998. Þetta lofaði því góðu því að hann og Gísli þjálfari hafa unnið vel í greinum seinni dagsins á undan- fórnum misserum. Það hljóta því að hafa verið tals- verð vonbrigði fyrir Jón þegar 110 m grindahlaup- ið fór í vaskinn, tíminn 16,17 sek., um tveimur sek- úndum lakari en vanalegt er hjá Jóni og í kringum 250 mögulegum stigum færra, enda hrasaði Jón Amar þar um fyrstu grind. Dvorak varð hins veg- ar ekki mjög svekktur, vann greinina á 13,89 sek., sem er 2 sekúndum betra en íslandsmet Jóns. Jón var þó ekki af baki dottinn og stefndi ótrauð ur áfram að Ólympíulágmarkinu, þó svo að íslands- metið væri líklega úr sögunni. Þeytti hann kringlunni 46,68 m sem verður að teljast þokka- legt. Chris Huffins kastaði lengst allra, 49,38 metra. Hæst allra í stangarstökkinu stökk að vanda Erki Nool, 5,55 m, en hann er langsterkastur tug- þrautarmannanna í þeirri grein. Jón fór hálfum metra lægra, stökk 5,05 m, og þokaðist enn nær Sydney; þurfti aðeins um þúsund stig úr 2 síðustu greinunum til að ná B-lágmarkinu sem var 7800 stig. Jón virðist ekki hafa sætt sig við það að vera í einhverjum B-flokki. Næstsíðasta greinin var að vanda spjótkast. Þar kastaði Jón 58,85 m og var nokkuð frá sínu besta enda varð hann átjándi í greininni. Lengst keppenda kastaði Þjóðverjhm Stefan Schmid, 69,16 m. Þessi grein varð hins vegar til þess að Dvorak setti ekki nýtt heimsmet, kast hans var 67,21, fimm metrum frá hans besta. Siðasta greinin var svo sú sem mest reynir á þol- rif og þolinmæði tug- þrautarmanna, 1500 m hlaupið. Svisslendingur- inn Philipp Húber hljóp manna hraðast og lauk hlaupinu á 4:21,06 min. en Jón varð sextándi á 4:48,64; talsvert lakara en hans besta en takmarkinu var náð. Stigin 8206 fleyta Jóni til Sydney í september en til þess að ná árangri þar verður hann þó að skoða vel það sem úrskeiðis fór í Götzis. Öðravísi hefur hann lítið að segja í Dvorak, Seberle og Nool sem virðast í feiknaformi. -ÓK Urslit á JJ-móti Ármanns: Jón Arnar Magnússon þarf að reima fastar á sig skóna ef góður árangur á að nást i Sydney. DV-mynd E.ÓI Þórey Edda náði lágmarkinu á ÓL - varð fjórða frjálsíþróttakonan inn á leikana Þórey Edda Elísdóttir, stangarstökkvari úr FH, varð á laugardaginn fjórða íslenska frjáls- íþróttakonan sem nær ólympíulágmarki fyrir leikana í Sydney í september. Þórey Edda stökk 4,31 metra á móti í Vellinge, sem er skammt frá Malmö í Svíþjóð. Þetta er langbesti árangur hennar utanhúss en hún átti best áður 4,22 og sýnir þetta að hún er búin að ná sér af meiðsl- um sínum með því að ná A-lágmarki á leikanna í fyrstu tilraun. Þórey Edda stökk hæst 4,37 metra á sínum ferli innanhúss, veturinn 1999, en hefur ekkert geta keppt síðan þá vegna brjóskloss í baki. Þórey tók sér frí frá keppni i vetur og einbeitti sér að því aö byggja sig upp aftur og kom síðan öllum á óvart um helgina með því að ná svo góðum árangri í sínu fyrsta móti og tryggja sig á glæsilegan hátt inn á Ólympíuleikana í Sydney í haust. Þijár fijálsíþróttakonur höfðu náð inn á leikana á undan Þóreyju, þær Vala Flosadóttir, ÍR, í stangarstökki, Guðrún Amardóttir, Ármanni, í 400 metra grindarhlaupi og Martha Emstsdóttir, ÍR, í maraþonhlaupi. -ÓÓJ JJ-mót Ármanns í fijálsum íþróttum fór fram á Laugardals- velli sl. laugardag, 3. júní. Úrslit mótsins urðu eftirfarandi: 200 m hlaup kvenna: 1. SUja Úlfarsdóttir, FH......24,66 2. Hafdís Ósk Pétursdóttir, ÍR . 26,70 3. Ylfa Jónsdóttir, FH .......27,52 800 m hlaup kvenna: 1. Eva Rós Stefánsdóttir, FH . 2:16,00 2. Guðrún B. Skúlad., HSK . . 2:22,37 3. Eygerður I. Hafþórsd., FH . 2:29,11 100 m grindahlaup kvenna: 1. Vilborg Jóhannsd., Tindast. . 16,06 2. Ylfa Jónsdóttir, FH .......16,60 3. Ágústa Tryggvadóttir, FH .. 16,74 4x100 m boðhlaup kvenna: 1. Sveit Fjölnis .............52,34 2. Sveit HSK .................54,92 Langstökk kvenna: 1. Kristin Þórhallsd., UMSB ... 5,51 2. Jóhanna Ingadóttir, Fjölni .. . 5,32 3. Hilda G. Svavarsdóttir, FH . . 5,30 Stangarstökk kvenna: 1. Eva Dögg Sigurðard., Árm. .. 2,60 2. Aðalheiöur M. Vigfúsd., UBK 2,50 3. Eyrún M. Guðmundsd., HSK . 2,40 Spjótkast kvenna: 1. Áslaug Jóhannsd., Tindast. . 36,56 2. Vilborg Jóhannesd., Tindast. 33,89 3. Þuríður H. Þorsteinsd., HSK 32,59 100 m hlaup karla: 1. Reynir Logi Ólafsson, Árm. . 11,00 2. Bjarni Þór Traustason, FH .. 11,46 3. Ólafur Sv. Traustason, FH .. 11,54 400 m hlaup karla: 1. Sveinn Þórarinsson, FH . ... 49,70 2. Björgvin Víkingsson, FH . . . 50,06 3. Bjarki Steinn Jónsson, HSK . 51,44 5000 m hlaup karla: 1. Stefán Á. Hafsteinsson, ÍR . 16:40,3 2. Ámi Már Jónsson, FH . . . . 16:46,0 3. Daði Garðarsson, FH.......17:01,7 110 m grindahlaup karla: 1. Ólafur Guðmundsson, HSK . 15,63 2. Ingi Sturla Þórisson, FH ... 15,77 3. Jónas H. Hallgrímsson, FH . 16,47 Langstökk karla: 1. Ólafur Guðmundsson, HSK . . 6,66 2. Sigtryggur Aðalbjömss., ÍR .. 6,65 3. Örvar Ólafsson, HSK.........6,40 Kúluvarp karla: 1. Ólafur Guðmundsson, HSK . 13,40

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.