Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2000, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 2000
25
DV
Sport
ft. Kristjánsson
myndir Jóhann
ImíU!
Gun nar Asgeirsson
missir Örninn í veltu í
einní brautinni.
Benedikt Ásgeirsson, til vinstri, tók hrikalegasta stökk sem sést hefur í torfærukeppni
á Gösla í tímabrautinni á laugardeginum. Hann flaug tugi metra í þriggja metra hæö,
lenti á framhásingunni, braut hana og valt síöan heilan hring fram fyrir sig.
Hann var aumur eftir byltuna og var settur í stuðningsspelkur viö háls og hrygg og
fluttur á sjúkrahús. Þar kom í Ijós aö hann haföi aðeins tognaö en fátt er heilt í Gösla
eftir byltuna.
Auglýsingastjóri GoodYear:
Geggjuð grein
- eru mjög ánægðir með keppnina
Eins og fyrr sagði var keppnin haldin í samvinnu við GoodYear-
dekkjaframieiðandann í Bretlandi. „Við erum mjög ánægðir með keppnina,"
sagði Ron Pike, auglýsingastjóri þeirra, að keppninni lokinni.
„Þetta er í fyrsta sinn sem GoodYear hefur tekið þátt í svona geggjaðri
íþróttagrein eins og torfæran er. Margir bilanna aka á GoodYear Eagle-
sanddekkjum<None>. Það eru þegar hafnar viðræður um að endurtaka
torfærukeppni hér að ári og við erum mjög ánægðir með stjómun og
framkvæmd Landssamtaka akstursíþróttaklúbba á íslandi á keppninni og
öryggisatriðum í kringum hana. Breskir áhorfendur hafa tekið íþróttinni mjög
vel og verið áhugasamir eftir að hafa séð torfæruna í fyrsta sinn. Að okkar mati
hefur tekist frábærlega vel til og viö erum þegar famir að spá í keppni árið
2001,“ sagði Ron Pikes að lokum. Það má því búast við aö framhald verið á
víkingaferðum íslenskra torfæruökumanna til Bretlands. JAK
I