Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2000, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2000, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 DV Fréttir Upptökur af símtölum Guðmundar I. Þóroddssonar í e-töflumálinu fyrir dómi: Ég er forstjórinn - notfærði sér óspart bágindi annarra — sótti sér tvo aðstoðarmenn inn á SÁÁ „Ég er forstjórinn,“ heyrðist m.a. spilað í símaupptöku flkni- efnalögreglunnar í héraðsdómi I gær þegar Guðmundur Ingi Þór- oddsson var að útskýra fyrir ung- um aðstoðarmönmun sínum hvemig högum hans væri háttað í innflutningi á e-töflum á seinni hluta síðasta árs. Sigurður Gísli Gíslason, sækjandi af hálfu lögregl- unnar í Reykjavík, lét harðar spurningar dynja á Guðmundi Inga í gær, aðalsakborningnum í e- töflumáli þar sem hann og 10 ung- ir aðstoðarmenn hans, allt niður í 17 ára, eru ákærðir fyrir mismik- inn þátt í innflutningi, dreifingu og sölu á 3850 e-töflum. I símaupptökunum kemur einnig fram að Guðmundur Ingi var að hefja sig á stall í monttón með þvi að greina frá því að hann væri að kaupa og staðgreiða BMW- bíl og að hann stæði í blómlegum e-töfluviðskiptum. Sakborningur- inn reyndi að verjast sem mest hann mátti. Ósvífní og sannfæringa- kraftur Fyrir dómi í gær kom greinilega fram hjá málflytjendum og meðá- kærðu að Guðmundur Ingi var yf- irleitt ósvífinn gagnvart sinum Óttar Sveinsson blaðamaður ŒSMIí ungu aðstoðarmönnum. Þannig notfærði hann sér aðallega, eða reyndi að notfæra sér bágindi fjölda ungmenna - ungra pilta sem voru ýmist á kafi I e-fíkniefna- neyslu, voru í meðferð eða höfðu verið í meðferð og ekki síst því að þeir skulduðu peninga vegna neyslu. Þannig sagðist hann ætla að hjálpa þeim við að koma sér út úr eigin vandamálum með því að láta þá vinna fy sig með einum eða öðrum hætti í e- töflumálinu. Guðmundur Ingi bauð þess- um ungu mönn- um, oft og tíð- um með miklum sannfæringar- krafti, að taka þátt í afbrotum. Þetta kemur væntanlega ekki i veg fyrir að dómar bíða flestra ef ekki allra þessara pilta og ungu manna enda voru þeir búnir að flækja sig i þann vef sem lög- reglan fylgdist náið með skeið. Bankalán og svik Guðmundur Ingi lét tvo unga menn verða aðalverkfæri sín að inn- flutningi á 3850 e-töflum. Hann dvaldi með öðrum þeirra í meðferð. Nokkru síðar, þegar Guðmundur var kominn út, hafði hann samband við þá á sjúkrastöð SÁÁ en hvom í sínu lagi. Hann vissi um skuldir þeirra og bað þá um að vinna fyrir sig „bauðst til að hjálpa þeim“. Þegar þess- ir tveir ungu menn komu úr meðferð ákváðu þeir hvor um sig að taka bankalán til að koma sér út úr neysluskuld- um. Guð- mundur bað um að hærri lán yrðu tekin en fyrir skuld- unum einum. Síðan var leit- að í for- eldrahús til að fá uppá- skriftir. Pening- arnir voru síð- an af- hentir Guð- mundi Inga sem fór til Amster- dam til að kaupa e-töflur. Guðmund- ur Ingi sagði piltunum báðum að hann ætlaði að kaupa allt að 2000 e-töflur sem þeir áttu að skipta með sér. Raunin var hins vegar sú að hann keypti 3850 töflur, sendi pakka heim í DHL- pósti og leyfði engum öðrum að kíkja i umbúðirnar er aðstoðar- menn komu með þær heim til hans. Guðmundur Ingi lét hina síð- an fá samtals hátt í tvö þúsund töflur en sjálfur hélt hann afgang- inum. Menn telja að hér liggi nánast ljóst fyrir að Guðmundur Ingi hafi í raun lymskulega látið hina tvo fjármagna eigin kaup en ekki látið þá vita af þvi. Ekki nóg með það. Hann lét ungu mennina tvo einnig greiða sér 150 þúsund króna þókn- un hvom - fyrir „greiðann“ að fara til Amsterdam til að kaupa efnin. Hinir greiddu báðir. Meiri ósvífni Fyrir dóminn i gær kom einnig tvítugur maður sem svaraði öllum spurningum skýrt og greinilega. Hann kvaðst hafa verið í samkrulli í rekstri með Guðmundi Inga síð- astliðið haust. Þar sem Guðmund- ur Ingi er gjaldþrota hafl hann lát- ið sig skrifa upp á pappíra sem síð- an leiddi til þess að fjárnámskrafa upp á 400 þúsund krónur var gerð á hendur honum. Hann vildi losa sig út úr öllu tengdu Guðmundi sem þrýsti mjög á hann um að dreifa fyrir sig framangreindum 2 þúsund e-töflum. Ungi maðurinn sagði Guðmund hafa fullvissað sig um að hann yrði aldrei tekinn. Hann sagði einnig fyrir dóminum í gær að Guðmundur Ingi hefði hót- að sér því að ef hann gerði þetta ekki myndi hann ekki greiða um- rædd 400 þúsund. Réttarhöld í e-töflumálinu halda áfram í dag. Ungmennum neitað um tóbak í Videohöllinni: Tóbakslausir unglingar trylltust og brutu rúðu Hópur unglinga sem kom í Video- höllina í Lágmúla aðfaranótt sunnu- dags og vildi kaupa sígarettur trylltist þegar beðið var um skilríki vegna kaupanna. “Þeir komu inn í búðina 5 saman, um 16 ára gamlir, og keyptu sér sæl- gæti en vUdu síðan kaupa sígarettur,“ segir Kristmundur Magnússon, af- greiðslumaður hjá VideohöUinni í Lágmúla. Kristmundur var að afgreiða þegar hópur unglingspilta kom inn í búðina og vUdi kaupa sígarettur. “Ég bað þá um skUríki og þeir urðu ævareiðir og köUuðu mig öUum Ulum nöfnum. Þeir spurðu síðan mann við hliðina á sér hvort hann vUdi kaupa og hann spurði mig hvort það væri í lagi en ég neitaði," segir hann. Að sögn Kristmundar urðu piltarn- ir þá ævareiðir og réðust á innan- stokksmuni. „Þeir spörkuðu niður skilti og hrintu niður samlokunum áður en þeir hentu út ruslatunnunni. Þegar ég hljóp út til að ná i tunnuna spurðu þeir mig hvort ég væri ekki örugglega búinn klukkan 3 því þá ætluöu þeir að koma aftur,“ segir hann. Þeir stóðu við það og varð Krist- mundur þeirra var um 10 mínútum eftir 3 um nóttina. „Ég sá þá nokkra hinum megin við götuna en einn þeirra sá ég ekki fyrr en ég heyrði mikinn skell en þá hafði hann hent grjóthnuliungi inn um rúðu sem er hjá barnaspólunum," segir hann. Að sögn Kristmundar hljóp hann á eftir piltunum en náði ekki til þeirra. „Ég hef veit nokkum veginn hverjir þeir eru en málið er í rannsókn lög- reglunnar," segir Kristmundur. Hann segir algengt að unglingar bregðist illa við beiðni um skilríki þegar þeir vilja kaupa sígarettur. „Um 70 prósent þeirra verða bara skömmustuleg en hinn hlutinn verður reiður og hreytir jafnvel í mann blóts- yrðum en stelpumar sem eru að af- greiða lenda þó verst í þessu,“ segir Kristmundur. Aðspurður segir hann unglinga ekki eina um að bregðast við með dónaskap. “Fullorðið fólk á það líka til að garga á mann, til dæmis þegar það er skuld á spólum, en við erum bara að vinna okkar vinnu," segir Kristmund- ur. Kristmundur er hættur að vinna á myndbandaleigunni og telur hann ólíklegt að hann muni starfa aftur við geirann: „Það er komið illa fram við mann og þetta er mannskemmandi vinna,“ segir hann. Gunnar Már Andrésson, verslun- arstjóri í Videohöllinni, var óhress þegar DV hafði samband við hann og sagði að þrátt fyrir að tryggingamar bættu rúðuna væri þetta vandamál sem ekki myndi linna. „Það hafa komið hingað ungar stúlkur á vegum Tóbaksvamanefndar sem líta út fyrir að vera tvítugar og af- greiðslufólkið hefur stundum slysast til að selja þeim sígarettur og fyrir það höfum við verið skammaðir. Nú hins vegar fylgjum við öllum reglum til hins ýtrasta sem hefur svo þessar afleiðingar," segir Gunnar. -jtr Fé til sambýla Sambýli fyrir þroskahefta á höf- uðborgarsvæðinu verða byggð á næst- unni og hefur fé verið tryggt svo framkvæmdir geti hafist. Þetta kom fram á fundi Hall- dórs Asgrímssonar utanríkisráð- herra og foreldra þroskaheftra bama í Reykjavík og nágrenni. Mbl. greindi frá. Hætt komin í koju Sex ára stúlka var hætt komin i efri koju í sumarbústað nú um hvítasunnuhelgina. Hún rann í svefni að öryggisgrind í kojunni og skorðaðist þar með höfuðið milli rimla og hékk á höfðinu. Eldri bróð- ir hennar gat bjargað henni en litlu mátti muna. 55% Ijúka námi Samkvæmt nýrri skýrslu mennta- málaráðuneytisins er brottfall úr ís- lenskum framhalds- skólum meira en í nágrannalöndum eða sem nemur 45 prósentum. Björn Bjamason menntamálaráðherra segir þetta engin ný tíðindi. Vísir.is greindi frá. Flugleiðir hætta akstri Flugleiðir hafa ákveðið að hætta akstri með farþega til og frá flugvél- um. Þetta er gert vegna hótana um aðgerðir verkalýðsfélaga. Félagið telur sig engu að síður vera í fullum rétti til að sinna akstrinum og segir aðgerðir til að stöðva hann ólögleg- ar. Vísir.is greindi frá. Undanþága frá Sleipni? Kristnihátíðarnefnd ætlar að óska eftir undanþágu frá verkfalli Sleipnis til fólksflutninga á Kristni- hátíð helgina 1. og 2. júlí nk. Gert er ráð fyrir að flytja 10 til 14 þúsund manns í rútum þessa helgi, bæði þá sem ætla að heimsækja hátíðina, starfsmenn og þá sem koma fram. Sleipnismenn segja réttinn til verk- falls nú þegar hafa verið tekinn af þeim með lögbanni Sýslumanns í Reykjavík. RÚV greindi frá. Vandlátari á störf Að sögn Eyrúnar Maríu Rúnars- dóttur, rekstrarstjóra Atvinnumið- stöðvarinnar, skrá sig hjá þeim um 10 námsmenn á hverjum degi í júní- mánuði sem eru í leit að sumar- starfl. Eyrún sagði tölurnar svipað- ar og á sama tíma í fyrra. í ljósi at- vinnuástandsins verði þó að telja að verulegur fjöldi námsmanna sé enn að leita sér að sumarstarfi. Mbl.is greindi frá. Dyggðir og lestir Niðurstöður könnunar á dyggð- um og lestum íslendinga er það sem fjallað verður um á Leiðarþingi Framtíðarstofnunar, Biskupsstofu og Reykjavíkurakademíunnar í kvöld. Yfirskriftin er: Lífsviðhorf ís- lendinga - trú og visindi í íslensku samhengi. Dagur greindi frá. Léleg laxveiði Laxveiði hefur verið dræm það sem af er sumri en laxveiðitímabilið er nýhafið. Morgunblaðið greindi frá. Mótmæla uppsögn Björns Stjóm Verkalýðs- félags Snæfellsbæj- ar sendi í gærkvöld frá sér fréttatil- kynningu þar sem hún lýsir yfir megnri andstyggð á dæmalausum vinnubrögöum meirihluta VMSÍ við að hrekja for- mann sambandsins frá störfum. Vísir.is greindi frá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.