Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2000, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2000, Blaðsíða 8
Viðskipti________________________ Umsjón: Viðskiptablaðiö Breytingará Úrvalsvísitölunni - Össur, Opin kerfi og Skeljungur inn í stað ÚA og Olíufélagsins Þrjú ný félög koma inn i Úrvals- vísitöluna sem tekur breytingum þann 1. júlí næstkomandi, Össur, Opin kerfi og Skeljungur. Það verða þó aðeins tvö félög sem detta út úr úrvalsvísitölunni að þessu sinni en það eru ÚA og Olíufélagið. Ástæða þess að fleiri félög koma inn heldur en detta út er sú að vegna sameiningar íslandsbanka og FBA i byrjun apríl sl. eru í raun aðeins 14 félög í vísitölunni í stað þess að vera 15 eins og venjulega. Af félögunum sem eru að koma inn í vísitöluna í fyrsta sinn er Össur að koma inn í fyrsta skipti en hin félögin hafa verið í henni áður. Engin atvinnugrein dettur út úr Úrvalsvísitölunni en upplýs- ingatækni kemur inn í hana. Úrvalsvísitala VÞÍ er vísitala sem samanstendur af fimmtán fé- lögum er skráð eru á Aðallista VÞÍ. Valið i visitöluna fer fram tvisvar á ári og skiptast tímabilin þann 1. janúar og 1. júlí ár hvert. Af þeim 20 félögum á Aðallista þingsins sem tíðust viðskipti eru með á þinginu á tólf mánaða tíma- bili eru það 15 stærstu félögin að markaðsverðmæti i lok timabilsins sem mynda Úrvalsvísitöluna næstu sex mánuði. Úrvalsvísitalan er því samsett af þeim félögum sem hafa hvað virkasta verðmyndun á þinginu en Verðbréfaþingið leggur þó áherslu á að val í Úrvalsvísitöluna beri að öðru leyti ekki að túlka sem gæða- stimpil á viðkomandi hlutabréf. Annars mun Úrvalsvísitala VÞÍ á næsta tímabili lita út sem segir í meðfylgjandi töflu. llHHIII— I I III Sjóvá-Almennar á Aöallista VÞÍ Hlutabréf Sjóvár-Almennra voru skráð á Aðallista Verðbréfaþingsins í morgun. Skráð hlutafé er 585 m.kr. að nafnverði. Auðkenni fé- lagsins er „HL/SJOVALM“. Miðað við að gengi bréfa félagsins á opna tilboðsmarkaðnum var, þegar þetta var ritað, um 44 er markaðsverð- mæti þess, um 25,7 milljarðar króna ,og V/H-gildi þess því um 74. Félag- ið er því orðið, miðað við markaðs- verðmæti, það fjórða stærsta á VÞÍ. Til samanburðar er V/H-gildi Tryggingamiðstöðvarinnar nú um 51 og markaðsverðmæti þess um 12 milljarðar króna. Hafa ber þó í huga að í árslok 1999 nam samtals eign Sjóvár-Almennra um 17,5 millj- örðum króna. í skráningarlýsingu félagsins kemur fram að bókfærð iögjöld fyrsta ársfjórðungs 2000 hafi numið 2.262 m.kr. og hafi aukist um tæp 17% miðað við sama tíma 1999. Samsvarandi hækkun var 6% árið áður. Bókfært tjón fyrsta ársfjórð- ungs 2000 nam 1.377 m.kr. sem svar- ar til 43% hækkunar milli ára. í bráðabirgðarekstraráætlun fyrir árið 2000 er gert ráð fyrir að afkoma félagsins í vátryggingarekstri verði með svipuðum hætti eða jafnvel heldur lakari en árið 1999. Aftur á móti er gert ráð fyrir tals- verðum hagnaði af sölu fjárfestinga og fram kemur að mestum hluta hans verði varið til að styrkja út- jöfnunarskuld félagsins. Fram kem- ur jafnframt að líklegt sé að rekstr- arafkoma félagsins geti orðið betri á þessu ári en á því síðasta. Á síð- asta ári skilaði félagið um 346 m.kr. hagnaði sem var um 25% samdrátt- ur milli ára. Hagnaður af vátrygg- ingarekstri nam um 134 m.kr. og dróst saman um rúm 20%. Félag Atvinnugrein Markaðsvirði Vægi í vísitölu Velta í millj. (12 mán.) Íslandsbanki-FBA hf. Fjármál og tryggingar 50.000 20,3% 11.978 Hf. Eimskipafélag íslands Samgöngur 31.496 12,8% 4.574 Landsbanki íslands hf. Fjármál og tryggingar 27.820 11,3% 5.401 Búnaðarbanki íslands hf. Fjármál og tryggingar 20.910 8,5% 2.021 Össur hf. Iðnaður og framleiðsla 18.628 7,6% 3.404 Baugur hf. Þjónusta og verslun 13.807 5,6% 2.238 Samherji hf. Sjávarútvegur 12.235 5,0% 3.089 Tryggingamiðstöðin hf. Fjármál og tryggingar 12.005 4,9% 1.678 Marel hf. Iðnaður og framleiðsla 11.130 4,5% 3.156 Opin kerfi hf. Upplýsingatækni 10.710 4,3% 2.804 Grandi hf. Sjávarútvegur 9.465 3,8% 1.272 Flugleiðir hf. Samgöngur 7.728 3,1% 3.309 Skeljungur hf. Olíudreifing 7.441 3,0% 578 Þormóður rammi-Sæberg hf. Sjávarútvegur 7.085 2,9% 1.040 SÍF hf. Sjávarútvegur 5.915 2,4% 2.335 Samtals 246.375 100,0% 48.876 Verð á hráolíu hátt um þessar mundir - útlit fyrir aö verð á olíu haldist hátt í morgunpunktum Kaupþings í gær kom fram að verð á hráol- íu hefði hækkað síðustu daga og á mánudag hefði verð á tunnu farið i 31,75 dollar. Verð á bens- íni hefði að sama skapi hækkað talsvert en eftirspurn væri mjög mikil nú á sumarmánuðum og héldist væntanlega mikil fram á haustið. Á mánudag hækkuðu hlutabréf olíufélaga í Bandaríkj- unum en almennt lækkuðu hlutabréf í verði þar vestra. „Þar sem olíu- og bensínverð hefur verið mjög hátt á árinu er gert ráð fyrir að hagnaður þeirra haldist hár og að afkoma á öðr- um ársfjórðungi verði góð. Full- trúar OPEC-ríkjanna hittust síð- ast í lok mars og ákváðu þá að ef verð á tunnu færi upp fyrir 28 dollara þá myndu þeir auka framboð um 500 þúsund tunnur á dag. Þeir hafa hins vegar ekki brugðist við þessum hækkunum og er talið að ekkert verði að- hafst fyrr en seinni part júni- mánaðar en þann 21. júní munu fúlltrúar OPEC hittast i Vín og ákveða hvort og hve mikið skuli auka framleiðsluna," sagði í morgunpunktum Kaupþings. „Fram að fundinum er búist við að verð haldist hátt en það sem menn hafa mestar áhyggjur af er að þó svo að OPEC auki fram- leiðslu þá sé of seint brugðist við þeirri miklu eftirspurn sem nú er. Frá því far- ið er að pumpa meiri olíu upp þarf að flytja hana til neytenda og vinna úr henni bensín. Þetta ferli tekur að minnsta kosti sex vikur þannig að auk- ið framboð og væntanlega lægra verð myndi ekki skila sér fyrr en í sumar- lok. Auk þess telja sérfræðingar að aukið framboð, um 500 þúsund tunnur, sé ekki nægjanlega mikið þar sem birgðir í Bandaríkjunum eru mjög litl- ar um þessar mundir og eftirspurn er almennt að aukast í heiminum með auknum hagvexti og aukinni bdaeign," segir Kaupþing. Á laugardag hófst verkfall olíu- verkamanna í Noregi og ýtti það enn frekar undir hækkun á olíuverði. Útlit- ið fyrir bifreiðaeigendur hér á landi, sem og annars staðar í heiminum, er því ekkert sérstaklega bjart um þessar mundir. Áhugavert verður að fylgjast með fundi OPEC þann 21. júní og munu vangaveltur manna um hver niðurstaða fundarins verður hafa nokkur áhrif á markaðinn næstu daga. Óvissan mun væntanlega verða til þess að verð helst hátt fram að fundinum. Út frá ofangreindu er ekki ólíklegt að við sjáum enn eina bensinhækkunina um næstu mánaðamót en siðast hækk- aði bensinlítrinn um mánaðamótin maí/júni um 3,20 krónur. MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 I>V Þetta helst__________j «E3333aa3BEBa HEILDARVIÐSKIPTI 608 m.kr. | Hlutabréf 159 m.kr 1 Ríkisbréf 261 m.kr. MEST VIÐSKIPTI Húsasmiðjan 38 m.kr. 0 Landsbankinn 35 m.kr. 0lslandsbanki-FBA 19 m.kr. MESTA HÆKKUN QHéðinn 3,7% Qíslenskir aðalverktakar 3,2% ©ÚA 2,6% i MESTA LÆKKUN ©Tryggingamiðstöðin 5,8% 0 Þorbjörn 5,2% ©Skagstrendingur 5,0% ÚRVALSVÍSITALAN 1.512 stig - Breyting © 0,73% ESB rannsakar kreditkorta- geirann Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins hefur staðfest að fram fari rannsókn á starfsemi kreditkorta- fyrirtækja i Evrópu. Rannsóknin beinist m.a. að þeim þóknunum sem bankar greiða hver öðrum og að samskiptum kreditkortafyrirtækja og verslana. Gert er ráð fyrir að rannsókninni ljúki fyrir áramót. Eins og fram hefur komið í fjölmiðl- um stendur bandaríska dómsmála- ráðuneytið nú í málaferlum við VISA og Mastercard í Bandaríkjun- 1 MESTU VIÐSKIPTI19 síöastlidna 30 daea o o o o o síöastliöna 30 daza | © Samvinnuf. Landsýn 17 % j | Q Nýherji 13% i ©Tæknival 11% i © Stálsmiðjan 9% i 0 Frumherji 8% síöastliöna 30 daga í O Rskm. Breiðafj. hf. -26 % i Q Loðnuvinnslan hf. -20 % i © SÍF -13 % : O Vinnslustöðin -12 % i © Eimskip -11 % China Unicom í samstarf viö Vodafone China Unicom, sem er annað stærsta símafyrirtæki Kína, hefur gert samstarfssamning við breska far- símafyrirtækið Vodafone um samstarf fyrirtækjanna við rekstur farsíma- kerfa í Kína. China Unicom hyggur á skráningu hlutabréfa á markað i Hong Kong á næstunni og eru uppi áform um sölu 2,83 milljón hluta fyrir allt að 5,8 milljarða Bandaríkjadala. Enikkei S&P NASDAQ DAX I JÍCAC 40 IBggHfffflEL O O o o o o o TU HLUTA DOWJONES 10621,84 16654,42 1469,44 3851,06 6478,80 7265,60 6531,05 0,55% 1,54% 1,62% 2,21% 0,49% 0,05% 0,03% PBMl 14.6.2000 kl. 9.15 KAUP SALA Hffjpollar 75,440 75,820 j-jr/Pund 114,350 114,940 1*1 Kan. dollar 51,230 51,550 ; Dönak kr. 9,7200 9,7730 Rr^Norsk kr 8,7480 8,7960 ESsænsk kr. 8,7440 8,7920 f*ÖFi. matk 12,1918 12,2651 Ljfra. franki 11,0509 11,1173 1 Belg. franki 1,7970 1,8078 m Sviss. franki 46,3800 46,6300 a^Hoil. gyllini 32,8943 33,0919 jjjÞýskt mark 37,0633 37,2860 lú. líra 0,03744 0,03766 1 T Aust. sch. 5,2680 5,2997 p.JPort. escudo 0,3616 0,3637 iXZjSpá. peseti 0,4357 0,4383 1 ♦ Jap. yen 0,70880 0,71310 I irskt pund 92,042 92,595 SDR 100,6800 101,2900 EÍECU 72,4894 72,9250

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.