Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2000, Side 12
12
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
Skoðun DV
Heyrnardaufir þurfa líka athygli
- Allir jafnir fyrir framan sjónvarpiö.
Hvers eiga heyrnardaufir að gjalda?
Spurning dagsins
Hvað gerðirðu yfir
hvítasunnuna?
Sigurður Halldórsson verkamaður:
Á eilífum þvælingi og í afslöppun.
Jón Heiöar Daöason skrifstofumaður:
Ég var aö útskrifast á laugardaginn
frá Háskólanum á Akureyri
og mikiö fjör.
Guölaug Baldursdóttir
skrifstofumaður:
Var heima, vann og var aö stússast
meö börnin.
Sigrún Björg Ingþórsdóttir
leikskólastjóri:
Ég var í afsiöppun og fjallaferö í
sumarbústaönum og þaö var ofsa-
lega gaman.
Erna Jóna Guömundsdóttir, 9 ára:
Ég fór í glerkúluspiliö á laugardag
og slappaöi svo bara af.
Eymar Jónsson nemi:
Ég var aö vinna úti í Viöey.
Á. í.
skrifar:
Undanfama daga hefur verið um-
ræða í fjölmiðlum um kjör heymar-
lausra. Ég tek fram að innan minnar
fjölskyldu er ekki heymarlaus ein-
staklingur. Mér getur samt sem áður
ekki annað en blöskrað hvað þessu
fólki er mismunað í þjóðfélaginu. Aö
það skuli einungis vera um 6
klukkustundum á ári úthlutað á ein-
stakling i fjárframlögum til að geta
notfært sér túlk ef á þarf að halda.
Eins líka að Ríkissjónvarpið býð-
ur einungis upp á einhverjar 10
mínútur á dag fyrir heymarlaust
fólk. Hvað um bömin og hvemig
stendur á því að ég sé aldrei tákn-
málstúlkað bamaefni fyrir þá aðila
sem notfæra sér þessa dagskrá? Ég
get ekki ímyndað mér að heyrnar-
Halldóra
skrifar:
Þaö hefur verið sagt frá því í fjöl-
miðlum undanfarið að myndatöku-
maður hafi tekiö myndir af pari í ást-
arleik og sett þær á Netið og verið
kærður fyrir. Það hefur reyndar
komið í ljós að myndatökumaðurinn
dreifði þeim ekki á Netinu, en það er
annað mál. En er ekki verið að fara
fram á að bakari verði hengdur fyrir
smið í þessu máli? - Ég hefði haldið
að það hafi verið þau sem vom að
brjóta lög með athæfi sínu. Þú getur
ekki gert hvað sem er á almannafæri
þótt þú sért inni í bíl.
Mér fmnst það ekki trúlegt sem
konan hefur haldið fram, að þau hafi
„Ég get ekki ímyndad mér
ad heyrnarlaust barn hafi
eins gaman af að horfa
á bamaefni og böm
sem heyra það sem
verið að segja. “
laust barn hafi eins gaman af að
horfa á barnaefni og börn sem
heyra það sem verið er að segja.
Með þessu er ég ekki að segja að
heyrnarlaus börn hafi ekki gaman
af bamaefni. Að sjálfsögðu á þessi
rándýra ríkisrekna stofnun sem
Ríkisútvarpið er alls ekki aö gera
upp á milli þjóðfélagsþegna sinna.
Mér finnst vera illa komið fram við
þessa einstaklinga. Ég get líka vel
„Menn hafa verið kcerðir
fyrir að fletta sig klceðum.
En hvað þá um að stunda
kynlif á almannafœri?“
haldið að ekkert fólk væri þarna á
þessum tíma (í hádeginu í miðri
viku?). Þau leggja bílnum fyrir utan
glugga á kaffistofu í stóra iðnaðar-
húsnæði (eini glugginn á allri hlið-
inni!) og athafna sig þar, þótt um-
gangur hafi verið við húsið. Það
læddist að mér sá grunur, eftir að ég
heyrði í stúlkunni í morgunþættin-
um Hvati og félagar á fm 957, að það
hafi líka verið aðal„kikkið“. Þar seg-
skilið að það sé hugsanlega of dýrt
að hafa manneskju í því starfi að
túlka á táknmál allt efni en það ætti
hins vegar að vera lítið mál að vera
með texta á efninu, og þá ekki ein-
ungis á íslenskum kvikmyndum.
Heymarlaust fólk langar alveg
jafnmikið til að geta fylgt þræði
myndar, nákvæmlega eins og við
hin. Ekki bara að lesa af vörum það
sem þau ná en geta síðan i eyðurnar.
Ég hvet Ríkissjónvarpið til þess
að vera frumkvöðull í þessa máli og
að sjálfsögðu á Ríkissjónvarpið að
vera fyrst til að bæta þetta. Auðvit-
að væri hið besta mál að Stöð 2 og
Skjár 1 fylgdu í kjölfarið. - Nú eða
þá að vera fyrri til og koma til móts
við hina heymardaufu einstaklinga
þjóðarinnar með þeim hætti sem
hér hefur verið rætt.
ist hún vera smá „kinkí“ og að henni
finnist svolítið spennandi að vera að
þessu (að stunda kynlíf á almanna-
færi?). - Og þar með viðurkennir hún
sekt sína.
Menn hafa verið kærðir fyrir að
fletta sig klæðum. En hvað þá um að
stunda kynlíf á almannafæri? Sam-
bærilegt var þegar frægur leikari var
handtekinn ásamt lagskonu sinni
fyrir sams konar athæfi í Ameríku.
Og nú sér stúlkan eftir öllu saman
og talar um að búið sé að eyðileggja
mannorð hennar. Hún sá nú alfarið
um það sjálf að mínu mati, og hafði
gaman af. Að lokum eitt enn: maður
kennir ekki öðrum um skítinn i eig-
in buxum.
Ástarleikur á almannafæri
Dagfarí
Vér mótmælum þessu - flestallir...
íþróttadeild Ríkissjónvarpsins hefur sannarlega
vaxið fiskur um hrygg og er eiginlega vaxin for-
eldrinu yflr höfuð. Það sem einu sinni var
skemmtileg hliðardeild við fréttastofuna er nú
gjörsamlega búið að taka öll völd á stofnuninni.
Bjarni Fel þótti oft og tíðum sýna fádæmahörku
fyrir sinn málstað er hann reyndi að ota fram
sínu höfuðáhugamáli, sparkíþróttunum, á kostnað
almennra frétta. Hann var kominn á gott skrið er
Sjónvarpið klúðraði til allrar lukku samningum
við Breta um ensku knattspyrnuna. Þar með
missti „Rauða ljónið" sína helstu skrautfjöður og
vörpuðu sparkíþróttaandstæðingar þá öndinni létt-
ar. Enski boltinn fór yfir á Stöð tvö en það merki-
lega gerðist að þar virðist minna bera á árekstrum
íþrótta og frétta.
Við missi enska boltans úr Sjónvarpinu héldu
antisportistar uppranna gósentíð með fleiri fréttir
og lengri fréttatíma. Það varð samt alls ekki raun-
in. Ingólfur Hannesson, fyrram lærlingur Bjarna
Fel, lærði sannarlega lexíumar sínar og þrátt fyr-
ir að missa enska boltann tókst honum svo gott
sem að útrýma almennum fréttum úr sjónvarpinu.
Ef það er ekki Evrópukeppni i fótbolta eða hand-
bolta, þá er heimsmeistarakeppni eða Ólympíu-
leikar. Allt skal þetta látið i forgangsröð á besta
útsendingartíma. Þó vitað sé að Bogi Ágústsson
Ef það er ekki Evrópukeppni í fót-
bolta eða handbolta, þá er heims-
meistarakeppni eða Ólympíuleikar.
Allt skal þetta látið í forgangsröð á
besta útsendingartíma.
hafi gaman af fótbolta í hófi, þá þykir Dagfara
hlutskipti hans orðið æði aumkunarvert sem upp-
fyllingardagskrárstjóri íþróttaþáttanna.
Meintir unnendur þessa leikaraskapar með
tuðrur og hvað það nú heitir allt saman standa nú
með pálmann í höndum. Búið er að breyta Ríkis-
sjónvarpinu í hreina íþróttarás þar sem venjuleg-
ar fréttir era orðnar að innslagi upp á grin á milli
iþróttaviðburða. Er því svo komið að venjulegt
fólk, sem lengst að hefur verið sauðtryggir stuðn-
ingsmenn Ríkisútvarps og Sjónvarps, er búið að fá
gjörsamlega nóg. Það er búið að slökkva endan-
lega á „Gufudraslinu" og hefur skipt alfarið yfir á
Stöð tvö eða Skjá einn þar sem því er viðkomið.
Eigendur Stöðvar tvö sáu þó sóma sinn í því að
flytja megnið af íþróttunum yfir á sérstaka rás
sem fólki er í sjálfs vald sett hvort það kaupir eða
ekki. Þessu er ekki að heilsa hjá ríkisstöðinni. Eft-
ir sitja allir sjónvarpsnotendur með kostnaðinn
vegna ríkisstöðvanna.
Svo er t.d. gamalt fólk í afskekktum byggðum,
þar sem ekkert er í boði nema gamla Gufan. Þaö
er þvingað tU, með gjömingi Alþingis, að borga
fyrir endalausar sparkíþróttir hvort sem því líkar
þaö betur eða verr. Á sama tíma er fostum þáttum
eins og fréttum kastað til hliðar svo engin leið er
lengur að stóla á dagskrána, ekki einu sinni veðr-
ið, og heyannir fram undan. Vér mótmælum þessu
- flestallir...
Ingibjörg Sólrún borgarstjóri
- Nokkur sundtök i volgrunni
nægja ekki.
Ingibjörg efni
sundloforðið
Gylfi skrifar:
Mönnum er það enn í fersku
minni er Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir borgarstjóri hét því að synda yfir
Nauthólsvíkina. Nú er komið babb í
bátinn, hún er að draga loforðið til
baka með því að ætla að taka fáein
sundtök í nýrri volgru sem búið er
að útbúa fyrir hana og aðra á svæð-
inu við Nauthólsvíkina. Þetta er nú
loforð í lagi, eða hitt þó heldur! Ingi-
björg Sólrún verður að gera betur
en þetta ef hún ætlar að höfða tfl
borgarbúa með loforðunum fyrir
næstu borgarstjómarkosningar.
Ósvífni Sleipnis-
manna
Fanney Halldðrsdóttir skrifar:
Ég get ekki orða bundist yfir
ósvífninni í þeim félagsmönnum
Sleipnis sem eru að keyra þrátt fyr-
ir verkfall. Það væri fróðlegt að vita
hvort hinir sömu hafi nokkum tím-
ann þurft að leita tU stéttarfélags
síns með einhver mál, þegar þeir
töldu vinnuveitendur vera að
hlunnfara sig, og sjálfsagt fengið
leiðréttingu mála sinna með hjálp
félagsins? Sé svo, fmnst mér þessir
menn ósamkvæmir sjálfum sér, að
vinna í verkfallinu og fá laun en
láta aðra félagsmenn um það að
vera launalausa, berjast og hafa fyr-
ir því að fá betri kjör. Er þessu
verkfaUi lýkur þá taka hinir sömu
menn feginshendi viö þeirri launa-
hækkun ásamt svo ýmsu öðru sem
að kemst í gegn í þessum kjaravið-
ræðum. Lesi einhver þeirra þetta
bendi ég þeim á að þeir hafa ekkert
lagt tU málanna, hafist eitthvað í
gegn, hvað svo sem það verður.
Skemmtiferðaskipin streyma að
Þaö er af sem áöur var - fyrir
íslendinga.
Meö skipi frá
Reykjavík
Ármann skrifar:
Nú eru skemmtiferðaskipin að
koma tU Reykjavíkur hvert á eftir
öðru. Það er sárt að sjá þessi glæsi-
legu fley og farþegana í veUysting-
um og geta ekki fengið far með
svona skipum héðan frá sama stað.
Það er af sem áður var þegar GuU-
foss, Dronning Alexandrine, Hekla
og Esja, aUt farþegaskip sem buðu
upp á ferðir ýmist til útlanda eða í
kringum landið - og aUtaf farið frá
þeim sama stað og skemmtiferða-
skipin liggja nú. Ég skora á þá aðila
sem hafa með þessi skip að gera að
gefa okkur kost á að fara með skip-
unum héðan þegar og ef laust pláss
er. Þetta mætti auglýsa jafnóðum
eða nokkrum dögum áöur. Margir
myndu slá tU og kaupa sér far.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.ls
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 ReyKjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.