Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2000, Qupperneq 28
5
Ævintýraleg tjöld
fyrir Börnin
Sími 567 4151
Heildverslun með
leikföng og gjafavörur
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað T DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
Ólgan innan VMSÍ:
Rottugengið burt
„Ég hef alltaf varað við þessu rottu-
gengi sem leikur lausum hala í verka-
lýöshreyfingunni og þá sérstaklega í
Verkamannasambandinu," sagði Ei-
■w ríkur Stefánsson, formaður Verka-
lýðs- og sjómannafélags Fáskrúðs-
fjarðar, við DV.
Mikil ólga er innan Verkamanna-
sambands íslands vegna uppsagnar
Bjöms Grétars Sveinssonar. Verka-
lýðsfélag Snæfellsbæjar hefur lýst
megnri andstyggð á vinnubrögðum
VMSÍ við að hrekja hann frá störfum.
Aðrir hafa lýst andstöðu við starfs-
lokasamning við Björn Grétar upp á
fimm milljónir sem gerður var á laun.
„Þetta rottugengi hefur unnið með
óþverrahætti gegn fullt af fólki en yf-
irleitt með Bimi Grétari," sagði Eirík-
ur. „Nú ber svo við að þeir taka sinn
eigin félaga af lífi. Þetta er ekkert ann-
að en bylting. Það verður aldrei al-
mennilegur andi í nýjum heildarsam-
tökum með ákveðna menn innan-
borðs. Þeir verða að hætta.“
Eirtíkur kvaðst ekki vilja nafn-
greina þá 4-5 menn sem hann ætti við
en allir vissu um hverja væri að ræða.
„Það er ekki auðvelt að losna við
þessa menn. Þeir koma frá stórum fé-
lögum og hafa mikið á bak viö sig. En
ef þessi óánægja sem uppi er nú lifir
áfram í einhverjar vikur í viðbót þá
hlýtur hún að verða til þess að þess-
um mönnum verði skákað frá a.m.k.
völdurn í nýju sambandi. Reynsla mín
m er þó sú að menn hafi ekki þá stað-
festu tO að bera að halda áfram alla
leið og klára verkið." -JSS
Gilding fjárfestingarfélag:
Heimir ráðinn
Heimir V. Haraldsson hefur verið
ráðinnn framkvæmdastjóri hins ný-
stofnaða íjárfestingarfélags Gildingar.
Heimir kemur frá KPMG Endurskoð-
un hf. þar sem hann hefur starfað síð-
an 1976.
Heimir er 45 ára gamali og útskrif-
aðist sem viðskiptafræðingur frá Há-
skóla íslands árið 1979. Hann hefur
verið löggiltur endurskoðandi síðan
1982 og meðeigandi KPMG síöan 1984.
> -HKr.
Banaslys á Akra-
nesi í gærkvöld
Banaslys varð um klukkan 22.20 í
gærkvöldi á mótum Kirkjubrautar
og Akurgerðis á Akranesi.
Slysið varð með þeim hætti að
bifhjól, sem ekið var suðvestur
Kirkjubraut, skall á bíl sem ekiö
var frá Akurgerði inn á Kirkju-
braut. Ökumaður bifhjólsins, maður
á 24. aldursári, lést við áreksturinn.
Tvennt var í bifreiðinni en hvorugt
slasaðist.
Nafn hins látna hefur ekki verið
\ gefið upp. Lögreglan á Akranesi
rannsakar nú tildrög slyssins.
-SMK
DV- MYND EINAR J.
Þensla á byggingamarkaði
Það er engin lognmolla I byggingariönaöinum í Reykjavík um þessar mundir. Hafnar eru framkvæmdir viö smiöi hundraöa smáhýsa í borginni. Þessi mynd var
tekin af framkvæmdum viö Hlíöaskóla í gær. Þó húsbyggjendur séu allir ungir aö árum er ekki síður þensla hjá þeim en hinum eldri.
Stóru tryggingarfélögin undirbúa hækkun iðgjalda ökutækjatrygginga:
Bílatryggingar hækka
- félögin halda að sér spilunum en heimildir segja 15% hækkun í bígerð
Sjóvá-Almennar
hf. undirbýr nú
verulega hækkun
iðgjalda af öku-
tækjatryggingum
og sama gildir um
VÍS hf. og Trygg-
ingamiðstöðina hf.
Hins vegar eru
engin áform sögð
vera um hækkanir
að sinni hjá FÍB-
tryggingum.
Ekki fæst stað-
fest hversu mikil hækkunin verður
eða hvenær hún tekur gildi. Óstaðfest-
ar heimOdir DV herma þó að að
hækkunin muni nema um 15% en
ökutækjatryggingarnar hafa verið
gerðar upp með nokkru tapi á undan-
förnum árum sem forráðamenn trygg-
ingafélaganna hafa lýst sem óásættan-
legu enda lengi boðað hækkanir.
Fyrirætlanir Sjóvá-Almennra koma
fram í skráningarlýsingu félagsins
vegna fyrirhugaðrar skráningar þess
á Verðbréfaþing íslands. Þar segir að
haUareksturinn á lögboðnum öku-
tækjatryggingum hafi numið 299
miOjónum króna og hallinn á öðrum
Skoöum máliö
heildstætt.
Undirbyggjum steinsson
máliö vel. Engar hækkanir
---------- hjá FÍB.
ökutækjatryggingum 31 miUjón á ár-
inu 1999.1 skráningarlýsingunni segir
að þrátt fyrir verulega hækkun ið-
gjalda í júni í fyrra sé um áframhald-
andi halla að ræða á þessu sviði og
þvi sé hækkun iðgjalda hjá félaginu í
undirbúningi.
Óvíst að núllið nálst
Eflir að sala FÍB-trygginga hófst
árið 1996 fylgdu umtalsverðar lækkan-
ir á iðgjöldum stóru tryggingafélag-
anna í kjölfarið en iðgjöldin hafa hins
vegar hækkað mikið á ný. Síðasta og
mesta hækkunin, fyrir utan vísitölu-
bundnar hækkanir, var 1. júní í fyrra
þegar tryggingafélögin hækkuðu ið-
gjöld sínum um á bOinu 35 tO 40% og
skýrðu þá hækkun með breytingum
sem Alþingi haíði gert á skaðabótalög-
um.
Einar Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Sjóvá-Almennra, segir fyrirhug-
aða hækkun hafa verið rædda á aðal-
fundi félagsins í mars og segist ekkert
annað vOja segja um stöðu málsins nú
en að það sé tO heOdstæðrar skoðun-
ar hjá félaginu. Hann áréttar enn
fremur að ljóst sé að þessi grein sé
rekin með óviðunandi og alvarlegu
tapi. Tap Sjóvá-Almennra af lögboðn-
um ökutækjatryggingum nam um
16% af heOdariðgjöldum í fyrra.
Einar segir að ekki hafi verið
ákveðið hversu mikil iðgjaldahækk-
unin hjá Sjóvá-Almennum verði og að
óvist sé að hún muni nægja til að
snúa rekstrarstöðunni við. Hann seg-
ir að menn geti kallast góðir nái þeir
að nálgast núOið.
FÍB áformar ekki hækkun
Baldvin Hafsteinsson hjá Alþjóð-
legri miðlun ehf. segir engui teikn á
lofti um hækkanir á FÍB-tryggingum
Lloyd’s sem félagið hefur umboð fyrir.
Fólk úr flestum verkalýösfélögum komið á rútur:
Skúringakona í okkar starf
- segir Óskar Stefánsson, formaður Sleipnis
í gær fengu tvö fyrirtæki tO við-
bótar lögbannsúrskurö á aðgerðir
Sleipnis en það voru HópbOar hf.
og Hagvagnar hf.
Að sögn Óskars Stefánssonar,
formanns Sleipnis, er eitt lögbann
enn í burðarliðunum en honum er
gert að mæta klukkan 3 í dag til
sýslumanns vegna lögbannsbeiðni
Allrahanda hf.
í samtali við DV sagði Óskar
Stefánsson, formaður Sleipnis, að
þetta yrði síður en svo tO að draga
kjark úr liðsmönnum Sleipnis.
„Norræna
flutningaverka-
mannasamband-
ið fer bráðum
inn í málið og
svo höfum við
verið að leita
eftir stuðningi
annarra félaga.
Við erum búnir
að búa okkur
undir mánuð
enn í verkfaOi og það verða þá
slagsmál fyrir framan nefið á út-
Óskar
Stefánsson.
lendingum þangað tO það leysist,"
segir Óskar.
Hann segir vera vegið að verk-'
faflsréttinum þar sem möguleiki er
gefinn á að skipta um félög og
halda áfram að vinna þannig og
hann skorar á verkalýðsfélög að
gera gangskör að þvi að banna
þetta.
„Með fuOri virðingu fyrir skúr-
ingakonunni, þá er hún komin í
eitt starfið okkar,“ segir Óskar.
-jtr
„En ef það verður einhver umtals-
verð hækkun á markaði núna er sjálf-
sagt að láta okkar vátryggjendur er-
lendis vita af þeim og þeir meta þær.
En eins og staðan er í dag eru engin
áform uppi um að hækka,“ segir Bald-
vin.
Axel Gíslason, forstjóri VÍS, segir
engar ákvarðanir hafa verið teknar
um iðgjaldahækkanir félagsins. „En
við erum að huga að því hvað þarf að
gera í þeim málum. Þetta er geysOeg
vinna sem unnin er á mjög vandaðan
máta. Það er farið í gegn um margra
ára gagnasöfn tO að undirbyggja mál-
ið vel, að minnsta kosti er það þannig
hjá okkur,“ segir Axel og lætur ekkert
nánar uppi um áform VÍS.
í nóvember sl. gerði DV samanburð
á iðgjöldum tryggingafélaganna íjög-
urra. M.a. var tekið dæmi af grunnið-
gjaldi fyrir algenga bílgerð, Toyota
Corolla sedan 1,3, með fidlum bónus.
Iðgjaldið var á bflinu 31.700 krónur
(FÍB) tfl 44.460 (Sjóvá-Almennar). 15%
hækkun á öU þessi gjöld þýddi að þau
yrðu á bflinu 36.460 krónur til 51.130
króna. -GAR
Gæði og glæsileiki
smort
(sólbaistofaj
Grensásvegi 7, sími 533 3350.