Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 Fréttir DV Sleipnismenn halda fast í 50% hækkun við undirritun samnings: Vonlausar kröfur - engin leið að mæta þeim, segir Gísli Friðjónsson hjá Hagvögnum-Hópbílum Hjá Hagvögnum-Hópbíl- um hefur starfsemin legið að mestu niðri frá því að verkfall Sleipnismanna brast á 8. júní síðastliðinn. Að sögn Gisla Friðjónsson- ar, framkvæmdastjóra fyrir- tækisins, eru 50 bílstjórar á vegum þess meðlimir í Sleipni og einungis 12-14 manns sem standa utan fé- lagsins. „Það er lítil sem engin starfsemi á vegum fyrirtæk- isins og lítið fyrir okkur að gera annað en að bíta á jaxlinn," sagði Gísli í samtali við DV. Sleipnismenn halda fast í kröfur sínar sem kveða á um 50% launa- hækkun við undirritun samnings og Gísli Friðjónsson Fyrir okkur lítiö aö gera annaö en aö bíta á jaxlinn. 70% út samningstímann samkvæmt mati Samtaka atvinnulífsins. „Það er náttúrlega engin leið fyrir okkur að koma til móts við þessar kröfur og sem dæmi um það var launakostnaður Hagvagna í fyrra 140 milljónir króna þannig að 50% ofan á það myndu þýða 70 milljónir aukalega í launagreiðslur. Á sama tíma var hagnaður fyrirtækisins 12 milljónir svo að 58 milljónir vantar upp a. Gisli bendir á að olía hafi hækkað um 60 prósent frá því i janúar í fyrra, þungaskattur um 20% og tryggingar um 40%. „Við höfum reiknað það út að ef við eigum að samþykkja 10% launahækkun, sem við erum tilbúnir að gera, þurfa aðrir útgjaldaliðir fyr- irtækisins að lækka um 5% að með- altali. Ég sé ekki hvar sú lækkun á að eiga sér stað þannig að sú launa- hækkun ein er nógu mikil að ekki sé talað um 50 prósent." Að sögn Gísla hefur nokkuð borið á kvörtunum frá þeim sem ekki kom- ast leiðar sinnar vegna verkfallsins og segir Gísli að það bitni hvað harð- ast á þeim sem síst skyldi. Aðrir í sömu vandræðum Kristján Jónsson, framkvæmda- stjóri Kynnisferða, sagði í samtali við DV að verkfall Sleipnismanna hefði haft veruleg áhrif á starfsemi fyrirtækisins og ljóst að fjárhagslegt tjón af völdum þess væri mikið. Að- spurður sagði hann um 35 menn að störfum hjá fyrirtækinu sem ekki væru í Sleipni og að þeir mættu til vinnu eins og vant væri. Hins vegar væri ljóst að þetta ástand gengi ekki til eilífðar. Hjá Guðmundi Jónassyni og Teiti Jónassyni fengust þau svör að lág- marksstarfsemi væri haldið uppi en menn hefðu orðið að vísa fjölda verkefna frá vegna verkfallsins. Hjá Kristnihátíðarnefnd fengust þær upplýsingar að þrátt fyrir fögur lof- orð væri engan veginn unnt að bjóða upp á fríar rútuferðir til Þing- valla um næstu helgi og að einungis yrði ekið með hreinsunarmenn, kóra og aðra starfsmenn hátíðarinn- ar. -KGP Leigubílstjórar sakaðir um pínlega fégræðgi: Neituðu að keyra til Njarðvíkur - starfsstúlka Ökuleiða vísar ásökunum á bug Þetta voru ansi pínlegar mótttök- ur á ferðamönnum við komuna til landsins," segir Jóhann Bjömsson, starfsmaður í komusal Leifsstöðvar, sem sjálfur ók frönskum ferða- mönnum á gistiheimili í Innri- Njarðvík eftir að keflvískir leigubíl- stjórar höfðu neitað þeim um þjón- ustu. Jóhann segir að bílstjórarnir hafi neitað þar sem þeir vilji fremur langa og dýrari túra til höfuðborg- arsvæðisins. „Frönsku ferðamennimir höfðu ekki fengið annað hjólið sitt með fluginu en áttu von á því daginn eft- ir og var ráðlögð gisting í Innri- Njarðvík. Eini möguleikinn til að komast þangað er að taka leigubíl og þeir fóru út fyrir en komu fljótt inn aftur og sögðu að enginn vildi keyra þá. Ég fór út með þeim og þar biðu 15 til 20 leigubílar í röð. Bílstjórinn í fyrsta bílnum sagðist ekki geta keyrt þá þar sem hann tæki ekki hjól í bílinn og aðrir neituðu á þeim forsendum að fyrsti bílinn í röðinni ætti að taka túrinn. Einn sagðist reyndar mundu keyra Frakkana ef hinir bílstjóramir féllust á að hleypa honum aftur inn á sama stað í röðina að túmum loknum en von var á stórri vél eftir hálftíma. Hinir tóku það ekki í mál og á endanum gafst ég upp og ók þeim sjálfur á gistiheimilið," segir Jóhann og bæt- ir við að starfsfólk flugstöðvarinnar kunni fleiri slíkar sögur. Harkarar úr höfuöborginni Keflvísku leigubílastöðvarnar tvær, Aðalstöðin og Ökuleiðir, hafa einkcdeyfi til leigubílaaksturs frá flugstöðinni og ber þar með að sinna allri eðlilegri þjónustu. Akst- ur til Reykjavíkur gefur hins vegar um átta þúsund krónur af sér en akstur inn til Keflavíkur aðeins um eitt þúsund krónur. Bílstjórarnir keppast því við að ná sem flestum Reykjavíkurtúrum og sérstök upp- grip eru í þeim nú í Sleipnisverk- fallinu. Sumir bílstjóranna munu ná allt að átta ferðum til höfuðborg- arinnar á dag. Starfskona á Ökuleiðum, sem ekki vifl láta nafns síns getið, segist ekki kannast við að bílstjórar stöðv- arinnar neiti nokkrum manni um akstur. „Mínir bílar lenda alveg jafnt niðri í Keflavík. Þeir fara þá einfaldlega upp eftir aftur enda er brjálað að gera og þeir eru fljótir að renna í gegn. Þegar það er svona mikil keyrsla i gegn skiptir þetta engu máli og ég hef ekki orðið vör við aö menn hafi neitað einum einasta túr,“ segir hún. Starfskonan segir hins vegar að nokkur brögð séu að því i Sleipnis- verkfallinu að leigubílstjórar af höf- uðborgarsvæðinu séu að „laumast" til að að hinkra eftir farþegum við flugstöðina eftir að þeir hafi sjálfir flutt þangað farþega frá sínu eigin starfssvæði. „Þetta er okkar mín- útusvæði og þeir mega ekki vera að harka þetta en gera það samt þegar allt er orðið bíflaust og menn vita þetta,“ segir hún. -GAR Sumarleikur Feögar að leik í sundlaugunum í góöa veörinu á dögunum. Stóri-Kroppur ekki seldur: Bóndinn orðinn að- stoðarbankastjóri - í 4000 manna fjárfestingarbanka í Sviss DV, BORGARFIRÐI: Frá því var greint í Skessuhorni, fréttablaði Vestlendinga, að jörðin Stóri-Kroppur i eigu Jóns Kjartans- sonar væri seld. Væru kaupendur ung hjón á Suðurlandi og væri kaup- verðið um 45 milljónir. DV greindi frá þessu i stuttum fréttum. „Það er ekki rétt að það sé búið að selja Stóra-Kropp. Máíið er á við- ræðustigi en það hefur ekkert verið gengið frá neinum málum í því sam- bandi og ég vil ekki geta þess hverjir það eru sem ég er að ræða við en það er ekkert komið bindandi af minni hálfu né þeirra sem eru að spá í kaupin," sagði Jón á Stóra-Kroppi. - Er það rétt að þú sért orðinn að- stoðarbankastjóri úti í Zúrich í Sviss? „Já, ég er aðstoðarbankastjóri hjá Investek í Zúrich í Sviss. Ég starfa í verðbréfaviðskiptum, þetta er 4000 manna banki sem sérhæfir sig i vörslu og umsýslu verðbréfa fyrir viðskiptavini. Bankinn er í eigu aðila í Jóhann- esarborg í Suður-Afríku. Það er mjög stórt útibú bankans í London með um 1100 manns og við i Sviss erum í raun og veru dótturfyrirtæki London-deildarinnar en samtals vinna hjá þessu fyrirtæki um 4000 manns og ég er aðstoðarbankastjóri útibúsins í Sviss." -DVÓ Segjast aka hvert sem er „Einn sagöist reyndar mundu keyra Frakkana ef hinir bílstjórarnir féllust á aö hleypa honum aftur inn á sama staö í rööina aö túrnum loknum, “ segirJó- hann Björnsson, starfsmaöur í Leifsstöö. Lögreglan sinnir dýravernd Lögreglan í Reykjavík þurfti að hafa afskipti af andarungum og hestum um helgina. Á föstudaginn var tilkynnt um að útilistaverk, sem komið hefur verið fyrir á miðri brú í Víðidal fyrir neðan efstu stífluna og gefur frá sér morshljóð, hafi fælt tvo hesta, en hestamenn nota brúna. Tveir menn féllu af baki við atvikið. Lögreglan tilkynnti atvikið til borg- arstarfsmanna. Um hádegisbilið á laugardaginn var lögreglan kölluð til vegna fjög- urra andarunga í Garðastræti. Andamamma hafði yfirgefið þá og kettir höfðu uppgötvað ungana. Lög- reglan fór með ungana í Húsdýra- garðinn. -SMK Frá hommum til ráðherra Gunnar Þor- steinsson, forstöðu- maður Krossins, segir það vera merkilegt að drott- inn hafi fært sig og sitt fólk „frá homm- unum í Hestgjá yfir á paflinn hjá forsæt- isráðherra", eins nú hafi verið gert samkomulag um. Dagur sagði frá Áfrýjun í dópmáli Júlíus Kristófer Eggertsson, sem dæmdur var í fimm og hálfs ára fangelsi í stóra fíkniefnamálinu gegn neitun sakar, mun áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Kristján Stefánsson, verjandi Júlíusar, segir sakfellingu hans „hanga á horrim- inni“. Dagur sagði frá. Skot á samstarfsflokk Ummæli Halldórs Ásgrímssonar um að hefja beri af alvöru umræður um ísland og Evrópusambandið hafa vakið mikla athygli og Össur Skarphéðinsson túlkar þau m.a. sem skot á Davíð Oddsson. Dagur sagði frá. Á ystu mörku siðferöis Davíð Oddsson sagði að hefði til- raun spákaup- manna til að lækka gengi krónunnar tekist, hefði það get- að haft alvarlegar afleiðingar, m.a. á milliuppgjör fyrir- tækja og gengi hlutabréfa í þeim. „Manni finnst þetta vera á ystu mörkum þess sem unandi er við og viðskiptasiðferði á bak við slíka at- lögu er náttúrulega afar hæpið, svo ekki sé fastar að orði kveðið,“ sagði forsætisráðherra. Mbl. sagði frá. Alvarlegt mótorhjólaslys Alvarlegt bifhjólaslys varð á Nesjavaflavegi í Grafningi í gær- kvöld. Ökumaðurinn ók út af vegin- um og meiddist töluvert, en líðan hans er góð eftir atvikmn. Bylgjan greindi frá. Ekki Geysisgos Að sögn Þóris Sigurðssonar, um- sjónarmanns Geysissvæðisins, var ekki um raunverulegt Geysisgos að ræða þegar hverinn byrsti sig í gær. Aðeins sé hægt að kalla hræring- arnar Geysisgos ef hverinn tæmir sig algjörlega, sem gerðist ekki. Vís- ir.is sagði frá. Kristni takmarkar flug Flugmálastjórn íslands hefur, að beiðni Ríkislögreglustjóra, ákveðið að grípa til takmarkana á almennri flugumferð yfir Þingvöllum á með- an Kristnihátíð stendur yfir laugar- daginn 1. júlí og sunnudaginn 2. júlí nk. Vísir.is sagði frá. Moussaieff áhrifalaus Samkvæmt niðurstöðum könnun- ar sem ráðgjafarfyrirtækið PriceWaterHouseCoopers gerði á dögunum sögðust 80% þátttakenda ekki telja að samband Ólafs Ragn- ars Grímssonar, forseta íslands, og Dorritar Moussaieff hafa áhrif á for- setaembættið. Vísir.is sagði frá. Milljónir gegn barnaþrælkun Biskup íslands, Karl Sigurbjörns- son, afhenti í J Kirkjuhúsinu í dag þrjátíu milljónir króna til baráttunn- ar gegn barna- þrælkun. Vísir.is sagöi frá. Morð í stóra fíkniefnamálinu Hollenskur maður, sem sagður er hafa verið aðfli að stóra fíkniefna- málinu sem dæmt var í í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær, var myrtur fyrir nokkru í heimalandi sínu. RÚV sagði frá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.