Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Page 7
7 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 I>V Fréttir Þriggja stjörnu hótel í sveitasælunni - þótt afskekkt sé verður nýja hótelið á Laugum í Dölum opið allt árið DV, BUDARDAL:____________________ I byrjun mánaðarins opnaði Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra nýtt hótel að Laugum í Dalabyggð. Um er að ræða endur- byggingu elstu heimavistarinnar. Eigendur hótelsins eru Dalagist- ing ehf. sem Dalabyggð á um helming hlut í ásamt Búnaðar- sambandi Dalamanna, Byggða- stofnun, Flugleiðahótelum h/f auk fleiri smærri aðila. Flugleiðahótel h/f hafa tekið hótelið á leigu og munu reka það í sumar undir merkjum Edduhót- ela. Hóteliö er búið 22 herbergjum með alls 40 rúmum. Öll herbergi eru með snyrtingu, síma, sjón- varpi og öðrum þeim þægindum sem eru í 3ja stjörnu hóteli. Jafn- framt hefur verið útbúin glæsileg móttaka ásamt bar og 30 manna fundarsal. Áætlaður kostnaður er um 70 milljónir króna. Aðalverktaki við framkvæmdimar var Glerfell ehf. en framkvæmdastjóri þess er Hall- dór Guðmundsson. Farhús ehf., en framkvæmdastjóri er Ágúst Magnússon, sá um að klæða húsið utan. Auk þess komu að verkinu margir fleiri og með samstilltu átaki tókst að ljúka þessu verki á 4 mánuðum. í boði, sem efnt var til í tilefni opnunarinnar, fluttu ávörp odd- viti Dalabyggðar, Sigurður Rúnar Friðjónsson, sveitarstjóri Dala- byggðar, Einar Mathiesen, og samgönguráðherra, Sturla Böðv- arsson. Kári Kárason tók við lykli að hinu nýja hóteli úr hendi Ein- ars Mathiesen sveitarstjóra og sagði hann við það tækifæri að þeir hygðu á gott samstarf við Dalamehn og hótel á þessum stað væri góð tenging höfuðborgar- svæðisins við Vestflrði, auk alls þess sem Dalasýsla hefur upp á að bjóða. Samgönguráðherra klippti sið- an á borða og opnaði hótelið form- lega og sagði að þetta væri glæsi- legt framtak í ferðaþjónustunni í Dalasýslu. Hann vék síðan að samgöngumálunum en þau hafa lengi brunnið á Dalamönnum og nú er unnið að uppbyggingu veg- arins um Bröttubrekku og verður því verki lokið innan fárra ára. Hann minntist einnig á hina nýju höfn i Búðardal og þá möguleika sem hún gefur varðandi siglingar um Breiðfjörð. Að lokum var viðstöddum boðið að þiggja veitingar í boði Flug- leiðahótels og Dalagistingar. -MelB DV-MYND NH Glaðbeittar ásatrúarkonur Diana Paxton, einn leiötogi ásatrúar- manna í Vesturheimi, og Birgitte Knorr, þýskættuö en býr í Bandaríkj- unum. Hér leita þær upprunans og orkunnar. Þingvellir: Hér er mikil andleg orka - segir bandarísk ásatrúarkona „Jörmundur Ingi sóttist eftir að fá ásatrúarfólk sem víðast að úr heimin- um og þess vegna ákváðum við að koma hingað á þessa hátíð íslenskra ásatrúarmanna. Þar sem ég er einn af leiðtogum ásatrúarmanna í Banda- ríkjunum er ég fulltrúi þeirra hér,“ sagði Diana Paxson á Sólstöðuhátíð ásatrúarmanna á Þingvöllum á laug- ardaginn. Hún segist hafa komið hing- að til landsins til að hitta aðra ásatrú- ariðkendur og til að sjá Þingvelli. Hún segist sérstaklega áhugasöm um að finna alia þá orku sem eigi að vera á Þingvöllum og það hafi ekki svikið hana því nóg sé af henni þar. „Þetta er virkilega áhugaverður staður, það eru eflaust eldfjöllin sem eiga sinn þátt í þessu, en það er mikið af orku héma svo ég er viss um að andar náttúrann- ar eru mjög sterkir hér, mun meira en maður finnur annars staðar," sagði Diana. Hún aðhylltist ásatrú fyrir um 15 árum, en áður hafði hún rannsak- að og stundað ýmiss konar andleg málefni í um 30 ár. Leita upprunans með ásatrúnni. „Við Diana þekkjumst vel og við höfum stundað trú saman í nokkur ár. En minn áhugi á ásatrú er ef til vill ekki síst vegna þess að ég er fædd í Norður-Þýskalandi og hjá mér kviknaði áhugi á því hvernig trúarlif forfeðra minna var. Þeirra trú og menning var eyðilögð þegar kristni tók völdin þar en hér á íslandi er til miklu meiri fróðleikur um ásatrú. Fólk ritaði bækur um þessa tíma og geymdi sögurnar því betur," sagði Birgitte Knorr sem einnig var á sól- stöðublótinu. Henni fmnst Islending- ar bera mun meiri virðingu fyrir því sem liöið er og sögunni. „Þetta er eins og að finna uppruna sinn. Með því að skoða líf íslendinga til foma og lesa sögumar finn ég á ný mínar saxnesku rætur því þegar mínir forfeður tóku kristna trú urðu þeir að afneita með öllu og gleyma norrænu guðunum. Þannig hafa þeir ekki lifað með þjóð- inni i gegnum aldirnar eins og með ís- lendingum," sagði Birgitte Knorr. NH Mazda station 4x4, árg. '93. Verð 450 þús. Egill Vilhjálmsson, Smiðjuvegi 1. sími------------- Toyota touring 4x4, árg. ‘92. Verð 550 þús. Chevrolet pick-up S-10 4x4, árg. '95-Verð 980 þús. Grand Cherokee Limited, árg. 2000,4,7 vél, quadro drive, sóllúga, ekinn 17 þús. km, 10xcd magasín. Verð 4.450 þús. Pajero dísil, árg. 91,ekinn 190 þús. km, ssk.. Verð 950 þús. Grand Cherokee Laredo, árg. 1996,rauður, ekinn 45 þús.Verð 2.100 þús. Dodge Caravan, árg. '98,3,3 vél, 5 d., ekinn 39 þús. km, centrallæsingar, rafdr. rúður og speglar. Air con, control, cruise.Verð 2.100 þús. Toyota Avensis 1800, árg. 1999,vínrauður, ekinn 15 þús. km, ssk., spoiler, álfelgur.Verð 1.530 þús. BILAR Dodge Caravan, árg. '93, 7 manna.Verð 880 þús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.