Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 Fréttir DV Sjúkrahús og Heilsugæslustöö Akraness: Stefnir í 30 til 40 milljóna króna halla DV, AKRANESI:__________________________ Halli ársins í heild hjá SHA gæti numiö að lágmarki 30 til 40 m.kr. miðað við óbreytta starfsemi og óbreytt þjónustustig. Þetta kom fram á fundi stjórnar SHA í maí en þá var kynnt rekstraryfirlit janúar til maí. Á síðasta fundi stjórnarinn- ar var lagt fram rekstraryfirlit yfir mánuðina janúar til april á þessu ári. Þar kom fram að rekstrartekjur næmu 245,7 m.kr. og rekstrargjöld 251,2 m.kr. Rekstrarhalli tímabilsins er því 5,5 m.kr., eða 2,3%. Til samanburð- ar má geta þess að rekstrarhalli á sama tíma í fyrra nam 22 m.kr. eða 11% af tekjum. Helstu orsakir vand- ans eru viðvarandi aukning á starf- semi, s.s. fjölgun sjúklinga, aðgeröa og rannsókna. -DVÓ Undirritun samningsins F.v.Gunnar Sigurösson, formaöur stjórnar UKV, Sturla Böövarsson samgönguráöherra og Magnús Oddsson feröamála- stjóri. Þær 8 miöstöövar sem deila meö sér milljónunum 15 eru Flugstöö Leifs Eiríkssonar, Borgarnes, Akureyri, Hornafjöröur, Reykjavík, ísafjöröur, Egilsstaöir og Selfoss. Ferðamálaráð greiðir: Fimmtán milljónir í ár - til 8 upplýsingamiðstöðva DV, BORGARNESI: _______________ Ferðamálaráð Islands hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á eflingu upplýsingamiðlun- ar. Á það við um uppbyggingu raf- rænnar upplýsingamiðlunar, útgáfu rita og í vaxandi mæli um aðild að rekstri upplýsingamiðstöðva. í fjár- lögum þessa árs var fjármagn til þessa málaflokks aukið verulega. Hluti þess er notaður til aðildar að rekstri upplýsingamiðstöðva og hluti til að vinna að grunnþáttum þeirrar upplýsingagjafar sem fer fram með samræmingu hennar og samtengingu. Breytt ferðamynstur Nýlega var gerður samningur milli Ferðamálaráðs íslands og Upp- lýsingamiðstöðvar Vesturlands (UKV). I samkomulaginu segir að miðstöðin muni starfa eftir ákveðn- um gæðareglum og eru verkefni hennar skilgreind í samkomulag- inu. Framlag Ferðamálaráðs til mið- stöðvarinnar er 1.250.000 í ár. Á þessu ári á Ferðamálaráð aðild að rekstri 8 upplýsingamiðstöðva og samkvæmt fjárlögum ráðsins er 15 milljónum króna varið til sam- starfsins. Með breyttu og sjálfstæð- ara ferðamynstri erlendra gesta eykst þörfin fyrir upplýsingamiðlun eftir komuna til landsins. Þá gegna upplýsingamiðstöðvar sífellt stærra hlutverki í kynningu einstakra landshluta til innlendra ferða- manna og dreifingu ferðamanna um landið. UKV tekin tll starfa Þá hefur Upplýsinga- og kynning- armiðstöð Vesturlands tekið til starfa en Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra opnaði formlega Upplýsinga- og kynningarmiðstöö Vesturlands í Borgamesi nú nýver- ið. Fyrirtækið UKV var stofnað þann 2. júní 1999 í Borgarnesi. Stofnaðilar voru 72, þar af sveitarfé- lög á Vesturlandi með langstærsta hlutinn sem sýnir hversu mjög þeim er i mun að vel til takist. Til- gangurinn með stofnuninni er aö starfrækja eina móðurstöð á Vestur- landi. Einnig að veita innlendum og erlendum ferðamönnum upplýsing- ar um framboð ferðaþjónustu á Vesturlandi svo og á landsvísu og að beina ferðamannastraumi á Vest- urland. Gert er ráð fyrir að UKV verði samstarfsvettvangur sameiginlegra markaðsmála ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi. Sigríður Hrönn Theo- dórsdóttir, atvinnuráðgjafi og ferða- málafulltrúi Samtaka Sveitarfélaga á Vesturlandi, hefur að mestu unn- ið að undirbúningi stofnunar UKV og mun hafa umsjón með skrifstof- unni. DVÓ/HH Bylting í umhverfisþjón- ustu í Vesturbyggð - heildarsamningur undirritaður Undirritu samninga Fulltrúar verktaka og Vesturbyggöar innsigluöu samn- inga meö undirskrift á Hótel Sögu Sveitarfélagið Vesturbyggð og Umhverfistækni Vestur- byggðar ehf. undirrituðu í gær sannkallaðan tímamóta- samning um umhverfisþjón- ustu í Vesturbyggð. Samning- urinn nær yflr alla þjónustu við sveitarfélagið á sviði sorp- mála, þar með talið fjármögn- un, byggingu og rekstur end- urvinnslustöðvar. Þetta er fyrsti samningurinn af þessu tagi sem gerður er á íslandi. Verkefnið var boöið út í lok siðasta árs, og barst eitt til- boð. Það kom frá íslenskri umhverflstækni ehf., og var sveitarfélaginu boðin þátttaka í sjálfstæðu fyrirtæki um verkiö. Umhverflstækni Vesturbyggðar er hið nýja hlutafélag, stofnað af Is- lenskri umhverfistækni ehf. í Kefla- vík og sveitarfélaginu Vesturbyggð. Næstu 20 ár mun hið nýja fyrir- tæki sjá um sorphirðu frá öllum íbúum og fyrirtækjum Vesturbyggð- ar, endurvinnslu sorps sem og sorp- eyðingu. Rekin verður afar fuUkom- in varmaendurvinnslustöð, og orka frá henni skal meðal annars nýtt til upphitunar á sundlaug. Mengun frá stöð- inni verður með allra minnsta móti og uppfyllir stöðin ströngustu kröfur heilbrigðisyfirvalda. Molta sem fyrirtækið hyggst vinna með lífrænni endurvinnslu mun notuð til uppgræðslu í sveitarfélaginu, brotamálmi verður safnað saman og hann sendur til endur- vinnslu á höfuðborgarsvæð- inu auk þess sem spilliefnum verður safnað saman og þau búin til flutnings til viður- kenndra aðila. Könnun annarra val- kosta leiddi í ljós að þessi samning- ur er sveitarfélaginu hagstæður bæði fjárhagslega sem og umhverf- islega séð. Barnfóstrunámskeið RKÍ í Snæfellsbæ: DV-MYND PSJ RKI-námskeiöiö 47 krakkar læröu skyndihjálp á námskeiöinu og hér er hluti hópsins ásamt leiöbeinendum. Læra framkomu við börn, leiki og fleira Rauði krossinn í Snæfellsbæ hélt fyrir skömmu námskeið fyrir ungar barnfóstrur. Að sögn Ara Bjarna- sonar, tannlæknis og formanns Rauða kross-deildar Snæfellsbæjar, voru alls 47 krakkar úr Snæfellsbæ á aldrinum 11 til 13 ára á námskeið- unum sem voru þrjú, tvö í Ólafsvík og eitt á Lýsuhóli. Leiðbeinandi var Sveinbjörg Ey- vindsdóttir, hjúkrunarkona við Heilsugæslustöðina i Ólafsvík, en til aðstoðar voru Alda Vilhjálmsdóttir, Ásdís Kristjánsdóttir og Ari Bjarna- son. Karlpeningurinn lét ekki sitt eftir liggja en strákarnir á nám- skeiðinu voru fimm. Að sögn Ara voru krakkarnir mjög áhugasamir við námið. Námsefnið, sem tekið er saman af Maríu Haraldsdóttur leikskólakenn- ara, fjallar m.a. um framkomu við börn, leiki og leikföng, skyndihjálp og fl. -PSJ Heimahús: Slysum í fjölgar - börn tíðir gestir á Slysa- og bráðamóttöku Dag hvern er leitað með fjögur börn undir fimm ára aldri til Slysa- og bráðamóttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur, vegna slysa í heima- húsum. Þetta kemur fram á heima- siðu Landlæknisembættisins. Sam- kvæmt upplýsingum sem þar má finna hefur verið samfelld aukning á slysum í heimahúsum á höfuð- borgarsvæðinu undanfarin ár. Á heimasíðunni er meðal annars að finna ýmsar tölfræðilegar upplýs- ingar um tíðni slysa, aldur þeirra er slasast og algengustu slysstaði. Þar kemur til dæmis fram að fyrri hluta ævinnar eru drengir líklegri til að slasast en stúlkur en eftir fjörutíu og fimm ára aldur eru þaö konur sem slasast oftar heldur en karlar. Flest slysin innanhúss verða annað hvort í svefnherbergi eða stofu og það eru böm undir níu ára aldri og fólk á milli tvítugs og fimmtugs sem slasast oftast í þessum vistarverum. Böm og unglingar á aldrinum níu til nítján ára slasast oftast í næsta nágrenni við íbúðina og fólk yfir fimmtugu einhvers staðar í næsta nágrenni heimilisins. Á síðasta ári leituðu alls 8.844 ein- staklingar til Slysa- og bráðamót- töku Sjúkrahúss Reykjavíkur vegna slysa í heimahúsum en til saman- burðar er nefnt á áðurnefndri heimasíðu að árlega slasast um 2.500 til 3.000 manns 1 umferðarslys- um. Aðalheiður Sigursveinsdóttir, framkvæmdastjóri Slysavamaráðs, segir að ekkert bendi til þess að dregið hafi úr slysum það sem kom- ið er af þessu ári. Hún bendir þó á að í febrúarmánuði hafi Landslækn- isembættið staöið fyrir átaki til kynningar á slysahættu í heimahús- um en ekki liggja fyrir neinar tölur um hugsanlega fækkun slysa eftir átakið. „Við teljum að öll umræða sem vekur viðbrögö og spumingar hjá fólki skili árangri, þó að erfitt geti verið að meta nákvæmlega hve mikill sá árangur er.“ -hds Verkfall Samtök feröaþjónustunnar vilja meina aö verkfalliö sé raunverulega háö vegna starfa tiltölulega fárra manna Samtök ferðaþjónustunnar: 5 fyrirtæki með 7 Sleipnismenn - þar af aðeins 3 í fullu starfi I tilefni af fréttaflutningi Sleipnis- manna mn að samningur þeirra við 5 fyrirtæki utan Samtaka atvinnu- llfsins nái til 20-30 félagsmanna þeirra vilja Samtök ferðaþjónust- unnar koma eftirfarandi á framfæri: Samkvæmt upplýsingum frá um- ræddum 5 fyrirtækjum starfa þar samtals 7 Sleipnismenn, þar af ein- ungis 3 í fullu starfi. Aðrir starfsmenn eru í öðrum verkalýðsfélögum og mun samning- urinn því ekki hafa áhrif á laun þeirra. Þessi 5 fyrirtæki reka 50 hópbifreiðir. Stærstu fyrirtækin eru Vest- fjarðaleið, sem reka 19 hópbifreiðir og hafa 2 Sleipnismenn í vinnu, og Guðmundur Tyrfingsson sem rekur 22 hópbifreiðar og hefur 1 fastráð- inn Sleipnismann í vinnu og 2 laus- ráðna. Hin 3 fyrirtækin reka 2-3 bíla hvert og hafa enga fasta Sleipn- ismenn í vinnu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.