Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Page 11
FMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 DV 11 Fréttir Nýtt öryggiskerfi fyrir sumarbústaði sett upp í haust: Bylting á öryggi sum- arbústaðaeigenda erfitt að finna íbúa sem eru hjálparþurfi „Það er stórhættulegt fyrir fólk að veikjast eða slasast í sumarbústöð- um þar sem björgunarsveitarfólk á oft í vandræðum með að finna bú- staðina sem eru úti um allar sveitir og oft við ómerkta vegslóða," segir Sveinn Guðmundsson, fasteignasali og framkvæmdarstjóri Landssam- bands sumarbústaðaeigenda. Nú er í deiglunni nýtt öryggiskerfi fyrir sumarbústaði sem felst í því að hver bústaður fær sitt fimm stafa númer sem fólk getur lesið fyrir neyð- arlínuna og er númerið þar á skrá. „Jafnvel þeir björgunarmenn sem eru staðháttum kunnugir geta alltaf villst og þar sem um bústaði í sum- arbústaðahverfum er aö ræða er oft erfitt að fmna þann sem er hjálpar þurfi,“ segir Sveinn. „Þetta er mjög nauðsynlegt verk- efni sem hefur verið í mótun i 2 ár en það er reiknað með að strax í haust geti um 70 prósent sumarbú- staða fengið þetta en það líða aftur um 3 ár þangað til öll hin 30 prósent- in komast í kerfið." Að sögn hans verður unnið að því að allir nýir bústaðir verði skyldaðir til að vera aðilar að öryggisnetinu en það kostar 6100 krónur fyrir meðlimi Landssambands sumarbústaðaeig- enda að gerast aðilar að kerfinu en 9800 fyrir utanfélagsmenn. „Þetta verður að vera í samvinnu við eigendur og þetta er ekki hátt verð þegar litið er til þess öryggis sem þetta felur í sér,“ segir Sveinn. Skemmdir í sumarbústöðum voru ofarlega á baugi eftir Suðurlands- skjálftahrinuna fyrir rúmri viku en skjálftinn reið yfir þar sem sumarbú- staðalönd eru flest. „Sumarbústaðir virðast hafa sloppið vel út úr skjálftanum, eins og timburhús gera oftast, og það eru helst innbúin sem skemmdust. Ég veit um dæmi nálægt skjálftamiðj- unni þar sem fólk setti kenn- aratyggjó undir lauslega muni og það skemmdist ekki einn einasti hlutur," segir Sveinn. Hann segir eftirspurn eftir sumar- bústöðum og lóðum fyrir bústaði ekki hafa minnkað eftir skjálftana. „Við vorum nýlega að selja lóð á þessu svæði fyrir gott verð og það virðist ekki vera neinn sérstakur beygur í fólki vegna skjálftanna," segir Sveinn. -jtr DV-MYND GF Gróöursett í blíðunni Unglingar í Vinnuskóla Hólmavíkur viö gróðursetningu og fegrun bæjarins. Hólmavík: Unga fólkið við gróöursetningu DV, HÓLMAVlK: Tuttugu unglingar, aðaliega úr 7. til 10. bekk grunnskólans á Hólma- vík, hafa unnið ásamt fjölmörgum öðrum við að fegra og græða bæinn og gera ásýnd staðarins hlýlegri. í hópi væntanlegra sumargesta er forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson. Hallfríður Sigurðardóttir, annar umsjónarmanna Vinnuskólans, læt- ur vel af atvinnuástandinu á Hólma- vík og telur að allir unglingar hafi næg verkefni við afgreiðslustörf o.fl. Sumir unglingamir sem starfa í Vinnuskólanum eru einnig í öðrum störfum. Þegar blaðamann bar að garði voru stúlkumar að gróður- setja og vönduðu sig mjög en strák- arnir voru minna samtaka í návist myndavélarinnar við að koma nokkrum plastdúkum með skít fyrir sem ætlaður var til gróðurbætingar á öðrum stað. -GF Trillukarlar / Hafnarfirði mokveiddu þessir og voru hæstánægðir meö aflann. Kórsöngur í Haganesvík: Konsert haldinn í eyðibyggðinni DV, FLJÓTUM: Það lifnaði yfir Haganesvíkinni á dögunum þegar Kvennakór Siglu- fjarðar kom þangað óvænt í heim- sókn og söng nokkur lög við harm- oníkuundirleik. Þar sem ekki er leng- ur búseta i Haganesvík, aðeins göm- ul hús frá velmektardögum víkurinn- ar og sumarbústaðir, voru áheyrend- ur að þessum söng mjög fáir, þ.e. bíl- stjóri kórsins og ljósmyndari DV og kannski örfáir fuglar. Þama var ekki um skipulagðan konsert að ræða heldur var kórinn í óvissuferð sem farin var í lok vetr- arstarfsins og kallaði til Hermann Jónsson í Lambanesi með harm- oníkuna og voru tekin nokkur lög. Þetta var í upphafi ferðar en síðan var haldið í Vesturfarasetrið á Hofs- ósi, þaðan í Hótel Tindastól á Sauð- árkróki og endað með kvöldveröi í Fjallakránni á Vatnsleysu. Ferðin, sem var sú fyrsta með þessu sniði hjá kórnum, heppnaðist ágætlega, að sögn formannsins, Maríu Jó- hannsdóttur. Hún sagði að starf- tæplega 40 virkir félagar, og mikil sem haldnir voru í maílok í Siglu- semi hefði verið með blóma í vetur, stemning á lokatónleikum kórsins fiarðarkirkju. -ÖÞ Konsert Kvennakórinn tekur lagið í Haganesvík. Hermann í Lambanesi er með nikkuna. DV-MYND ORN ÞÓRARINSSON Tll aö glæöa áhuga almennings Safnapassinn, sem í er aðgangs- miði að 12 söfnum á Eyjafjarðar- svæðinu, ergefmn út á íslensku og ensku í ár en vonir standa til að vin- sæidir hans aukist það mikið að hægt veröi að gefa hann út á fieiri tungumálum á næstu árum. Eyjafjörður: Einn passi í öll söfn DV, DALVlK: Atvinnuþróunarfélag Eyjafiarðar, AFE, hefur gefið út aðgangskort að söfnum á Eyjafiarðarsvæðinu, svo- kallaðan Safnapassa. Hér er um samstarfsverkefni AFE og safnanna á Eyjafiarðarsvæðinu að ræða, að Safnasafninu á Svalbarðsströnd undanskildu, og fiármagnað að hluta með fiármunum sem fengust hjá Byggðastofnun til eflingar menningarstarfs á svæðinu. Tilgangurinn er að glæða áhuga almennings á söfnum og þvi sem þau hafa upp á að bjóða. Passinn geymir upplýsingar um söfnin, hvenær þau eru opin, hvers konar safn er um að ræða, heimilisfang og símanúmer o.fl. í passanum eru 12 aðgöngumiðar, eða jafnmargir söfn- unum, og getur almenningur nýtt þá til að heimsækja hvert safn einu sinni eða farið oftar á önnur. Gildistíminn er frá 1. júní til 15. september og kostar passinn 1.000 kr. fyrir einstakling, 1.600 kr. fyrir hjón eða sambýlisfólk, 700 kr. fyrir hópa frá 10-50 og 500 kr. fyrir hópa fleiri en 50. Hann er til sölu á öflum söfnun- um og á helstu upplýsingamiðstöð- um um land allt. Öflum farþegum Samvinnuferða-Landsýnar á þessu ári er boðinn 50% afsláttur af verði passans. -HIÁ Teiknað og málað í frístundunum DV, HÓFN I HQRNAFIRDI: „Ég hef mjög gaman af að teikna og mála og var alltaf teiknandi þeg- ar ég var krakki," segir Steinunn Óladóttir, húsmóðir á Höfn, sem þessa daga sýnir myndir sínar á Kaffihorninu á Höfn. Flestar eru myndirnar málaöar með vatnslitum og er homfirskt landslag vinsælt myndefni hjá henni. Einnig eru þama fallegar blómamyndir. Stein- unn er sjálfmenntuð í listinni utan það að sækja vikunámskeið sem boðið var upp á hér á staðnum. Steinunn er fædd og uppalin á Höfn, á fiögur uppkomin börn og sjö barnabörn. -JI Heitur matur í hádeginu. bragðbetri 115 g Áningarborgari m/ frönskum, kokkteilsósu og pepsi súperdós. Tilboð kr. 590. Bragðgóð og seðjandi 500 g Klúbbsamloka, aðeins kr. 690. Bæjarlind 18 - 200 Kópavogi simi 564 2100 Netfang: midjan@mmedia.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.