Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Side 12
12 Útlönd FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 DV Flutningabíllinn rannsakaður Taliö er að Tyrkir tengist smyglinu á flóttamönnum frá Kína til Evrópu. Sjö í haldi vegna dauða flótta- manna í Dover Hollensk yfirvöld kváðust í gær hafa sjö manns í haldi vegna dauða 58 flóttamanna í flutningabíl í Dover í síðustu viku. Lögreglan hefur einnig fundið vöruhúsið í Rotterdam sem tengist smyglinu á kínversku flóttamönnunum. Talið er að flóttamennirnir hafi komið í sendibilum til vöruhússins sunnu- daginn 18. júní. Þar biðu flótta- mennirnir eftir flutningabílnum sem flutti þá til Dover. Talsmaður saksóknara segir hina handteknu vera Hollendinga. Blaðið NRC Handelsblad segir að hinir hand- teknu séu einnig af tyrkneskum uppruna. Að sögn blaðsins telja yfírvöld að Tyrkir tengist smygli á flóttamönnum frá Kína til Evrópu. OSPAR-nefndin: Vantar tvö at- kvæði í viðbót Danir og írar þurfa tvö atkvæði til viðbótar á fundi OSPAR-nefndar- innar svokölluðu, sem 15 ríki eiga sæti í, til að þvinga Breta og Frakka til að loka umdeildum kjarnorku- endurvinnslustöðvum, þar á meðal Sellafield. Á fundi ráðherra landanna 15 í Kaupmannahöfn i dag verða greidd atkvæði um tillögu um að stöðva endurvinnslu kjarnorkueldsneytis. Tíu ríki, þar á meðal ísland, hafa þegar lýst yfir stuðningi sínum við tillöguna en tólf þurfa að samþykkja hana til að hún verði bindandi. Tony Blair til Berlínar Breski forsætisráöherrann ætlar aö ræöa Evrópumál viö Schröder. Vinsældir Tonys Blairs á niðurleið Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, nýtur þverrandi vin- sælda meðal kjósenda og vonbrigði með ríkisstjóm hans fara vaxandi, að þvi er fram kemur í skoðana- könnun í blaðinu Times í morgun. Forsætisráðherrann getur þó huggað sig við það að Verkamanna- flokkur hans hefur fjórtán prósentu- stiga forskot á íhaldsflokkinn, 47 prósenta fylgi gegn 33. Blair verður í Berlín í dag þar sem hann mun ræða við Gerhard Schröder Þýskalandskanslara um stöðuna innan Evrópusambandsins eftir að Frakklandsforseti viðraði þá hugmynd sína að þau lönd sem vildu ættu að fá að hraða samruna- ferlinu óhindrað. Bretum líst ekki vel á þær hugmyndir. Forsetakosningar í Mexíkó á sunnudag: Tveir frambjöö- endur hnífjafnir Algjört jafnfræði er með tveimur efstu frambjóðendunum fyrir for- setakosningamar i Mexíkó á sunnu- dag. Vicente Fox, leiðtogi stjómar- andstöðunnar, og Francisco Labastida, frambjóðandi stjómar- flokksins PRI, beindu spjótum sín- um hvor að öðrum á síðasta degi kosningabaráttunnar í gær. Kosningarnar á sunnudag eru taldar geta markað tímamót þar sem svo kann að fara að stjórnar- flokkurinn tapi embættinu sem hann hefur haldið frá því hann var stofnaður árið 1929. Labastida varaði kjósendur við að greiða Vicente Fox atkvæði sitt, þótt hann nefndi hann ekki á nafn í ræðu sem hann hélt fyrir 50 þúsund manns í heimaríki sínu, Sinaloa. „Ég hvet einkum konur og ungt fólk til að greiða atkvæði tryggum breytingum svo við stefnum ekki í voða því sem Mexíkóum hefur Vicente Fox Leiötogi stjórnarandstööunnar í Mexíkó telur sig eiga möguleika á aö sigra í forsetakosningunum. áunnist," sagði Labastida. Fox, frambjóðandi Bandalagsins fyrir breytingar, batt enda á þriggja ára kosningabaráttu sína með fundi á knattspyrnuvelli í heimaríki sínu, Guanajuato, þar sem 50 þúsund hlýddu á boðskap hans. „Ef þið eruð búin að fá nóg af PRI og viljið fá stjórn fleiri en eins flokks er ekki um annað að ræða en að kjósa Bandalag fyrir breytingar," sagði Fox hásri röddu eftir allar framboðsræðurnar. Fox hvatti landsmenn til að neyta atkvæðisréttar síns og sagði að því fleiri sem það gerðu, þeim mun meiri væru líkurnar á sigri hans. Ernesto Zedillo, fráfarandi for- seti, kom fram í sjónvarpi og hvatti landa sína til að kjósa. Hann full- vissaði þá um að ekki yrðu brögð í tafli við atkvæatalninguna. Stjórn- arflokkurinn hefur oftsinnis verið sakaður um kosningasvindl. Albright og Arafat Madeleine Albright, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, hitti Yasser Arafat, forseta Palestínumanna, aö máli í gær en tókst ekki aö fá samþykki hans fyrir fundi hans meö leiötogum Bandaríkjanna og ísraels. Bandarísk stjórnvöld gera sér vonir um aö slíkur leiötogafundir muni geta af sér friöarsamkomutag áöur en frestur til þess rennur út í haust. Fjölmiðlum sagt að virða einkalíf Vilhjálms prins Breskir fjölmiðlar voru í gær stranglega áminntir um að vemda Vilhjálm prins frá ofsóknum og hasarfréttum nú þegar hann er út- skrifaður frá Etonskólanum. Eng- inn vill að pilturinn hljóti sömu ör- lög og móðir hans. Ljósmyndarar og fréttamenn eltu Díönu prinsessu stöðugt alveg þar til hún beið bana í bilslysi í ágúst 1997. Þess vegna hafa eftirlitsnefnd breskra fjölmiðla og fulltrúar kon- ungsfjölskyldunnar gefið út reglur um umfjöllun fjölmiðla um Vilhjálm prins sem varð 18 ára í síðustu viku. í þau fimm ár sem prinsinn var nemandi við Etonskólann naut hann vissrar vemdar. En undan- farna mánuði hafa fjölmiðlar orðið djarfari. Prinsinn hefur oft verið orðaður við stúlkur sem hann hefur Vilhjálmur prins Reyna á aö koma í veg fyrir aö prinsinn hljóti sömu örlög og móöir hans, Díana prinsessa. ekki einu sinni hitt. Með birtingu myndar af prinsinum þar sem hann var að skipta um peysu í pólókeppni þykir hafa veriö ráðist að friðhelgi einkalífsins. Á myndinni var prins- inn ber að ofan. Bannað verður að taka myndir af prinsinum á stöðum þar sem hann á að geta vænst þess að fá að vera í friði. Ekki þykir verjandi að birta myndir ljósmyndara sem kunna að hafa elt prinsinn. Bannað verður að birta persónuleg bréf prinsins og útskriftir af símtölum hans. Fjölmiðlar verða að gæta þess að birta ekki rangar fréttir af prinsinum. Konungsfjölskyldan skuldbindur sig til þess að veita fjölmiðlum reglubundinn aðgang að prinsinum en þó undir eftirliti. Sjálfur bað prinsinn um að fá að vera í friði er hann varð 18 ára. Biðst afsökunar Breski ráðherr- ann Mo Mowlam baðst í gær afsök- unar á því að hafa valdið uppþoti vegna ummæla sinna um að breska konungsfj ölskyldan ætti að yfirgefa hallir sínar. Hún kvaðst reyndar hafa lýst þessari skoðun sinni yfir fyrir sex árum en staðfest hana ný- lega í viðtali. Barnslík í steypustykki Lögreglan í Los Angeles hefur handtekið 22 ára par eftir að hafa fundið barnslík í steypustykki í bíl. Parið segir þriggja ára dóttur sína hafa dáið fyrir nokkrum mánuðum þegar hún datt í baðherberginu. Dæmdur til dauða Einn helsti leiðtogi dómsdags- safnaðarins í Japan var dæmdur til dauða í morgun. Hayashi átti þátt i gasárásinni í neðanjarðarlestinni í Tokyo 1995. Áfram landtökur Yfirvöld i Simbabve hétu því í gær að halda áfram töku lands hvítra bænda þrátt fyrir velgengni stjórnarandstöðunnar í kosningun- um um helgina. Sviptir rafmagni Herinn á Fídjieyjum tilkynnti í morgun að hann kynni að loka fyr- ir rafmagn hjá uppreisnarmönnum og svipta þá annarri þjónustu. Upp- reisnarmenn hafa haldið 27 manns í gíslingu í nær sex vikur. Engin rannsókn Kanslari Austur- ríkis, Wolfgang Schússel, vísaði á bug i morgun frétt- um um að austur- ríska stjórnin hefði samþykkt rannsókn á lýðræði í Austur- ríki. Dönsk blöð greindu frá því að síðar í dag yrði tilkynnt um samkomulagið. Norðmönnum refsað Evrópusambandið kann að refsa Norðmönnum fyrir að neita að flytja inn vörur sem sambandið hef- ur lagt blessun sína yfir, að því er blaðið Aftenposten greinir frá. Einkum er um að ræða barnamat og erfðabreytt matvæli. Strokufangi gripinn Grænlenska lögreglan hefur handtekið hættulegan, vopnaðan strokufanga sem tekið hafði kær- ustu sína í gíslingu. Morðingi svipti sig lífi FrakkinriSid Ah- gal. Rezala kveikti í fangaklefa sín- um. Leyniskyttur herja Leyniskyttur skelfa íbúa Ambon í Indónesiu og halda ílestir íbúar sig innandyra af ótta við blóðbað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.