Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Qupperneq 13
13
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000____________________________________________________________________________________________
Útlönd
Elian fagnað eins og
hetju við heimkomuna
Hundruð stúlkna og drengja í
skólabúningum veifuðu kúbversk-
um fánum þegar Elian litli Gonzalez
sneri heim til Kúbu í gær. Börnin
höfðu komið í 11 langferðahifreið-
um frá heimaborg Elians, Cardenas,
'til að bjóða skólafélaga sinn velkom-
inn heim eftir sjö mánaða dvöl í
Bandaríkjunum í kjölfar björgunar
hans úr hafi. Sjónvarpsmenn voru
einnig mættir. En það var engin op-
inber móttökuathöfn og yfirvöld á
Kúbu höfðu fyrr um daginn beðið
almenning um að fara sér hægt.
Faðir Elians, Juan Miguel Gonza-
lez, bættu engu við það sem hann
sagði áður en hann fór frá Dulles-
flugvellinum í Washington 1 gær:
„Ég þakka bandarísku þjóðinni fyr-
ir stuðning hennar og ég þakka
einnig bandarískum yfirvöldum. Ég
get ekki lýst gleði minni yfir að fá
að snúa aftur heim.“
Fidel Castro Kúbuforseti var ekki
á flugvellingum í Havana til að taka
á móti drengnum sem í sjö mánuði
hefur verið vopn i pólitískri deilu
Bandaríkjanna og Kúbu. Fjölskylda
Elians á Kúbu faðmaði og kyssti
drenginn sem hún hefur loks fengið
aftur.
Sjálfur virtist drengurinn undr-
andi á öllum látunum og hann
horfði forvitinn á alla skólafélaga
I faðmi afa og langömmu á Kúbu
Elian veifar undrandi til skóiaféiaga sinna viö komuna til Kúbu í gær. Elian er
hér í faömi afa síns, Juans Gonzalez. Langamma hans, Ramona Betancourt,
tók einnig á móti Elian á flugvellinum í Havana.
sína og sjónvarpsvélarnar. Elian
veifaði þó til félaganna áður en
hann fór með föður sínum og stjúp-
móður burt í hvítri Lödu. Síðan var
ekið til leynilegs staðar í Havana
þar sem Elian mun dvelja í nokkrar
vikur við undirbúning fyrir skól-
ann. Síðan fer fjölskyldan í vikufrí
áður en hún heldur til heimabæjar
síns á norðurströnd Kúbu.
Það ríkti mikil gleði i Havana í
gær. í Litlu Havana í Miami ríkti
hins vegar engin gleði. Sjónvarps-
stöðvar sýndu til skiptis myndir af
fagnaðarfundinum á Kúbu og sorg-
mæddum ættingjum Elians og öðr-
um útlögum frá Kúbu í Miami. Þeir
bölvuðu bandarískum stjórnmála-
mönnum og hæstarétti sem i gær
hafnaði beiðni ættingjanna um að
Elian fengi í hæli í Bandaríkjunum
sem flóttamaður.
Örlög Elians hafa verið ofarlega í
huga Bandaríkjamanna síðan hann
fannst í hafmu undan strönd Flór-
ída í lok nóvember í fyrra. Bill
Clinton Bandarikjaforseti sagði að
það hefði verið allt í lagi sín vegna
hefði faðir Elians ákveðið að dvelja
áfram í Bandaríkjunum. Forsetinn
bætti við að hann vildi að ekki
hefðu orðið jafn mikil átök vegna
málsins.
Hillary Rodham Clinton
Forsetafrúin ræöst aö andstæöingi
sínum í sjónvarpsaugtýsingum.
Hillary sökuð um
hræðsluáróður
Fulltrúadeildarþingmaðurinn
Rick Lazio sakar Hillary Rodham
Clinton, forsetafrú og andstæðing
sinn í kosningunum til öldunga-
deildarinnar í haust, um að stunda
hræðsluáróður. Hann varar við því
að nýjustu sjónvarpsauglýsingar
hennar þar sem hún ræðst á störf
hans muni koma henni í koll.
„Ef árásir þessar halda áfram
mun andstæðingur minn komast að
einu um New York: Hagræði maður
sannleikanum verður maður að
taka afleiðingunum. íbúar New
York kjósa ekki manneskju sem
þeir treysta ekki,“ sagði Lazio á
fjáröflunarfundi á Manhattan í vik-
unni.
Hillary hefur meðal annars veist
að atkvæðagreiðslu Lazios í þinginu
og að afstöðu hans til byssumála.
Óeirðalögreglan lætur til skarar skríða
Óeirðalögregla í Suöur-Kóreu réöst til atlögu gegn starfsmönnum verkalýösfé-
lags á hóteli einu í Seoul í morgun. Rúmiega eitt þúsund félagar hafa veriö í
verkfalli síöan snemma í mánuöinum og krefjast hærri launa.
Lýðræðisráðstefnan í Varsjá:
Frakkar segja pass
Frakkar einir þjóða skrifuðu ekki
undir yfirlýsingu Varsjárráðstefn-
unnar um lýðræði sem lauk í vik-
unni. Fulltrúar rúmlega eitt hundr-
að þjóða skrifuðu hins vegar undir.
Hubert Védrine, utanríkisráð-
herra Frakklands, sagði við banda-
riska fréttamenn í Varsjá að það
væri misskilningur að halda að
hægt væri að þröngva lýðræði upp á
þjóðir.
Bandaríska sendinefndin, undir
forystu Madeleine Albright utanrík-
isráðherra, var hissa á andmælum
Frakka þar sem lokayfirlýsingin lá
fyrir áður en ráðstefnan hófst og að
þátttaka í ráðstefnunni hefði verið
háð samþykki hennar.
í yfirlýsingunni segir að lýðræð-
islegt stjórnarfar geti verið mis-
munandi en ýmsir mikilvægir þætt-
ir séu sameiginlegir, svo sem frjáls-
ar kosningar, jafnrétti þegnanna
fyrir lögunum, trúfrelsi og frjálsir
Qölmiðlar, svo fátt eitt sé nefnt.
Bandarískir embættismenn sögðu
að þrjóska Frakka væri byggð á
misskilningi. Ráðstefnunni hefði
ekki verið ætlað að vera upphaf
hreyfingar til að flytja út lýðræði til
landa þar sem lýðræði er ekki fyrir.
Tilgangurinn sé miklu heldur að
styrkja lýðræðislega stjórnarhætti í
löndum þar sem lýðræði á annað-
hvort undir högg að sækja eða er á
hraðri uppleið.
Mikill fjöldi leikja á fínu verði
á krökkunum í fríinu
Nýjasta æðið í heiminum er Pokémon., tölvuleikir sem eru gerðir fyrir
Game boy leikjatölvurnar. Aragrúi af sérkennilegum skrímslum berjast við öflugt
óvinalið og öðlast aukna hæfileika við hverja raun. Hægt er að skiptast á skrímslum
rnilli tölva þannig að til að verða góður í Pokémon er um að gera að vera í sambandi
við aðra sem spila leikinn.
FRÍHÖFNIN
LEIFSSTÖD KEFLAVlKURFLUOVELLI
Leikur í höndunum
www.ormsson.is