Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Síða 26
30
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000
I>V
•Ættfræði
Umsjón: KJartan Gunnar Kjartansson
85 ára
Jóhann Jón Þorvaldsson,
Geitlandi 6, Reykjavík.
10 ára
rarinn Fjeldsted,
Ásvallagötu 17, Reykjavík.
60 ára
Einar Jónsson,
Laufásvegi 2a, Reykjavík.
Fjóla Jóhanna Halldðrsdóttir,
Borgarholtsbraut 41, Kópavogi.
Gylfi Guöbjartsson,
Strandgötu 15, Patreksfirði.
Halldóra I. Sigmundsdóttir,
Laufskálum 13, Hellu.
Helga Bjarnadóttir,
Gullsmára 9, Kópavogi.
Lárus Valdimarsson,
Kirkjubæjarklaustri 2,
^Kirkjubæjarklaustri.
50 ára
Sævar B. Þórarinsson
skipstjóri,
Fornuvör 4, Grindavík,
sem varð fimmtugur
þann 21.6. sl., ætlar að
hafa opið hús fyrir vini og
vandamenn í húsi björg-
unarsveitarinnar Þorbjörns, Seljabót 10,
Grindavík, föstudaginn 30.6. nk. eftir kl.
20.00.
Amaldur Valgarðsson,
Reykási 1, Reykjavfk.
Bjarney Bjarnadóttir,
Þórsmörk, Akureyri.
Bjarni Ingólfsson,
Beykihlíö 21, Reykjavík.
•^.Guðmundur Ellertsson,
Sámsstöðum 1, Búðardal.
Gunnar Ragnarsson,
Aflagranda 14, Reykjavfk.
Hulda Fríða Ingadóttir,
Stóragerði 32, Reykjavfk.
ína Dagbjört Gísiadóttir,
Urðarteigi 8, Neskaupstað.
Kristinn Egilsson,
Blikahólum 4, Reykjavfk.
Oddgeir Arnar Jónsson,
Hrfsmóum 6, Garðabæ.
Svanur Jónsson,
Skagabraut 7, Akranesi.
40 ára_________________________________
Grímur Guðnason,
Áshamri 60, Vestmannaeyjum.
Hellen Unda Georgsdóttir,
Skeljanesi 4, Reykjavík.
Hólmgeir Karlsson,
Dvergsstöðum, Akureyri.
Ingibjörg Elín Bjarnadóttir,
Háteigi 15, Keflavík.
Ingólfur Jón Magnússon,
Skúlaskeiði 40, Hafnarfirði.
Siguröur Pétursson,
Jöklafold 10, Reykjavík.
Teltur Minh Phuoc Du,
Miðbraut 5, Seltjarnarnesi.
Smáauglýsingar
Allt til alls
►I550 5000
Andlát
Matthías Ingibergsson
I apótekari, Hrauntungu 5,
Efc. . JH Kópavogi, andaðist á
I Landspítalanum miðviku-
t '„'jH daginn 28. júní.
■b='-r#fl Jarðarförin verður tilkynnt
sföar.
Ágústa S. Bögaskov er látin.
Guðrún Tómasdóttir, Efstaleiti 12,
Reykjavík, lést sunnudaginn 25.6.
Kristján Hauksson (Bassi), Bassastöö-
—*‘um, Mosfellsbæ, lést sunnudaginn
25.6.
IMaHKv.
Gríma Huld Blængsdóttir
- heilsugæslulæknir í Mosfellsbæ
Gríma Huld Blængsdóttir, heilsu-
gæslulæknir í Mosfellsbæ, Reynis-
nesi við Skildinganes í Skerjafirði í
Reykjavík, er fertug í dag.
Starfsferill
Gríma fæddist í Kópavoginum og
ólst þar upp. Hún lauk stúdentsprófi
frá MR 1980, embættisprófi í læknis-
fræði við HÍ 1987, öðlaðist almennt
lækningaleyfi 1989 og er sérfræðing-
ur í heimilislækningum frá 1997.
Á námsárum var hún m.a. aðstoð-
arlæknir á geðdeild, kvennadeild,
krabbameinslækningadeOd og
barnadeild Landspítalans, kandídat
og aðstoðarlæknir á endurhæfingar-
deild og heilsugæslu á Reykjalundi,
á skurðdeild, slysadeild og lyflækn-
isdeild Borgarspítalans, á lyflækn-
ingadeild St. Jósefsspítala í Hafnar-
firði, á lungnadeild Vífilsstaðaspít-
ala, á Heilsugæslustöðinni í Foss-
vogi og á Heilsugæslustöðinni og
Sjúkrahúsinu á Siglufirði.
Gríma hefur verið sérfræðingur í
heimilislækningum á Heilsugæslu-
stöðinni á Reykjalundi frá 1997.
Gríma sat í safnaðamefnd Kárs-
nessóknar í Kópavogi 1988-90, hefur
verið aðcd- og varamaður í safnaðar-
nefnd Neskirkjusóknar í Reykjavík
frá 1995 og gjaldkeri safnaðarnefnd-
ar frá 1999, sat í stjóm Foreldraráðs
Melaskólans 1998-99 og er formaður
starfsmannafélags Heilsugæslu-
stöðvar Mosfellsumdæmis frá 1998.
Fjölskylda
Sambýlismaður Grimu frá 1983
var Smári Ferdinandsson, f. 28.6.
1951, fórst í flugslysi i Ljósufjöllum
5.4. 1986, flugmaður. Hann var son-
ur Ferdinands Söebeck Guðmunds-
sonar, f. 14.2.1922, sjómanns í Kópa-
vogi, og k.h., Emu Helgu Matthías-
dóttur, f. 27.6. 1930, húsmóður.
Gríma giftist 18.7. 1992 Jean Egg-
ert Hjartarsyni, f. 15.6. 1961, bruna-
verði og rafvirkja. Hann er sonur
Hjartar Pjeturssonar, f. 21.2.1922, d.
29.12. 1993, viðskiptafræðings, lög-
gilts endurskoðanda og sérfræðings
hjá Seðlabanka íslands í Reykjavík,
og k.h., Lauru Frederikke Eggerts-
dóttur Claessen, f. 24.1. 1925, hús-
móður, stúdents og móttökuritara.
Böm Grímu og Eggerts era Lára
Ósk, f. 18.10. 1990; Gunnar Smári, f.
23.1. 1993.
Stjúpsonur Grímu og sonur Egg-
erts er Arent Pjetur, f. 28.2. 1987.
Systkini Grímu eru Ingvar
Blængsson, f. 8.11. 1956, bygginga-
tæknifræðingur í Reykjavík; Eygló
Jóhanna Blængsdóttir, f. 20.7. 1958,
húsmóðir í Mesáker í Noregi;
Blængur Blængsson, f. 21.11. 1966,
starfsmaður hjá Samskipum í
Reykjavík; Gréta Björg Blængsdótt-
ir, f. 14.11.1972, námsmaður í Flens-
borg í Þýskalandi.
Foreldrar Grímu eru Blængur
Grímsson, f. 24.10. 1928, húsasmíða-
meistari, og Margrét Aðalbjörg
Ingvarsdóttir, f. 3.11. 1932, húsmóð-
ir.
Ætt
Blængur er sonur Gríms, b. á
Jökulsá á Flateyjarsandi og síðar
smiðs og verslunarmanns á Akur-
eyri, Sigurðssonar, skipstjóra og b.
á Jökulsá, Hrólfssonar, b. á Drafla-
stöðum, Matthíassonar. Móðir
Gríms var Kristín, systir Páls,
langafa læknanna Eggerts Jónsson-
ar bæklunarsérfræðings og Kára
Stefánssonar, forstjóra íslenskrar
erfðagreiningar. Bróðir Kristínar
var Vilhjálmur, afi Thors Vilhjálms-
sonar rithöfundar, fóður Ömólfs,
sérfræðings á skrifstofu forseta ís-
lands. Systir Kristínar var Valgerð-
Pálmar Vígmundsson
- verkstjóri
Pálmar Vígmundsson, verkstjóri
hjá Röradeild Reykjalundar, Ár-
holti, Mosfellsbæ, er sjötugur i dag.
Starfsferill
Pálmar fæddist í Reykjavík. Hann
gekk í Barna- og gagnfræðaskólann
að Brúarlandi í Mosfellsbæ.
Pálmar hóf sinn starfsferil hjá
Ræktunarsambandi Kjalamesþings,
starfaði hjá Áburðarverksmiðjunni,
vann við bifreiða- og þungavinnu-
vélaviögerðir og ók malarflutninga-
bilum hjá Steypustöðinni hf. í nokk-
ur ár. Pálmar hefur svo verið verk-
stjóri við Röra- og fílmudeildina á
Reykjalundi sl. fjömtíu ár.
Pálmar er félagi i Lionsklúbbi
Mosfellsbæjar. Hann hefur setið í
stjóm klúbbsins og verið formaður
hans. Þá starfar hann í flugklúbbi
Mosfellsbæjar og situr í stjórn
klúbbsins.
Fjölskylda
Pálmar kvæntist 12.12.1953 Ragn-
heiði Jónasdóttur, f. 25.6. 1932, hús-
móður. Hún er dóttir Jónasar Ragn-
ars Jónassonar, sjómanns í Reykja-
vík, og Fanneyjar Þorvarðardóttur
húsmóður en þau voru bæði ættuð
úr Rangár-
þingi.
Böm
Pálmars og
Ragnheiðar eru Ingi Ragnar Pálm-
arsson, f. 21.7. 1956, við flugvirkja-
nám í Bandaríkjunum, kvæntur
Guðrúnu Ólafsdóttur arkitekt, eiga
þau eitt barn; Vigmundur Pálmars-
son, f. 5.8. 1962, bílstjóri hjá Vega-
gerð rikisins, búsettur á Hvoli í
Mosfellsbæ, á hann þrjú börn; Sig-
rún Pálmarsdóttir, f. 18.11. 1969,
tannsmiður í Álaborg i Danmörku, í
sambúð með Þresti Þorgeirssyni
tannlækni, á hún eitt barn.
Alsystir Pálmars er Ingunn Víg-
mundsdóttir, f. 20.2. 1928, húsmóðir
í Kópavogi.
Hálfbróðir Pálmars, samfeðra,
var Aðalsteinn Vígmundsson, f.
17.3. 1920, nú látinn, bUstjóri hjá
Mjólkursamsölunni í Reykjavík.
Foreldrar Pálmars voru Víg-
mundur Pálsson, f. 8.8.1896, d. 1967,
einn fyrsti atvinnubUstjórinn hér á
landi, og Ingveldur Árnadóttir, f.
11.2. 1901, d. 1987, húsmóðir.
Pálmar og Ragnheiður dvelja hjá
dóttur sinni og tengdasyni í Álaborg
í Danmörku á afmælisdaginn.
ur, móðir Ingimundar, söngstjóra á
Akureyri, foður Magnúsar, forstjóra
Frón, foður Eggerts, formanns KSÍ.
Valgerður var einnig amma Valtýs
Péturssonar listmálara. Kristín var
dóttir Guðmundar, b. á Brettings-
stöðum, Jónatanssonar. Móðir Guð-
mundar var Karitas Pálsdóttir,
timburmanns Sigurðssonar, bróður
Valgerðar, ættmóður Reykjahlíðar-
ættar.
Móðir Blængs var Hulda
Tryggvadóttir, b. og smiðs á Brett-
ingsstöðum, Jónssonar, og Frið-
bjargar Guðmundsdóttur, systur
Kristinar.
Margrét Aðalbjörg er dóttir Ingv-
ars Guðmundar, sjómanns og neta-
gerðarmanns á Eskifirði, Jónasson-
ar Péturs, rafstöðvarstjóra á Eski-
firði, Jónssonar, vinnumanns á
Kollaleiru, Jónssonar. Móðir Jónas-
ar var Kristbjörg Ketilsdóttir. Móð-
ir Ingvars var Margrét Pálsdóttir, b.
í Hallgerðarkoti, Guðmundssonar
og Halldóru Hálfdánardóttur.
Móðir Margrétar Aðalbjargar var
Sigurjóna Jóhanna Júlíusdóttir, b. á
Á í Unadal, á Fjalli í Kolbeinsdal og
verkamanns á Dalvík, Jónssonar og
Aðalbjargar Sigurjónsdóttur, b. í
Göngustaðakoti, Þorvaldssonar og
Önnu Þorkelsdóttur, b. á Klaufa-
brekku, Jónssonar og Kristínar Sig-
urðardóttur, ættfóður Hreiðastaða-
kotsættar, Jónssonar og Steinunnar
Jónsdóttur.
Gríma tekur á móti gestum að
heimili sínu, Reynisnesi við Skild-
inganes, föstudaginn 30.6. kl. 20.30.
Sigrún Vernharðsdóttir
- leiðbeinandi við grunnskólann á ísafirði
Sigrún Vemharðsdótt-
ir, leiðbeinandi við
Grunnskólann á ísafirði,
Fjarðarstræti 19, ísafirði,
er sextug í dag.
Starfsferill
Sigrún fæddist í Tungu
í Fljótavík og ólst þar upp
en síðan í Hnífsdal frá sex
ára aldri.
Sigrún hefur stundað kennslu um
árabil. Hún kenndi fyrst viö Bama-
skólann í Hnífsdal, við Húsmæðra-
skólann Ósk á tsafirði, þá við
Menntaskólann á ísafirði en kennir
nú við Grunnskóla ísafjarðar.
Fjölskylda
Eiginmaður Sigrúnar er Guðni
Ásmundsson, f. 9.9.1938, húsasmíða-
meistari. Hann er sonur Ásmundar
Guðnasonar, verkamanns í Reykja-
vík, og Guðfmnu Gísladóttur hús-
móður.
Börn Sigrúnar og Guðna eru Ásta
Albertsdóttir, f. 11.4. 1956, starfs-
maður við sambýli í Noregi, en sam-
býlismaður hennar er Kore Engel-
sen og á hún fjögur börn og tvö
barnaböm; Ásmundur Guðnason, f.
15.11. 1959, deildarstjóri í
Reykjavlk, en eiginkona
hans er Ólína Jónsdóttir
og eiga þau tvö börn;
Vemharður Guðnason, f.
25.4. 1962, húsasmíða-
meistari og slökkviliðs-
maður í Reykjavík, eigin-
kona hans er Ester
Martinsdóttir og eiga þau
einn son; Jóhanna Guðna-
dóttir, f. 30.3. 1967, húsmóðir á tsa-
firði, gift Pálma Jónssyni og eiga
þau þrjú böm; Margrét Guðnadótt-
ir, f. 9.5. 1972, nemi í dýralækning-
um í Danmörku en eiginmaður
hennar er Jón Amar Sigurþórsson.
Hálfsystir Sigrúnar, sammæðra,
er Helga Hansdóttir, f. 4.9.1925, hús-
móðir á Ísafírði.
Alsystkini Sigrúnar eru Þórunn,
f. 25.1. 1931, húsmóðir í Reykjavík;
Herborg, f. 29.1. 1932, húsmóðir á
ísafirði; Bára, f. 2.9. 1934, húsmóðir
í Mosfellsbæ; Jósef, f. 24.3. 1943, raf-
virki á ísafirði.
Foreldrar Sigrúnar voru Vem-
harður Jósepsson, f. 12.8.1906, d. 9.5.
1982, bóndi í Fljótavík, og k.h., Mar-
ia Friðriksdóttir, f. 4.6.1906, d. 18.11.
1996, húsmóðir.
Merkir Islendingar
Olafur G. Eyjólfsson, skólastjóri Verslun-
arskóla íslands, fæddist í Flatey á
Breiðafirði 29. júní 1874. Hann var sonur
Eyjólfs Einars Jóhannssonar frá Sveftt-
eyjum, kaupmanns í Flatey, og k.h., Sig-
urborgar ÓÍafsdóttur húsmóður. Eyjóif-
ur var sonur Jóhanns Eyjólfssonar,
bónda og hreppstjóra í Flatey, sem var
sonur Eyjólfs eyjajarls, stórbónda,
hreppstjóra og alþingismanns í Svefn-
eyjum, Einarssonar.
Ólafur lauk stúdentsprófi í Reykjavík
1895 og prófi frá Verslunarskóla Brocks
í Kaupmannahöfn 1897.
Ólafur var skrifstofumaður í Kaup-
mannahöfn 1897-98, stundaði verslunarstörf
hjá Gránufélaginu á Siglufirði 1898, var bókari
Ólafur G. Eyjólfsson
á Akureyri 1899-1901, verslunarmaður á
Grund í Eyjafirði 1901-1902 og starfaði hjá
sílarútvegsnefnd á Akureyri 1902-1905.
Ólafs verður þó lengst minnst fyrir að
leggja granninn að Verslunarskóla ís-
lands en hann var fyrsti skólastjóri
skólans frá stofnun 1905-1915.
Auk þess að vera skólastjóri starf-
rækti Ólafur umboðsverslun í Reykja-
vik til dauðadags. Hann sat í rann-
sóknamefnd Landsbanka íslands
1909-1910 vegna Bankafargansins svo
nefnda er Björn Jónsson ráðherra rak
bankastjórann, Tryggva Gunnarsson. Þá
var hann endurskoðandi Eimskipafélags-
ins frá stofnun félagsins 1914 og til dauða-
dags en Ólafur lést 19. október 1938.
Hulda Guörnundsdóttir verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtud.
29.6. kl. 13.30.
Hannes Ingvi Kristjánsson, Sætúni,
Vatnsleysuströnd, verðurjarðsunginn frá
Kálfatjarnarkirkju 29.6. kl. 14.00.
Gyöa Jóhannesdóttir, Aðalstræti 3,
Akureyri, veröur jarösett frá
Akureyrarkirkju föstud. 30.6. kl. 13.30.
Útför Einars Maríusar Sörensen,
Sunnubraut 22, Akranesi, ferfram frá
Akraneskirkju föstud. 30.6. kl. 14.00.
Þórur Eiríksson hárskeri veröur
jarðsunginn frá Árbæjarkirkju 29.6. kl.
15.00._
Guðni Árnason, Krosshömrum 19a,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
29.6. kl. 15.00.