Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Side 27
31 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 DV Tilvera % Gary Busey 56 ára Bandaríski kvikmyndaleik- arinn og mótor- hjólaáhugamað- urinn, Gary Bus- ey, á afmæli í dag. Busey, sem er fæddur og uppalinn í Texas, hóf kvikmyndaferil sinn árið 1971 þegar hann lék i Angel Hard as They Come og síðan hafa 87 kvik- myndir bæst á afrekalista leikarans. Cildir fyrir föstudaginn 30. júní Vatnsberinn (20, ian.-i8. febr.i; I Heppnln verður með þér fyrri hluta dagsins og þú færð tækifæri sem þú hefur beðið eft- ir lengi. Það verður mikið um að vera i félagslíflnu í kvöld. Fiskarnir(19. febr.-20. mars): ■Næstu dagar gætu verið mikilvægir hvað fram- tíðina varðar. Hugaðu að þvi sem þú þarft að gera á næstunni. Það er mikilvægt að þú skipileggir þig vel. Hrúturinn (21. mars-19. april): . Það verður auðvelt að ’ fá fólk til að taka þátt í breytingiun á vissum sviðum. Vertu þolin- móður þó ekki gangi allt strax upp. Nautið (20. apríl-20. maíl: Vertu á verði gagnvart kjaftasögum. Ekki trúa öllu sem þú heyrir því fólk þarf ekki endilega að vera áreiðanlegt þó að svo virðist vera við fyrstu sýn. Tvíburarnlr (21. mai-21. iúní): Dagurinn verður skemmtilegur með til- ^// hti til félagslifs. Eitt- hvað óvænt gerist á þeim vettvangi. Happatölur þínar eru 4, 15 og 18. Krabbinn (22. iúní-22. íúií): Þú átt rólegan dag og j þér gefst tími til að íhuga ýmis mikilvæg ____ mál. Þú eyðir miklum og góðum tima með Qölskyldunni. Uónlð (23. iúlí- 22. ágústl: Þér finnst óþægilegt hve mikil afskipti ákveðin persóna hefúr af vinnu þinni. Reyndu að leiða það hjá þér eins og þú framast getur. Mevlan (23. aeúst-22. sept.l: Þú ert að velta ein- hverju fyrir þér og það ^^^lfcgæti tekið dálitinn ^ f tíma að komast að niö- urstöðu. Vertu þolinmóður. Vogln (23. sfint.-23. nkt.l: J Þú átt annríkt í dag og þiggur alla hjálp með \ f þökkum. Vertu viðbú- / f inn undir óþolinmæði og frekju í vinnunni. Sporðdreki (24. okt,-2l. nóv.): 13** Þú kemur viða við í dag en dvelur stutt við jhvert verkefni. j Reyndu að einbeita þér svo þú getir afkastað sem mestu. Bogamaður (22. nóv.-2l. des.): |Margt kemur þér á róvart í dag. Jafnvel það sem þú ert vanur að gera á hveijum degi verður einhvern veginn öðruvísi í dag en vant er. Steingeitln (22. des.-19. ian.): ^ . Þér er vel tekið hvar sem þú kemur í dag. f/ Jr\ Þú átt auðvelt með að vinna fólk á þitt band en þú ættir þó að fara varlega í viðskiptum. Fergie kemur á óvart eftir yfirlýsingar Andrésar: Heldur áfram að hitta Gaddo Bretar vita varla lengur hvað snýr upp og hvað niður i sambandi Andrésar prins og hertogaynjunnar af Jórvík sem kölluð er Fergie. Prinsinn lýsti því nýlega yfir i við- tali að hann gerði ráð fyrir því að þau Fergie gengju í hjónaband á ný. Fyrir nokkrum dögum fékk Fergie í fyrsta sinn í þrjú ár að taka þátt í veislu konungsfjölskyldunnar. Það var i stórveislunni sem haldin var í Windsorkastala til heiðurs þeim í konungsfjölskyldunni sem átt hafa stórafmæli að undanfórnu. Þremur dögum síðar var hertoga- ynjan hins vegar komin í aðra veislu hjá vini sínum, ítalska greif- anum Gaddo della Gherardesca. Sú veisla var haldin skammt frá kast- ala hans á Ítalíu. „Við Andrés búum í sama húsi með börnunum. Hjónaband er ekki til umræðu núna. Velferð bamanna er mikilvægust," segir hertogaynj- an. Fyrir nokkrum árum sagði Sarah Ferguson Hertogaynjan hefur ekki áhuga á ræöa möguiegt hjónaband sitt og Andrésar prins. Fergie sjálf að hún vonaðist til að geta gifst Andrési á ný. Vinir ítalska greifans segja að hann hafi viljað sýna heiminum að Andrés prins hafi verið að þvæla þegar hann gaf í skyn að hann kynni að kvænast Fergie á ný. Fergie og greifmn sýndu hins vegar hvort öðru engin vinahót opinberlega. Þegar ítalskir ljósmyndarar hvöttu þau til að kyssast hristi hún höfuðið en greifmn stóð kyrr við hlið hennar. Hvorugt þeirra hefur staðfest að þau séu í ástarsambandi. Hingað til hefur ljósmyndurum ekki tekist að festa nein ástaratlot á filmu. Gaddo hefur hins vegar lýst frati á tal Andrésar prins um hjónaband. Segir hann litlar likur á að Fergie og Andrés gangi upp að altarinu á ný. „Hún trúir mér fyrir öllu og hún hefur ekki sagt neitt um þetta,“ á greifinn að hafa sagt.“ Svart og hvítt frá Hugo Boss Hinn þýski Hugo Boss kynnti nýjustu stefnu og strauma í karlatískunni á tiskusýningu i Mílanó á Ítalíu i vikubyrj- un. Þar var margt svart og margt hvitt. Robbie ekki enn með bílpróf Loksins er fundin skýringin á skapvonsku íslandsvinarins Robbies Williams: Pilturinn er ekki enn kominn með bílpróf, á hans aldri. En nú duga engin vettlinga- tök. Robbie hefur því ákveðið að eyða rúmlega 30 þúsund krónum fyrir fimmtán kennslustundir á viku, að því er fram kemur í breska blaðinu Sunday Mirror. Robbie festi nýlega kaup á æðis- legum Range Rover en vegna próf- leysis verður hann að fá vini sína og kunningja til að aka sér um borg og bý. Bara gaman. Kylie kynnir á stórhátíð Ástralska söngkonan Kylie Minogue, sem þessa dagana trónir á toppi bresku vinsældalistanna, verður kynnir á stærstu hátíð sam- kynhneigðra í Bretlandi sem haldin verður á laugardag. Kylie nýtur mikilla vinsælda meðal samkyn- hneigöra og skipuleggjendur hátíð- arinnar eru að vonum ánægðir. „Okkur hafði lengi langaö til að fá Kylie en við vorum efms um að hún gæti það. Þetta er toppurinn á tilverunni og við erum himinlif- andi,“ segir skipuleggjandi hátíðar- innar í Finsbury Park. Blönduós: Útilistaverk við Heimilis- iðnaðarsafn DV. HUNAÞINGI:____________________ Menning - náttúrulega er heiti á samstarfsverkefni Reykjavíkur menningarborgar árið 2000 og Blönduósbæjar. Það byggist á því að til Blönduóss komu 5 nemendur á öðru ári í textíldeild Listaháskóla íslands og leituðu hugmynda í Heimilisiðnaðarsafninu á BÍöndu- ósi. Úr þessum hugmyndum unnu þeir útilistaverk sem eru nú til sýn- is viö Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi. Sem dæmi um verk má nefna að einum nemendanna fannst kaífidúk- urinn hennar Jófríðar i Haga svo fagur að eftir honum vann hann listaverkið „Hvert förum við?“ Er það vindbelgur úr næloni og bómullargami skreyttur útsaumi sem var á kaifidúknum foma. Heimilisiðnaðarsafnið á Blöndu- ósi er sérstakt safn og hið eina sinn- ar tegundar á landinu. Þar er safn heimagerðar tóvinnu- og textílmuna. Þar eru einnig til sýnis þjóðbúningar og listfengar hannyrð- ir, svo og ýmis áhöld sem notuð voru við gerð munanna. Heimilis- iðnaðarsafnið er opið daglega milli kl. 14 og 17 til 20. ágúst. Það voru kvenfélagskonur í Aust- ur-Húnavatnssýslu sem stofnuðu safnið og var það opnað árið 1976 á hundrað ára afmæli Blönduóss. Nú er stefnt að því að byggja við saínið og stækka það verulega. Safnvörður er Jóhanna Pálmadóttir, Akri. -MÓ Heimilisiðnaöarsafniö á Blönduósi Þetta verk heitir Sumargleöi og er þaö „blómaöeögert úr þæföri ull, vír, ullar- og bómullargarni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.