Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Side 29
FIMMTUDAGUR 29. JÚNl 2000 33 Tilvera The Muse í Stjörnubíói: Heilladís handritahöf- undarins Kvik- mynda- stjarnan Sharon Stone leik- ur kvik- mynda- stjörnu sem heill- ar alla sem henni kynn- ast. Albert Brooks er bandarískur handritahöfundur, leikari og leik- stjóri og talinn einn af betri húmoristum í Bandaríkjunum. Hann hefur, auk þess að leika í mörgum kvikmyndum, leikstýrt sjálfum sér í Mother, Defending Your Life, Lost in America, Modem Romance og Real Life og einnig skrifað handritið við þessar mynd- ir. Nýjasta kvikmynd hans, The Muse, er ævintýrasaga úr nútíman- um sem gerist í Los Angeles. Ævintýrið hefst kvöldstund eina í Hollywood, handritahöfundurinn Steven Phillips (Albert Brooks) er að taka á móti verðlaunum í fínum kvöldverði og stolt fíölskylda hans fylgist með. Nokkrum dögum síðar boðar forstjóri kvikmyndaversins hann á sinn fund, segir að hann hafl misst allt frumkvæði í skrifum sín- Django Reinhardt Albert Brooks og James Cameron Fjöldi leikara og leikstjóra kemur fram undir eigin nafni í The Muse. um og segir upp samningi hans. Steven er eyðilagður maður, sjálfs- traustið brostið og enginn vill ráða hann í vinnu. í öngum sínum fer hann til vinar síns, eins virtasta handritahöfundar í Hollywood, og segir ekki farir sínar sléttar. Vinur hans skilur vel í hvaða ástandi hann er og segir að hann hafi eitt sinn lent í svipaðri krísu. Þá hafi heilladís birst honum og bjargað hans málum. Ekki bara einhver heilladís, heldur hin eina sanna Heilladís, ein af níu dætrum Seifs sem nú býr í Hollywood og heitir Sarah. Vinurinn lofar að koma á stefnumóti svo Phillips geti leitað ráða hjá Heilladísinni. Sara, sem rekur umboðsfyrirtæki, lofar að hjálpa Phillips en vill fá í staðinn aðgang að lífi hans, þá ekki bara í gegnum síma og heimsóknir heldur dvelja með honum dag sem nótt svo hann komist í samband við sitt innra sjáif eins og hún orðar það. Þegar Phillips samþykkir þetta ger- ir hann sér grein fyrir þvi að líf hans mun aldrei verða eins og það var. Auk Alberts Brooks leika í The Muse Sharon Stone, sem leikur titil- hlutverkið, Andie MacDowell, sem leikur eiginkonu Stevens, og Jeff Bridges, sem leikur handritahöf- undinn, vin hans. Þá koma fram í myndinni frægir leikarar í eigin nafni, meðal annars Lorenzo Lamas, Jennifer Tilly og Cybill Shepard og leikstjóramir Rob Rein- er, James Cameron og Martin Scor- sese. -HK Sígauni sem spilaði djass Andi Django Reinhardts hvílir yfir Sweet and Lowdown enda er hann eina persónan sem Emmet Ray ber virð- ingu fyrir og er hann fyrirmynd hans í gítarleiknum. Django Reinhardt er ein af goðsögnum djassins og oft talinn mikilvægasti gítarleikari djasssögunn- ar. Það sem hann hafði fram yfir aðra samtímagítarleikara á borð við Lonnie Johnson, Eddie Lang og Charlie Christian var kraftur og tiifmning. Reinhardt gat spilað á nánast ómælan- legum hraöa og einnig gat hann látið hlustendur sína gráta yfir tilfmninga- rikum leik. I myndinni er Django Rein- hardt eini maðurinn sem getur fengið Emmet Ray til að tárast. Django Reinhardt var sígauni af rúmenskum foreldrum, fæddur í tjald- vagni í Belgíu. Hann byrjaði feril sinn sem gítarleikari i skuggahverfúm Par- ísarborgar en vann sig upp í að leika í finum konsertsölum og náði því að verða heimsfrægur. Hann lést 1953, fjörutíu ára gamall. Tónlist hans var blanda úr uppruna hans, sígaunatón- list sem blandaðist saman við banda- rískar hefðir í djassinum, og má rekja margt sem þykir sjálfsagt i gítarleik í dag til hans. Sean Penn og Samantha Morton Sean Penn leikur gítarleikarann Emmett Ray, besta gítarleikara í heimi en aö ööru leyti mikinn gallagrip. Sweet and Lowdown, ný kvikmynd Woody Allens: í skugga Django Reinhardts Smásopi sakar ekki Sean Penn í hlutverki djassgítaristans ásamt tveimur umrenningum. Sweet and Lowdown, sem Háskólabíó frum- sýnir á morgun, er nýjasta kvikmynd Woody Aliens og í henni segir hann upp- skáldaða ævisögu gítar- djassleikararns Emmet Ray, sem vantaði ekki sniilina þegar hann lék á gítarinn en átti í stöð- ugum erfiðleikum í einkalífmu þar sem við sögu koma konur, tón- listarmenn og glæpa- menn. Ray var uppi á fyrri hluta aldarinnar og þrátt fyrir sniili sína stendur hann alltaf í skugganum á Django Reinhardt, þeim franska snillingi sem Ray lítur á sem fyrirmynd sína. Þeir sem muna eftir snilldarverki Allens, Zelig, kannast við uppbyggingu Sweet and Lowdown. Myndin er byggð eins og um raunverulega atburði sé um að ræða og í sögunni eru persónur sem voru til í raunveruleikanum. AUen er, eins og flestir vita, New York-búi fram í fingurgóma og þrátt fyrir að Emmet Ray sé að þvælast á milli næturklúbba í New Jersey, Chicago, Detroit og Hollywood er myndin að öllu leyti tekin upp á Man- hattan, heimaslóðum Allens. Segja má að Sweet and Lowdown séð óður Woody Allens til djassins en hann er sjáifúr ágætur klarinettuleikari og hefúr meðal annars farið með hljóm- sveit sína í ferðalag um Evrópu sem var kvikmyndað auk þess sem hann kemur reglulega fram á djassklúbbi einum í New York. Sem fyrr á Woody Allen auðvelt með að fá þekkta leikara til að starfa fyrir sig þótt ekki sé kaupið hjá honum hátt. í hlutverki Emmets Rays er Sean Penn og aðrir leikarar eru Anthony La Paglia, Samantha Morton, Uma Thurman, Gretchen Mol og leikstjórinn John Wa- ters. Sean Penn hefur fengið mikið lof fyrir leik sinn og var hann tilnefndur til óskars- og Golden Globe-verðlaunanna fyrr á árinu sem besti leikari í aðalhlut- verki. Ekki hefúr Samantha Morton fengið verri dóma og var hún einnig til- nefnd til óskars- og Golden Globe-verð- launanna og fékk verðlaun sem besta leikkonan í aukahlutverki á kvik- myndahátíðinni í Chicago. -HK Gladiator •kirki. Ridley Scott hefur ávallt verið maður myndmálsins og hvergi kemur þessi kostur hans sem leikstjóra betur fram en i Gladiator, mikilli og vel gerðri epískri kvikmynd sem hefur nánast alit sem góð spennumynd þarf að hafa þó sagan sé sjálf ekki ýkja merkileg. Russell Crowe leikur titil- hlutverkið af miklu öryggi og krafti. Hann hefur það til að bera að maður trúir því að hann sé mestur allra skylmingaþræla auk þess sem mikill þungi er í túlkun hans. -HK I Ktna spiser de hunde ■kirki. Danir eru fáum öðrum líkir þeg- r- ar kemur að kvikmyndagerð. Hér leggja þeir til atlögu við kvikmynda- grein sem Evrópubúar hafa sjaldan rið- ið feitum hesti frá. Um er að ræða kol- svarta kómedíu þar sem áhorfendum eru lítil grið gefin. Ólöglegur innflytj- andi, bankastarfsmaður og tveir kokk- ar fremja rán undir stjórn Kim Bodnia úr Pusher. Mikið gaman, mikið grín. Wonderiand -BÆN kkk Leikstjórinn Michael Winterbott- om lýsir gleði og sorgum þriggja systra, ftölskyldu þeirra og vina. Undir drama þessara fjölmörgu persóna varpar hann fram mynd af stórborginni London - heillandi og þrúgandi í senn. Það mætti því vissulega segja að hann gerði fyrir * London það sem Robert Altman gerði fyrir Los Angeles í Short Cuts - sem er að vissu leyti fyrirmynd Wonderland. Breskt drama eins og það gerist best. BÆN East fs East ★★★ Hér er alvarlegt viðfangsefni tekið gamansömum tökum og gengur það að flestu leyti upp. Myndin er á köflurn bráöfyndin og persónugalleríið vel út- fært. Um miöbik myndarinnar koma þó í Ijós veilur í uppbyggingu sem gera at- <: burðarásina ósannfærandi og tvær aðal- persónanna þversagnakenndar. Það breytir þó ekki því að myndin er ansi hreint skemmtileg og býr yfir úthugsuðu og heillandi útliti. -BÆN 101 Reykjavík ★★★Hilmir Snær leikur auðnuleysingj- ann Hlyn sem lifir og hrærist í hverfi 101 í Reykjavik. Lif hans er í fóstum skorðum þar til vinkona móður hans kemur í heimsókn og úr verður ein- hver sérkennilegasti ástarþríhyrningur íslenskrar kvikmyndasögu. Fjörug mynd sem býr þó yfir þungri og alvar- legri undiröldu. -BÆN Ghost Dog: Way of the Samurai kkk Jim Jarmusch er bæði trúr fortið sinni í myndinni og fetar um leið inn á nýjar brautir. Aðalpersónan er að mörgu leyti í stöðu ferðalangsins sem við þekkjum úr fyrri myndum hans en mafiósamir tilheyra ólikri hefð megin- straumskvikmynda. Sú blanda gengur ekki nægjanlega vel upp en kemur þó ekki í veg fyrir ágæta mynd. -BÆN Angela's Ashes ★★★Alan Parker fer eigin leiðir í leik- stjóm á kvikmyndagerð frægrar skáld- sögu og er umhugað að sýna okkur smáatriðin, hvað fátæklingar þurftu að „ búa við á árum áður - lífsmáti sem varla þekkist í vestrænum þjóðfélögum í dag. Hvað sem segja má um Ieikstjórn og túlkun Parkers á bókinni þá hefur honum tekist að skapa áhrifamikla kvikmynd um líf og kjör fátæklinga fyrr á öldinni. -HK Toy Story 2 ★★★Þetta framhald fyrstu Leikfanga- sögimnar er, líkt og tyrri myndin, full af tjöri fyrir bæði börn og fullorðna. Tölvu- tæknin sem notuð er í Toy Story er undraverð, jafnraunveruleg og hún er gervileg, en um leið fyrirheit um ein- stakar sýnir sem eiga eftir að birtast okkur á riæstu árum. Hinum fullorðnu er þvi alveg óhætt að fylgja ungviöinu á þessa mynd til að rifja upp gamlan sann- leik, sem kannski hefur rykfallið svo- lítiö, og næra bamshjartað með ærlegri skemmtun. -ÁS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.