Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Side 32
36 FIMMTUDAGUR 29. JÚNl 2000 Tilvera Bjartar nætur í Norræna húsinu Tónleikaröð Norræna hússins, Bjartar nætur heldur áfram í kvöld kl. 22 með tónleikum Copenhagen Saxophone Quartet. Kvartettinn skipa Henrik Sveidahl, Maret Petersen, Charlotte Andersson og Torben Enghoff. Þau leika m.a. verk eft- ir Lárus H. Grímsson og Þor- stein Hauksson, auk Piazolla, Bach, Singelée og Dubois. Kynn- ir er Edda Heiðrún Backman. Gestum gefst kostur á að borða léttan kvöldmat að dönskum hætti kl. 20:30. Popp ■ BÍG BANP BRÚTAL A VEGAS Viöburöur Ovæntra bólfélaga er að þessu sinni frá Blg Band Brútal * sem spinnur „live soundtrack" viö teiknimyndir Hugleiks Dagssonar. Uppákoman hefst ki. 21:00. 1000 kall inn, 800 fyrir talsmenn. Forsala í 12 Tónum ■ JAGÚAR OG RJNKMASTER Á INGO TALtónleikar Hins Hússins og Rásar 2 halda áfram í dag eins og aöra fimmtudaga. Krár ■ UÚF STEMNING Á KRINGLU- KRANNI Bjarní Arason og Grétar w Orvarsson verða á Ijúfu nótunum á Kringlukránnl í kvöld. Tilvaliö að kíkja viö enda erfiöri vinnuviku aö Ijúka. ■ SKÍTAMÓRALL Á GAUKNUM Það má víst telja aö þeir sem hætta sér inn á Gauk á Stöng í kvöld muni ekki koma út ööruvísi en aö vera dauöþreyttir og löðursveittir. Já, það er komið aö því aö stórsveitin frá Selfossi, Skítamórall, komi Gauk- verjum í gírinn eins og þeir kunna best. Addi Fannar, Einar Agúst og allir hinir í myljandi stuði. Klassík_____________________ ■ SUMARTONLEIKAR I STYKKIS- v HOLMSKIRKJU Sigurbjörn Bern- harðsson fiöluleikari og Anna Guðný Guömundsdóttir píanóleikari meö tónleika í Stykkishólmskirkju. Sveitin______________________ ■ VH) POLLINN Dúettlnn PK leikur á Viö Pollinn á Akureyri í kvöld. Þeir félagar halda uppi sinni margróm- uðu stemmningu alveg eins og gest- ir staöarins vilja hafa hana. Kabarett ■ OVÆNTIR BOLFELAGAR Þaö er óvæntur staöur sem hýsir Övænta bólfélaga aö þessu sinni, þ.e. Club Vegas. Dagskráin byrjar kl. 21, "■ 1000 kall inn, 800 f/rir TALsmenn. Forsala miða í 12 Tonum. Dagskrá: Big Band Brútal spinnur „live soundtrack" viö teiknimyndir Hug- leiks Dagssonar. Kalll, Brútalhá- kariinn vingjarnlegi, veröur ekki langt undan og dularfull, brasilísk kanína mun hringa sig um súlurnar. Fundir ■ KINAKUIBBUR UNNAR efnir ttí kynningarkvölds á Sjanghæ í kvöld kl. 19. Unnur Guðjónsdóttir mun sýna litskyggnur úr fyrri ferðum og segja frá næstu Kínaferð sem mun standa yfir dagana 22.8 til 12.9 næstkomandi. Allir sem hafa hug á að fara til Kína eru velkomnir á kynninguna. Sjá nánar. Lífiö eftlr vinnu á Vísi.is Kultur og ungdom á Selfossi - norræna ungmennamótinu lýkur í dag DV-MYND NH Fjölþjóðlegur blær Færeyingar sýndu gestum þjóðdans á norræna ungmennamótinu Kultur og ungdom sem iýkur í dag. Tvö þúsund ung- menni hafa veriö önnum kafin síöustu daga og haft ýmislegt fyrir stafni, tónlist, leiklist og íþróttir, svo eitthvaö sé nefnt. DV, SELFOSSI:____________________ Það var fjölþjóðlegur blær á Sel- fossi á sunnudag því þar voru sam- an komin um 2000 ungmenni, öll þátttakendur í norræna ung- mennamótinu Kultur og ungdom sem er á íslandi þessa dagana. Þátttakendur eru frá Norðurlönd- unum auk Grænlands. Á sunnudag fór hópurinn í ferð um Suðurland og skoöaði sig þar um á helstu sagna- og ferðaslóðum. Síðdegis komu þau á Selfoss þar sem fjölbreytt dagskrá var fram á kvöld. „Þetta hefur allt gengið vonum framar, þau atriði sem verið hafa í Reykjavík hafa vakið athygli, bæði okkar gesta og eins áhorfenda. Við höfum farið vitt um uppsveitir Suðurlands og meðal annars vor- um við að planta í skógræktar- svæði við Aratungu þar sem hver þáttakandi gróðursetti eina plöntu," sögðu Anna R. Möller og Bjöm Jónsson, formaður NSU Nor- rænu ungmennasamtakanna, í undirbúningsnefnd að Kultur og ungdom. Daginn áður en farið var um Suðurland voru ungmennin í Fjöl- skyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík. Þar settu þau mikinn svip á mannlíflð með alls konar uppákomum og atriðum; lúðra- sveit, djassbandi, götuleikhúsi, fimleikasýningum og söng. Bjöm segir allt viðmót sem hópurinn hafi fengið hér á landi einstaklega gott og það hafi hjálpað til við að mótið gekk jafn vel og raun ber vitni. Á Selfossi sýndu ungmennin atriði sem þau voru sérstaklega búin að æfa fyrir mótið en allan mótstímann eru þau með sýningar, bæði opinberlega og á kvöldvökum mótsins í Broadway þar sem mið- stöð þess er. -NH Stytta vígð á Hellnum: Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku Stytta af Guðríði Þorbjamardótt- seta íslands í landi Laugarbrekku ur var um síðustu helgi vígð af for- á Hellnum. Verkið er til minning- DV-MYND PSJ Fjöldi fólks var viö afhjúpunlna á Hellnum Veður var eins og best veröur á kosiö þegar Ólafur Ragnar afhjúþaöi styttuna. í sömu sviþan hvarf skýjahulan af Snæfellsjökli og aö lokinni athöfn var haldiö til hnallþóruveislu aö hætti kvenna undir Jökli. ar um Guðríði sem fæddist á Laug- arbrekku fyrir rúmlega þúsund árum og ólst upp þar og á Arnar- stapa uns hún fluttist til Græn- lands með foreldrum sínum. Guð- ríður hefur lengi verið talin fyrst hvítra kvenna til að fæöa barn í Ameríku en þar ól hún Þorfmni karlsefni soninn Snorra. Svokallaður Guðríðar- og Laug- arbrekkuhópur stendur að gerð styttunnar sem er afsteypa af verki Ásmundar Sveinssonar en hópinn skipa Kristinn Jónasson, Skúli Al- exandersson, Guðrún G. Berg- mann, Reynir Bragason og Ragn- hildur Sigurðardóttir. Þær Erla Kristinsdóttir og Ragnhildur unnu skipulag á svæðinu en ytri um- gjörð styttunnar hannaði Hjörleif- ur Stefánsson arkitekt. Þá hefur vegur verið lagður að minnismerk- inu og hlaðnir steinveggir. Guðrún Bergmann flutti ágrip af sögu Guðríðar og Kristinn Krist- jánsson fór með frumsamið ljóð sem hann nefndi „Velkomin heim, Guðríöur". Þá tlutti Ólafur Ragnar Grímsson forseti ávarp þar sem hann sagði framtakið ánægjulegt og þarft. Að lokinni athöfn var öll- um boðið til kaffidrykkju í félags- heimilinu Röst á Hellissandi þar sem kvenfélagið tók á móti gestum með hnallþórum að hætti kvenna undir Jökli. Þar fluttu erindi Krist- inn Jónasson bæjarstjóri og Finn- bogi Lárusson, 91 árs að aldri en hann hefur búið alla sina tíð á Laugarbrekku. -PSJ/HH Bíógagnrýni ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Ordinary Decent Criminal - Regnboginn - ★★ Mistæk glæpasaga Michael Lynch (Kevin Spacey) er ústmoginn foringi glæpaklíku en jafnframt ástríkur fjölskyldufaðir. Reyndar svo ástríkur að honum duga ekki minna en tvær eiginkon- ur, systumar Christine (Linda Fior- entino) og Lisu (Helen Baxendale). Böm Michaels kveðja hann á morgnana er hann heldur til réttar- salsins undir eftirliti lögreglunnar - sem er líkt og gefur að skilja ekki vinsæl á heimilinu. Lögreglan hefur reyndar sérstakan hug á að hafa hendur í hári hans þar sem Michael hefur oft leikið hana grátt. Er á líð- ur fara glæpimar að snúast fyrst og fremst um að gera lítið úr lögregl- unni en ekki skjótan gróða. Veldur þetta nokkrum óróa í genginu, eink- um meðal Stevie (Peter MuUan) og Tony (David Hayman). Ekki bætir heldur úr skák afskipti trska lýð- veldishersins sem gerir tilkall til bæöi manna og þýfis Lynch. Spum- ingin er hvort hann sé nógu klókur til að leysa endatatlið með stæl. Það fer vart á milli mála hvað Kevin Spacey sá viö þetta hlutverk. Glæpaforingi og fjölskyldufaðir Kevin Spacey og Linda Fiorentino í hlutverkum sínum. Lynch er útsmog- inn grallari og ekki svo ólíkur mörgum öðrum persónum sem Spacey hefur leik- iö - auk þess sem að tvær eiginkon- ur ættu að hjálpa til við að kveða niður orðróm um samkynhneigö! Hann passar þó ekkert alltof vel í hlutverkið - eða myndin við Spacey. Ordinary Decent Criminal snýst alltof mikið um stjömu mynd- arinnar sem verð- ur þess valdandi að fjölmargir ágætir breskir leikarar falla full- komlega í skugg- ann af honum - þótt Spacey sjálf- Björn Æ. Noröfjörð skrifar gagnrýni um kvikmyndir ur sé ekki að sýna neitt nýtt. Eins em hlutverk systranna Christine og Lisu afskaplega takmörkuð og hefði betur farið á því að halda sig við eina eiginkonu og gera úr henni al- mennilegt hlutverk. Þá á hið írska umhverfi ekkert of vel við glæpa- sögu sem þessa (jafnvel þótt hún sé ekki með öllu staðlaus) og tekm- steininn úr þegar IRA birtist sem hver önnur gíæpamafla. Þrátt fyrir ofantalda vankanta er Ordinary Decent Criminal á köflum skemmtileg. Andstæður hefðbund- ins fjölskyldulífs og miskunnar- lauss glæpaheims bjóða upp á fjöl- margéu- kómiskar senur sem marg- ar hverjar heppnast vel. Heildar- myndin er þó of brotakennd og per- sónugalleríið litlaust þrátt fyrir miklar ýkjur á stundum. Leikstjórn: Thaddeus O'Sullivan. Handrit: Gerry Stembridge. Aöalhlutverk: Kevin Spacey, Linda Fiorentino, Peter Mullan og Stephen Dillane.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.