Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Qupperneq 33
37 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 DV Tilvera Hólar í Hjaltadal: Hvar er Guð? - boðið upp á draugarölt um Hólastað Hólar í Hjaltadal / sumar stendur til að gera hiö forna biskupssetur sýnilegt í tilefni af kristnitökuafmælinu. Hólar í Hjaltadal skipað veglegan sess í kristnisögu íslendinga. Að Hólum var biskupssetur um aldir og mikil menningarstarfsemi. í sumar stendur til að halda veglega dagskrá og gera hið forna biskupssetur sýni- legt í tilefni af kristnitökuafmælinu. Dagskráin nefnist Hvar er Guð? Boðið verður upp á ýmsa menn- ingarviðburði á staðnum sem ílestir munu fara fram í Hóladómkirkju. M.a. verða fyrirlestrar, tónleikar og helgihald en einnig mun hin árlega Hólahátið vera á sínum stað. Draugarölt Kristín Bjamadóttir, hótelstýra á Hólum, segir að í sumar verði boðið upp á draugarölt á Hólum. „Við byrjuðum á þessu fyrir tveimur árum og það hefur slegið rækilega í gegn því það er fjölmennt á allar sýningar. Sagðar eru sögur, sannar sögur, af atburðum sem gerst hafa á Hólum. Til dæmis eru sagðar sögur af Galdra-Lofti, Gottskálk grimma og morðinu á Otta Sveinssyni sem aldrei komst upp. Hér er líka aftur- gengin vinnukona sem hengdi sig en það er best aö segja ekki of mik- ið til að halda spennu fyrir þá sem vilja koma með á röltið. Þetta er 40-45 mínútna prógamm sem vakið hefur bæði hrifningu og hroll hjá fólki, það hefur til dæmis komið fyr- ir að börn hafa farið að gráta og full- orðiö fólk hefur hrópað upp yfír sig þegar því bregður.“ Fyrirlestrar, tónleikar og helgihald Fyrirlestramir sem boðið er upp á eru á vegum Hólanefndar og ósýnilega félagsins. AIls er um að ræða 4 fyrirlestra. Séra Jóna Hrönn Bolladóttir, miðbæjarprestur i Reykjavik, fjallar um nýjungar í helgihaldi, Bolli Pétur Bollason guð- fræðingur mun ftytja erindi um danska prestinn Kaj Munk. Ekki er búið að ákveða efni þriðja fyrirlest- ursins en í síðasta fyrirlestrinum mun Ámi Daníel Júlíusson sagn- fræðingiu- tala um norska Hólabisk- upinn Auðun hinn rauða. Af tónlistarviðburðum má nefna Sálma lífsins sem er sálmaspuni í flutningi Gunnars Gunnarssonar og Sigurðar Flosasonar og tónleika Kammerkórs Skagafjarðar sem gleðja mun tónelska gesti með flutn- ingi sínum 21. júlí. Fyrir utan guðsþjónustur sem haldnar eru hvem sunnudag verða kyrrðarstundir fjórum sinnum í sumar. Kyrrðarstundirnar eru í um- sjón Bolla Péturs Bollasonar og byggjast upp á bænum, söng og ritn- ingarlestri, þetta eru rólegar kvöld- stundir til þess að róa hugann frá amstri dagsins. Hólahátíð verður með nokkuð öðru sniði núna en áður hefur ver- ið. Hátíðin hefst 12. ágúst á því að gengið verður upp í Gvendarskál og messað í henni. Að messu lokinni verða leikir fyrir bömin, tónleikar undir bláhimni, varðeldur og söng- ur. Hátíðin í kirkjunni hefst degi síðar á hátíðarguðþjónustu. Mi&næturferðir í Gvendarskál Auk þessa verður boöið upp mið- næturferðir í Gvendarskál, gengiö er í fótspor Guðmundar biskups góða en sagt er aö hann hafl farið þangað á hverjum degi á páskafost- unni til að biðjast fyrir. Fjölskyldu- dagur Hólastaðar er 1. júlí, gefst fólk þá tækifæri á að fara í veiði, hestbak og stígvélakast. Gleðidúett- inn Hundur i óskilum mun stíga á svið og skemmta fram eftir kvöldi. Góð skemmtun. -Kip Olsonbræ&urnir Sigurvegararnir í Evrópusöngvakeppninni eru vinsælir í noröurhluta Evrópu og þelr vilja halda þeim vinsældum. Olsonbræður fresta upptöku í Englandi Olsonbræðurnir, sem sigruðu í Evrópusöngvakeppninni í ár, hafa frestað upptöku geisladisks síns í Englandi sem fyrirhuguð var í júní þrátt fyrir að lag þeirra, Fly on the Wings of Love sé oft leikið á út- varpsstöðvum þar í landi. Jorgen og Noller Olsen vUja held- ur halda í vinsældir sínar í löndum eins og Belgíu, Hollandi, Austurríki og Þýskalandi. í Þýskalandi hefur smáskífa þeirra selst i yfir 200 þús- und eintökum. % Núna eru Olsonbræðurnir í Aust- urríki í tUefni Dónarhátíðarinnar. Þaðan halda þeir tU Belgíu þar sem þeir munu koma fram í ýmsum sjónvarpsþáttum. Frá Belgíu liggur leiðin til Svíþjóðar. Fengu 264 kílóa lúðu á einn línukrók: Jagger brýtur Risalúöa. Hér sést fiskurinn í öllu sínu veldi. 264 kíió af dýrindis fiskmeti. gat á vegginn Mick Jagger gat ekki flutt lengra en í næstu íbúð þegar eiginkonan fyrrverandi, Jerry HaU frá Texas, rak hann loks að heiman, eUefu mánuðum eftir að sambandi þeirra lauk. „Hann keypti íbúðina við hliðina og braut síðan gat á vegginn í borð- stofunni þegar ég var í burtu. Ég losna ekki við hann,“ sagði Jerry í viðtali við bandaríska sjónvarps- stöð. Jerry sagði að Jagger hefði aldrei fundið lífsfyUingu í öUu framhjá- haldinu. ^öðkaupsveislur — útisamkomur—skemmtanir—tónleikar—sýningar—kynningar og fl. og II. og fl | Risatjöld - veislutjöld„ ,.og ýmsir fylgihlutír öTZT ^ Ekki treysta á veðrið ” skipuleggja á eftirminnilegan viðburð - O Tryggið ykkur oa leigið stórt tjald á staðinn - það marg borgar sig. 1 Tjöld af öllum stœrðum frá 20 - 700 m2. Leigjum einnig borð og stóla í tjöldin. aleiga skáta ..með skótum á heimavelli sími 5621390 • fax 552 6377 • bls@scout.is - yfir 100 þúsund krónur fyrir einn fisk stóra í happdrætti. Fiskurinn er fyrir það fýrsta mjög stór auk þess sem kílóverðiö er ansi ríflegt. I samtali við veitingastaði hér í borg kom fram aö ekki er óalgengt að greiddar séu 500 krónur fyrir kUóið af lúðu og þá er átt við að fiskurinn sé keyptur eins og hann leggur sig en ekki bútaður niður. Jóhann Gunnar segist sjálfur vita þess dæmi að lúða hafi farið á 1000 krónur kílóið en aUt veltur þaö á framboði og eftirspum. Ef við miðum við 500 krónur fyrir kUóið, sem er nær lagi, fær sjó- maðurinn í kringum 400 krónur á kUó þannig að ef raunvirði lúð- unnar sem fékkst um borð i Mumma árið 1964 er reiknaö tU núvirðis kemur í ljós að um 105 þúsund krónur hafa fengist fyrir þenna eina fisk. Ekki amaleg bú- bót það. -KGP Fregnir af stórum lúðum sem rek- ur á fjörur manna skjóta aUtaf upp koUinum af og tU. Þannig var um daginn greint frá þegar 154 kUóa lúða veiddist út af Amarstapa. Þó stór hafi hún verið er hún hins veg- ar langt frá því að vera sú stærsta sem veiðst hefur viö íslandsstrend- ur, að því er fram kom í samtali DV við Jóhann Gunnar HaUdórsson. Árið 1964 var Jóhann Gunnar ásamt fleiri staddur á vélbátnum Mumma, 85 tonna línubáti, á Eldeyj- ardýpi þegar þeir fengu risalúðu á einn línukrók. Lúða þessi var engin smásmíði og vó heU 264 kUó með haus og sporði. „Við fengum um 1250 kUó af lúðu í þessum túr en enga í námunda jafnstóra og þessa,“ segir Jóhann Gunnar sem segir það hafa verið lítið mál að draga þann stóra inn. Hann er heldur ekkert að stæra sig af risalúðunni og segist vita þess dæmi að 300-400 kUóa lúður hafi veiðst hér við land á árum áður, m.a. á Reykjaneshryggnum. Og að hans mati er lúðan mikiU fagurkeri á mat. „Maður heyrði oft sögur af því að lúðan undir Reykjanesi lifði góðu lífi á fuglseggjum sem féUu úr hreiðrum í björgunum," segir Jó- hann Gunnar. 400 krónur á kíló í hlut sjóOOOOmannsins Það er mál manna að það að fanga lúðu sé eins og að fá þann wwiAf.romeo.is Viö leggjum mikinn metnaö í pökkun og frágang á öllum póstsendingum. Allar sendingar dulmerktar. 100% trúnaöur. Eins og að vinna í lottói c f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.