Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Side 36
■M
Úrval
sundlauga
í garöinn
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Vestmannaeyj aflugvöllur:
Milljónatjón á
Flugfélagsvél
Vél frá Flugfélagi Islands laskaðist
þegar hún lenti á Vestmannaeyja-
flugvelli á dögunum en verið var að
leggja slitlag á flugvöllinn.
„Við sögðum þeim að við myndum
ekki fljúga þangað aftur fyrr en þetta
væri komið í lag og þeir lagfærðu
þetta á nokkrum klukkutímum," seg-
ir Jón Karl Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags íslands.
Að sögn Jóns fór lausamöl í
hreyfil flugvélarinnar með þeim af-
leiðingum að taka þurfti skrúfuna af
og nemur tjónið 2-3 milljónum.
Hann segir fyrirtækið vera að
kanna stöðu verktakans, sem vann
að lagfæringu vallarins, hjá trygg-
ingafélögum, en kvaðst ekki geta tjáð
sig frekar um það mál að sinni. -jtr
Innbrotsþjófur
~ staðinn að verki
Lögreglan í Reykjavík handtók
mann er brotist hafði inn i húsið að
Hafnarstræti 20 um þrjúleytið í nótt.
SVR-miðstöðin er meðal annars i
þessu húsi. Maðurinn var kominn
inn í húsið en hafði ekki stolið neinu
er lögreglan kom að honum. Maður-
inn var vistaður í fangageymslum
lögreglunnar í nótt og mun verða
færður til yfirheyrslu í dag. -SMK
Fyllirí og
klámbúllur
í Fókus sem fylgir DV á morgun
er viðtal við fatahönnuðinn Sæunni
sem hannar fót fyrir Naomi Camp-
bell og fleiri. Landakort drykkju-
mannsins er á sínum stað, það er
komið ár síðan síðast, og svo er það
skoðað hversu auðvelt það er að út-
vega sér klám í bænum. Gerð er út-
tekt á kannabisbransanum hér
heima og rætt við ísa á Thomsen en
hann er orðinn þriðja hjól Skjás
eins. Lífið eftir vinnu er að sjálf-
sögðu troðfullt af öllu því sem þú
þarft að vita um menningar- og
skemmtanalífið og miklu meira til.
DV-MYND ÞOK
I Dómkirkjunni
Prestastefna var sett í gær undir yfirskriftinni „í einum anda
Blóðugur slagur um flugfarþega á Keflavíkurflugvelli:
Ekkert annað en
manndrápstilraun
- segir Sigurjón Hafsteinsson, leigubílstjóri úr Reykjanesbæ
Magnús Jóhannsson, stöðvarstjóri
hjá Ökuleiðum í Reykjanesbæ, segir
styrjaldarástand hafa ríkt við flug-
stöðina á Keflavíkurvelli í gær. Þá
hafi atgangur leigubílstjóra úr
Reykjavík verið svo mikill að einn
maður hafi verið ekinn niður.
„Þetta var í sambandi við síðdeg-
isvélamar en þær eru að koma inn
svona frá klukkan þrjú til rúmlega
fimm síðdegis. Það eru svona 6 til 8
vélar á þessum tíma og því mikið
af farþegum sem þurfa að komast.
Nú eru engar rútur og það hafa
verið um 30 bOar frá Ökuleiðum og
Aðalstöðinni, en þetta er okkar
svæði samkvæmt lögum um leigu-
bifreiðar. Það keyrði alveg um þver-
bak i gær. Ágangur Reykjavíkurbíl-
anna var svo mikill að þeir létu sig
ekki þó strákar frá okkur væru að
passa upp á þetta á stéttinni. Þama
kom einn fyrrverandi leigubílstjóri
á Aðalstöðinni í Keflavík sem nú
ekur hjá Hreyfli.
Hann þekkir vel til og lagði bilnum
á bílastæðinu. Síðan blandaði hann
sér í hópinn og náði í fólk á stéttinni
við flugstöðina. Þegar hann var kom-
inn með fólkið í bilinn tóku strákam-
ir eftir því og reyndu að stöðva hann.
Þá var hann búinn að setja í gang og
hreinlega keyrði strákinn niður.
Hann varð að fara til
læknis og fékk þar
áverkavottorð, enda
stokkbólginn og
skrámaður."
Maðurinn sem ekið
var á heitir Sigurjón
Hafsteinsson úr
Njarðvík, kallaður
Sjonni, og hefur verið
afleysingabílstjóri hjá
Ökuleiðum.
„Ég er illa bólginn
og hef legið siðan þetta gerðist,"
sagði Sigurjón i samtali við DV í
morgun. „Ég er bara dauðskelkaður
og skil ekki hvers konar lýður þetta
er. Það er ekiö á mann og síðan
brosti bílstjórinn framan í mig þeg-
ar hann keyrði í burtu. Þetta er ekk-
ert annað en manndrápstilraun og
svona menn eiga ekki að hafa próf.“
Gert er ráð fyrir að kæra verði lögð
fram hjá lögreglu í dag.
Verður mætt með hörðu
Eysteinn Georgsson, leigubílstjóri
hjá Ökuleiðum, segir að eiginkona
hans, Kristín Hrafnsdóttir, starfs-
maður Ökuleiða, hafi farið með Sig-
urjóni til að stöðva Hreyfilsbílinn.
„Hún átti fótum fjör að launa þegar
billinn reyndi að bakka á hana. Sig-
urjón var fyrir framan
bílinn og gaf sig ekki
og var hreinlega keyrð-
ur niður.“ Eysteinn
segir bílstjóra að sunn-
an hafa fengið hótanir
um að tekið yrði á
þeim ef þeir létu sjá sig
í Reykjavík. „Þessu
verður mætt með
hörðu. Það verða engir
vöðvalausir menn sem
taka á móti þeim í
dag,“ sagði Eysteinn.
Magnús Jóhannsson segir að það
líöi um 20 mínútur frá því síðasti
bíllinn fer með farþega þar til sá
fyrsti kemur til baka. í millitiðinni
reyna Reykjavíkurbílar að hirða
upp okkar farþega. „Þá eru aUt upp
í tólf Reykjavíkurbílar iðulega bún-
ir að stilla sér upp þama og bíða eft-
ir að við förum og hirða þá okkar
farþega. I seinni ferðina hefur þurft
svona 10 til 15 bíla. Ef túrinn er 8
þúsund krónur, þá er þetta í kring-
um 100 þúsund kall sem þeir eru að
taka. Núna í verkfallinu eru þeir
búnir að ná um 12 til 13 hundruð
þúsundum í svona harki. „Við mun-
um fara í hart með þetta og láta
reyna á hvort lögin halda," sagði
Magnús Jóhannsson. -HKr.
Rugstöð Leifs Elríkssonar
Mikiö stríö er nú í gangi
á milli Reykjanes- og
Reykjavíkurbílstjóra
Thermo Plus Europe á íslandi:
Kaupir móðurfyrirtækið í Kanada
- gert ráð fyrir tvöföldun á tekjum og hagnaði
Samningaviðræður standa nú
yfir um að Thermo Plus Europe á
islandi kaupi móðurfyrirtækið í
Kanada. Með kaupunum ykist fram-
leiðslugetan um 250 prósent.
Samkvæmt heimildum DV er gert
ráð fyrir að viðræðum íslensku að-
ilanna og kanadísku eigendanna,
Refridgeration Massau & Sons, sem
aðsetur hafa á Prince Edwards-eyju
í Kanada, ljúki á næstu vikum. Áð
undangenginni úttekt á lagalegum
og fjárhagslegum þáttum kaupanna
er búist við að gengið verði endan-
lega frá kaupunum i lok sumars.
Með kaupum á kanadiska móður-
fyrirtækinu er reiknað með að tvö-
falda tekjur og hagnað Thermo Plus
Europe á íslandi. Þá á framleiðslu-
getan að aukast strax um 250 pró-
sent. Gert er ráð fyrir að höfuð-
stöðvar og alþjóðleg yfirstjórn fyrir-
tækisins verði á íslandi. Aukin
áhersla verður lögð á rannsóknar-
og þróunarstarf á vegum fyrirtæks-
ins á íslandi. í fréttatilkynningu
sem Tom Roseingrave, forstjóri
Thermo Plus, sendi frá sér fyrir
hönd fyrirtækisins segir að samrun-
inn muni hafa mikil áhrif á Thermo
Plus International, einkum þegar til
skamms tima er litið.
-HKr/Ótt//KGP
Keflavíkurflugvöllur:
Handtekinn
meö hass í
farangri
Tollverðir á Keflavíkurflugvelli
fundu tæplega fimm kíló af hassi í
farangri manns á þrítugsaldri sem
var að koma frá Amsterdam á
mánudaginn. í fréttatilkynningu frá
sýslumanninum á Keflavíkurflug-
velli kemur fram að fikniefnið
fannst við venjubundna skoðun á
farangri mannsins, sem hefur ekki
áður komið við sögu flkniefnalög-
reglunnar.
Maðurinn var handtekinn og
færður til yfirheyrslu hjá flkniefna-
deild lögreglunnar í Reykjavík.
Hann hefur verið látinn laus þar
sem málið er taliö upplýst.
Þetta er mesta magn kannabis-
efna sem tekið hefur verið í einu
lagi síðan í september í fyrra er
stóra flkniefnamálið svokallaða var
upplýst. Smásöluverðmæti fimm
kílóa af hassi er á milli sjö og átta
milljónir króna, segir í fréttatil-
kynningunni. -SMK
IVIótorhjólaslys á
Grafningsvegi
Ungur maður féll af mótorhjóli er
hann fór út af Grafningsveginum,
vestan við Heiðarbæ, á 10. tímanum
í gærkvöld. Maðurinn, sem er 26
ára, var fluttur með sjúkrabifreið á
slysadeild Landspítalans i Fossvogi.
Að sögn vakthafandi læknis þar
slapp hann við meiri háttar áverka
og var lagður inn á skurðdeild
sjúkrahússins til áframhaidandi að-
hlynningar í nótt. -SMK
Framkvæmdastjóri Hreyfils:
Ólöglegt hark
„Við höfum heyrt að bílar af höf-
uðborgarsvæðinu séu að harka
þarna upp frá,“ viðurkennir Sæ-
mundur Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Hreyflls, um bílstjóra
af stöðinni sem eru í almennum
leigubílaakstri frá Leifsstöð. „Það er
alveg ljóst að bilstjórar af höfuð-
borgarsvæðinu eiga ekki að reyna
að taka farþega á þessu svæði. Við
höfum sent úr skilaboð til manna
um að gera þetta ekki. Hver og einn
atvinnubílstjóri er sjálfstæður at-
vinnurekandi. Við eigum ekki að
þurfa að segja þeim að fara að lög-
um og reglum - þetta eru allt full-
orðnir menn og vita það sjálflr."
„Það eru á þriöja hundrað bíl-
stjórar hjá Hreyfli, svo hvemig dett-
ur þér í hug að ég hafl hugmynd um
hvort einn þeirra keyrði á bíl eða
eitthvað annað,“ segir Sæmundur
um meinta ákeyrslu Hreyfilsbíl-
stjóra á bílstjóra frá Ökuleiðum úr
Keflavík. -GAR
Gæði og glæsileiki
smoft
Csólbaðstofa)
Grensásvegi 7, sími 533 3350.