Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Page 3
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2000
19
UTflfr
A brautinni
Sport
Guðrúnu Arnardóttur var eflir mót-
iö um helgina boðið á mót í ísrael
seinna í mánuðinum. Þaö vill þó
þannig til að það er sömu helgi og
Meistaramót Islands og að því er DV
skilst þá mun Guörún ekki fara til
ísraels. -ÓK
Rúmlega 280 unglingar munu mæta
til leiks á unglingalandskeppni Norð-
urlandanna í frjálsum íþróttum í
flokki 17-22 ára sem haldin verður á
Skallagrímsvelli i Borgarnesi dagana
26. og 27. ágúst nk. Þetta er í fyrsta
sinn sem keppnin er haldin hér á
landi en mótiö er haldið á hverju ári
á Norðurlöndunum. -DVÓ
Perec er komin af stað að nýju
Franska hlaupakonan Marie- ekki raunin. Hún þakkar þjálfara 3000 m hindrunarhlaupi, par sei
José Perec sannaði á stigamóti
Alþjóða frjálsíþróttasambandsins
í Fraltklandi á laugardag að það
er ekki úr henni allur vindur
þrátt fyrir fjögurra ára fjarveru.
Hún náði Ólympíulágmarkinu í
400 m hlaupi þegar hún varð
þriðja í hlaupinu í Nice á tíman-
um 50,32 sek. i fyrsta 400 m hlaupi
sínu síðan 1996. Árangurinn segir
hún hafa komið sér nokkuð á
óvart, hún hafi haldið að síðustu
hundrað metramir yrðu henni
erfiðir og það hafi jafnvel haldið
fyrir henni vöku en sú var þó
slnum, Þjóðverjanum Hermanni
Maier, árangurinn og segir að þar
fari maður sem flestir þjálfarar
geti lært mikið af.
Annar lærisveinn Meiers,
Bandaríkjamaðurinn Anthuan
Maybank, sigraði í 400 m hlaupi
karla á mótinu á tímanum 44,80
sek. Bæði hann og Perec segja að-
ferðir Meiers óhefðbundnar og þá
sérstaklega það að hann hafi látið
þau hlaupa 300 m sprett 45 mínút-
um fyrir hlaup.
í tveimur greinum mótsins litu
bestu tímar ársins dagsins ljós, í
sem
Marokkóbúinn Brahim Boulami
hljóp á 8:03,30 mín., og í 1000 m
hlaupi, þar sem Noah Ngeny frá
Kenía fékk tímann 2:14,78 min.
Ástralska stangarstökksdrottn-
ingin Emma George olli mestum
vonbrigðum á mótinu þegar hún
lenti í sjötta sæti með 4,10 m.
Hins vegar mátti sjá í keppninni
efnilega tvítuga rússneska stúlku,
Svetlönu Feofanovu, sem sigraði
með mótsmeti, stökk 4,46 m og á
eftir að verða erfiö viðureignar í
framtíðinni. -ÓK
4
J
9
»1
wmmn
Guðrún Arnardottir, Bjórn Margeirsson og Silja
Úlfarsdóttir stóðu öll í ströngu á mótinu og náðu
góðum bætingum. Þó svo að íslenska liöið hafi
ekki orðið ofarlega í keppninni var margt gott
sem kom fram og stemningin góð.
DV-myndir Hilmar Þór
Árangur
100 m:
Reynir L. Ólafsson 10,63 sek. (6. sæti)
Silja Úlfarsdóttir . . . .11,93 sek. (3.)
200 m:
Bjarni Þór Traustason 22,65 sek. (8.)
Silja Úlfarsdóttir ..24,20 sek. (3.)
400 m:
Björgvin Víkingsson ........(DQ)
Silja Úlfarsdóttir ..54,64 sek (3.)
800 m:
Daði R. Jónsson . . . .1:54,09 mín. (7.)
Eva Rós Stefánsdóttir . . . 2:17,87 (5.)
1500 m:
Sigurbjörn Amgríms. 3:54,10 mín. (8.)
Guðrún Skúladóttir .4:40,24 mín. (5.)
3000 m:
Björn Margeirsson ......8:31,74 (5.)
Fríða R. Þórðardóttir 10:08,46 min.(-)
5000 m:
Björn Margeirsson 14:53,23 mín. (6.)
Fríða R. Þórðardóttir 17:42,83 mín (5.)
110 /100 m gr.:
Ingi Sturla Þórisson . . .14,87 sek. (-)
Guðrún Arnardóttir .. .13,36 sek. (1.)
400 m gr.:
Unnsteinn Grétarsson .54,67 sek. (6.)
Guðrún Arnardóttir . .55,76 sek. (1.)
3000 m hi.:
Sveinn Margeirsson .9:25,37 min. (7.)
Hástökk:
Einar Karl Hjartarson . . . .2,16 (4.)
íris Svavarsdóttir......1,70 m (7.)
Stangarst.:
Sverrir Guðmundsson . . .4,20 m (6.)
Langstökk:
Bjarni Þór Traustason . . .6,76 m (8.)
Guöný Eyþórsdóttir......5,61 m (5.)
Þrlstökk:
Sigtryggur Aöalbjörnsson 14,69 m (-)
Sigríður A. Guðjónsdóttir 11,73 m (8.)
Kúluvarp:
Ólafur Guðmundsson . . .13,90 m (7.)
Sigrún Hreiðarsdóttir . . .12,10 m (8.)
Kringlukast:
Magnús A. Hallgrímsson .57,17 m (2.)
Haila Heimisdóttir. 32,27 m (6.)
Sleggjukast:
Jón A. Sigurjónsson . . . .54,30 m (5.)
Halia Heimisdóttir ....32,38 m (7.)
Spjótkast:
Kjartan Kárason.............58,26 m (7.)
Vigdís Guðjónsdóttir 52,21 m (2.sæti)
4x100 m boðhl. karla.
.....................42,34 sek. (7.)
Ólafur-Davíð-Bjarni-Reynir Logi.
4x100 m boðhl. kvenna ............
.....................46,95 sek. (4.)
Kristin -Guðný-Silja- Guðrún
4x400 m boðhl. karla..............
..................3:21,84 mín. (8.)
Davíð-Reynir-Björgvin-Bjarni
Lokastaðan:
Karlarnir urðu í 6. sæti með
70 stig en heimamenn, Slóvakar,
sigruðu með með 140 stig.
Konumar urðu í 5. sæti með
95 stig en sigurvegarar urðu
tyrknesku stúlkurnar með 149,5
stig.
-ÓK
Evrópubikarkeppni landsliða í frjálsum íþróttum:
Góða 1 1 >æt i n g a r
- almenn ánægja meö árangurinn á mótinu
íslenska landsliðið i frjálsum íþrótt-
um keppti nú um helgina í Evrópu-
bikarkeppni landsliða, 2. deild, B-
riðli, í borginni Banska Bystrica í
Slóvakíu.
Liðið var ekki fullskipað þar sem
enginn keppandi var í stangarstökki
kvenna en Vala Flosadóttir veiktist
skömmu fyrir mótið og Þórey Edda
Elísdóttir var meidd. Einnig vantaði
nokkra sterka einstaklinga í liðið,
Sveinn Þórarinsson, FH, og Guðleif
Harðardóttir, ÍR, eru bæði frá vegna
meiðsla, Martha Ernstsdóttir gaf ekki
kost á sér vegna undirbúnings fyrir
Ólympíuleikana og síðast en ekki síst
má nefna Jón Arnar Magnússon sem
ákvað að einbeita sér að undirbúningi
fyrir tugþrautarmót sem verður í
Talance í Frakklandi síðar í mánuðin-
um.
Silja á fleygiferð
Fyrri dagurinn var nokkuð góður
og litu þó nokkrar bætingar dagsins
ljós. Þar fór Silja Úlfarsdóttir fremst í
flokki en hún bætti sig í 100 m hlaupi,
hljóp á 11,93 sek., og í 400 m hlaupi,
þar sem hún hljóp á 54,60 sek.
Guðrún Amardóttir var einnig í
góðu formi og bætti ársbesta árangur
sinn í 400 m grindahlaupi um heila
sekúndu á tímanum 55,66 sek. og varð
í fyrsta sæti.
Reynir Logi Ólafsson var einnig í
bætingaformi í 100 m hlaupinu og
skar 4/100 af sínum besta tíma, hljóp
á 10,63 sek.
Björn Margeirsson tók sig til og
bætti sig um 5 sekúndur í 3000 m
hlaupi, fékk tímann 8:31,74 mín.
Vigdís Guðjónsdóttir vann til
silfurverðlauna í spjótkastiinu þegar
hún kastaði 52,21 m, 45 sm styttra en
sigurvegarinn.
Bætingaflóð
Björn tók aftur til við bætingar í
gær og hljóp 5000 metrana í fyrsta
skipti á undir 15 mínútum, á 14:53,23
mín.
Ingi Sturla Þórisson, sem var á sínu
fyrsta stóra móti, stóð sig frábærlega
og stórbætti sig í 110 m grindahlaup-
inu og er ljóst að hér er feikiefnilegur
hlaupari á ferð. Hann hljóp á 14,87
sek. sem er aðeins 0,13 sek. frá lág-
marki á heimsmeistaramót unglinga.
Annar ungur og efnilegur strákur,
Kjartan Kárason, bætti sig um 3
metra í spjótkastinu og kastaði 58,26
m. Verður þetta að teljast sterkt hjá
báðum þessum strákum og vonandi
að framhald verði á.
Guðrún Arnardóttir vann í 100 m
grindahlaupi kvenna á 13,36 sek. en
hún átti annan besta tíma þeirra er
kepptu í hlaupinu.
Sigtryggur Aðalbjömsson, ÍR, bætti
sinn besta árangur utanhúss í
þrístökkinu þegar hann stökk 14,69 m.
Silja tók sig til á gær og bætti sig í
þriðju greininni á mótinu þegar hún
hljóp 200 m á 24,20 sek. Stalla hennar
úr FH, íris Svavarsdóttir, bætti sig
einnig rækilega í hástökkinu og stökk
1,70 m.
Jón Sævar Þórðarson yíirþjálfari
var mjög ánægður með árangurinn og
sagði flesta hafa staðið sig vel. Hann
segir stemmninguna hafa verið góða,
alla vera ánægða og að þetta mót hefði
verið á allan hátt mjög jákvætt.
-ÓK
ER ALLT Á SUÐUPUNKTI í B0LTANUM,
óvænt úrslit í Landssímadeildinni í hverri viku og allt getur gerst.
Nýttu þér úrslitaþjónustu
Símans GSIVI og fáðu stöðu og úrslit leikja
með SMS skilaboðum um leið og tölur berast.
Skráðu þig á www.vit.is
og vertu til i slaginn.
SÍMINN-GSM
FÆRIR ÞÉR FRAMTlÐINA