Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Page 10
26
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2000
3leikjuveiðin hefur viöa veriö góö
íins og í Breiödaisá.
DV-mynd Þröstui
„Þetta var f]ör hjá strákunum, þeir
fengu lax og það er fyrir mestu,“ sagði
Jón Þór Júlíusson en hann var við
veiðar með þeim Hafþóri Guðmunds-
syni úr SSÓL og Birgir Nielsen úr
Landi og sonum í Korpu fyrir fáum
dögum.
„Veiðin hefði kannski mátt vera
meiri og flskurinn gráðugri en þetta
var allt í lagi. Áin hefur geflð næstum
30 laxa og það er maðkurinn sem er
sterkur þessa dagana. Ég vona að lax-
inn fari að hella sér meira upp í ána en
hann hefur gert. Þetta er mest 4 til 6
punda laxar sem hafa veiðst héma. Ég
held að veiðimenn fari að reyna flug-
una meira en þeir hafa gert. Ég var
með erlendan veiðimann fyrir helgi og
hann reyndi hana mikið,“ sagði Jón
Þór enn fremur.
Veiðimaður sem þekkir Korpu vel
var í henni fyrir helgi og veiddi hann 8
laxa. AUir fengust laxamir á maðk.
Vel hefur gengið að selja veiðileyfi í
Korpu og fá má veiðileyfi seint á sumr-
inu.
Hafravatnið hefur eitthvað verið að
koma inn en þar má veiða frítt. Fiskur-
inn er smár í vatninu en einn og einn
lax veiðist þar á sumri.
„Mér finnst gaman að veiða í Harfa-
vatni en fiskurinn er mjög smár,“ sagði
veiðimaður sem við hittum við vatnið
og hann var kominn með nokkra titti.
Einn og einn vænn urriði veiðist þó
en þeir eru orðnir sjaldséðir þar um
slóðir.
Það styttist í að laxinn mæti í vatn-
ið, en hann lætur sig vaða upp úr
Korpu.
-G.Bender
Þaö fór vel á meö þeim trommurum, Hafþóri Guömundssyni
úr SSSÓL og Birgi Nielsen úr Landi og sonum viö Korpu. Áin
hefur gefiö 30 laxa.
DV-mynd Jón Þór
Sport
Veiöin hefur ekki
verið góð i Laxá á Ásum og þeg-
ar þetta er ritað hafa aðeins
veiðst rétt 120 laxar. Veiðimenn
sem eiga veiðileyfi núna í vik-
unni eru á báðum áttum hvort
þeir mæta yfirhöfuð. Þeir hafa
vist reynt lengi að selja veiði-
leyfin en ekkert gengið. Sama
hvað fylgir þeim, stangir og
annað góðgæti. Eitthvað er um
að veiðileyfi séu laus í Ásunum.
Þaó er svakaleg keyrsla á
veiðimönnum núna. Við frétt-
um af þremur sem fóru alla leið
austur 1 Þistilfjörð og veiddu
þar í þrjá daga. Þeir fengu tvo
fiska en kiiómetrarnir voru
nokkuð margir.
Nýja veióihúsiö við
Gljúfurá í Borgarfirði þykir
gott en núna hafa veiðst 20 lax-
ar. Það eru Húshylurinn og
Kerið sem hafa gefið best.
Stærsti laxinn enn þá er 10
punda fiskur.
Veiöiskapurinn hefur eitt-
hvaö verið að glæðast í Soginu
og eru liklega komnir um 20
laxar úr ánni.
Veiöiár eins og Álftá á Mýr-
um og Straumfjarðará hafa ver-
ið rólegar það sem af er veiði-
tímanum. Vatniö er orðið mjög
lítið í Álftá og næsta á við ÁÍftá
er Urriðá og er hún orðin veru-
lega vatnslitil.
Á Pallinum í Ölfusá hefur
veiöin aðeins lagast og hafa
veiðst um 40 laxar. En veiði-
skapurtnn byrjaði mjög rólega
og fékkst lítið.
Veiöimaöurinn kom út fyrir
skömmu og kennir þar ýmissa
grasa. Flestailar greinar snúast
um fluguveiði.
Sportveiðiblaðið er þessa
dagana að koma út. Tala menn
um næstu viku.
Það hefur heyrst að Haraldur
nokkur Haraldsson og fleiri
ætli að gefa út nýtt veiðiblað.
Veröur það blað öðruvísi en
þau blöð sem koma núna út.
Fluguhnýtingar eru hlutur
sem margir hafa í sér en við
fréttum af einum mjög ungum
hnýtara. Hann byrjaði fimm
ára að hnýta flugur og hnýtir á
fullu þrátt fyrir ungan aldur.
Þeir sem hafa séð flugumar hjá
þessum unga hnýtara eru sam-
mála um að flugumar hjá hon-
um séu mjög góðar. Hann ætl-
aði að veiða með flugumar sín-
ar á Snæfellsnesi og spumingin
er bara hvernig fiskinum líst á
þær.
Fyrst vió erum aö tala um
Snæfellsnes er laxinn víst byrj-
aður að gefa sig á Vatnasvæði
Lýsu. Eitthvað hefur veiðst af
bleikju og urriða.
-G.Bender
Laxveiðin hefur oft verið betri en
núna, laxagöngumar virðast vera
máttlitlar og fiskar fáir. Jú, það
koma laxar en ekki mikið.
Norðurá í Borgarfirði hefur gefið
flesta laxana eða kringum 600 fiska.
Næst kemur Þverá í Borgarfirði
með rétt 300 laxa og síðan Blanda
sem hefur gefið um 290 laxa. Síð-
ustu dagar hafa gefið frekar lítið í
Blöndu.
Dýrasta laxveiðiá landsins, Laxá
á Ásum, er komin með eitthvað yfir
100 laxa en veiðimenn keppast ekk-
ert að komast þangað til veiða.
Einhverjir hafa reynt að selja
veiðiieyfin en það hefur gengið frek-
ar illa að losna við þau. Skrýtið.
Laxagöngur sumarsins hafa cills
ekki verið eins karftmiklar og
margir áttu von á. Laxamir eru
miklu, miklu færri.
Auðvitað hafa komið „skot“ eins
og í Norðurá í Borgarfirði þar sem
allt hefur verið í lagi með veiðina. í
Eystri-Rangá veiddust í síðustu
viku 46 laxar á einum degi.
„Við eigum veiðileyfi í Laxá á
Ásum í vikunni en við vitum ekki
hvort viö fórum," sögðu þeir félag-
amir Þórarinn Ragnarsson og Jó-
hannes Stefánsson og bættu við,
„veiöin er ekkert til að hrópa húrra
fyrir.“
Það hefur eitthvað verið um að
veiðimenn mæti ekki í laxveiðina
og reyni að selja veiðileyfin sín.
„Ég nenni ekki þegar veiði-
skapurinn er svona rólegur,
fiskarnir eru fáir og
jafnvel smáir,“ sagði
veiðimaður sem DV-
sport hitti í vikunni við Elliöaárn-
ar, en þar hefur veiðin verið í góðu
lagi.
Veiðin var góð í Leirvogsá i vik-
unni en veiðimenn sem veiddu
núna á fostudaginn voru I litlum
fiski. Það höfðu ekki gengið laxar á
síðustu flóðum í ánni
Það er stækkandi straumur þessa
dagana og veiðimenn sem kalla ekki
allt ömmu sína bíða spenntir. Auð-
vitað þurfum við fleiri laxa og jafn-
vel stærri.
En veiðimenn eru hópur sem
ekki gefst upp þó á móti blási. Það
kemur tími og það koma laxar.
Veiðimenn sem vom að koma úr
Laugardalsá veiddu 5 laxa en áin
var líka
15 gráða heit. Töluvert var af fiski
að ganga. Þegar Svartá í Húnavatns-
sýslu var
opnuð fyr-
ir fáum
dögum
var áin 18
gráða
heit. Þetta
hefur allt sitt að segja fyrir veiði-
menn og laxinn.
Laxamir verða færri og færri en
veiðimennimir fleiri og fleiri. En
veiðimenn spyrja oftar og oftar
þessa dagana, hvað er laxinn? Hvers
vegna kemur hann ekki meira?
Bleikjan er allavega fiskur sem
ekki virðist klikka eins og laxinn.
Góð bleikjuveiði hefur verið víða og
hún er væn.
Á silungasvæðinu í Vatns-
dalsá hefur verið mokveiði og
stærstu bleikjurnar eru um 5
pund.
Það er hægt að renna fyrir
bleikju ef laxinn mætir ekki.
Oft hefur tekist að redda veiðitúr
með góðri bleikjuveiði.
Gunnar Bender
og Stefán Kristjánsson
Trommarar í Korpu
- færri laxar og fleiri renna fyrir
Veiöimenn bíöa eftir konungnum en hann lætur bíða eftir sér víöa um land, þó hann hafi reyndar mætt í eina og eina veiðiá. Elliöaárnar hafa gefiö um 150
laxa. Á myndinni reynir Ólafur Haukur Ólafsson í Fossinum. DV-mynd G.Bender
Hvar er laxinn?