Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Blaðsíða 12
'i4 28 4 MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2000 Sport DV Urslit á LIVI 2000 Markús tók B-flokkinn Oruggur sigur Orms Orrasonurinn Ormur frá Dallandi sigraði örugglega í A- flokki gæðinga á LM 2000. Hesturinn hafði það mikla yfirburði i undanúrslitum að landsmótsgestir spurðu sig frekar hverjir kæmu þar fyrir neðan. Klakkur, sem varð í öðru sæti og Vignir Jónasson reið á, var i raun eini hesturinn sem gat veitt Ormi einhverja keppni. Stjami og Ragnar Hinriksson komu upp úr B-úrslitum og stukku upp í þriðja sæti með glæsibrag en þar fór enn einn Orrasonurinn. í fjórða sæti kom svo Skaíl sem Sigurður Sigurðarson reið á. Atli Guömundsson og Pórdís Siguröardóttir, brosmild, enda sigur í A-flokki aö baki. Þórdís er eigandinn en Atli knapinn. DV-mynd E.J. Tölvutölt Karen L. Marteinsdóttir sigraöi í ungmennaflokki en Matthías Ó. Baröason varö annar. DV-mynd E.J. Karen átti sigurinn Karen Líndal fékk aö vita daginn eftir að hún hefði unnið ungmenna- flokkinn á landsmótinu eftir að vit- lausir tölvuútreikningar höfðu kom- ið í ljós eftir keppnina. Karen hafði verið í fyrsta sæti eftir forkeppn- ina og var vel að sigrinum komin. En Matthías þurfti líkt og Egiil þór- arinsson að afhenda titilinn daginn eftir. Það var ótrúlega góður hesta- kostur i þessum flokki líkt og hjá öðrum flokkum bama og unglinga. Fyrsta sigur Sigurbjöms Bárðar- sonar í B-flokki klárhesta á lands- móti náði hann sér i gær á Markúsi frá Langholtsparti. B-flokkurinn var einhver sá mest spennandi á þessu landsmóti. Flest hrossin gátu nælt sér í titilinn og mátti heyra saumnál detta á meðan keppnin fór fram hjá rúmlega fjórt- án þúsund áhorfendum. Snælda, sem hafði verið í öðru sæti í for- keppninni, brást knapanum, honum Vigni Jónassyni, og var öll á skjön framan af úrslitunum. Þetta varð til að auka á dramatíkina og lá oft við að Snælda færi í veg fyrir önnur hross og truflaði sýningu þeirra. Valíant og Hafliði Halldórsson voru öruggir í öðru sætinu og fóru í gegn- um úrslitin af öryggi. Það er óhætt að segja að Glampi hafi fengið upp- reisn æru með því að lenda í þriðja sæti. Glampi, sem kemur frá Vatns- leysu í Skagafirði, átti hug og hjörtu áhorfenda á landsmótinu eins og oft áður fyrir ótrúlegar hreyfmgar. Yf- irferðartöltarinn Víkingur frá Voð- múlastöðum varð í fjórða sæti og var ferðin á klárnum eitthvað sem sjaldan hefur sést síðan töltgamm- urinn Snjall var og hét fyrir um tíu árum. Töltmeistari landsmótsins, Laufi, varð í fimmta sæti. Markús frá Langholtsparti stóö efstur i B-flokki gæðinga á landsmótinu. Knapinn Sigurbjörn Bárðarson vann þar sinn fyrsta sigur í gæðingakeppni á landsmóti. DV-mynd E.J. Þaö má heita með ólíkindum hvemig tölvumar spiluðu aðalhlut- verkið á LM 2000. Eftir mjög góða töltsýningu á laugardagskvöldið, sem er hápunktur þess dags á lands- mótum yfirleitt, kom í ljós nokkru seinna að Blæja var ekki sigurveg- ari eins og ailir voru búnir að sætta sig við. Einhvers staðar hafði orðið innsláttarvilla sem mönnum yfir- sást áður en úrslit voru kunngjörð. Að verða sviptur titli eftir svona mistök hlýtur að taka á taugamar fyrir þann sem verður fyrir slíku. En Egill Þórarinsson, sem reið Blæju svo frábærlega, þurfti að af- henda titilinn til Hans Kjerúlf fyrir framan áhorfendur og sýndi mikinn drengskap. Laufi og Hans Kjerúlf eru margreynt og frábært töltpar sem áttu titilinn skilinn líkt og Blæja og Egill. í þriðja sæti kom Hringur sem Sveinn Ragnarsson reið en þar fer gífurlega efnilegur hestur, aðeins sjö vetra, og má bú- ast við miklu frá þeim félögum í framtíðinni. Hans F. Kjerúlf sigraöi í töiti en Egill Þórarinsson varð annar. DV-mynd E.J. 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.