Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Side 16
 32 MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2000 12 létust í Zimbabwe Ahorfendur á leiknum munu seint gleyma þessum hræöilega atburöi Reuters Á leik Zimbabwe og Suður-Afríku, sem var leikur í und- ankeppni HM, kom til óeirða og þurfti lög- reglan að beita táragasi á vellinum til að verjast æstum múginum. Þegar um átta mín- útur voru til leiksloka skoraði Delron Buckley annað mark- ið sitt fyrir Suður- Afríku og kom sínum mönnum í 2-0. Áhorf- endur á leiknum, sem fór fram í Zimbabwe, voru ekki ánægðir með það og byrjuðu að kasta flöskum og dósum inn á völlum, og tókst þeim að meiða Buckley sem og lækni liðsins sem hlúði að honum. Áður en völlurinn fylltist af reyk vegna táragassins náðu leik- menn og dómari að flýja völlinn, þó ekki án þess að verða fyrir áhrifum af táragasinu. Hins vegar greip um sig múgæsing meðal áhorfenda þeg- ar fólk reyndi að yfir- gefa leikvanginn í flýti og leiddi það til þess að tólf manns urðu undir vegna troðnings. Yfirlæknirinn á Parirenyatwa-spítal- anum í Zimbabwe sagði að tólf manns væru þegar látnir, fjórir væru í lífshættu og fjöldi annarra slas- aður. -esá Enginn náði ÓL-lágmarki Sampras í sögubækurnar Pete Sampras frá Bandaríkjun- um skráði nafn sitt á spjöld tenn- issögunnar þegar hann vann landa sinn, Pat Rafter, i úrslitaleik einliðaleiks karla á Wimbledon- mótinu í tennis. Sampras vann þar með 13. stórmótstitil sinn og hann jafnaði einnig met Williams Renshaw með sjöunda Wimbledon-titli sínum Sampras réð vart við sig í lokin og fór beinustu leið til foreldra sinn sem, þótt ótrúlegt megi virð- ast, voru að horfa á fyrstu Wimbledon-keppni sonar síns. Bandaríska stúlkan Venus Williams vann ríkjandi meistara, löndu sína Lindsey Davenport, í úrslitaleik einliðaleiks kvenna á laugardag, 6-3 og 7-6. Þetta er fyrsti stórmótstitill Williams og var hún að vonum ánægð og hopp- aði um eins og gasella á vellinum og klifraði upp í áhorfendapallana til foður síns og systur. Ástralarnir Mark Woodforde og Todd Woobridge unnu sinn 6. Wimbledon-titil í tvíliðaleik og settu með því met því þetta var 60. titill þeirra á ferlinum. Donald Johnson og Kimberly Po unnu síðan í tvenndarleik. Orn Arnarson var þegar bú- inn að tryggja sér þátttöku- rétt á ÓL. DV-mynd Evrópumeistaramótinu í sundi lauk um helgina í Helsinki. Engum sund- manni tókst að tryggja sér þátttöku- rétt á ÓL, en áður en mótið hófst höfðu tveir sundmenn, þeir Örn Am- arson og Jakob Jóhann Sveinsson, náð að tryggja sér þátttökurétt. Á laugardaginn bar það helst til að Rikarður Ríkarðsson setti nýtt ís- landsmet í 50 m skriðsundi, en hann bætti met Arnar Amarsonar um 1/100 úr sekúndu og synti á 23,79 sek. í gær bætti kvennasveit íslands ís- landsmetið í 4x100 m fjórsundi þegar þær syntu á tímanum 4:26,82 mínútur. Sveitina skipuðu Kolbrún Ýr Krist- jánsdóttir, baksund, Lára Hrund Bjargardóttir, bringusund, Eydís Kon- ráðsdóttir, flugsund, og Elín Sigurðar- dóttir, skriðsund. Pete Sampras, sigurverari á Wimbledon-mótinu í einliöaleik karla, kyssir hér sigurverölaun sín. Reuters Nintendo leikjatö Perfect Dark - sa Perfect Dark kemur frá snillingunum í Rare (þeim sömu og gerðu Goldeneye) og er leikurinn búinn að fá dóma sem hafa ekki áður sést. Hjá hinu óháða blaöi, Nintendo magasín, þar sem Goldeneye fékk 93 stig af 100 á sínum tíma, fékk Perfect Dark 99 stig og ein ummælin voru á þessa leið: "Gleymdu Dolphin, Piaystation 2 og Dreamcast því þessar wólor worAo allar nrAnar aA AMTÍIf hanar hi'i faarA IniA ó va og æsileikurinn nan á aðeins 9.900kr. rétt verð 15.800 kr. Það er árið 2023 og þú ert nýútskrifaður spæjari sem berð nafnið Joanna Dark. Þú ert í vinnu hjá Stofnun sem ber nafn yfirmanns þíns Daniel Carrington. Þú byrjar í Carrington og getur skroppið á skotsvæðið og aukið færni þína áður en þú færð þitt fyrsta verkefni sem er innbrot hjá þínum verstu óvinum í Datadyne. Stríð geysar á milli geimverutegunda og mannskepnunnar en þú átt líka bandamenn sem eru frá annarri plánetu. Svo bíða þín ógrynni af verkefnum eins og að bjarga Elvis Air force one með forsetanum og að losa heiminn við klónaðan forseta. Leikurinn býður uppá að tveir geti leyst verkefnin saman eða keppt hvor á móti öðrum Sterkur leikur Lilleström í toppbaráttuna „Það var mikilvægt fyrir okkur að fá öll þrjú stigin úr þessum leik. Nú erum við komnir á fullt í baráttu efstu liða,“ sagði Grétar Hjartarson eftir að Lilleström kláraði leikinn gegn Haugesund, á Bislett, á þrettán mínútum með þvi að skora þrjú mörk. Öll mörk liðsins komu eftir góð gegnumbrot þar sem Rúnar Kristinsson var potturinn og pannan i uppbygg- ingunni. Sigurinn, 4-1, hefði getað orðið enn stærri þvi yfírburðir Lilleström voru algerir allan leik- inn. Rúnar Kristinsson var eini ís- lendingurinn sem kom við sögu Lilleström í leiknum en hann bað um skiptingu eftir klukkutíma leik. Með sigrinum er Lilleström komið í hóp efstu liða, með 17 stig og tveimur leikjum minna en flest toppliðin. Meistararnir í Rosenborg fóru á kostum gegn Moss þegar þeir sigr- uðu gestina, 5-1, á Lerkendal. Gamli maðurinn, Nils Ame Eggen, tuktaði son sin, Knut Tor- bjöm, þjálfara Moss, til enn eina ferðina og sýndi drengnum hver er hugmyndaríkasti þjálfari Nor- egs nú. Það gekk ekki eins vel hjá Molde þegar Teitur Þórðarson mætti með lið sitt, Brann, frá Bergen. Molde tapaði sinum þriðja leik í röð og öðrum á heimavelli, því Brann skoraði eina mark leiksins eftir homspymu snemma leiks. Annars verður leiksins aðal- lega minnst fyrir mikla spennu og frammistöðu dómarans, sem dæmt hafði vítaspyrnu á gestina nokkrum mínútum fyrir leikslok en stóð síðan ekki við dóm sinn þegar fjórði dómarinn benti á, eft- ir mikil mótmæli gestanna, að heimamenn hefðu byrjað leikinn of snemma eft- ir innkast þar sem aðeins > annar leikmað- ur þeirra var kominn inn á þegar þeir hófu leikinn aftur. Tryggvi Guð- mundsson skor- aði tvö mörk fyrir Tromsö úr vítum þegar lið- Tryggvi ið sigraði ná- Guðmundsson granna sína í Bodö/Glimt með fjórum mörkum gegn einu. Hin mörk Tromsö skor- aði nýliðinn Rune Johansen, sem kom inn í liðið fyrir Rune Lange. Með mörkunum tveimur er Tryggvi kominn í hóp marka- hæstu leikmanna úrvalsdeildar- innar. í botnbaráttunni vann Váler- enga 3-2 sigur á Start og Odd Grenland vann Bryne, 4-2. Flest bendir því til þess að nýliðar deildarinnar, Start, Bryne og Haugesund, eigi sér enga framtíð meðal þeirra bestu í Noregi. Þau eru einfaldlega slökust liðin í deildinni. Leik Viking og Stabæk var frestað vegna þátttöku Stabæk í Evrópukeppni. -GÞÖ 1 ^ ifa.—nmmm "WWBBfiMiláff E.fröT,„Il Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur að því er sagt er leitað aftur til Brasil- íu eftir liðstyrk. Nú mun varnarmaður- inn Edmilson vera á leið til Lúndúna- liðsins og hefur verið haft eftir tals- manni brasilíska liðsins Sao Paulo að það eina sem sé eftir sé að skrifa undir til að ljúka við 4,6 milljóna punda kaup á manninum sem á að taka við af Tony Adams. Kollegi Wengers hjá Tottenham, Geor- ge Graham, hefur heldur ekki hætt leikmannakaupum. Nú er Ben Thatcher, leikmaður Wimbledon, sagð- ur vera á leið til liðsins og hann mun að sögn David Pleat hefja æfingar með liðinu í dag. Kaupverðið mun vera um 5 milljónir punda. Ef af verður hefur Wimbledon-liðið selt leikmenn fyrir 12 milljónir punda á einni viku. Atletico Madrid, sem féll úr spænsku fyrstu deildinni í vetur, hafði betur en meistarar Deportivo i kapphlaupinu um markahæsta mann liðinnar leiktið- ar, Salva Ballesta, leikmann Racing Santander. Honum er ætlað að taka stöðu Jimmy Floyd Hasselbaink sem farinn er til Chelsea. -ÓK Sbort dvsport@ff.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.