Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2000, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000
I>V
Fréttir
Grænlendingar horfa til stórfelldra veiða á íslandsþorski:
Storauknar veið-
ar óráðlegar
- segir Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar
„Það er nauðsyn-
legt að þjóðimar
ræði saman um þessi
mál. Þetta snýst um
fiskistofn sem fer úr
einni lögsögu í aðra,“
segir Jóhann Sigur-
jónsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar,
vegna þeirra tíðinda
að þorskseiði frá ís-
landi lifðu af vetur-
inn og eru nú eins
árs þorskur. Græn-
lendingar hugsa gott
til glóðarinnar og
sumir reikna með
hundruð þúsunda
tonna veiði eftir þrjú
ár þegar fiskurinn
verður fullvaxinn.
Þau viðhorf eru uppi
meöal grænlenskra
útgerðarmanna að
ástæðulaust sé að
ræða þessi mál við ís-
lendinga.
':msímimx" Isknsku þörsfcsei&iti iiiów gr-íwilenskan vtttur
Grænlenskar útgerðir
undirbúa þorskævintýri
- ríitaaad raeð huoúrað þúsuiida tomra þorskuelði
Þorskurinn kominn
íslandsþorskur er nú aö vaxa upp vlö Grænland. Þeir bjartsýnustu gera
ráö fyrir aö Grænlendingar nái hundraöa þúsunda tonna þorskafla.
Þorskurinn sé
kominn í græn-
lenska lögsögu og
því ekkert um að
tala. Grænlending-
ar eru með samn-
ing við
Evrópusambandið
um veiðar við land-
ið og því eins víst
að EB-skip muni
taka sinn skerf af
þorskinum. Langt
er síðan íslenskur
þorskur kom síðast
upp við Grænland
en á árum áður var
stór hluti þorsk-
veiði við ísland
þorskur sem skil-
aði sér aftur á ís-
landsmið.
Fari svo að stór-
felldar veiðar eigi
sér stað við Græn-
land er ólíklegt að
þeirrar búbótar sé
að vænta. íslendingar, Færeyingar
og Grænlendingar eiga sameigin-
lega hagsmuni hvað varðar veiðar
úr grálúðustofninum en þar hefur
enn ekki tekist að semja um nýt-
ingu þrátt fyrir þrýsting íslenskra
stjórnvalda. Jóhann segir það sama
gilda um grálúðuna og þorskinn.
Nauðsynlegt sé að nýting stofn-
anna sé skoðuð i samhengi.
„Það þarf að nýta stofninn með
heildarsýn í huga. Þessar göngur
hafa legið niðri um árabil en áður
var þorskurinn sem kom frá Græn-
landi stór hluti sumra árganga,"
segir hann.
Þorskveiði við Grænland hefur
undanfarin ár aðeins verið örfá
þúsund tonn. Jóhann segir óráðlegt
hjá Grænlendingum að stórauka
veiðamar svo sem raddir eru uppi
um.
„Það er mjög varhugavert að
ætla að veiða sem nemur hundruð-
um þúsunda tonna. Þetta þarf allt
að fara rólega af stað,“ segir Jó-
hann. -rt
Bílaþjófur kveikti í fengnum
Þjófurinn sem stal jeppa við
Skúlagötuna fyrir stuttu var sam-
viskusamur og skilaði honum aftur
á sama stað. Siðan virðist pörupilt-
urinn hafa fengið bakþanka yfir
heiðarleik sínum og kveikti í bíln-
um áður en hann yfirgaf hann.
„Jeppanum var stolið, honum
skilað aftur og kveikt í honum. Ég á
voða erfitt með að skilja þetta,“
sagði tónlistarmaðurinn Johnny
King. Hann býr á Laugaveginum og
leggur 12 ára gömlum gullituðum
Pajero-jeppa sínum á Skúlagötunni.
Fyrir rúmri viku lagði Johnny bíln-
um eins og hann er vanur, en þegar
hann kom að honum daginn eftir
tók hann fyrst eftir að bíllinn hafði
verið færður.
„Ég skildi ekkert í því þegar ég
kom að honum að ég sá ekki inn um
rúöumar á honum. Hann var meira
eða minna brunninn allur að innan
en það sér ekki utan á honum,"
sagði Johnny, en eldurinn hafði
svert rúður bílsins. Sætið hafði
einnig verið fært úr þeirri stöðu
sem Johnny hefur það í. Engir lykl-
ar voru í bílnum og Johnny sagðist
ekki vita hver sökudólgurinn væri.
Bíl stolið, skilað aftur og kveikt f honum. dv-mynd gva
Johnny King endurheimti jeppa sinn úr klóm bíiaþjófs. Bíllinn er þó mikiö skemmdur því kveikt haföi veriö í honum.
Hann kærði atburðinn til lögreglu, mun fara á verkstæði og átti mundu kosta hann á þriðja hundrað
sem kom og tók skýrslu. Bíllinn Johnny von á því að viðgerðimar þúsund krónur. -SMK
Síðasta graskögglaverksmiðja landsins:
Erlent fóður er óþverri
- segir framkvæmdastjóri Fóðuriðjunnar
„Við stefnum að þvi að þrauka,"
segir Sæmundur Kárason, fram-
kvæmdastjóri graskögglaverk-
smiðjunnar Fóðuriðjunnar í Ólafs-
dal sem er eina starfandi gras-
kögglaverksmiðja landsins. Sæ-
mundur segir reksturinn hafa
gengið vel á árinu.
„En við fáum harða samkeppni
erlendis frá þar sem innflutta fóðr-
ið er niðurgreitt frá Evrópusam-
bandinu. Þessi samkeppni hefur
reynst okkur erfið en sem dæmi
um hana má nefna að kílóið af
graskögglum frá Danmörku er nið-
urgreitt með sem svarar til sex ís-
lenskra króna,“ segir hann.
Á þeim þremur og hálfa mánuði
sem graskögglaverksmiðjan er
starfrækt á hverju ári eru fram-
leidd þar á bilinu 1000 til 1200 tonn.
Um 200 tonnn eru flutt til Græn-
lands en afgangurinn er seldur hér
heima. Sæmundur segir að lítill
stuðningur hafi verið frá ríkinu við
graskögglaiðnaðinn þó verksmiðj-
an hafi reyndar fengið dálítinn
styrk á síðustu tveimur árum. „En
í dag hefur hún ekki fengið náð fyr-
ir augum ráðuneytis landbúnaðar-
mála,“ segir hann.
Að sögn Ólafs er verksmiðjan
gríðarlega mikilvæg fyrir sveitaifé-
lagið þar sem hún veiti 10 manns
atvinnu yfir sumarmánuðina en
þremur til fjórum starfsmönnum á
vetrum.
„Við ætlum að halda áfram
ótrauðir og mæta samkeppninni
með því að kynna fóðurkögglana
sem yfirburðafóður í samanburði
við hið innflutta. í Noregi og
Þýskaland hefur okkur verið hrós-
að vegna þess að okkar kögglar
Heyannir sumarlangt dv-mynd þok
Á sumrin er unniö höröum höndum allan sólarhringinn í graskögglaverk-
smiöju Fóöuriöjunnar í Ólafsdal.
innihalda 100 prósent gras en er-
lendir framleiðendur bæta alls
kyns efnum og óþverra í sitt fóð-
ur,“ segir Sæmundur Kárason, sem
unnið hefur við graskögglaverk-
smiðjuna í 28 ár. -ÞÖK
Matsáætlun frá Reyöaráli
Reyðarál hefur
sent Skipulags-
stofnun tillögur að
matsáætlun um
mat á umhverfisá-
hrifum álvers í
Reyðarfirði. Gert
er ráð fyrir að
skýrsla um matið
verið tilbúin snemma á næsta ári.
Gullrannsóknir liggja niftri
Sl. tvö ár hefur lítið sem ekkert
verið unnið að gullrannsóknum á
íslandi. Hallgrímur Jónasson, for-
stjóri Iðntæknistofnunar, segir
meginskýringuna á því vera þá aö
gullverð sé lágt. Dagur sagði frá.
Brottkastið til lögreglu
Hjá Fiskistofu er verið að íhuga
að heina þeim tilmælum til sýslu-
manna að þeir taki afstöðu til þess
hvort ekki sé ástæða til þess að
taka skýrslur af þeim sem hafa ver-
ið að vitna opinberlega um brott-
kast fisks á íslandsmiðum. Dagur
sagði frá.
Framsóknar-
fiokkur fyrir-
staða
ASÍ telur Fram-
sóknarflokkinn og
formann hans hafa
verið helstu fyrir-
stöðu verðlækkana
á matvörumarkaði.
Dagur sagði frá.
Besta komin í mark
í gærkvöld kom Besta í mark,
langfyrst keppenda í seinni hluta
alþjóðlegu úthafsiglingakeppninn-
ar milli Paimpol og Reykjavíkur og
til baka aftur. Vísir.is sagði frá.
Messufall hjá SVR
Það hefur tvisvar gerst á skömm-
um tíma að ferðir falla niður hjá
SVR vegna manneklu. Þessar
breytingar hafa ekki verið auglýst-
ar fyrirfram. Eins og er vantar 10
vagnstjóra til hjá SVR. Dagur sagði
frá.
Sala áfengis eykst
Sala áfengis hef-
ur aukist töluvert á
þessu ári, en
Áfengis- og tóhaks-
verslun ríkisins
birti í dag sölutölur
fyrir fyrstu sex
mánuði ársins.
Sala á léttvínum
jókst mest, mn tæp 16%. Vísir.is
sagði frá.
Skjáifti við Vatnafjöll
Upp úr klukkan 17 í dag mældist
skjálfti af stærðnni 3 á Richter rétt
suðvestan við Vatnafjöll. Sam-
kvæmt frétt skjálftavaktar Veður-
stofu íslands hafa engar tilkynning-
ar borist um að hreyfingin hafi
fundist. Vísir.is sagði frá.
VÍS hækkar bílatryggingar
Vátryggingafélag fslands hefur
hækkað iðgjöld ökutækjatrygginga
sinna um tæp 30%. VÍS hefur
einnig breytt svæðaskiptingu í
gjaldskrá félagsins. Vísir.is sagði
frá.
Þingvallaprestur í bið
Þingvallanefnd hefur farið fram
á að biskup fslands auglýsi ekki að
svo stöddu embætti sóknarprests á
Þingvöllum, sem jafnframt er stað-
arhaldari í þjóðgarðinum, og óskað
viðræðna um framtíð embættisins.
Mbl. sagði frá.
Byggðastofnun fær 2000
tonn
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
gefið út reglugerð um veiðar í at-
vinnuskyni fyrir næsta fiskveiðiár,
sem hefst fýrsta september. Sam-
kvæmt henni fær Byggðastofnuri
tæp 2000 tonn. Mbl. sagði frá. GAR