Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2000, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2000, Side 4
4 Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 JOV Leigubílstjóri á Hreyfli rannsakaði meint okur í garð ferðamanna: Greiddu 20 pund hvort - hræðileg mistök, segir Bretinn Richard Bird „Okkur urðu á hræðileg mistök þegar við sögðum að fargjaldið hefði numið 20 þúsund krónum á hvern farþega. Við nánari skoðun kom í ljós að við greiddum sem nam 2.300 íslenskum krónum hvort," segir Richard Bird, breskur ferðamaður sem sagði frá því í DV í gær að hann og eiginkona hans auk þriggja annarra farþega hefðu greitt sem nemur 20 þúsund krónum hvert fyr- ir ferð með leigubíl frá Leifsstöð til Reykjavikur. Hann lýsti leigubíln- um sem ók þeim hjónum og þremur öörum ferðamönnum frá Leifstöð til Reykjavíkur. „Okkur fannst upphæðin sem bíl- stjórinn rukkaði okkur um skelfi- lega há og stóðum í þeirri meiningu allt þar til síðdegis í gær að um væri að ræða 20 þúsund islenskar krónur. Þegar við uppgötvuðum að um var að ræöa tvö þúsund krónur brá okkur mjög í brún. Við biðjum alla sem orðið hafa fyrir óþægind- um vegna þessa afsökunar," sagði Richard Bird sem í gær hitti Magn- ús Jóhannesson, stöðvarstjóra leigu- Leigubíllinn var ódýrari Eftir rannsókn leigubílstjóra á Hreyfli upplýsti breski feröamaöurinn Ric- hard Bird aö hann og kona hans heföu greitt sem nemur rúmum fjög- ur þúsund krónum í fargjald vegna leigubíls en ekki 40 þúsund eins og þau höföu áður haldiö fram. bílastöðvarinnar Ökuleiða í Kefla- vik, vegna málsins. Viðbrögð stöðv- arstjórans eftir fundinn voru þau að hann myndi leita allra leiða til að ná þeim seka. Hann hafði hugsað sér að grípa til sakbendingar og leiða bresku hjónin fyrir bílstjóra sína í þeirri von að þau þekktu þann sem ók þeim. Áður en til þess kom sneru bresku hjónin blaðinu við og þau sögðust hafa greitt rúm- lega tvö þúsund. Jón T. Ágústsson, félagi í Bif- reiðastjórafélaginu Andvara, var beðinn af stjórn félagsins að kanna málið og hóf hann þegar rannsókn- arvinnu sína og óskaði hann eftir pappirum frá Bretanum. „Ég hitti Bird og hann sagði mér þaö sama og DV. Þá óskaði ég eftir afriti af flugmiða hans og þar sem hann sagðist hafa greitt fargjaldið í reiðufé bað ég hann um bankakvitt- un fyrir gjaldeyri. Ég sagði honum að ég ætlaði að komast til botns i málinu og finna hina farþegana,“ segir Jón sem starfar sem bilstjóri á Hreyfli. Hann sagði aö Bird hefði beðið um frest til að frnna gögnin. „Klukkutíma síðar hringdi hann og sagði þá að hann og kona hans hefðu greitt 20 pund hvort eða rúm- lega 2 þúsund krónur. Þama var einhver bölvaður misskilningur í gangi en sem betur fer er búið að komast til botns í málinu," segir Jón sem var hinn ánægðasti með að hafa hreinsað æru félaga sinna í Keflavík. Að sögn Jóns samsvarar gjaldið sem leigubíllinn tók því að ekið hafl verið á fullum taxta eða rúmum 11 þúsund krónum. Tilboðsverð þau sem eru í gangi á leigubílastöðvum í Reykjavík og í Keflavík nema 7.900 krónum fyrir 5 manna bíl og stærri. Bíllinn sem ók Bird-hjónunum er í flokki stærri bíla og ekki var ekið samkvæmt gjaldmæli. Sjónvarpið hafði í gærkvöld eftir Ernu Hauksdóttur hjá Samtökum veitinga- og gistihúsaeigenda að ein- stakir ferðamenn hafi þurft að greiða allt aö 30 þúsund krónur í fargjald frá Leifsstöð. Andvari hefur falið Jóni leigubílstjóra að rannsaka það mál einnig. Birdhjónin halda af landi brott i dag eftir nokkurra daga dvöl. -rt Líkja Sleipnisverkfalli við átthagafjötra: Verður að fara í frí - og skorar á bæjarstjórnina að grípa til aðgerða „Það eiga ekki allir bíl og ég þekki marga hérna í Hafnarfirði sem þurfa að sækja vinnu til Reykjavíkur en geta það ekki vegna verkfallsins," segir Soffía Anna Jónsdóttir, íbúi í Hafnarfirði, sem starfar í Reykjavík en verður að taka sér frí vegna verkfalls Bifreiða- stjórafélagsins Sleipnis. Soffla tekur venjulega tvo strætis- vagna til Reykjavíkur þar sem hún starfar við ræstingar skólahúsnæðis. „Ég varð að fara i snemmborið sumarfrí því það borgar sig engan veginn að taka leigubíl í vinnuna og ekki get ég verið aö betla far frá ætt- ingjum eða vinum. Það eru þúsundir hér í Hafnarfirði sem treysta á stræt- isvagnasamgöngur og það er alltaf verið að hvetja mann til þess að geyma einkabílinn og nota bara strætó en á svona timum gefast margir upp á þvi og þeir kaupa sér bíl sem geta,“ segir hún. Soffia segir það óþægilega tilfmn- ingu að hafa ekki það frelsi að geta ferðast til Reykjavíkur. „Systir mín var til dæmis á sjúkra- húsi og ég hefði viljað heimsækja hana oftar en einu sinni. Svo kemur stundum upp hjá fólki að það verður að sækja í lækni tU Reykjavíkur en þá er eini möguleikinn að fara með leigubíl," segir hún. Að sögn Soffiu hefur fréttaflutning- ur af deilunni gengið út á það að ferðamenn verði fyrir óþægindum en lítið hafi verið fjallað um þær þúsund- ir sem ekki komast ferða sinnar í ná- grannasveitarfélögum Reykjavíkur. „Það fauk í mig þegar ég hlustaði á fréttir í útvarpinu þar sem endalaust var tönnlast á ferðamönnum sem erfitt eiga með að ferðast en ekki var eytt einu orði í okkur sem treystum á strætisvagna til að komast í og úr vinnu,“ segir hún. Soffia skorar á bæjarstjórn Hafnar- fjaröar að grípa tU aðgerða svo hægt sé að veita bæjarbúum þá sjálfsögðu þjónustu sem samgöngur eru. Hún tekur fram að að öllu jöfnu sé gott að nota strætó og þess vegna sé raunin sú að fjölmargir nýti sér þjónustuna. Hins vegar er farið að reyna á þolrif þeirra nú. Athygli vekur að á meðan notkun almenningssamgangna eykst í ná- DV-MYND 1NGÓ Sleipnisverkfall fyrir almenna borgara Soffía Anna Jónsdóttir er einn þeirra fjölmörgu Hafnfiröinga sem líöa fyrir Sleipnisverkfall. grannalöndunum og mælt er með stórum hluta höfuðborgarsvæðisins henni af umhverfis- og efnahagsleg- og er jafnvel svo komið að SVR fellir um ástæðum þá liggja þær niðri á niður ferðir vegna manneklu. -jtr Starfslokasamningar: Slæmt ef slíkt tíðkast „Það er ekki búið að taka ákvörðun um það hvort við beiðn- inni verður orðið, það mun verða gert á fundi stjórnar sam- bandsins síðar í þessum mánuði,“ segir Jón Ingi Kristjánsson, for- maður Verkalýðs- félags Noröfjarðar og stjórnarmaður í Alþýðusam- bandi Austurlands, mn beiðni Sig- urðar Ingvasonar, formanns Al- þýðusambands Austurlands, þess efnis að gerður verði við hann starfslokasamningur. „Ég lít þannig á að þegar menn segja upp starfl þá bara hætti þeir eftir venjulegan uppsagnarfrest, starfslokasamningur er að minnsta kosti eitthvað sem Sigurður hefur hingað til ekki samið um fyrir um- bjóðendur sína. Það er mjög slæmt mál ef þetta á að fara að tíðkast inn- an verkalýðshreyfingarinnar. Ég hélt að þetta fyrirkomulag væri bara stundað meðal atvinnurek- enda,“ segir Jón Ingi, og hann sagð- ist fastlega reikna með að á Austur- landi yrði farið fram á að menn fengju að sjá starfslokasamning Björns Grétars, fyrrum formanns VMSÍ, en það hafa Húnvetningar gert án árangurs. -gk Maðurinn sem fannst í Úlfarsá er látinn Maðurinn sem fannst meðvitund- arlaus í Úlfarsá i gærmorgun er lát- inn. Maðurinn, sem var eldri borg- ari, var oröinn kaldur og þungt haldinn er hann fannst og var flutt- ur á sjúkrahús þar sem hann lést. Þar sem hann var skilríkjalaus er hann fannst lýsti lögreglan eftir ætt- ingjum mannsins í fjölmiðlum, sem gáfu sig fram. Lögreglan rannsakar nú hvemig dauða mannsins bar að höndum. -SMK Þjófar rændu 500 krónum Tveir menn vopnaðir dúkahnif veittust á laugardaginn að hinum þriðja í miðbæ Reykjavíkur með það fyrir augum að ræna hann. Árásarmennimir höfðu 500 krónur upp úr krafsinu. Lögreglu var gert viðvart og var einn maður handtek- inn síðar vegna málsins. -SMK Sunnanvindur Suðlæg átt, 5-10 m/s. Súld eöa dálítil rigning suövestan- og vestanlands og einnig suöaustan til í kvöld en skýjaö meö köflum á noröaustanveröu landinu. REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 23.35 23.53 Sólarupprás á morgun 03.32 02.35 Síódegisflóö 15.07 19.40 Árdegisflóó á morgun 03.25 07.58 Skýiíngar á veðurtáknum J*-.VINDÁTT 10°4-Hm -10! NviNDSTYRKUR Vfbost í nwtrum á sckúndu rKUtj I HEIOSKÍRT Jl> €> o tÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ AISKÝJAÐ w Q W Q RIGNING SKÚRIR StYDDA SNJÓKOMA Ö 9 == ÉUAGANGUR RRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA Skúrir um land allt Snýst smám saman í norölæga átt meö skúrum í flestum landshlutum, fyrst vestan til í fyrramáliö. Heldur svalara en veriö hefur. Fimmtud 'Md Vindur; 5-10 ,„/» > Hiti 8° til 17” 4Va Víndun X-X ,„/, Hiti 0” til -0” Laugar Vindur X-X m/» Hiti 0” til -O” Su&austlæg og sí&ar su&læg átt, víöast 5 tll 10 m/s. Rigning e&a súld, einkum sunnan- og vestanlands. Útllt fyrir breytllega átt meö skúrum i flestum landshlutum. . AKUREYRI alskýjaö BERGSSTAÐIR skýjaö BOLUNGARVÍK alskýjaö EGILSSTAÐIR KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö KEFLAVÍK súld RAUFARHÖFN skýjaö reykjavík alskýjaö STÓRHÖFÐI Orkoma 13 12 9 7 10 10 7 10 9 BERGEN rigning HELSINKI Skýjaö KAUPMANNAHÖFN skýjaö ÓSLÓ rigning STOKKHÓLMUR PÓRSHÖFN skýjaö ÞRÁNDHEIMUR rigning ALGARVE heiöskírt AMSTERDAM skýjaö BARCELONA léttskýjaö BERLÍN skýjað CHICAG0 hálfskýjaö DUBLIN léttskýjaö HAUFAX þokumóöa FRANKFURT skýjaö HAMBORG skúrir JAN MAYEN skýjað LONDON Skýjaö LÚXEMBORG skýjaö MALLORCA léttskýjað MONTREAL léttskýjaö NARSSARSSUAQ alskýjað NEW YORK heiöskírt ORLANDO heiðskírt PARÍS rigning VÍN skúr WASHINGTON alskýjaö WINNIPEG léttskýjaö 13 18 15 13 16 8 8 16 16 18 16 18 9 14 13 14 4 11 11 20 15 7 22 23 12 17 22 18

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.