Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2000, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2000, Síða 8
8 Viðskipti__________ Umsjón: Vidskiptablaðid Útgerðarfélag Akureyringa sendir frá sér afkomuviðvörun: Afkoman lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir - fyrstu 6 mánuði yfirstandandi árs Eftir lokun hlutabréfamarkaðar í gær sendi Útgerðarfélag Akureyr- inga frá sér afkomuviðvörun þar sem fram kemur að afkoma á fyrri- hluta þessa árs verði lakari en áætl- anir gerðu ráð fyrir. Árið 1999 nam hagnaður fyrri hluta ársins 180 milljónum króna og veltufé frá rekstri 483 milljónum. Nú er sýnt að félagið verður rekið með töluverðu tapi á fyrri hluta árs- ins og veltufé frá rekstri verður einnig lakara en árið áður. Lækkun á gengi krónunnar veldur umtalsverðu gengis- tapi Meginástæðurnar fyrir lakari af- komu má rekja til verulegs gengis- taps, sölutaps eigna, lækkandi af- urðaverðs og birgðasöfnunar. Gengi krónunnar lækkaði á síð- ustu dögum júnímánaðar sem veld- ur um 160-170 milljóna króna geng- Útgeröarfélag Akureyringa. istapi á skuldum félagsins en þær eru nær allar í erlendri mynt. Lækkun á gengi krónunnar veldur þvi að skuldir félagsins hækka en á móti kemur að tekjur þess hækka einnig til framtíðar. Þá hefur verð flestra afurða félagsins lækkað frá áramótum og afurðabirgðir aukist. Ennfremur nam sölutap við sölu loðnuskipsins Arnarnúps ásamt veiðiheimildum í apríl sl. samtals 120 miiljónum króna. Loks má nefna að tilkostnaður hefur hækkað og aflabrögð eru lakari en á sama tímabili í fyrra. Vert er að taka það fram að sölu- tap vegna eigna og gengistap lang- tímaskulda félagsins, samtals 280-290 milljónir króna, hefur ekki áhrif á veltufé frá rekstri en það er, eins og oft hefur komið fram, sá mælikvarði sem félagið notar til að meta árangur sinn í rekstri. Áætiað er að birta afkomu félags- ins um næstu mánaðamót. Fleiri sameiningar í deiglunni I Morgunkorni FBA kemur fram sú skoðun að í kjölfar sam- runa Vinnslustöðvarinnar í Vest- mannaeyjum og ísfélags Vest- mannaeyja muni samrunahrina vera farin af stað í sjávarútvegi eftir nokkra stöönun að undan- fömu. Er þetta talin vera jákvæð þróun þar sem talsverð stærðar- hagkvæmni er í rekstri sjávarút- vegsfélaga í stjómun, nýtingu fjár- muna og sölu-, markaðs- og þróun- armálum. Hafi þeir aðilar sem fyrstir ríða á vaðið fleiri valkosti og því auðveldara að púsla saman þeim einingum sem menn telja hagkvæmastar. Þórður Jónsson tekur við SR-mjöli Jón Reynir Magnússon, for- stjóri SR-mjöls hf., mun láta af störfum hjá SR-mjöli hf. þann 1. ágúst næstkomandi eftir rúman 30 ára farsælan starfsferil hjá félag- inu. Við starfi hans tekur Þórður Jónsson sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs SR-mjöls hf. um árabil. Þórður er 58 ára gamall, skipatæknifræðing- ur að mennt og hefur starfað lengi innan fiskmjölsiðnaðarins. Almennt er búist við 0,45-0,55% hækkun neyslu- verðsvísitölunnar Á morgun birtir Hagstofa ís- lands vísitölu neysluverðs fyrir júlí. Almennt er því spáð að vísi- talan muni hækka á bilinu 0,45-0,55%. Fimm aðilar hafa birt sínar spár en það er íslandsbanki- FBA, Landsbankinn, Búnaðar- bankinn, Kaupþing og Ráðgjöf og efnahagsspár. Spáð meðaltals- hækkun er 0,51% og voru spárnar á bilinu 0,45-0,55%. Formaður OPEC vill standa við framleiðslutakmarkanir Ali Rodriquez, formaður OPEC, hefur skorað á Opec-ríki að standa við samkomulag frá því í júní um olíuframleiðslu. Olíuverð lækkaði i siðustu viku eftir að Sádi-Arabia tilkynnti um framleiðsluaukningu upp á 500 þúsund tunnur á dag. I júni samþykkti OPEC framleiðslu- aukningu upp á samtals 708 þús- und tunnur á dag með það að markmiði að lækka olíuverð nið- ur í 25 dollara á tunnu. Breytt fjárfestingarstefna íslenska fjársjóðsins Á aðalfundi íslenska fjársjóðsins sem haldinn var í siðustu viku voru samþykktar breytingar á samþykkt- um félagsins er lúta að fjárfestingar- stefnu hans og fjölda stjórnar- manna. Við stofnun íslenska fjársjóðsins í lok árs 1995 var í fjárfestingarstefnu sjóðsins lögð áhersla á fjárfestingar í sjávarútvegsfyrirtækjum. Upp- gangur var hjá sjávarútvegsfyrir- tækjum á þessum tima og íslenski fjársjóðurinn ávaxtaði fjárfestingar sínar þar ríkulega. Islenski hluta- bréfabréfamarkaðurinn hefur tekið miklum stakkaskiptum frá stofnun sjóðsins, í lok árs 1997 var hlutur sjávarútvegs af hlutabréfamarkaðn- um um 40% af markaðsverðmæti en í lok árs 1999 er þessi hlutur sjávar- útvegs um 25%. Nýjar atvinnugrein- ar hafa sprottið fram hin síðari ár og eru sífellt fleiri fjárfestingarkost- ir í boði. Mikiil vöxtur hefur verið í tæknigreinum eins og hugbúnaðar- gerð, líftækni og þróun lækninga- tækja þar sem við íslendingar eru mjög framarlega á heimsvísu. í takt við þessa þróun var ákveðið á aðal- fundi íslenska fjársjóðsins þann 6. júlí síðastliðinn að útvíkka fjárfest- ingastefnu sjóðsins. Sérstök tenging við fjárfestingar í sjávarútvegi var fjarlægð og miðast fjárfestinga- stefna sjóðsins nú við að fjárfest sé í fyrirtækjum sem eiga mikla vaxt- armöguleika, þar sem hæfir stjóm- endur, sérfræðiþekking og islenskt hugvit skapa fyrirtækjunum væn- lega samkeppnisstöðu á alþjóðleg- um mörkuðum til lengri tíma litið. Til að styrkja enn frekar breyttar áherslur í fjárfestingum íslenska fjársjóðsins i tæknigeiranum, nánar tiltekiö á fjarskiptasviði og hugbún- aðarsviði, var fjölgað í stjóm sjóðs- ins úr 3 mönnum í 5. Hinir nýju stjórnarmenn eru Eyþór Arnalds, framkvæmdastjóri Islandssíma, og Gísli Heimisson, stjórnarformaður hugbúnaðarhússins Mens Mentis hf. I stjóm sjóðsins sitja fyrir Viðar Þorkelsson, stjómarformaöur, Ein- ar Benediktsson, forstjóri Olíuversl- unar íslands, og Svanur Guðmunds- son. Á aðalfundinum var einnig samþykkt að greiða 10% arð til hlut- hafa. Búist við að framleiðsla í fiskeldi aukist um 25% á ári Fiskeldi skilar nú nálægt einum milljaröi í útflutningstekjur og mun verð- mæti þess ef áætlanir ganga eftir verða nálægt fimm milljörðum árið 2006. Að mati Landssambands fiskeld- is- og hafbeitarstöðva (LFH) er fram undan umtalsverð aukning í fisk- eldi hér á landi. Ef tekið er mið af því magni seiða sem nú hefur verið sett á til framhaldseldis má gera ráð fyrir að framleiðslan á milli ára muni aukast að meðaltali um og yfir 25% á ári næstu fimm árin. Mestu munar um aukningu í ann- ars vegar laxeldi og hins vegar í eldi bleikju. Fiskeldi skilar nú nálægt einum milljarði í útflutningstekjur og mun verðmæti þess ef áætlanir ganga eftir verða nálægt fimm millj- örðum árið 2006. Fiskeldi er langstærsta útflutningsgrein land- búnaðarins. Þessar upplýsingar komu fram á aðalfundi landssambandsins sem haldinn var 29. júní sl. „Verðþróun hefur verið hagstæð á okkar helsta markaði, Bandaríkjunum, og fram- leiðslan hefur verið að aukast jafnt og þétt og áfóll lítil í eldinu,“ sagði Vigfús Jóhannsson, formaður LFH. „Óhagstæð gengisþróun hefur þó haft frekar neikvæð áhrif á bleikju- mörkuðum í Evrópu," sagði Vigfús. Mikill áhugi er nú hjá fjárfestum að byggja um laxeldi í sjó hér við land. Þar er ýmist um að ræða svo- kallað skiptieldi þar sem laxinn er alinn hluta ársins í kerum á landi en siðan i sjókvíum fram að slátrun. Hins vegar er um að ræða heilsárs- eldi í kvíum, sérstaklega á Aust- fjörðum. „Okkur sýnist að ef við miðum við umsóknir sem þegar liggja fyrir þá gæti umfang laxeldis á íslandi orðið nálægt 20.000 tonnum eftir fáein ár. Þetta hefði gríðarlega mikla þýðingu fyrir landsbyggðina, ekki síst á Austfjörðum þar sem fjöldi manns hefðu af þessu atvinnu, bæði beint tengt eldinu og við vinnslu fisksins," sagði Vigfús Jó- hannsson, formaður LFH. „Fiskeldis- menn ætla sér að vinna bæði að því að ná hámarksárangri af rekstri stöðva sinna og að gera það i sátt við umhverfið samkvæmt ströngustu reglum þar að lútandi. Félagar i LFH telja aö með því að sameina þessa tvo þætti muni þess ekki langt að bíða að leyfum til laxeldis í sjó hér við land fari fjölgandi." Aðalfundur LFH ákvað að stór- efla starfsemi landssambandsins strax á þessu starfsári. Þetta er gert í ljósi þeirrar aukningar sem er fram undan í fiskeldinu og með vis- an til mikilvægis þess að haida uppi öflugu kynningarstarfí fyrir bæði félagsmenn og almenning um mál- efni fiskeldis. ÞRIDJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 DV Þetta helst HEILDARVIÐSKIPTI 114 m.kr. ; Hlutabréf 69 m.kr. Langtimaskuldabréf 15 m.kr. MEST VIÐSKIPTI Eimskipafélag Islands 13,4 m.kr. . i Islandsbanki-FBA 11,7 m.kr. Islenski hugbún.sjóð. 8,6 m.kr. MESTA HÆKKUN ©Talenta Luxemb. holding 8,97% j © SR-Mjöl 6,45% © Olíuverslun íslands 6,15% MESTA LÆKKUN Islenski fjársjóðurinn 8,28% Vinnslustöðin 5,00% Jarðboranir 4,06% ÚRVALSVÍSITALAN 1.527,8 stig - Breyting 0,13 % Blair vill að Bret- landi gangi í EMU eftir kosningar Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, segir að ríkisstjórn sin muni mæla með því að Bretland gerist aðili að Efnahags- og mynt- bandalagi Evrópu, EMU, fljótlega eftir næstu þingkosningar í Bretlandi ef efnahagsaðstæður eru hagstæðar. Þátttaka í EMU myndi þýða að Bret- land tæki upp evruna. Ummæli Blairs eru þau vinsamlegustu sem hann hefur látið frá sér fara um EMU og evruna frá því hann varð forsætisráðherra. Blair segir að ef til þess komi að ríkisstjórnin mæli með inngöngu í EMU verði boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildina og hvort Bretar eigi að taka upp evr- una. Almennt er búist við að Blair boði til þingkosninga í Bretlandi snemma á næsta ári. síöastliöna 30 daga Búnaöarbanki 222.842 Íslandsbanki-FBA 209.718 Húsasmiðjan 185.712 Landsbanki 184.410 Össur 146.441 síöastliöna 30 daga © Vinnslustööin 16% © Fiskiðjus. Húsavíkur 13% © Fóðurblandan 13% © Búnaöarbanki 11% 0 Tangi 7% MESTA LÆKKUN ▼ síöastliöna 30 daga 0 Hraðf. Þórshafnar -14 % ísl. járnblendifélagið -11 % Samvinnuf. Landsýn -9 % o © W DOW JONES [•_ NIKKEI * S&P H NASDAQ sránsE ““dax CAC40 UáKVIH If 10646,58 17504,36 1475,62 3980,29 6456,40 7028,00 6480,65 O o,io% © 0,39% O 0,22% O 1,07% O 0,15% O 0,61% O 0,10% n mm U.7.2Q00 kl. 9.15 KAUP SALA te Dollar 76,560 76,960 öí? Pund 115,900 116,490 i*L Kan. dollar 51,780 52,100 Dönsk kr. 9,7920 9,8460 ðii Norsk kr 8,9410 8,9900 M.a Sænsk kr. 8,6590 8,7070 n—i n—iFI. mark 12,2878 12,3616 1J Fra. franki 11,1379 11,2048 | j Belg. franki 1,8111 1,8220 U Sviss. franki 47,0600 47,3200 CdHoll. gyllini 33,1531 33,3523 ®*1 Þýskt mark 37,3549 37,5793 >1 ít. líra 0,037730 0,037960 Sár Aust. sch. 5,3095 5,3414 SM : Port. escudo 0,3644 0,3666 'jQ Spá. peseti 0,4391 0,4417 L*JJap. yen 0,715300 0,719600 B jírskt pund 92,766 93,324 SDR 101,880000 102,490000 Hecu 73,0598 73,4988

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.