Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2000, Side 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000
Skoðun DV
Á gleöistund á Þingvöllum.
- Fyrir næstum 900 milljónir króna.
Veisluhöld við Öxará
Fylgdistu með Landsmóti
hestamanna?
Karen Ósk Lárusdóttir, vinnur
í Kökumeistaranum:
Nei, ég hef engan áhuga
á hestamennsku.
Guöbjartur Þormóðsson,
vinnur í Straumsvík:
Nei, ég hef ekki haft áhuga
á hestum síöan ég var í
sveit í gamia daga.
Sigurdóra Kristinsdóttir, vinnur
hjá Félagsþjónustunni:
Nei, því miöur geröi ég þaö
ekki í þetta sinn.
Anna Margrét Gunnlaugsdóttir nemi:
Nei, ég hef engan áhuga á hestum.
Karen B. Ingólfsdóttir nemi:
Nei, en ég hef samt áhuga
á hestum.
Haildóra Siguröardóttir
skrifar:
Ég er ein þeirra fjölmörgu sem
sáu ekki ástæðu til að fara til Þing-
valla á kristnihátíðina og mér
fannst miklum fjármunum varið í
undirbúning og framkvæmd alla. Ég
er þeirrar skoðunar að gæta þurfi
aðhalds í opinberum rekstri, þó svo
að meira sé milli handa hjá sumu
fólki í dag en oft áður. Öllum al-
menningi þykir þó nóg um alla þá
skatta og álögur sem viðgangast hér.
Ég var skírð og staðfesti félags-
þátttöku mína í kristilegri kirkju
með því að samþykkja að verða
fermd. Ég hef mína trú, og tel mig
hvorki vera kommúnista né nasista,
en fyrir mér hefur farið eins og svo
mörgum að boðorðunum hefi ég
stundum gleymt. Og komið hefir
fyrir að ég hefi beðið Guð að fyrir-
gefa mér. Kirkjurækin er ég ekki,
og er það vegna þess að mér flnnst
fátt um snjalla ræðumenn eða rétt-
ara sagt góða predikara í kirkjun-
um nú til dags.
Það kann ef til vill að helgast af
Haraidur Guönason
skrifar:
Enn hefur „sjónvarp allra lands-
manna“, sem þeir þar á bæ nefna
svo af lítiliæti, nýlega rutt af dag-
skrá fréttum og öðru efni en sýnt
þess í stað maraþon tuðruspark.
Þótt „yfirtuðrari“ RÚV segi að
kannanir sýni að fólk sé ekki á móti
þessum yflrgangi er lítt takandi
mark á slíkum yfirlýsingum. Eða
hvemig fer sú könnun fram - ef ein-
hver? Ekki eru t.d. þeir fjölmörgu
öldruðu sem horfa á sjónvarp spurð-
ir, því það er ekki samkvæmt ritúal-
Hvers vegna biskup kallar
það taut og nagg þegar
trúbrœður hans og systur
tala um eyðslu fjármuna
sem samanlagt eru nœr
9 hundruð milljónir
króna, skil ég ekki. “
því að guðfræðideildin ber ekki
gæfu tU að laða að sér andans
menn, sem hafa þann brennandi
sannfæringarkraft sem tU þarf. Þess
vegna er biskupinn kannski reiður.
Hann var talinn góður ræðumaður
á sínum tíma. Ekki veit ég um
stjómmálaskoðanir hans, en áreið-
anlega er hann kristinn. Hvers
vegna biskup kaUar það taut og
nagg þegar trúbræður hans og syst-
ur tala um eyðslu fjármuna sem
samanlagt eru nær 9 hundruð miUj-
ónir króna, skU ég ekki. Mér finnst
það ekki umburðarlyndi eða hátt-
vísi. - Það eru svo margir sem þurfa
að leggja hart að sér fyrir hverja
krónu sem aflað er.
„Nú er engin spuming leng-
ur: Verði boltamafían látin
ráða för í Sjónvarpi RÚV
verður að afnema skylduá-
skriftina.“
inu. Þeim er sem kunnugt er sýnd
sú lítUsvirðing að vera ekki mark-
tækir eldri en 70 ára (Eða hefur
markið verið hækkað í 75?).
Ritari þessa pistUs hefur vart
opnað ríkisimbann í mánuð en
horft á fréttir Stöðvar 2 á besta
Mér finnast 900 mUljónir mikið fé
og þeir sem ekki eru í þeirri að-
stöðu að þiggja greiðslur frá opin-
berum fyrirtækjum, eða fólkinu í
laridinu, þar sem launin koma
markvisst, vUja fremur að opinber-
ir sjóðir verði notaðir ef samdráttur
yrði í þjóðfélaginu að ég tali nú ekki
um að létta á skattheimtunni eins
og sifeUt er lofað.
Kommúnistar og nasistar, líka
hér á landi, héldu í upphafi að þeir
væru að gera það eina rétta; að
bæta hag fólksins, en engir hafa
verið jafn aðgangsharðir að eigum
annarra. Ekkert fólk þekki ég
frekara á fé úr almennum sjóðum
en kommúnista.
Það er að sönnu rétt að ömurlegt
er tU þess að vita að ungt fólk skuli
viðhafa þá umgengnishætti og siði
sem fram komu i fréttum af
skemmtaninni við HúsafeU. Efa-
laust er þetta fólk í þjóðkirkjunni
og finnst mér það kaldhæðni að
skattur af áfengiskaupum þess
mun renna tU veisluhaldanna við
Öxará.
fréttatima. Þar gerðu fréttamenn
jarðskjálftunum sérlega góð skU.
Hins vegar hefúr konan mín opnað
fyrir einhverjar kvikmyndir (og
þær ekki af háum gæðaflokki) frá
RÚV seint á kvöldin. Maður hefur
jafnvel saknað Söru og broshýra
pUtsins í svonefndum „bamatíma"
kvöldsins.
Nú er engin spuming lengur:
Verði boltamafían látin ráða for í
Sjónvarpi RÚV verður að afnema
skylduáskriftina. - Og meðal ann-
arra orða: Seljið popprásina nr. 2 og
komið upp iþrótta- og auglýsingarás.
Imbakassahátíðin mikla
Dagfari___________________ __________
Fast þeir sóttu pokafiskinn
Nú gengur sjómaður undir sjómanns-
hönd tU að játa á sig fiskdrátt og að
hafa fleygt golþorskum dauðum fyrir
borð í því skyni að fóðra múkka og
aðra sjófugla. Svo er að skUja að út-
gerðarmenn landsins panti ákveðna
stærð af fiski en biðji áhafnir sínar um
að láta restina í poka og selja mUlUiða-
laust tU Spánar. Sú afstaða útgerðar-
manna að biðja aðeins um eina stærð
af þorski er eðlileg. Iðnvædd frystihús
þola ekki miklar stærðarsveiflur á
flæðilínum sínum og því sjálfgefið að
valið sé tfl vinnslunnar það hráefni
sem hentar hverju sinni. Og varla er
hægt að sýna sjómönnum meiri rausn en þá að
leyfa þeim að hirða restina af fiskinum og fara
með í land. Það er þeirra vandamál ef pokafiskin-
um er ekki komið í verð og honum fleygt fyrir
fuglana. Þama er auðvitað um að ræða góð-
mennsku þeirra sem auðlindina eiga og nýta af
skynsemi. Það er afar undarlegt hjá sjómönnum
að berja á hönd gefendanna með þvi að láta að
þvi liggja að þeir séu píndir í það svínarí að
fleygja fiski eða tU að setja hann í poka og selja á
svörtum markaði. í Biblíunni kemur fram að
Kristur mettaði þúsundir með örfáum fiskum. í
Það er afar undarlegt hjá sjómönn-
um að berja á hönd gefendanna
með því að láta að því liggja að
þeir séu píndir í það svínarí að
fleygja fiski eða til að setja hann í
poka og selja á svörtum markaði.
nútímanum er Kristur ekki sýnUegur en það er í
hans umboði sem útgerðarmenn em að metta
þúsundir sjómanna með örfáum fiskum. Á sama
hátt og Kristur hafði aðeins örfáa fiska
tU að moða úr fyrir sársvangan fjöld-
ann þá hafa útgerðarmenn aðeins örfá
tonn. Því er að baki hverju skráðu
tonni nokkur tonn sem komið hafa
múkkum og sjómannsfjölskyldum tU
góða. Það er kristUegt athæfi að metta
sem einstöku menn eru að reyna að
gera ókristUegt með því að setja í sví-
virðUegt samhengi og bendla virta út-
gerðarmenn við óheiðarlegt athæfi.
Sagt hefur verið um Suðumesjamenn
að fast þeir sóttu sjóinn. Orðstír sjó-
manna af Suðumesjum lifir með þjóð-
inni en nú er orðin sú breyting á að
þeir sækja pokafiskinn fast og fóðra sjófugla með
afganginum. AUt þetta gera þeir i umboði útgerð-
armanna sinna sem vUja þeim vissulega vel. Það
er því fráleitt að þessar hetjur hafsins skuli nú
stíga á stokk og játa á sig meinta glæpi. Það er
ekkert athugavert að gera eins og Kristur forð-
um. AUir sjá fáránleikann í því ef sonur Guðs
hefði á sínum tíma verið sakaður um kvótasvindl
eða eitthvað þaðan af verra. Suðumesjamönnum
væri sómi að því að halda áfram að róa eftir
pokafiski sínum í kyrrþey. _ n .
Árborgarsvæðið
kveinkar sér
Matthías Matthiasson skrifar:
Ég vorkenni þeim íbúum Árborgar-
svæðisins (þ.e. Selfoss, Eyrarbakka
og Stokkseyrar) ekkert þótt iðgjöld
bifreiðatrygginga þeirra hækki eins
og annarra. Þeir og aðrir landsbyggð-
arbúar hafa aUt of lengi búið við önn-
ur og betri kjör í þessum efnum en
við hér í þéttbýlinu í Reykjavík og ná-
grenni. Ég vU hins vegar hvetja trygg-
ingarfélögin tU að stórhækka trygg-
ingaiðgjöld á þeim bUum sem yngstu
ökumennimir nota, þ.e. 17 og 18 ára,
þeim sem mestum óhöppum valda. -
Og lækka iðgöld okkar, reynslumik-
Ula og tjónalítUla ökumanna.
Nú er Nóatún
stekkur
Kristín Ólafsdóttir skrifar:
Ég er íbúi í
vesturbænum
og hef til
margra ára
verslað í Nóa-
túni og þar á
undan hjá J.L.
við Hring-
braut. Þetta
vora ágætar
verslanir. Það
er áberandi
eftir sölu Nóatúnsverslunarinnar tU
Kaupáss (en mér er sagt að það fyrir-
tæki sé eigandi að versluninni)
hversu vöragæði hafa rýrnað. Nú eru
mest unglingar í vinnu þama sem
litla vöraþekkingu hafa, en varla era
þeir orsökin. Ég vU líka segja að
vöraúrval er orðið minna og tak-
markaðra en áður var. Þekkingar
verður að krefjast á vöram og við-
skiptaaðUum (svoköUuðum birgjum)
af verslunarfólki, einnig hvemig við-
skiptavinum á að þjóna. Þetta ættu
hlutaðeigandi að gaumgæfa.
Börnin og
foreldrarnir
Svana skrifar:
Nú vinna flestir foreldrar úti eins
og það er kaUað. Sannast þar texti
þeirra bræðra Jónasar og Jóns Múla;
Við vUjum aukavinnu, sífeUt meiri
aukavinnu. - Ekki tU að lifa af, heldur
tU að geta eytt meiru. Fólkið hefur
fuUa vasa fjár, en hendir því jafnhrað-
an í hitina. Bömin líða fyrir, á dag-
heimilum, á leikskólum, og síðan í for-
skóla og bamaskóla. Foreldramir hafa
lítinn tima fyrir bömin. Varla um
helgar heldur. En þessi tími kemur
ekki aftur fyrir foreldrana. Þessi dýr-
mæti tími sem samverastundir gætu
orðið hvað nánastar. - Foreldrar;
hugsið ykkur vel um, tíminn flýgur.
Einangrun
Hafnarfjaröar
Sverrir Guðmundsson hringdi:
Það er með
ólíkindum að
Hafnarflarðarbær
skuli komast upp
með að reka ekki
almenningsvagna
eins og Reykjavík.
Að geta boðið íbú-
um bæjarins, svo
og Reykvíkingum
upp á að komast ekki mUli bæjarfélag-
anna i yfirstandandi verkfaU er með
ólikindum. Ef bæjarkassi þeirra Hafn-
firðinga tekur þátt að einhverju leyti í
rekstri vagnanna í dag er þetta enn
óskUjanlegra. En það er í fleiri þáttum
sem einhver afdalaháttur virðist í
mörgu hvað varðar bæjarbraginn hjá
þeim Hafnfirðingum. Furðulegt, þar
sem þessi gamh bær hefir aUtaf verið í
nábýli við höfuðborgina. Kannski er
það kratisminn sem stendur í vegi fyr-
ir flestu, nema því sem kratamir hafa
sérhagsmuni af.
Frá Hafnarfiröi
Engar atmennings-
samgöngur!
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eða sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Þverholti 11,105 ReyKjavik.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.