Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2000, Page 24
36
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000
Tilvera I>V
lí f iö
Eldgosin í
Vatnaiökli
Á hverju priðjudagskvöldi eru
fyrirlestrar í máli og myndiun á
jöklasýningunni í Sindrabæ á
Höfn í Homafirði. í kvöld mun
Magnús Tumi Guðmundsson
halda fyrirlestur sem hann kall-
ar Eldgosin í Vatnajökli - lykill
að eldvirkni ísaldarinnar.
Magnús Tumi er landsþekktur
jarðfræðingur en hann mun m.a.
fjalla um hvemig eldgos imdir
jökli hafa átt stóran þátt í að
móta landslag á íslandi, tæpt
verður á sögu rannsókna á gos-
um í jöklum og hvert hlutverk
Vatnajökuls hefur verið í þeim.
Fyrirlestiu- Magnúsar Tuma
hefst kl. 20.
Klúbbar
■ SOLEY A THOMSEN Plötusnúður-
inn Sóley er orðin að föstum liöi
eins og venjulega á Thomsen á
þriöjudagskvöldum og mun ekki
valda aðdáendum sínum vonbrigð-
um.
Krár
■ SIGGI OG SIM A GAUKNUM
Hljómveitin Siggi & SIM (Skóbúð
Imeldu Marcos) leikur á Gauki á
Stöng í..kvöld. Leikin verða lög eftir
Sigurð Örn Jónsson og lög sem
hann hefur verið viðriðinn í gegnum
tíðina en kappinn fagnar í kvöld 30
ára afmæli sínu. Einnig munu ieikin
nokkur uppáhaldslög Sigga, áöur I
flutningi Beatles, Paul Simon, Tom
Waits, Radiohead o.fl. Hljómsveitina
skipa Siguröur Órn Jónsson, söngur,
gítar, hljómborð, Bergþór Smári, gít-
ar, rödd, Ingl S. Skúlason, bassi, og
Friðrik Júlíusson G, trommur, áslátt-
ur, rödd. Tónleikarnir hefjast um kl.
22.15.
■ LIFANDI TÓNUST Á CAFÉ ROM-
ANCE A kaffihúsi rómantíkurinnar,
Café Romance, er lifandi tónlist öll
kvöld. Enski píanósnillingurinn Miles
Dowley heldur uppi réttu stemning-
unni frá klukkan 20.00.
Klassík
■ FAGURTONLEIKAR I PEIGLUNNI
Listunnendur á Akureyri fá aö njóta
fagurtónleika í Deiglunni sem hefj-
ast klukkan 20.00. Kristjana Arn-
grímsdóttir syngur við undirleik
Daníels Þorsteinssonar og Jóns
Rafnssonar.
Fundir
■ KIRKJUTONUSTARRAÐSTEFNA
ISKALHOLTI Samtökin Collegium
Muslcum hafa um 15 ára skeiö
unniö að rannsóknum á menningar-
arfinum sem fólginn er í sönglögum
fyrri alda. Hér er um að ræöa fyrstu
heildarrannsókn á nótum sem fund-
ist hafa f íslenskum handritum. Nið-
urstööur rannsóknanna veröa lagöar
fram en þær verða enn fremur gefn-
ar út á árinu. Sex ung tónskáld hafa
verið ráöin til aö gera nýjar útsetn-
ingar á nokkrum þessara fornu tón-
verka og fá gestir ráöstefnunnar að
heyra afraksturinn. Verkefniö er unn-
ið í samstarfi viö Kristnihátíð og
Landsbókasafn.
Sjá nánar: Líflð eftir vinnu á Vísi.is
Nýstárlegt kennsluefni í íslensku fyrir útlendinga:
Bragi vakinn
til lífsins
- mikill áhugi og fullt út úr dyrum hjá Námsflokkunum
Um þessar mundir er verið að
reyna nýja tegund af efni í íslensku-
kennslu fyrir útlendinga sem dreg-
ur nafn sitt af Braga sem svo er
nefndur í Snorra Eddu og lýst er
sem ágætum í speki og mestum að
B R A G I. org
íslenska sem annað tungumál
lcelandic as a foreign language
afaffMtírekm. Hann tyágæ!ur jð spefc og
mcJl úd mibndtd 05 orómm. (Snom-Udi)
Bragi or nainið i rvimscíni í biensku S wrjldarveínum. Pitó er
sam'tó mrð ólikar þarflr ncmonda f huga scm \mU að Mmetginlegu
nuricmlöi að bwa tícnsku »cm anruð cða cricnt tungunil.
Miðast námscfniö viö fuBorðna nemcndur um aflt bnd scm og
criendh. Bragi er sarmtarfwwkefni á vegum Námsflokka Rcykjavfcur
or Humbddt-lviJtólj í Beihn adt Ljósmyndasafns Reykjavfkair og
annarra aðfla. Vtrkcfráö cr styrkt af Evrópusambandfnu og er 4
dagskrá hjá Rcykjovðc mcnnángarborg árið 2000.
O/m- gi>cJ A iMxI Brjgí He h {*ixhh. kn wifihni
and nnjst nl a/J <itr cUximtiKe and wrt/i wwd.
flhc Pkhc tddi)
‘UngT a the rumc tJax'tof |t jching mjfrrij/í 0« Ifw
vmdj wklr m h h /w> heen anMnl vrifh /1 rnKwn (nr ihc
(Weriau ntxdí oí itxxknts who jfcjie &* imv pwpote -
lhcy wsmt to k'atn lctíanchc «1« a fecond or tortíffi /j/ip/jgc.
I/atf ti M Íúng inMeriih ,i/e tirdgneil tnr lujhne ilinletits
throvghout tivhsnd js ncF jj abnud. Broff »ci cooperMhv
projvct ol ihc Municipol Ctílt/c o( iMjvh Wocjl/on and ífcc
Hunitokh UrJwrvty ín UerHn. j*. v/eC ® tlnr Knyíjjvd.
Muscvni of Hhotog/apli)- ond otlicr orgarusjuxun.
Bragj MÁM f tjóð þjóðfvljjtjo!, og MHJorjpegW f efntsvjli UkI
og þjöö, siði hennar og mcnnlngu. Námscfnfð bniar bi&ð mfi
kcnnslustofu og heimanims vtó töhti og býður uppá kosti og
mðguleika beggja nármumhvería. Átlunm cr aö þróa Braga áfram
svo lunn nýtbt einnig f (jariænnslu er fr.vn )íða stundir.
Tf* projeci h \upponvd by tlnt £//ro//ej/i Union j ihJ h pjrt ot
thc prqgrjmmc ot Krr/ájvd, luropun Cijy títCulture JtKXI.
REYKJAVlK
MIMMINAAiaOM iVAÓAU ÁRN) 2*C0
NÁMSEFNI Á VERALDARVEFNUM
TEACHINC MATERIALS ON THE WEB
bragi.org
hagpýtar gturmupplýslngar
/wW inúvrri/j/iofi
nýU 4 veínum
vet'kort
vo)gluggj
h^óðfræöikvcr
pfconcifogy IxxAkt
þinn vafri
yQttr bancKr
tungumál ncmcnda
nudtmis' naiw lanpuag&
námscír.iö:
námsbók og vmraixjk
tMCJiHig autrriak:
courie book jnd worWook
orðjforði
vocabohry
inálfræðiLver
gamrv.t booklei
menu wtndcr.v
kntarvól Brrtg*
thuff scatdi cnffnc
kennarahandbók
wjc/w's rttjrxiif
SKÓIA* OG HEIMANÁM
CLASSROOM TEACHINC AND HOME STUDY
Bragi er ekki bara orðheppinn heldur líka ókeypis
Meö Braga er komiö fyrsta kennsluefniö í íslensku sem er algjörlega á
tölvutæku formi. Mynd Árnastofnun
DV-MYND GVA
Gígja Svavarsdóttir
Hefur ásamt Sigríöi Tómasdóttur og þeim Soffíu Gunnarsdóttur og Andreas
Vollmer í Berlín unniö gerö vefsins.
málsnUld og orðfimi. Bragi er all-
nýstárlegt samstarfsverkefni Hum-
boldt-háskóla i Þýskalandi, Náms-
ílokka Reykjavíkur og Ljósmynda-
safns Reykjavíkur og Bragi er ein-
stakur að því leyti að hann er ekki
til á bókum heldur er hann samheiti
yfir kennsluefni í íslensku fyrir út-
lendinga sem í boði er á vefslóðinni
bragi.org. Sigrún Gígja Svavarsdótt-
ir hjá Námsflokkunum sagði í sam-
tali við DV að hugmyndin hefði orð-
ið til í herbúðum Humboldt-háskðl-
ans sem hefði vakið máls á hug-
myndinni við þá. Verkefnið er
skipulagt til þriggja ára og kostað af
EB og M2000.
„Kennarar hafa oft haft á orði að
lítið sé af íslensku nútímamáli í ís-
lensku kennsluefni fyrir útlendinga.
Þegar við höfðum rætt við kennara
úr Humboldt sáum við strax að það
var enginn grundvöllur fyrir því að
gefa út bækur og ákváðum í kjölfar-
ið að
hanna vefsíðu þaðan sem kennar-
ar hvaðanæva úr heiminum gætu
tekið efni sem hentar þeirra
kennslu og jafnvel betrumbætt það
og aðlagað að sínum þörfum,“ sagði
Gígja um ástæður þess að ráöist var
í jafn viðamikið verkefni og raun
ber vitni.
Fjöldi manns á biðlista
Verkefnið er enn á tilraunastigi
og segir Gígja að svo muni reyndar
alltaf vera þar sem alitaf sé verið að
betrumbæta og skipta út efni og
kennsluefnið því stöðugt að taka
breytingum.
Fyrstu hópamir eru þegar famir
að notast við Braga í íslenskunám-
inu hjá Námsflokkunum og að sögn
Gígju láta hópamir vel af. Fullt er
út úr dyrum, svo að segja, og sækja
um 260 manns sumamámskeiðin að
þessu sinni sem er þónokkur aúkn-
ing frá árinu í fyrra auk þess sem
biðlistar hanga uppi.
„Það er mikill munur á tungu-
málakennslu fyrir börn og fullorðna
og mikilvægt að efnið höíði sérstak-
lega til áhuga fólks. Með Braga
reynum við að færa tungumála-
kennsluna örlítið nær nútímanum
með því að kenna íslensku í gegn-
um sögu og menningu þjóðarinnar,"
segir Gígja um leið og hún tekur lít-
ið dæmi af frásögn frá Þvottalaug-
unum í Laugardal og hvemig nafn-
orö og sagnir tengdar „þrifurn" eru
kenndar samfara lesningunni. „Ég
myndi segja að einkunnarorð Braga
séu sveigjanleiki og gagnvirkni -
hvort heldur milli einstakra náms-
flokka eða milli nemenda og náms-
efnis.“ -KGP
Biogagnryni
The Skulls - Blóborgin, Kringluhló og Nýjabió ★
Öfgafull stúdentapólitík
Björn Æ.
Noröfjöró
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir
Góði gæinn (Joshua Jackson) og vondi gæinn (Craig T. Nelson)
„Ég verð aö játa aö ég skil ekki af hverju allt veröur aö vera meö eindæmum
yfirboröskennt og hreinlega heimskulegt þegar kemur aö myndum geröum
fyrir unglinga. “
Aðalpersónan Luke McNamara
(Joshua Jackson) er framúrskar-
andi nemandi og kraftmikill íþrótta-
maður. Hann er einmitt svona týpa
sem Höfuðkúpurnar sækjast eftir.
Kúpumar em leynilegt skólafélag,
ólíkt öllum öðrum. Það er gríðar-
lega valdamikið og veitir liðsmönn-
um sínum ailt er hugur þeirra gim-
ist (í tiifelii ungra pilta - sport-
bifreiðar og fögur fljóð) gegn algerri
tryggð við félagsskapinn. Þar sem
Luke stendur ilia fjárhagslega tekur
hann boði Kúpanna um inngöngu,
jafnvel þótt vinir hans Will Beck-
ford (HUl Harper) og Chloe (Leslie
Bibb) ráða honum frá því. Will er
verðandi blaðamaður og þegar hann
tekur að rannsaka Kúpumar hefst
atburðarás sem engan gat órað fyrir
- nema þá sem hafa séð of margar
unglingamyndir.
Ég verð að játa að ég skil ekki af
hverju allt verður aö vera með ein-
dæmum yfirborðskennt og hrein-
lega heimskulegt þegar kemur að
myndum gerðum fyrir unglinga.
Þetta fer reyndar óhemjumikið í
taugamar á mér - og gerði það
einnig meðan ég var sjálfur á tán-
ingsaldri. Hugmyndin á bak við The
Skulls er nefnilega skrambi góð -
skemmtileg blanda samsæris og
mystíkur - en útfærslun með ein-
dæmum klaufaleg. Aðsetur
Kúpanna er óraunsætt með afbrigð-
um og aldagamlar hefðir þeirra
glórulausar. Persónumar eru
stereotýpur og samtöl þeirra oft
heimskuleg eftir því. Atburðarásin
er brotakennd og sumar senumar
með eindæmum vandræðalegar - of-
sóknarbrjálæöissenan þó sýnu
verst. Og hvaða félagsskapur af
þessu tagi myndi kalla sig Höfuð-
kúpurnar?
Það er óþarfi að afskrifa yngri
leikara myndarinnar strax þvi
vandséð er hvort nokkur leikari
hefði getað gert gott úr hlutverkum
þeirra. Reyndar þyrfti ekki að koma
á óvart ef Paul Walker og Hill
Harper næðu lengra í Hollywood -
því bak við hallærislegan díalóginn
glyttir í sjarma. Flestum eldri leik-
urum er vorkunn sömuleiðis nema
hvað Craig T. Nelson sleppur ágæt-
lega frá sínu. Fyrst og fremst er
þetta blettur á ferli leikstjórans
Robs Cohens sem á að vera sjóaðri í
bransanum en að senda frá sér
mynd sem þessa.
Titill og útfærsla The Skulls kall-
ar á hauskúpu í einkunnagjöf en
ætli það sé ekki rétt að standast þá
freistingu og gefa henni stjömu -
fyrir góða hugmynd.
Leikstjórn: Rob Cohen. Handrit: John
Pogue. Aöalhlutverk: Joshua Jackson,
Paul Walker, Hill Harper, Leslie Bibb,
Craig T. Nelson, William Petersen,
Christopher McDonald og Steve Harris.