Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2000, Qupperneq 28
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá 1 síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
t hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000
íslendingur
kom til Græn-
lands í nótt
Víkingaskipið Islendingur kom til
^Narssaq í Grænlandi um klukkan 4
að íslenskum tíma i nótt.
„Við erum komin til Grænlands,
við erum aðeins á undan áætlun. Það
gekk mjög vel að sigla hingað, og
greiða úr þeim flækjum sem við
þurftum að greiða úr og þetta einfald-
lega gekk eins og ég gerði ráð fyrir i
upphafi," sagði skipstjóri íslendings,
Gunnar Marel Eggertsson. Sam-
kvæmt áætlun mun víkingaskipið
vera í Brattahlíð á Grænlandi hinn
15. júlí. Brattahlíð er í minna en
dagsferð frá Narssaq og sagði Gunn-
ar Marel að ekki væri búið að ákveða
hvenær Islendingur leggur úr höfn
frá Narssaq.
Um helgina lenti íslendingur í
hremmingum vegna hafíss en komst
klakklaust úr ísnum ásamt Hríseyj-
unni EA-410, fylgdarskips sins. Hrís-
eyjan er japanskur ístogari frá Sam-
herja sem fylgir íslendingi alla ferðina.
„Haflsinn hamlaði okkur í 9 til 12
klukkutíma. Við lentum í vandræð-
um i ísnum og kláruðum okkur út úr
þeim og síðan höfum við verið í góð-
um málum,“ sagði Gunnar Marel.
íslendingur mun yfirgefa Bratta-
hlíð hinn 20. júlí og stefna til L’Anse
Aux Meadows í Nýfundnalandi í
Kanada. Víkingaskipið lýkur svo
ferðinni í New York hinn 25. október.
Áhöfnin fagnaði vel komunni til
Grænlands. -SMK
~ Sprengjudeildin
til Krýsuvíkur
Flokkur unglinga sem er við
vinnu í Krýsuvík á vegum Lands-
virkjunar fann reyksprengju í morg-
un. Baldur Sigurðsson hjá Lands-
virkjun sagði í viðtali við DV í
morgun að sprengjan, sem fannst of-
anjarðar og væri sennilega frá því í
síðari heimsstyrjöld, væri virk og
að sprengjudeild Landhelgisgæsl-
unnar væri á leið á vettvang með
búnað sinn. Landhelgisgæslan gaf
fyrirmæli um að öll vinna á staðn-
um yrði stöðvuð vegna sprengju-
hættu en unglingamir fundu mikið
^ magn vélbyssuskota í rofabarði á
w sömu slóðum í síðustu viku. -GAR
Veðurblíða í höfuðborginni
Unga fólkiö naut sumarblíðunnar mitt í allri litadýrðinni við Fríkirkjuveg og lét nekt guðsins forna ekki trufla sig við
fegrun borgarinnar en göfugri störf þekkjast vart á sólardögum. Stúlkan fremst á myndinni heitir Kristín Ólafsdóttir.
30% hækkunVÍS:
Verðsamráð
er virkt
- segir Ari Skúlason
Þessi hækkun
kemur ekki á
óvart,“ segir Ari
Skúlason, fram-
kvæmdastjóri ASÍ.
„Hjá olíufélög-
unum hækkar
fyrsta félagið
Idukkan þrjú, það
næsta klukkan fimm og það þriðja
klukkan sjö og það er samkeppnin í
þeirri grein. Hjá tryggingarfélögun-
um gerist þetta með einhverra daga
eða vikna millibili og það er sam-
keppnin í þeirri grein. Það er nátt-
úrlega gefið mál að öll gera trygg-
ingarfélögin þetta eins, þó einhver
örlítill blæbrigðamunur kunni að
vera á útfærslum, og þvi engin virk
samkeppni í greininni. Þetta er
greinilega virkt verðsamráð," segir
Ari Skúlason. -GAR
Ari Skúlason
Allt á suðupunkti milli rútubílstjóra og leigubílstjóra við Leifsstöð í gær:
Verðlag leigubíla
helmingi of hátt
- segir framkvæmdastjóri Sérleyfisbíla Keflavíkur
DV-MYND PJETUR
Til Keflavíkur
Forráðamenn Sérleyfisbíla Keflavík gripu til þess ráðs að aka farþegum sínum til
Keflavíkur í leigubílum þaöan sem þeir fóru með rútunni til Reykjavíkur
„Það er auðvitað skelfíleg þjón-
usta þegar menn haga sér svona.
Leigubílstjórar hjá Ökuleiðum
sem eru við Leifsstöð neita nær
alltaf að keyra fólk til okkar nið-
ur I Keflavík þar sem fólkið kæm-
ist i okkar rútur og til Reykjavik-
ur en ef þeir gera það í undan-
tekningartilfellum taka þeir 1000
krónur fyrir aksturinn sem er
helmingi of hátt fyrir um 4,5 km
leið“ segir Einar Steinþórsson,
framkvæmdastjóri Sérleyfisbíla
Keflavíkur sem hefur einkaleyfi á
akstri langferðabíla frá Keflavík
til Reykjavíkur.
Einar segir að vegna þessa hafi
Sérleyfisbílar farið með strætis-
vagn að Leifsstöð í gær og sótt
þangað fólk sem hafi verið keyrt í
langferðabíla í Keflavík. „Strætis-
vagninn fylltist strax og þess
vegna sendum við einnig lang-
ferðabíl á staðinn. Verkfallsverðir
stöðvuðu langferðabílinn og þá
gripum við til þess ráðs að panta
leigubíla fyrir fólkið til Keflavíkur
og komum fólkinu þannig frá flug-
velinum," segir Einar.
Hann segir framkomu leigubíl-
stjóranna við Leifsstöð óviðunandi.
Til nokkurra orðahnippinga kom
milli manna enda verja Ökuleiða-
menn Leifsstöð með kjafti og klóm
og vilja sitja að öllum akstri þar
með farþega frá stöðinni. Þeir
hafa ekki nema í undantekningar-
tilfellum fengist til að aka ferða-
mönnum til KefLavíkur í veg fyrir
langferðabíla, vilja sjálfir keyra
fólkið til Reykjavíkur og taka tug-
þúsundir fyrir. Ema Hauksdóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar, lýsti því i
fréttum RÚV í gær að leigubíl-
stjórar hafi rukkað ferðamenn
um allt að 30 þúsund krónur. Þá
sagði hún að auglýsingar í Leif-
stöð um verð á leigubílaakstri
hafi verið rifhar niður.
Lögreglan var á vettvangi við
Leifsstöð i gær en aðhafðist ekki
þrátt fyrir að mikill hiti væri í
mönnum. „Við höfum fullan rétt
til að sækja fólk að Leifsstöð og
vorum að bregðast við neyðará-
standi sem leigubilstjórarnir hafa
skapað.
Við munum kæra afskipti
þeirra af því sem við vorum að
gera í gær enda um lögbrot að
ræða af þeirra hálfu. Það verða eft-
irmál af þessu,“ segir Einar Stein-
þórsson. -gk
Upptaka salmonellu- og campylobactersýkinga leitað:
Horft til opins klóaks
- mögulegt, segir bæjarstjórinn á Höfn
„Það er ekki loku fyrir það
skotið að upptök sýkinganna
megi rekja til þessa opna
klóaks í fjörunni en það gæti í
sjálfu sér verið hvað sem er. Ég
ætla þó ekki að draga úr þvi að
það þurfi að laga þetta klóak
þarna. Það hefur verið leitað
lausna mjög víða og við jafnvel
sent menn utan eftir lausnum.
Þama er stórstraumsfjara sem
gerir allar aðstæður mjög erfið- Sýkingarstía
ar og erfitt að leiða klóakið Bæjarstjórinn á Höfn hafnar því að það skuli vera
langt út í sjó eins og lög gera beygur í fólki vegna mögulegrar sýkingarhættu
ráð fyrir. Það hefur verið ráð- sem skapast hefur við opið klóak.
inn maður sérstaklega til þess
að fylgjast með þessu eina
máli. Einnig geri ég ráð fyrir
því að heilbrigðiseftirlit Aust-
urlands fylgist með ástand-
inu,“ sagði Albert Eymunds-
son, bæjarstjóri á Höfn í
Hornafirði, í gærdag. Aðspurð-
ur sagði Albert aö það væri
ekki beygur í fólki og það
hefði t.a.m. enginn rætt málið
við sig. Albert bætti því við að
ekki væri fyrirséð hvenær
yrði búið að laga þetta
ákveðna klóak. -ÓRV
Pantið í tíma
24 da^ai í Þjóðhátið
FLUGFÉLAG ÍSIANDS
570 '3030