Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2000, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2000, Blaðsíða 1
ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2000 21 J Of seint k - til læknis i* Bls. 26 Nýr MP3 spilari Bls. 25 Grannar mýs gefa von Bls. 24 PlayStation Þessar nýþvegnu afrísku mörgæsir biða þess að verða sleppt á nýjan leik út í náttúruna og frels- ið. Þær eru einungis smáhluti þeirra 40.000 mörgæsa sem bjargað var frá olíumengun við strendur Suður-Afríku þegar olíuskipið Trea- sure sökk í júní. Um 10.000 fuglar hafa nú verið þvegnir og er ærið starf eftir enn. Þvotturinn fer fram í IFAW/SANCCOB mörgæsa „end- urhæfingarstöðinni“ í Salt River, Höfðaborg. Byrjað er að sleppa fuglum á ný nú þegar en enn er ekki séð fyrir endann á því hvenær því starfi verður lokið. Það flýtir þó sjálfsagt fyrir að nokkur hluti fuglanna 40.000 náðist áður en þeir lentu í ol- íuflekknum. Vísindamenn segja að þetta sé langstærsta rýming á villt- um dýrum fyrr og síðar. Strax og skipið sökk sást að ekki yrði hægt að hreinsa sjóinn nógu fljótt og hófust þá sjálfboðaliðar við að flytja fuglana í burt frá slysstaðn- um. Stærsta ástæðan fyrir þessu er að afríski mörgæsastofninn er ekki mjög stór og hefði það verið stórt áfail fyrir hann ef mikið affall hefði verið úr honum eins og stefndi í eft- ir slysið. Hættan sem myndast fyrir dýralíf þegar oliuskip sökkva er alltaf jafn- mikil en i þetta skiptið tókst með skjótum viðbrögðum fólks að draga verulega úr tjóni með þessum stór- flutningum á mörgæsunum. íWOifili' iiUll „Napster" fyrir bíómyndir Það er ekki bara tón- listariðnaðurinn sem þarf að kljást við steli- þjófa á Netinu. Nú er kvikmyndaiðnaður- inn farinn að fmna fyrir því einnig. Neðanjarðarmarkaður með stolnar myndir fer ört stækkandi og búast sér- fræðingar við því að í lok ársins 2001 verði um einni miiljón mynda hlaðið niður á degi hverjum. Talið er aö einn aðalstaður fólks til að hittast og skipt- ast á myndum sé á Irkinu þar sem það sér hver á hvað. Meðal aðferða við að koma myndum á stafrænt form er að nota DeCSS. Það er búnaður sem notaður er til að ná í myndir af DVD-diskum og setja þær á stafrænt form svo hægt sé að senda þær í gegnum Netið. Maður að nafni Eric Corley hefur verið ákærður af kvikmyndaverunum fyrir að birta upp- lýsingar um hvar maður kemst yfir DeCSS á veftímariti sínu 2600. Vefslóð- in er www.2600.org. Psoriasislyf hjálpar reykingamönnum Lyfið Methoxsalen hef- ur hingað til aðeins verið ætlað fólki sem þjáist af hinum hvim- leiða psoriasis-húð- sjúkdómi. Hins vegar hefur dr. Edward Seliers komist að því að það geti einnig hjálpað reykingamönnum að draga úr reykingum og hugsanlega hætta. Hann prófaði það á 12 reykingamönnum og drógu þeir allir úr reykingum um 25%. Talið er að lyfið dragi úr virkni en- símsins CYP2A6 sem sér um að brjóta niður nikótínið í líkamanum þannig að fljótt verður skortur á því aftur og fólk langar í aðra sigarettu. Frekari og ítar- legri rannsóknir þurfa að fara fram áður en hægt er setja lyfið á markað. " 'Vví.\| Hgf ML:/ 1 lO Ný og sérlega áhugaverð Ijó /öruverslun, HEIMS iiSJIifk . u$'að Lækjargötu 2 í I versluninni fæst allt tengt Ijósmyndun ;f til að mynda Ijósmyndavél ■, filmur, rafhlöður o.fl. Hverri filmu sem þú kemur me^ r: dum handa ömmu. AGFA ^ Einnig ertekið við filmum hjá Heimilistækjum, Sætúni og Heimskringlunni, 1. hæð, Kringlunni. HEIMSMYNDIR Lækjargötu 2, Reykjavík. Sími 569 1550

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.