Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2000, Qupperneq 2
ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2000
22
IðeiiiiiiF
Leitin að lífi á öðrum hnöttum:
Paul Allen styrkir bygg-
ingu risasjónauka
- gaf 11,5 milljónir Bandaríkjadollara
Geimvísindi
Nú eru uppi
áætlanir um að
byggja risastór-
an útvarps-
bylgjusjónauka
sem á að sinna því hlutverki að
finna líf á öðrum hnöttum. SETI
(Search for Extraterrestrial Intellig-
ence)-stofnunin, sem er eina einka-
rekna stofnunin sem leitar að vit-
Sjónaukinn erí raun
byggður upp af fytk-
íngu 500-1000 radíó-
diska, ekkí ósvipuðum
þeim gervihnattadisk-
um sem fólk notar tíi
að ná eríendum sjön-
varpsstöðum. Þeir
verða alíir tengdir
þanrítg að útkoman er
ein heildstæð mynd af
himingeimnum
rænum verum á fjarlægum hnött-
um, stendur fyrir byggingu þessa
sjónauka.
Rétt tæpur helmingur þeirra 26
milljóna Bandaríkjadala sem til
þarf koma frá tveim af mönnunum
sem stóðu að uppbyggingu
Microsoft-risans. Það eru þeir Paul
Allen, annar stofnandi Microsoft,
sem gaf 11,5 milljónir, og fyrrver-
andi yfirmaður tæknisviðs
Microsoft, Nathan Myhrvold, sem
gaf 1 milljón. Sjónaukinn er nefndur
í höfuðið á Állen, The Allen Tel-
escope Array.
í yfirlýsingu frá Myhrvold sagði
m.a.: „Þótt visindalegir útreikning-
ar segi okkur að líkur á vitsmuna-
verum á öðrum hnöttum séu tiltölu-
lega miklar þá er samt enn mikil
óvissa um þá og þeir umdeildir. Eitt
er hins vegar víst að ef við reynum
ekki þá finnum við aldrei neitt.“
Tekinn í fulla notkun eftir 5
ár
Peningagjöfin er mjög mikilvæg
fyrir SETI stofnunina því hingað til
hefur SETI þurft að eyða 4 milljón-
um dollara í að leigja útvarps-
sjónauka hér og þar um Bandaríkin.
Nú er stofnunin komin með eigin
sjónauka og eru forsvarsmenn
hennar himinlifandi.
Sjónaukinn er í raun byggður
upp af fylkingu 500-1000 radíódiska
ekki ósvipuðum þeim gervihnatta-
diskum sem fólk notar til að ná er-
lendum sjónvarpsstöðum. Þeir
verða allir tengdir þannig að útkom-
an er ein heildstæð mynd af himin-
geimnum. Sjónaukinn verður rek-
inn i samvinnu SETI og Kaliforníu-
háskóla. Honum verður valinn stað-
ur tæpa 340 km frá San Fransisco í
Hat Creek stjömurannsóknarstöð
háskólans þar sem það svæði er
nokkuð laust við útvarpsbylgjur og
hvers kyns aðra truflun af manna
völdum.
Áætlað er að frumgerð Allen sjón-
aukans verði tilbúin um 2003 og
hann verði tilbúinn í fulla notkun
árið 2005.
Geimveruleit er eitt áhugamálið
enn sem Paul Allen er búinn að
bæta við í sarpinn. Á meðal þess
£iaijj>
Geimveruleit er bara eitt áhugamál af mörgum hjá öðrum Microsoftstofn-
andanum, Paul Allen.
sem hann dundar sér við annað er sveit og opnaði nýverið mikið rokk-
að eiga körfuboltaliðið Portland safn í Seattle.
Trailblazers, hann er 1 rokkhljóm-
Staöaltími Internetsins er byggöur á grunntíma jaröarinnar í Greenwich,
Englandi.
Samræmd klukka fyrir Netiö:
Microsoft tefur tímann
- villa í Explorer er vandamáliö
Villa í Explorer
netvöfrum
Microsoft veldur
því að ekki hef-
ur enn tekist að
setja samhæfðan
tíma á Internetinu eins og áætlanir
hafa staðið til um nokkurn tíma.
Vandamálið við það ekki er sam-
ræmd klukka á Netinu er það fólk
gæti farið að missa trúna á við-
skiptum i gegnum það. Þar sem
tölvur taka tímann sem samningar
eru undirritaðir þá gæti komið vill-
ur sem illu deilum um hvenær
samningar áttu sér stað og færslu
eignarréttar. Með samræmdum
tíma yrði þetta vandamál úr sög-
unni.
Aðilar sem að þessu máli koma
eru búnir að samþykkja tímann
sem farið verður eftir, svokallaðan
GET (Greenwich Electronic Time)
sem byggður er á gamla góða GMT
(Greenwich Mean Time).
Búið er að þróa hugbúnað sem
sér um að samstilla netklukkur.
Vandamálið er að hugbúnaðurinn
notast við Java forritunarmál. Sum
forrit á Java-máli eru fest við net-
skjöl heimasíðna sem er síðan hlað-
ið niður í þá tölvu sem heimsækir
ákveðna síðu. Til þess að koma í
veg fyrir að forritin geti gert etn-
hvern óskunda í viðkomandi tölvu
vinnur það á afmörkuðu svæði.
Stundum eru gerðar undantekning-
ar og það á við um hugbúnaðinn
sem á að samstilla tölvuklukkurn-
ar. Vandamálið er að Explorer-vafr-
ar gera þetta ekki. Þar sem um 80%
allra nettengdra tölva notar Explor-
er er litið hægt að gera fyrr en
Microsoft kippir þessu í liðinn.
Þar sem tölvur taka
tímann sem samningar
eru undirritaðir þá
gætu komíð villur sem
yllu deilum um hvenær
samníngar hefðu veríð
gerðir og færslu eign-
arréttar. Með sam-
ræmdum tíma yrði
þetta vandamál úr
sögunni
Talsmenn Microsoft segja að verið
sé að líta á þessi mál en sumir ótt-
ast að ekkert verði gert fyrr en ný
útgáfa af Explorer kemur út.
Mannréttindasamtök ráðast á vefsíðu:
Yahoo! hyglir nasisma
- hefur veriö kært í Frakklandi
Samtök í Frakk-
landi, MRAP,
sem berjast gegn
kynþáttahatri,
sendu í seinustu
viku frá sér til-
kynningu þar
sem fólk er hvatt til að sniðganga
Yahoo! vefsíðuna. Einnig hvöttu
Fólk er enn viökvæmt fyrir merkjum sem þessu og ekki
aö undra þegar hugsaö er út í grimmdina sem það stend-
ur fyrir.
samtökin stjórnvöld til að loka á
notkun síðunnar í skólum og á opin-
berum stöðum á þeirra vegum sem
og að biðja fjölmiðla um að skera
niður auglýsingar á veffyrirtækinu.
Ástæða þessarrar tilkynningar er sú
að Yahoo! er með tengla á síður sem
selja minjagripi og annað tengt nas-
istum, nýnasistum og Ku Klux Klan.
í tilkynning-
unni segir:
„Með því að af-
neita hvers kon-
ar valdi yfir síð-
um sem birtast
á vefsíðu sinni
er Yahoo! ekki
lengur hlutlaus
milliliður held-
ur beinn þáttak-
andi í sölu i
hagnaðarskyni
á varningi sem
tengist sorgar-
viðburðum í
sögu jarðarinn-
ar.“
Ástæða þessarar til-
kynningar er sú að Ya-
hool ermeð tengla á
síður sem selja minja-
gtipi og annað tengt
nasistum, nýnasistum
og Ku Klux Klan.
MRAP-hreyfingin hyggst taka
þátt í málaferlum á móti Yahoo!
sem þegar eru komin í gang sem
tvö önnur samtök standa að, Al-
þjóðasamtök gegn kynþáttahatri
(LICRA) og Samtök gyðingastúd-
enta í Frakkland i(UEFJ). Frönsk
lög banna sýningar og sölu á
gripum tengdum nasisma og
skipaði franskur dómstóll svo til
um að lokað yrði á síðuna í
Frakklandi. Fulltrúar Yahoo!
segja ógerlegt að loka bara á
franska notendur.
PS One gerir
það gott
eins breyttri
Ekki höfðu allir mikla
trú á þessu uppátæki
Sony en það hefur hins
vegar komið á daginn
að þetta var bráðsnið-
ugur leikur af hálfu
Sony. PS One hefur
slegið í gegn í Japan og
selst í ótrúlegu magni.
Á þremur vikum hefur
PS One selst í um
200.000 eintökum í Jap-
an sem er ansi mikið,
miðað við að Japan-
arnir eru búnir að fá
PIayStation2 á mark-
aðinn. Þessi sala PS
Sony ákvað fyr-
ir skömmu að
gefa gamla jálk-
inum, PlaySta-
tion, hálft líf í
viðbót og gefa
vélina út í að-
útgáfu.
One er reyndar meiri en sala Nin-
tendo 64 og Dreamcast var til
samans á þessu tímabili. Það eru
örugglega ekki mörg önnur fyrir-
tæki sem geta selt sama fólkinu,
sama hlutinn, tvisvar.
Brettaleikurinn Tony Hawk er einn af vinsælli leikj-
unum á PS One.