Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2000, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2000
[
i'jkihii
King gefur út
þriöja hlutann
Hrollvekjuhöf-
undurinn Steph-
en King hefur
ákveðið að gefa
út þriðja hluta
netbókar sinnar The Plant
(plantan) vegna þess hversu vel
sá fyrsti gekk. King var búinn
að gefa út þá yfirlýsingu að
fyrstu tveir hlutamir kæmu á
Netið en ef færri en 75% af þeim
sem sóttu sér fyrstu tvo hlutana
borguöu uppsettan 1 dollara þá
kæmi þriðji hlutinn ekki út.
Fyrsti hlutinn var gefmn út 24.
júlí og þann 31. júlí höfðu 152.132
manns sótt sér eintak. Þar af
höfðu 116.200, 76,38%, borgað.
Um 93.000 manns notuðu sér
kreditkortakerfið sem
Amazon.com lagði fram á með-
an aðrir lofuðu að senda
greiðslu sem nú þegar eru byrj-
aðar að berast til hroOvekju-
kóngsins. Hægt er að nálgast
bókina á heimasíðu King,
www.stephenking.com.
íranska landsbyggöin
netvæöist
í seinustu viku
var fyrsta
íranska þorpið
utan Teheran
tengt við Inter-
netið. Um er að ræða þorpið
Shahkouh sem er í Norðaustur-
Golestanhéraði. Það var valið
vegna þess hversu nálægt það er
rannsóknarstofu eins háskólans
í íran. Fyrir aðeins ári var að-
gangur að Netinu aðeins mögu-
legur starfsmönnum háskóla og
írönsku yfirstéttinni. Þróunin
síðan þá hefur hins vegar verið
ör og hafa mörg Net-kaffihús
opnað í Teheran. í aprú síðast-
liðnum tilkynnti samskiptaráðu-
neyti Irans að engar hömlur
væru á því hver gæti tengst Net-
inu.
Nýtt próf til aö finna
brjóstakrabba
Vísindamenn
hafa fundið upp
nýja aðferð tU
þess að spá fyrir
um hvort konur
muni fá brjóstakrabbamein. Nál
er stungið í brjóstið í kringum
geirvörtuna og tekin nokkur
frumusýni. Síðan eru þau athug-
uð og þá sést hvort frumurnar
eru byrjaðar að breyta sér eða
ekki. Þetta mun koma sér vel
fyrir konur sem eru í áhættu-
hópi þar sem hægt er að ákveða
hvort taka á á málinu fyrirfram
með lyfjum eða uppskurði.
Rannsókn á 480 konum í áhættu-
hópi sýndi fram á að 102 voru
með byrjunareinkenni krabba-
meins og af þeim fengu 17
krabbamein á meðan aðeins 3 úr
hinum hópnum gerðu slíkt hið
sama. Þessari nýju aðferð hefur
verið líkt við sýnatöku i krabba-
meinsskoðun í legi en er hins
vegar tOtölulega alveg sársauka-
laus.
tölvui t*kni 09 vísinda
23
Ný rannsókn í Bretlandi:
Járnskortur veldur greindarskorti
Samkvæmt nýj-
um rannsókn-
um, sem vís-
indamenn við
King’s CoOege í
London gerðu,
eru sterk tengsl
á milli mikOs járnsskorts og
lágrar greindarvísitölu hjá ung-
lingsstelpum.
Járn er mikilvægur þáttur i
hemóglóbíni, prótini sem sér um
að binda súrefni við rauð blóð-
kom. Einkenni járnskorts eru
þreyta, stökkar neglur, fölur litar-
háttur og minni matarlyst. Ef járn-
skorturinn er mikill veldur það
blóðleysi og ónógu súrefnis-
streymi um líkamann.
152 stúlkur á aldrinum 11-18 ára
tóku þátt í rannsókninni. Tekin
voru blóðsýni og þær látnar út-
skýra matarvenjur sínar. Síðan
þreyttu þær greindarvísitölupróf.
Járn er mikilvægur
þáttur / hemóglóbíni,
prötinl sem sér um að
binda súrefhi við rauð
blóðkorn. Einkenni
járnskorts eru þreyta,
stökkar neglur; fölleiki
og mlnni matarlyst. Ef
jámskorturinn er mikill
veldur það blóðleysi
og ónógu súrefnis-
streymi um likamann
I Bretlandi þjást á milli 10 og 30% táningsstúlka af miðlungs eöa miklum járnskorti.
Þær stelpur sem voru mjög Ola
haldnar af jámskorti reyndust hafa
mun lægri greindarvísitölu en hin-
ar. Þetta breyttist ekkert, jafnvel
þótt tekið væri tiOit tO þjóðfélags-
stöðu, kynþáttar, næringar og tíða-
hrings.
Dr. Michael Nelson, stjórnandi
rannsóknarinnar, segir tvær líklegar
ástæður vera fyrir sambandinu á
miOi þessara tveggja þátta. Annars
vegar er það minnkað súrefnisflæði
tO heOans. Einnig eru þó nokkur
ensím sem stjórna sendingum raf-
boða i heOanum að nokkru leyti háð
jámi tO að starfa eðlOega.
Fólki sem þjáist af járnskorti er
bent á að borða af grænblaða-
grænmeti, magurt kjöt, baunir
hvers konar og þurrkaða ávexti.
Einnig er gott að sækja í C-
vítaminríka fæðu þar sem C-
vítamín hjálpar tO við upptöku
járns.
a
Birting mynda af Mac-vörum á Netinu:
Apple kærir vegna leka
- Yahoo! hefur verið skikkað til gefa upplýsingar
Apple-fyrirtæk-
ið er ekki ánægt
með að sagt hafi
verið frá nýju
vörunum sem
kynntar voru á
MacWorld Expo
á Netinu strax í febrúar á þessu
ári. TO að komast að því hver það
er sem lekur út þessum upplýsing-
um frá fyrirtækinu hefur Apple-
fyrirtækið hafið mál á hendur eig-
endum vefsiðna þeirra sem fluttu
fréttimar tO að geta fengið upplýs-
ingar um hver veitti upplýsingam-
ar. Með því að kæra málið er hægt
að neyða eigendur vefsíðnana tO
að gefa upp nafn eða nöfn þeirra
sem láku út þessum upplýsingum
frá Applefyrirtækinu.
Nú þegar hefur fyrirtækinu Ya-
hoo verið gert að upplýsa það hver
eigi vefsíður þær sem birtu upp-
lýsingarnar sem eru skráðar hjá
fyrirtækinu. Er það fyrsta skrefið
í þá átt að finna út hver þaö er
sem veitir þessar upplýsingar.
Þessi leki frá fyrirtækinu skaðar
það mikið þar sem eftirvæntingin
eftir nýjum vörum kemur á vit-
lausum tíma og þar af leiðandi
seljast færri hlutir af nýju vörun-
um.
Búist er við að Apple-fyrirtæk-
inu verði dæmdar háar skaðabæt-
ur vegna þessa ef rannsóknin ber
árangur og sökudólgurinn flnnst.
Þær vörur sem sagt var frá á Net-
inu voru nýja kúlulausa músin og
tveggja örgjörva G4-tölvan.
77/ að komast að því
hver það er sem lekur
út þessum upplýsíng-
um frá fyrirtækinu hef-
ur Apple-fyrirtækið
hafið mál á hendur
eigendum vefsíðna
þeirra sem fluttu frétt-
imar til að geta fengið
upplýsingar um hver
veitti upplýsingarnar.
Apple Pro-músin var birt á Netinu í
júní en átti ekki sjást fyrr en seinni
hlutann í júlí.
Fulltrúar Addís, Stiklu og Stefju handsala hér samninginn
TETRA-fjarskiptakerfiö:
Ferðamenn ávallt undir eftirliti
- eykur öryggi til muna
Ferðaskrifstofan
Addís, flarskipta-
fyrirtækið Stikla
og hugbúnaðar-
húsið Stefja hafa
gert með sér sam-
starfssamning um
þróun og uppbyggingu TETRA fjar-
skiptakerfis sem ber yfirskriftina „Þró-
un TETRA fyrir hóp- og flotastjórnun".
TOgangur samnings er að hagnýta
TETRA-tæknina ásamt hugbúnaðar-
lausnum frá Stefju tO hóp- og flota-
stjórnunar hjá Addís.
Þetta er tímamótasamningur í fs-
lenskri fjarskiptasögu þar sem Addís
er fyrsta fyrirtækið tfl að kaupa
TETRA-þjónustu af Stiklu og jafnframt
er þetta fyrsta hóp- og flotastjórnunar-
lausnin sem Stefla heimfærir yfir á
TETRA-kerfi.
TETRA-stjómstöð Addís mun geta
séð jafnóðum hvar hver ferðamaður
er hverju sinni og jafnframt verið í
talsambandi við viðkomandi. Þetta er
fyrsta eftirlitskerfið með ferða-
mannahópum hér á landi, og jafnvel
í heiminum þar sem fylgst er með
ferðamannahópum á ferð um landið.
Þetta mun auka öryggi ferðamanna
og tryggja að aflar skipulagðar tíma-
áætlanir standist.
Tony Hawk 2 með
ýmsum möguleikum
- hægt aö sérhanna brautir
Það eru alltaf
að leka út fleiri
fréttir um hvað
Tony Hawks
Skateboarding 2
muni bjóða upp
á. Leikurinn
sem beðið er með mikilli eftir-
væntingu er á leiðinni fyrir
PlayStation og Dreamcast á þessu
ári.
Fyrir utan klassískar viðbætur,
eins og betri grafík, hljóð, nýrri
tónlist og ný trikk, ber einna hæst
að leikurinn mun innihalda þann
valmöguleika að spilarar geta
hannað sínar eigin brautir og
palla. Með þessu móti eykst end-
ing leiksins tO muna og flestir geta
hannað brautir við sitt hæfl, hvort
sem þeir vilja renna sér eftir hand-
riðum eða framkvæma stór stökk
fram af fjallsbrúnum. Þessi mögu-
leiki gerir spflurunum líka kleift
að sérhanna brautir fyrir tveggja
PlayStation-aðdáendur bíða með
öndina í hálsinum eftir TH2
manna leik sem var einstaklega
vel útfærður í fyrri útgáfu leiks-
ins.
Ekki er búið að ákveða fastan
útgáfudag fyrir Tony Hawks
Skatebording 2 en framleiðendur
leiksins segja hann á næsta leiti
en það þýðir væntanlega fyrir jól.