Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2000, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2000, Síða 9
9 FBMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 Útlönd Stuttar fréttir Arafat Shimon Peres, ráöherra í stjórn ísraels, sagði í morgun að það væri rétt hjá Yasser Arafat, forseta Palestínumanna, að endurmeta áform sín um að lýsa yfir sjálfstæðu ríki Palestínu. Til stend- ur að Palestínumenn lýsi yfir stofn- un eigin ríkis í næsta mánuði. Mælir með klónun Landlæknirinn í Bretlandi mælti með þvi í gær að breskir vísinda- menn fengju að klóna fósturvísa mannsins til læknisfræðirann- sókna. Rændu fé og flugvél Átta vopnaðir ræningjar rændu rúmlega tvö hundruð milljónum króna úr brynvörðum bíl í Brasilíu og rændu síðan farþegaflugvél til að komast undan. Sprungið dekk orsökin Sérfræðingar í flugöryggi sögðu í gær að allt benti til að grúmmírifr- ildi úr sprungnu dekki hefði valdið því að Concorde-þotan fórst við Par- is í síðasta mánuði. Harrett hjá Bílsprengja í Tsjetsjeníu Tveir Tsjetsjenar létu lifið og fjór- ir rússneskir lögregluþjónar særð- ust þegar bílsrpengja sprakk í tsjetsjensku höfuðborginni Grozní. Annan vill meiri tíma Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, hefur farið þess á leit við Ör- yggisráðið að það framlengi umboð sendinefndar SÞ í Kongólýðveldinu um einn mánuð, til 30. september, til að gefa honum meiri tíma til að meta stöðuna. Smyglarar í dulbúningi Fjórir menn, sem þóttust vera pílagrímar, með myndir af Jóhann- esi Páli páfa utan á sér, hafa verið handteknir í Kostaríka fyrir tilraun til að smygla 3,5 kilóum af kókaíni til Evrópu. McCain með krabbamein Bandariski öld- ungadeildarþing- maðurinn John McCain greindi frá þvi i gær að hann væri með alvarlega tegund húðkrabba- meins. McCain gerði misheppnaða tilraun til að verða forsetaefni repúblikana. Meira fé gegn öfgum Þýska stjómin samþykkti í gær að veita meira fé til baráttunnar gegn hægri öfgamönnum. Nýnasist- ar hafa haft sig mjög í frammi að undanfömu og í dag halda þeir upp á dánarafmæli Rudolfs Hess. Völd í skiptum fyrir frið Lionel Jospin, forsætisráðherra Frakklands, sagði Korsíkubúum í gær að skilyrðið fyrir því að þeir fengju aukin völd heim i hérað væri að þeir upprættu öll ofbeldisverk sem hafa plagað eyjuna. Joseph Lieberman heldur ræðu á flokksþingi demókrata: Viö verðum að kjósa Al Gore Varaforsetaefni demókrata, Jospeh Lieberman, sagði í gær á flokksþingi demókrata, sem fram fer um þessar mundir, að hann væri að upplifa ameriska drauminn sem fyrsti gyðingurinn sem tilnefndur væri sem varaforsetaefni í Banda- rikjunum. Lieberman hlóð lofi á A1 Gore um leið og hann gagnrýndi repúblikana fyrir að stilla fram „viðkunnalegum mönnum" sem boðuðu innantómt hjal. Sagði Lieberman að Gore yrði að verða næsti forseti Bandaríkjanna. A1 Gore mætti óvænt á flokks- þingið í gær en hann verður form- lega tilnefndur sem forsetaefni demókrata í kvöld. Elsta dóttir Gor- es, Karenna, 27 ára, stóð á aðalsvið- inu og hafði nýlokið við að nefna föður sinn í embætti þegar Gore hljóp upp á sviðið og faðmaði dóttur sína um leið og hann þakkaði henni Tommy Lee Jones Lýsti einnig yfir stuðningi við Gore. veittan stuðning. Auk Karennu steig leikarinn Tommy Lee Jones á sviðið en þeir voru skólafélagar í Harvard. Lois Deberry, gamall vin- ur Gores og fulltrúi Tennessee á Fulltrúaþinginu, fór einnig á sviðið og lýsti yfír stuðningi sínum við A1 Gore. Dóttir Gores, Karenna, lýsti því yfir fyrir að hún vonaði að fað- ir sinn yrði kosinn forseti, vegna þjóðarinnar og framtíðar hennar. Til lítils háttar átaka kom milli lögreglu og mótmælenda í Los Ang- eles í gær en enginn slasaðist alvarlega. Lögreglumenn notuðust við gúmmíkúlur til að halda aftur af fólkinu sem mótmælti lögregluof- beldi og kastaði glerflöskum til baka. Þá brenndu mótmælendur bandaríska þjóðfánann. Lögreglan handtók 37 manns sem höfðu komið sér fyrir á aðaltröppum lögreglu- stöðvarinnar í miðbænum. Abdullah hitti Barak Jórdaníukóngur sagði forsætisráð- herra ísraels álit sitt umbúðalaust. Á móti stjórn ísra- els á Jerúsalem Abdullah, konungur í Jórdaníu, skýrði Ehud Barak, forsætisráð- herra ísraels, frá því í gær að Jórd- anir gætu aldrei fallist á að Jerúsal- em yrði undir stjóm ísraela. Leiðtogamir tveir skiptust á skoðunum í tvær klukkustundir í höll konungs. Að sögn vora viðræð- urnar hreinskilnislegar. Jórdanir töpuðu arabískum aust- urhlutanum i Jerúsalem í hendur ísraela i 6 daga stríðinu árið 1967. Rjómaleginn Forsætisráðherra Kanada, Jean Chretien, varð fyrir miður skemmtilegri reynslu í gær er mótmælandi henti böku í andlitið á forsætisráðherra. Sá sem bökunni kastaði er m.a. ósattur við niðurskurð í velferðarmálum. Petersen segir enga sprengju við Thule Utanríkisráðherra Dana, Niels Helveg Petersen, segir í viðtali við dagblaðið Politiken að fréttir af kjarnorkusprengju, sem sögð er liggja á hafsbotni undan ströndum Grænlands í námunda við radar- stöðina á Thule, eigi ekki við rök að styðjast. Hins vegar segir Petersen að mögulegt sé að sprengjubrot kunni að finnast á staðnum sem rekja megi til þess er B-52 sprengju- flugvél bandaríska flughersins fór í sjóinn í námunda við Thule árið 1968 með fjórum kjamorkusprengj- mn innanborðs. „Allar sprengjurnnar íjórar hafa fundist og það er engin heil sprengja undir ísnum," sagði Peter- sen. Segir Petersen að upplýsingar um atburðinn hafa legið fyrir frá árinu 1995 en að misskilninginn um fjórðu sprengjuna megi rekja til þess að bandarískir hermenn hafi á sínum tíma leitað að „týndum hlut“ sem svo var skilgreindur. Lokað á morgun, föstudaginn 18. ágúst, vegna jarðarfarar Olafar Ingvarsdóttur Jói útherji Knattspyrnuverslun Ármúla 36,108 Reykjavík Albright ætlar að leggja sig fram fyrir Argentínu Bandaríska utanríkisráðuneytið lofaði Argentínumönnum, sem misstu ættingja í ógnaröld herfor- ingjastjómarinnar 1976 til 1983, að allt kapp yrði lagt á að gera opinber bandarísk leyniskjöl þar að lútandi. „Ég mun gera það sem í mínu valdi stendur til að fá leyndinni aflétt af skjölum sem snerta Argentínu," sagði Madeleine Al- bright, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, á fundi með fréttamönn- um eftir viðræður við argentínskan starfsbróður sinn. Ömmur fórnarlamba herforingja- stjómarinnar hittu Albright í gær- morgun og spurðu þær hana hvað bandarísk stjómvöld hefðu gert frá því þeim barst beiðnin um að aflétta leyndinni á síðasta ári. Ömmumar hafa sérstakan áhuga á skjölum um böm sem voru tekin frá fangelsuð- um mæðmm og gefin fjölskyldum hermanna. Örfáum bílum óráðstafað úr síðustu sendingu Næsta sending í september Dodge Ram 2500 diesel Dodge Grand Caravan Chrysier Cirrus Grand Cherokee Limited Grand Cherokee Laredo Netsalan ehf Garðatorgi 3, 210 Garðabæ. Sími: 565-6241, 893 7333. Svninaarbflar á Staðnum. Ooið:Mánudaaa-Föstjjdaaa10-18»LaiJciandaaa10-1fi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.