Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2000, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2000, Page 13
13 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 DV Menning Andri Snær Magnason segist hafa fengiö martröö í nótt. Martröðin var á þá leið að skátar höfðu lagt undir sig ættaróðalið á Melrakkasléttu og hrakið þaðan burt fjölskyldu hans. Ekki varð þverfótað fyrir skátum á staðnum. Hann vaknaði æpandi. Annars hefur Andri Snær ekki dval- ið lengur en tvær vikur í senn utan borga þó að honum þyki það skemmti- legt. Er hann kannski rithöfundur sem á eftir að loka sig af í einhverjum eyði- firði til að skrifa? „Nei,“ segir hann. „Mér dettur alltaf i hug kvikmyndin Eins og skepnan deyr, eftir Hilmar Oddsson, þar sem rit- höfundurinn skaut sig með rifili í lokin. Ég fer a.m.k. ekki til Loðmundaríjarð- ar.“ Grátandi kona á stól Andri Snær er nýkominn frá Bonn þar sem honum var boðið að vinna í höfundarsmiðju fyrir ung leikskáld. Hann var þar í tólf manna hópi frá Stór- Evrópu og stjómandinn var Biljana nokkur frá Serbíu sem slegið hefur í gegn i leikhúsum Mið-Evrópu imdan- farið. Hvað lærði hann helst í höfund- arsmiðjunni? „Það er erfitt að segja,“ segir Andri. „Við unnum mikið í höfundarsmiðj- unni, auk þess sem við horfðum á 40 klst. af leikhúsi. Lögð var áhersla á nýja leikritun í Evrópu. Þetta var ansi merkilegt þó að stundum væri erfitt að fylgjast með verkum sem jafnvel voru á ítölsku, með þýskri talsetningu. Andri segir að þetta úthald hafi staðið í tvær vik- ur og verið harður pakki. Tvö leikrit á dag - fjórar klukkustundir. „Þetta var bara eins og að horfa á heimsmeistarakeppnina í fótbolta," bætir hann við. Andri segir frá einu leikritanna sem hann sá í Bonn, en það fjailaði um skelfilega atburði sem áttu sér stað í Rúanda árið 1994. „Þetta var eitt af því skrýtnasta sem ég hef séð: Það var kona frá Rúanda - ekki leikari - sem sat á stól og lýsti því hvemig fjölskylda hennar var drepin. Hún sagði frá grátandi og allir í salnum hágrétu. Leikarar og fómarlömb sátu þar saman uns einn stóð upp og flutti klukku- stundarlanga ákæm á hendur þeim sem hann taldi bera ábyrgðina. Það er spuming hvort þetta sé ekki of mikið af svo góðu. Vill maður að svona leikrit slái í gegn og konan þurfi að segja hryllingssögur úr eig- in lífi tvö hundruð sinnum? Ég veit þaö ekki.“ Kraftaskáld í samkomutjaldi Það var fleira einkennilegt sem Andri upplifði í Bonn. Sumir segðu hreinlega yfimáttúrulegt. „Ég var að lesa sögu eftir mig í stóm samkomu- tjaldi undir lok heimsóknarinnar. Textinn fjallaði um konu sem dó og varð að engli en festist eins og heliumblaðra í loftinu hjá sér og komst ekki út. Son- ur konunnar kom heim með afmælisköku handa henni og reyndi að hjálpa móður sinni úr prísund- inni. Eitthvað var þá sagt um Guð í textanum og á sömu stundu og ég las það laust niður eldingu rétt við tjaldið. Á brast úrhellisdemba og buldi svo harkalega á þakinu að það heyrðist eiginlega ekki neitt af því sem ég var að lesa. Sagan endaði á þvi að sonur engilsins og kona sem var að hjálpa hon- um gáfust upp og elskuðust svo mikið að þakið hrundi af húsinu en engillinn komst þá út um gluf- una.“ Sem Andri var að lesa endinn heyrðist rosahvell- ur og rafmagnið fór af. Elding hafði klofið tré sem stóð metra frá tjaldinu og helmingurinn féll yfir þakið. Að sögn Andra skapaðist panikástand í tjald- inu, súla hrundi og rotaði stelpu frá Belgrad (sem hafði komist ósködduð frá loftárásum Nató) - vatns- fossar mynduðust hér og hvar vegna steypiregnsins en enginn fór samt út af ótta við að verða fyrir eldingu. í stuttu máli sagt var dagskránni aflýst eftir lestur Andra og segist hann eiga mynd- ir þessu til sönnunar. Blái hnötturinn í Þjóð- leikhúsl og Þýskalandi Sagan af bláa hnettinum, barnabókin sem Andri Snær hlaut íslensku bókmenntaverð- launin fyrir, kemur út á næst- unni í Færeyjum, Noregi og Danmörku. Andri er ánægðast- ur með að bókin skuli koma út í Færeyjum því honum þykir fær- eyskan skemmtilegt tungumál. En er hann í stöðugu sambandi við þýðenduma til þess að hnýs- ast? „Ég er í góðu sambandi við danska þýðandann, Annette Larsen, en veit ekki hver þýðir á DV-MYNDIR E. ÖL. Andri Snær Magnason rithöfundur Hann hefur mörg járn í eldinum þessa dagana. Þegar hann er ekki aö magna eldingaryfir bókmenntaunnendur í Bonn, skrifa Ijóö eöa hugsa upp barnabækur tekur hann aö sér aö skapa menningarmiöju reykvisks túrisma fyrir Alþingi. færeysku. Bókin hefur einnig verið þýdd á ensku og svo var ég um daginn að gefa leyfi mitt til þess að hún verði þýdd á rússnesku." Finnst þér öll þessi athygli vera sjálfsögð? „Já, ég myndi segja það,“ segir Ándri og glottir. „Ég hafði lesið úr bókinni fyrir krakka áður en hún kom út og fann strax að allt benti til þess að hún ætti eftir að ganga vel. Ég hef ekki getað sagt það um neitt annað sem ég hef skrifað. Ég var þvi örugg- ur með mig og hafði mikla trú á sögunni." Andri hefur veðjað á réttan hest því ekkert lát virðist á vinsældum Bláa hnattarins. í janúar verð- ur leikgerð verksins sett á fjalimar í Þjóðleikhúsinu og verið er að þýða leikgerðina á þýsku. Andri seg- ir að í Evrópu séu menn í sömu rullu og hér - að setja upp sömu bamaleikritin ár eftir ár - og því skorti tilfinnanlega fersk sviðsverk fyrir böm. Leitað að Mónu Lísu Heyrst hefur að Andri Snær sé að vinna að heil- mikilli skýrslu fyrir Alþingi sem hlotið hafi það dul- arfulla heiti „Leitin að Mónu Lísu“. Hvað er hann að fást við þar? „Pælingin sem ég lagði upp með er að finna Reykjavík menningarsögulega miðju," segir Andri. „Þegar fólk heimsækir borgir er það í fyrstu vegna þess að þar er eitthvert merkilegt listaverk - til dæmis Móna Lísa - og út frá því kynnist það síðan öðrum þáttum menningarinnar. Grunnurinn er eig- inlega sá að maður veit ekkert um önnur lönd nema maður ákvað strax í bemsku að einhverju sinni skyldi maður sjá Mónu Lísu, píramídana, Akrópól- ishæð, Kólosseum í Róm og Skakka turninn í Písa. Maður fer á stúfana til að sjá þessi tákn borganna sem svo mikið hefur verið talað um en utan þeirra eru borgimar bara ósköp venjulegar borgir með búðum og kaffihúsum." Andri segir að spurningin hafi í fyrstu verið: „Eigum við eitthvert slíkt tákn á íslandi?" Grip sem allir gætu verið sammála um að menn yrðu að sjá ef þeir fæm til íslands. Við eigum margar náttúruperl- ur sem em þessu marki brenndar, en hvað með „Konungsbók Eddukvæöa hefur haft meiri menningarsöguleg áhrif en Móna Lísa, Andri Snær m.a. í viötalinu. fasta punkta í menningarlandslaginu? Hvaða hlutur hefur haft mest menningarsöguleg áhrif. Fólki vísað á Perluna Telurðu þig vita hver þessi hlutur er? „Konungsbók Eddukvæða hefur haft meiri menn- ingarsöguleg áhrif en Móna Lísa, ef maður pælir í því,“ segir Andri. „Móna Lisa er þekktari - eins og poppstjörnur eru þekktar, en dýptin er meiri í Eddu- kvæðum. Þau hafa heimssögulegt vægi og almenna skírskotun sem Móna Lisa hefur ekki. Það er þó ekkert í Reykjavíkurtúrismanum sem minnir fólk á að við varðveitum þessa merku bók sem hefur innblásið listamenn um allan heim. í Evr- ópu læra skólabörn um norræna goðafræði en hún hefur enga miðju og því segir enginn: „Þetta verð ég að sjá!“ Hugmynd Andra er sú að hægt sé að búa til miðj- una í kringum Konungsbók Eddukvæða. Hún yrði segullinn sem drægi fólk að íslendingasögum og fs- landi. „Það er létt verk að vísa fólki á náttúruperlumar, en við eigum í stökustu vandræðum með að vísa fólki á menningarsögulega hluti. Við bendum fólk- inu bara á Perluna í Öskjuhlíð. Núna em líka skila- boðin til ferðamanna: Þú verður að hafa keypt þér lopapeysu! En skilaboðin eiga að vera: Þú verður að hafa keypt þér kiljuútgáfu af íslendingasögunum! Við verðum að segja gestum okkar hvað sé merki- legt á íslandi." Andri segir að nýtt hús sem á að byggja undir Árnastofnun gæti verið byrjunarpunkturinn - hin menningarsögulega miðja - meö spennandi og myndrænum frásögnum úr Eddukvæðum og síðan væri hægt að vísa fólki á allt það merkilega sem fs- land hefur upp á að bjóða. „Ragnarök, Sigurður Fáfnisbani... það er ekki hægt að gera þetta óspenn- andi,“ segir hann. Fjögur verk í gerjun Þú hefur skrifað ljóð, smásögur, barnabók og leik- rit. Er ekkert eitt form sem á betur við þig en ann- að? „Ég sé ekki svo mikinn mun á formunum. Ljóðið er einkum frá- bmgðið en þó ekki. Það er svo erfitt að eiga við ljóð þar sem þau vilja koma í gusum og erfitt getur verið að sjá fram í tímann. Þegar maður er að skrifa sögu er vitað að næsta mánuðinn þarf að glíma við þennan kafla og komast fyrir eitt- hvert ákveðið hom. En þegar mað- ur er búinn með ljóðið - þá er mað- ur búinn með ljóðið og fyllist ör- væntingu vegna þess að það er ekkert næst.“ Andri Snær segist ekki ætla að vera með i næsta jólabókaflóði þó að hann sé sistarfandi og alltaf að smíða sögur, leikrit og ljóð. Hann segir að eiginlega séu fjögur verk í gerjun. „Ein saga er komin í gegnum hugsanamaskínuna og ég finn að bráðum get ég sest niður og farið segir að skrifa hana. Hinar ætla ég að vona að ég skrifi einhvem tíma.“ snýst Blái Áfram Umsjón: Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir Kona með geðhvarfasýki Þær íjórar sýn- ingar sem enn em ótaldar verða frum- sýndar í október. Tilvist verður sýnt í Iðnó. Þetta er nýtt verk Dansleikhúss með Ekka, samið af hópnum sjálfum. Sylvía Von Kospoth leikstýrir Tilvist og tónlistin er eftir Kristján Eldjárn. Háaloft er einleikur um konu með geðhvarfasýki eftir Völu Þórsdóttur. Háaloft verður sýnt í Kaffíleikhúsinu undir merkjum íslandsútibús The Icelandic Take Away Theatre. í Tjarnarbíói verður nýtt og enn ónefnt verk Auðar Har- alds sýnt á vegum Draumasmiðjunn- ar. Þetta er gráleit kómedía um tvær einmana manneskjur á miðjum aldri sem búa í sama húsi og fara að fella hugi saman. Að lokum verður leikrit- ið Vitleysingamir eftir Ólaf Hauk Símonarson sýnt í Hafnarfjarðarleik- húsinu. Verkin á leiklistarhátíðinni Á mörkunum voru valin af verkefna- valsnefnd í kjölfar samkeppni í byrj- un þessa árs. Hátíðin er haldin í sam- vinnu Samtaka sjálfstæðra leikhópa og Reykjavíkur Menningarborgar 2000 með fulltingi Sjónvarpsins, Op- inna kerfa og Morgunblaðsins. hnötturinn Endirinn í upphafinu Ekki er allt Qör úr Skálholti þó að sumar- tónleikun- um sé form- lega lokið i Skálholtskirkju. í kvöld kl. 20 mun Þorkell Ágúst Ótt- arsson, BA í guðfræði, flytja erindi og sýna kafla úr kvikmyndum í Skálholts- skóla. Erindið nefnir hann: Endirinn í upphafinu. Edensstef i heimsslitakvik- myndum. Boðiö verður upp á fyrirspurnir og umræður á eftir. Þorkell er mastersnemi í guðfræði við Háskóla ís- lands. Fimmtudagskvöldið 24. ágúst flytur svo Bjarni Randver Sigurvinsson guð- fræðingur erindi um kristin heims- slitastef í kvikmyndum. í Skálholts- skóla stendur líka yfir um þessar mundir sýning á verkum Leifs Breið- fiörð sem er staðarlistamaður Skál- holtsskóla í sumar. Hann sýnir þar m.a. 17 pastelmyndir gerðar út frá text- um Opinberunarbókarinnar sem fialla á táknrænan hátt um hremmingar kirkjunnar, endalok heimsins og nýja tima. Á mörkunum Sex ný sviðsverk um ísland og ís- lendinga verða sýnd á leiklistarhá- tið Samtaka sjálf- stæðra leikhúsa, Á mörkunum sem haldin verður á tímabilinu 8. sept- ember -15. október og eru verkin öll eftir íslenska höf- unda. Leiklistarhátíðin Á mörkunum er eitt stærsta verkefni M2000. Fyrsta verk hátíðarinnar verður Dóttir Skáldsins eftir Svein Einarsson og er það sett upp af The Icelandic Take Away Theatre. Leikritið er byggt að hluta á frásögnum úr Egils sögu og Laxdælu. Leikurinn er upp- runalega saminn á ensku í Aix-en- Provence sumarið 1997 og var sýndur við góðar undirtektir i London 1998, fyrst í leikstjóm Sveins sjálfs og svo tekinn upp aftur í leikstjóm Bjöms Gunnlaugssonar, sem mun einnig leikstýra fmmflutningi verksins á ís- lensku hér heima. Næsta verk hátíðarinnar verður Trúðleikur eftir Hallgrím Helgason og verður það sýnt í Iðnó þann 22. sept- ember. Trúðleikur er grátbroslegur gleðileikur um streðið að vera trúður. Þetta er litrík og falleg leiksýning fyr- ir alla fiölskylduna. Leikstjóri er Örn Ámason og þá Skúla og Spæla leika þeir Friðrik Friðriksson og Halldór Gylfason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.