Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2000, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2000, Blaðsíða 15
14 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 19 Útgáfufélag: FijSls fjölmiftlun hf. Sfjórnarforma&ur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvœmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason A&sto&arrítstjóri: Jónas Haraldsson Auglý&ingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Þverholtl 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 Grœn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vfsir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyrl: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf. Filmu- og plötuger&: isafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverö á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viömælendum fyrir viötöl við þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim. Kyoto-andstaða linast Regnhlífarsamtök bandarískra stórfyrirtækja gegn Kyoto-sáttmálanum um takmörkun á losun svonefndra gróðurhúsalofttegunda hafa glatað áhrifamætti og yfir- burðastöðu í umræðunni að undanfömu. Ýmis stórfyrir- tæki hafa lagzt á hina sveifina síðustu misserin. Stórfyrirtæki á borð við Intel, DuPont, British Petrole- um og bandariska landsvirkjunin American Electric Power em hætt að styðja regnhlífarsamtökin Global Climate Coalition og eru farin að styðja Pew Centre, sem er helzta baráttustofnunin gegn losun lofttegundanna. Fomstumenn þessara fyrirtækja og annarra slíkra hafa aflað sér ytra eftirlits með útblæstri verksmiðja sinna og hafa að eigin frumkvæði sett sér markmið um minnkandi losun gróðurhúsalofttegunda. Þau telja þetta ódýrara en áður var talið og geta leitt til hagkvæmari rekstrar. Um leið verða úreltar kenningar Bjorn Lomborgs í bók- inni Hið sanna ástand heimsins, sem kom út á islenzku fyrir nokkrum dögum á vegum Fiskifélags íslands. Bókin kemur of seint til að þjóna málstað þeirra, sem vilja spara fiskiskipaflotanum breyttan vélakost. Lomborg hélt því fram að hætti Global Climate Coa- lition, að markmið Kyoto-sáttmálans væru ekki nógu vel skilgreind og að þau væru of dýr. Of miklum fjármunum yrði varið til að verjast meintu vandamáli, sem alls ekki væri sannað að væri neitt vandamál. Nú hafa þeir hins vegar orðið ofan á vestan hafs, sem telja, að losun gróðurhúsalofttegxmda af mannanna völd- um hækki hitastig á jörðinni, að það sé mannkyninu hættulegt og verði því mjög dýrt um síðir og að aðgerðir gegn þessari þróun séu ekki tilfinnanlega dýrar nú. Eftir höföinu dansa limimir. Eftir kúvendingu banda- rískra stórfyrirtækja verður erfiðara fyrir forsætisráð- herra og utanríkisráðherra íslands, svo og Fiskifélagið, Landsvirkjun, Reyðarál og aðra andstæðinga Kyoto-sam- komulagsins að sá efasemdum um það hér á landi. Þess er skemmst að minnast, að ekki er nema rúmur áratugur síðan ríki heimsins sömdu um bann við losun ózoneyðandi efna. Þá var spáð, að framkvæmdin yrði of dýr, en svo reyndist ekki. Markmið samkomulagsins náð- ust og nú vænta menn, að ózongötin fari að minnka. Reynslan af ózonmálinu er svipuð og reynslan af öðrum aðgerðum stórfyrirtækja í þágu umhverfisins. Þær hafa ekki reynzt eins dýrar og andstæðingamir héldu fram. í mörgum tilvikum telja forvígismenn fyrirtækjanna, að reksturinn sé betri og ódýrari eftir aðgerðimar. Almennt er að ryðja sér til rúms í heiminum vistvæn stefna fyrirtækja og samtaka þeirra. Þeir aðilar, sem áður ollu umhverfi mannsins mestum skaða, em nú fremstir í flokki þeirra, sem reyna að bæta umhverfið. Þessi stefhu- breyting markar þáttaskil i umhverfisvemd. Um leið vekur þetta athygli á einkennilegri stöðu mála hér á landi, þar sem stjórnarflokkarnir báðir og forustu- menn þeirra hafa skipað sér í raðir helztu umhverfisóvina heims, reyna að troða upp á okkur óþörfum virkjunum og álverum og rægja Kyoto-sáttmálann við hvert færi. Þarfara væri fyrir hagsmuni okkar, að landsfeðurnir styddu þróun í átt að sjálfbærum rekstri atvinnulífsins í sátt við umhverfið og framtíðina. Sjávarútvegur og land- búnaður okkar eiga því miður langt í land og því þarf að hefja réttan umhverfisferil sem allra fyrst. Við eigum hvorki landið, hafið né loftið. Við höfum bara fengið þetta til varðveizlu fyrir hönd afkomendanna. Við höfum ráð á að haga okkur samkvæmt því. Jónas Kristjánsson X>V Island þarfnast innflytjenda ískyggileg tíðindi berast af uppgangi félagsskapar sem kallast Félag íslenskra þjóðemissinna og í munu vera um hundrað manns. Forsvarsmaður félagsins var í sjónvarpsfréttum ný- verið og lýsti þar stefnumál- um félagsins en þau era þau helst að „tryggja rétt íslend- inga gegn ágangi útlend- inga“ og að koma í veg fyr- ir aö erlent vinnuafl hafi forgang fram yfir innlent vinnuafl í laus störf. Auk _ þess fullyrti þessi ungi mað- ur að erlent vinnuafl héldi launum íslensks verkafólks. landi og séu ekki aufúsu- gestir á íslandi. Alþingi íslendinga hefur ekki sett lög, í samræmi við alþjóðasáttmála Sameinuðu þjóðanna um afnám alls kynþáttamisréttis, sem kveða á um að óheimilt sé að hvetja til kynþáttamis- réttis. Ljóst er af nýjustu tíðindum að slík löggjöf virðist jafn nauðsynleg hér á landi og annars staðar á Vesturlöndum og mun ég beita mér fyrir því að Sam- fylkingin hafi forgöngu um niðri slíka lagasetningu á næsta þingi. Þórunn Svein- bjarnardóttir þingkona Samfylkingarínnar Hvatt tll mannréttindabrota Bjarney Friðriksdóttir, fram- kvæmdastjóri Mannréttindaskrif- stofu íslands, segir boðskap Félags íslenskra þjóðemssinna hvetja til mannréttindabrota. Þar hittir Bjam- ey naglann á höfuðið. Það er með öllu óþolandi að þessum félagsskap líöist að hvetja til þess að þeir út- lendingar sem era öðruvísi en við, þ.e.a.s. í útliti, eigi ekki að njóta sömu réttinda og annað fólk hér á Fjölbreytni au&gar þjó&lna Árið 2000 blasir sú staðreynd við íslendingum að við þörfnumst inn- flytjenda, bæði þeirra sem hingað koma til þess að vinna um skamma hríð og svo útlendinga sem vilja setj- ast hér að. Þau eru ófá sjávarplássin þar sem erlent vinnuafl er grundvöll- ur útvegs og byggðar. Útlendingar búsettir á íslandi hafa auðgað mann- líf og menningu okkar svo um mun- ar. Nægir að rifja upp þann fjölda er- lendra tónlistarmanna sem sest hef- „Kynni mín af víetnömskum íslendingum hafa m.a. fœrt mér heim sanninn um það að íslendingar gœtu lœrt margt gagnlegt um ráðdeild og hagsýni af samlöndum sínum af asískum uppruna. “ Hvaö er að hjá Málarafélaginu? Málaratalið sem gefið var út 1982 hófst með þessum hendingum úr ljóði eftir Einar Benidiktsson: „Það fagra, skal ei lastað og lýtt,/ en lyft upp í framfor, hafið og prýtt.“ - Verð- ur hér reynt að fylgja þessum fallegu ljóðahendingum þjóðskáldsins. Nú keyrir um þverbak Þann 4. mars 1928 var Sveinafélag málara stofnað af 16 framsýnum mál- urum og þann 23. mars var farið fram á sameiginlegan fund með meisturum og þar var lagður grunn- ur að málefnasamningi, sem til að mynda hljóðaði á þann veg frá meist- uram að sveinar gengju ekki inn í verk meistara er stæðu i reiknings- kröfu viö verkkaupa og frá sveinum að meistarar tækju eingöngu til vinnu félaga sveinafélagsins. Þessari kröfu sveina var hafnað af meisturam og stóð þannig i 5 ár, en þá náðist samkomulag um sameiginleg málefhi. Allar götm* síðan hefúr Sveina- félag málara (breytt i Mál- arafélag Reykjavíkur árið 1953) staðið í baráttu við meistara um atvinnu og vinnurétt málara, fyrir utan laun og önnur kjör, þrátt fyrir lög frá 1927 um lögleiðingu iðnréttinda. Þessi baráttta stendur ennþá við meistara og aðra, sem troðið hafa sig inn á fagið og engin iðnréttindi hafa til málunar. Málarafélagið hefur reynt að hafa á þessu hemil og stjómun í gegnum málefhasamning félaganna en lítt hefur gengið og keyrir nú um þver- bak. Málið versnaöi til mikilla muna eftir aö meistarar sögðu upp mál- efnasamningnum fyrir nokkrum Atli Hrauitfjöró mélarí árum og það er fyrst nú eftir síðustu kjarasamninga að skrifað hefur verið undir nýj- an samning, sem er að mörgu leyti ekki eins afgerandi sem þyrfti og þá sérstaklega gagn- vart mælingunni. Djörf tillaga Á ýmsu hefur gengið hjá báðum félögunum í gegnum tíðina að manna stjómunar- störf innan félaganna, enda um launalaus frístundastörf að ræða. Nú er svo komið að forustu- menn Málarafélagsins sáu sig knúna vegna almenns áhugaleysis félag- anna við að taka þátt í stjóm og nefhdum félagsins að leggja það nið- ur og ganga til liðs við Trésmiöafé- lagið, en halda þó sérkennum fagsins með því að skipa ætíð málara í fagnefnd málara. „Undiraldan hjá félögum mínum er á þann veg að þeim hugnast ekki að leggja fé- lagið niður, frekar ganga til samstarfs við Samiðnarfélög og til sameiginlegrar sjóða- stjóma. “ - Frá afmœlishófi málara í hittiðfyrra. Með og á móti Þetta var nokkuð djörf tillaga sem stjómin lagði þama fram og var hún samþykkt þrátt fyrir að menn væru ekki alveg sammála, en töldu sig lít- ið geta gert til annarrar niðurstöðu. Eftir að þessi niðurstaða var komin í spilin, fóra menn að íhuga hvort ekki væri hægt að gera eitthvað ann- að en einmitt þetta og ákváðu að reyna einu sinni enn og koma saman stjóm, sem virtist eina ráðið til að fyrri fundarsamþykkt gengi til baka. Haft var samband við menn og náð- ist saman listi til raunhæfrar stjóm- ar í félaginu. í millitiðinn gekk formaðurinn úr skaftinu, sem er mikill skaði, því hann er hinn vænsti drengur og röskur félagsmaður og voru bundnar vonir við hann til framtíðar. Ég óska honum alls hins besta í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Eina stóra, sterka heild Undirritaður hefur kynnt sér við- brögð og undirtektir málara við þessum tíðindum. Undiraldan hjá fé- lögum mínum er á þann veg að þeim hugnast ekki að leggja felagið niður, frekar ganga til samstarfs við Samiðnarfélög og til sameiginlegrar sjóðastjórna. Þeir vilja að MFR haldi áfram að vera til og haldi til haga sérkennum fagsins og sinni þörfum félaganna. Nokkuð sama sinnis er að heyra hjá félögum í öðrum starfsgreinum sem era að íhuga sameiningu eða samvinnu og skapa á þann hátt eina stóra heild, öfluga og sterka, færa um að taka myndarlega á málefhum iðnaðarmanna, málara jafiit og ann- arra, verði þeir þar innanborðs, og he§a til virðingar iðnmenntun og fagvitund iðnaðarmannsins. Atli Hraunfjörð igu grunnskóla Reykjavíkur? Málið er sáraeinfalt J Málið er í raun- JÉL. inni sáraeinfalt. K Það eru margir aðilar sem bæði vilja og geta keppt um þessa þjónustu og þess vegna er hagsmunum borgarinnar langbest borgið með því að bjóða þessa þjónustu út. Það er mjög sorglegt að horfa upp á það að R-listinn skuli leggja svona gríðarlega mikið á sig til þess að koma þessu verkefiii án útboðs til borgarfyrirtækisins Línu.Net. Þetta er orðið enn þá Lausn sem enginn annar býður Guðlaugur Þór Þóróarson ... hagsmunum borgarínnar lang best borgiö meö þvi aö bjóöa þessa þjónustu út. kauðalegra þegar þeir taka undir þær hugmyndir okkar að bjóöa út alla fjarskipta- og símaþjónustu hjá borginni en undanskilja þetta eina verk- efni. Þetta er stærsta nýja verk- efnið sem hefur komið fram lengi. Almenna reglan | hjá Reykjavíkurborg er að bjóða út vöru- r kaup, þjónustu og verklegar framkvæmdir. Um þetta gilda ákveðnar reglur hjá Innkaupastofnun Reykjavíkur- borgar. Af og til gerist það að sérfræðingar borgarinnar mæla með því að gengið sé beint til samninga án útboðs í tiltekin verkefiii. Eru þá færð rök fyrir því og metur stjóm Innkaupa- stofnunar hvort þau rök séu haldbær. Varðandi ljósleiðara- tengingu skólanna lögðu tölvu- Alfreó Þorsteinsson Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokks- ins hafa kosiö aö gera þessa af- greiösiu aö póli- tísku méli... sérffæðingar borgarinnar til að samið yrði beint við Línu.Net, enda byði fyrirtækið lausn sem ekkert annað fyrirtæki gæti boð- ið að svo stöddu. Áður höfðu átt sér stað viðræður við að minnsta kosti tvö önnur fyrirtæki. Borg- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa kosið að gera þessa af- greiðslu að pólitísku máh til að þjóna Landssímanum sem er ekkert annað en póhtísk fram- lenging á Sjálfstæðisflokknum. En í þessu máh, eins og svo mörgum öðrum, verður þeim ekki kápan úr því klæðinu. ur að hér á landi og í raun lagt grunninn að blómlegu tónlistarlífi í samvinnu við heimamenn um aht land. Ég get heldur ekki orða bundist vegna ummæla forsvarsmanns Fé- lags íslenskra þjóðemissinna um verðmætamat útlendinga, sem hann telur ekki samræmast ís- lensku verðmætamati. Kynni mín af víetnömskum íslendingum hafa m.a. fært mér heim sanninn um þaö að íslendingar gætu lært margt gagnlegt um ráðdeild og hagsýni af samlöndum sfiium af asískum uppruna. - íslenska eyðsluklóin getur varla talist þjóð- argersemi. Mál er a& linni íslendingar era hvorki guðs út- valda þjóð né miðdepill alheims- ins. Vissulega er menning okkar, saga og tunga ómetanlegur arfur sem okkur ber að hlúa að af kost- gæfni og yfirvegun. En það verður aldrei gert með því að ala á for- dómfim og andúð í garð þeirra út- lendinga sem hér setjast að til lengri eða skemmri tíma. Þórunn Sveinbjarnardóttir Miklar umræöur hafa skapast í kjölfar þess aó gera áttl samnlng vió fyrirtækiö Línu.Net um fjarskiptanet grunnskólanna í Reykjavík án þess aó verkiö væri boóiö út. Starfsmenn RÚV merktir „Menn hafa lif- að í góðri trú að svona atburðir gerðust ekki hér. En við horfumst nú greinilega í augu við breyttar aðstæður. Fram- vegis verðum við að gera auknar kröfur um að starfs- menn verði merktir og fara fram á við gesti sem hingað koma að bíða þess að sá sem þeir ætla að hitta komi og taki á móti þeim.“ Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri í Degi 16. ágúst. Sérstaða sjávar- útvegsins „Ástæðan fyrir banni á fjárfest- ingum útlendinga í sjávarútvegi virðist vera ótti við að erlendir að- ilar geti komið hingað og „keypt upp“ sjávarútveg- inn... Gallinn við bannið er að sjáv- arútvegurinn er sú atvinnugrein sem nýtur einna mestrar sérstöðu á íslandi og þvi einna helst von til að erlendir aðilar gefi honum gaum. Þessi möguleiki verður ekki síst að veruleika nú í haust þegar VÞÍ verður aðili að NOREX-samstarfinu. Hættan er hins vegar sú að í stað þess að NOREX-samstarfið verði tækifæri fyrir sjávarútveginn að ná til sín nýju fjármagni leiði það til að hann verði lokaður afkimi - annars flokks fjárfesting vegna hafta á eign- arhaldi. Þóröur Pálsson, deildarstj. hjá Kaup- þingi, í Viöskiptablaöinu 16. ágúst. Valhöll veldur deilum „Ég hef aldrei ætlað að standa fýrir sölu á nátt- úraperlum,“ segir Guðni Ágústsson og ásakar Stein- grím J. Sigfússon, formann VG, fyrir að snúa út úr orð- um sínum vegna sölu Valhallar. Síð- an segir Guðni: „Hér greinir okkur Steingrím J. Sigfússon á. Hann sér roðann í austri og vill sovéska kerf- ið, að ríkið eigi atvinnutækin og landið. Ég þyrfti að skreppa með Steingrími til Rússlands til að rifja upp fyrir honum hvemig flokkur- inn, ríkið og hans gömlu pólitísku kollegar drápu framtak fólksins." Guöni Ágústsson landbúnaöarráöherra í Degi 16. ágúst. Skoðun Fyrirgefdu sonur sœlL. Eg eyddi öllum arflnum þínum í að beriast aean erfðaskattinum k Tollir á tregðunni Spurningar varðandi eðli lýðræðisins hafa vaknaö að undanfornu, ekki sist vegna orða Péturs Blöndals á störfum sínum í þing- nefndum Alþingis og um- ræðna í kjölfarið. Undir niðri kraumar óánægja og tortryggni margra varðandi störf Alþingis. Fólk veit að ýmis mál, jafnvel stórmál, eru afgreidd í blóra við vilja almennings eins og hann hefur birst m.a. í skoðanakönnunum. Jónas Bjarnason efnaverkfræöirtgur Fáir á fleti og vllja rá&a Þegar stjómmálamenn era spurð- ir hvers vegna þeir taki ekki mark á vilja fólks eru svörin vanalega í þá veru að spumingar kannana hafi ekki verið viðeigandi eða bara „of‘ eitthvað, en þeir sjálfir séu skuld- bundnir til að framfylgja samvisku sinni. Svo heyrir fólk af ástandinu sem ríkir í þingflokkunum; þar sitja fyrir fáir á fleti og vilja ráða. Lagaframvörp um atvinnu- og við- skiptamál koma gjarna úr ráðuneyt unum, jafnvel að hluta til hrá frá einstökum hagsmunahópum, og er til þess ætlast að þeim sé þinginu eða vikið frá flokkslínu. E stakir þingmenn geta sett puttana mál sem enga sterka og hagsmunahópa hafa að baki. það hvort offramleiðsla kindakjöts og landspjöll minnki. Það er orðinn eins konar kækur að tala um EB og niðurgreiðslur þar ef minnst er á sauðfjárrækt; sá samanburður allur hefur verið meira eða minna bull og blekkingarleikur. Þótt mikið fé fari í landbúnaðar- mál EB þá er þar mn að ræða mikinn fjölda fram- leiðsluafurða og iðnaðar- hráefni en ekki bara kindakjöt. Hvemig mynda fulltrúar landbún- aðamefndar sér skoðun? Vora full- trúar neytenda kallaðir fyrir nefnd- ina eða sjónarmið skattgreiðenda viðruð? Svo ekki sé minnst á gróður- eyðingu vegna sauðfjárbeitar, en ekki bólar á mati á þeim landspjöll- um til verðs sem allir tala nú um. Að vera, eða’ a& ekki vera, sag&l Hamlet prlns ■■■ „Já, heilabrotin gera oss alla að gungum"! - Annars er ástand í öðr- um nefndum Alþingis á sviðum at- vinnu- og efnahagsmála líkast til svipað. Er skriðþunginn eða tregðan svo mikil í rekstri mála að engu verði hnikaði þrátt fyrir æpandi nauðsyn? Er nýjum fulltrúum „full- trúalýöræðisins" bara vísað til sætis og þeim réttur kórréttur matseðill- inn? Framkvæmdastjóri Verslunarráðs er jafnframt formaður efnahags- og viðskiptanefndar. Við því er að bú- ast að hann fylgi dyggilega eftir kröf- um vinnuveitenda sinna, en aukið frelsi í viðskiptamálum ríkir ekki á meðan Samkeppnisstofnun hefur ekki púður til að fylgja eftir rétti al- mennings varðandi upprætingu ein- eða fáokunar sem nú er víða. Ástandið í sjávarútvegi og sjávar- útvegsnefnd er heil endemis- og sorg- arsaga og afskræming á fulltrúalýð- ræðinu; um það mál verður ekki fjallað í stuttu máli. Byggjast völd þingmanna eingöngu á hollustu við flokkslínu? Jónas Bjarnason Aumt er aö sjá í einni lest, - áhaldsgögnin slitin flest kvað Bólu-Hjálmar, langafi síns, Jónssonar, formanns landbún- aðamefndar þingsins. Hann hefur látið hafa eftir sér hluti í sambandi við matvælaverð og þátt landbúnaö- ar í því sambandi, sem eru beinlinis „framningur" þekkingarskorts; menn læra greinilega ekki hagfræði í guðfræðideild og geta átt góðar taugar til sauðfjárræktar án þess að skilja samhengi á milli almenns mat- vælaverðs og stefnu varðandi kinda- kjöt, niðurgreiðslur og skatta. Sauðíjársamningurinn frá í vor er tæpast réttlætanlegur. Nú virðist sem ná eigi hluta af þeim markmið- um, sem ekki náðust í umdeildum eldri samningi frá 1995 og sem kost- aði þó skattgreiðendur 11 milljarða og umtalsverð óþörf útgjöld í mat- vælaverði; verð á kindakjöti stjómar jú að miklu verði annarra kjötteg- unda. Nýi „samningurinn", sem gerður var í hringekju bændasam- takanna, landbúnaðamefndar og rík- isstjómar i vor, kostar skattgreið- endur 2,2 milljarða á ári næstu „sjö“ ár, án þess að nokkur vissa fáist um „Hvemig mynda fulltrúar landbúnaðamefndar sér skoðun? Voru fulltrúar neytenda kallaðir fyrir nefnd- ina eða sjónarmið skattgreiðenda viðruð?“ - Nokkrir þingmenn landbúnaðamefndar: Hjálmar Jónsson, for- maður, Drífa Hjartardóttir, Einar Már Sigurðarson, Guðjón Guðmundsson, Guðmundur Ámi Stefánsson og Einar Oddur Kristjánsson alþingismenn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.