Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2000, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2000, Page 25
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 DV Tilvera 29 Maybe Baby: Hugljúf gamanmynd um barnleysi Leitaö hjálpar Þaö er Rowan Atkinson sem leikur kvensjúkdómalækninn sem hjónin leita hjálpar hjá. Breska gamanmyndin Maybe Baby verður frumsýnd í Háskóla- bíói á morgun. Myndin segir frá hjónunum Sam og Lucy sem þrá að eignast bam. Það gengur ekki sem skyldi þrátt fyrir að hjónin fari ýmsar leiðir, t.d. prufa þau nála- stungumeðferð, nudd og ýmsar ný- aldaraðferðir. Á endanum ákveða þau að leita hjálpar hjá kvensjúk- dómalækni sem leikinn er af Rowan Atkinson. Sam, sem skrifar handrit fyrir sjónvarpsþætti, fær þá hug- mynd að búa til kvikmynd um hjón sem eiga við ófrjósemisvandamál að stríða. Lucy veit ekki hvort hún á að styðja Sam eða koma 1 veg fyrir að hann opinberi þeirra eigin vandamál. Spurning er því hvort hjónabandið haldi og hvort fjölga muni í fjölskyldunni. Hugh Laurie og Joely Richardson leika hjónin en þau em bæði þekkt fyrir leik i kvikmyndum og sjón- varpi. Hugh Laurie vakti fyrst at- hygli sem yfirstéttarauðnuleysing- inn Jeeves sem lét einkaþjóninn sinn Wooster þjóna sér eins og yfir- stéttamanni sæmir í þáttunum Jeeves og Wooster sem sýndir vora í Sjónvarpinu fyrir nokkrum árum. Á síðustu árum hefur hann leikið í Qölda kvikmynda á borð við Sense and Sensibility, 101 Dalmatians og nú síðast lék hann pabba Stuarts litla í samnefndri mynd. Joely Ric- hardson lék einmitt lika í lOlDalmatians en hún hefur einnig leikið mikið í leikhúsum í Bret- landi. Fjöldi frægra leikara kemur fram í myndnni og má nefna Joanna Lumley úr þættinum Tildurrófur, óskarsverðlaunaleikkonuna Emmu Thompson og auðvitað Rowan Atk- inson sem er betur þekktur sem Mr Bean. Leikstjóri myndarinnar og höfundur handrits er Ben Elton en hann var annar þeirra sem skrifaði handritið að Blackadder-þáttunum vinsælu. Það var í þeim sjónvarps- þáttum sem Rowan Atkinson sló svo rækilega í gegn. -MÓ Tumi tígur: Tumi tígur leitar að fjölskyldunni sinni Bangsímon og félagar hans eru komnir aftur í nýrri teiknimynd sem frumsýnd verður um helgina. í þessari mynd er það hins vegar Tumi tígur sem er i aðalhlutverki. Hún segir frá því þegar Tumi tígur kemst að því að það getur verið ein- manalegt að vera eini tígurinn í skóginum. Hann ákveður því að leggja í ferðalag um Hundraðmetra- skóginn til að finna aðra tígra. Ferð- in reynist árangurslaus og því reyna vinir hans að gleðja hann og klæða sig í tígrabúninga. Það verð- ur aðeins til þess að Tumi heldur aftur á stað út i kalda veturinn i leit að fjölskyldunni sinni. Vinirnir reyna að leita hans en Tumi finnur að lokum fjölskylduna sína. Hann uppgötvar nefnilega að það era vinir hans sem eru í raun- inni fjölskyldan hans. Laddi ljær Tuma tígri rödd sína í íslensku út- gáfunni en nafni hans, Þórhallur Sigurðsson, talar inn á fyrir Bangsímon. Meðal annarra leikara sem ljá myndinni raddir sínar eru Örn Ámason, Sigurður Sigurjóns- son og Hjálmar Hjálmarsson. Þá eru í myndiimi fjöldamörg lög. -MÓ Tumi tígur Leiöist aö vera eini tígurinn í Hundraömetraskóginum. Stökktu til Benidorm 29. ágúst frá 29.955 -Síðustu sætin til Benidorm í ágúst f Flug til Benidorm þnðjudaginn 29. ágúst og þú getur valið um 1, 2 eða 3 vikur í sólinni. Benidorm er einn vinsælasti áfangastaður íslendinga og hér getur þú notið sumarleyfisins við frábærar aðstæður. Þú bókar núna og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og segjum þér hvar þú gistir og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Verðkr. 29,955,“ -M.v. hjón mcö 2 bðm, 2-11 ára, 8 nætur með sköttum. Verðkr.39,990,- -M.v. 2 í stúdíó/íbúð, 8 nætur, meö sköttum. Verð kr. 49.990,- -M.v. 2 f stúdió/íbúð, 15 nætur, með sköttum. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð, 595 1000, www.heimsferdir.is ■ ■■■■■ IÞflKSKRÚFUB Heithúöaðar Ryðfríar Ailar gerðir festinga fyrir klæðningar á lager. Love and Basketball frumsýnd á morgun: Rómantískt körfuboltadrama Love and Basketball er þroskasaga drengs og stúlku sem eiga það sameig- inlegt að vera ástfangin af körfúbolta og hvort af öðm. Monica (Sanaa Lathan) flytur í næsta hús við Quincy (Omar Epps) sem gerir sér fljótlega grein fyrir því að hún spilar körfúbolta betur en flest- ir strákanna. Litlir neistar fljúga en ekkert gerist fyrr en þau em bæöi orö- in kynþroska og á barmi atvinnu- mennsku í körfúboltanum. Eins og oft gerist í málefhum ástarinnar, þurfa þau að taka mikilvægar ákvarðanir og taka á sig fómir eigi þau að ná saman. Gina Prince-Bythewood leikstýrir myndinni en hún hefúr meðal annars skrifað handrit að sjónvarpsþáttunum South Central og Felicity. Framleið- endur era Spike Lee og Sam Kitt sem Boltaást Quincy (Omar Epps) og Monica (Sanaa Lathan) eru ástfangnir körfuboltaspilarar. frægir era fyrir hlutdeild sína í kvik- myndum um blökkumenn í Bandaríkj- unum. Love and Basketball verður frum- sýnd í Bíóborginni á morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.