Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2000, Blaðsíða 8
8
_________________________________MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2000
Fréttir E>V
Helgistund í helli
DV, SUDURLANDI:____________________
Hátt á þriðja hundrað manns
voru við guðsþjónustu sem haldin
var í manngerðum helli á Hellum í
Landsveit um síðustu helgi. Sr.
Halldóra Þorvarðardóttir, prófastur
Rangæinga, sá um guðsþjónustuna
en herra Karl Sigurbjörnsson, bisk-
up íslands, predikaði. Messan á
Hellum var síðasti liður dagskrár
kristnihátíðar í Rangárþingi. Hug-
myndin með messunni í hellinum á
laugardaginn var að tengja saman
nútíð og fortíð með tengingu elsta
staðarins þar sem vitað er til að
kristnihald hafi verið stundað hér á
landi við helgihald nútímans. -NH
DV-MYND NJÖRÐUR HELGASON
Messað í helli
Frá neöanjarðarmessunni í hellinum
í Landsveit á laugardag.
Einbreið klæðning á veginum milli Gullfoss og Geysis:
Óörugg en fjölfarin leið
DV-MYND NJÖRDUR HELGASON
Varúð á þessum vegi
Frá veginum milli Gullfoss og Geysis.
DV, SUÐURLANDI:_______
Vegurinn milli Gull-
foss og Geysis er án
efa ein fjölfarnasta
leiðin í uppsveitum
Ámessýslu. Þrátt fyrir
að umferðarþungi um
hann sé gríðarmikill
virðist lítið tillit hafa
verið tekið til þess.
Vegurinn var eitt sinn
klæddur en þá bara í
einni breidd, þannig
að þegar bílar mætast,
eða við framúrakstur,
þarf að fara út af malbikinu með
annað hjólið. Þó reynt sé af fremsta
megni að gera við vegaxlirnar þegar
þær eru orðnar hættulegar er um-
ferð um veginn svo mikil að kant-
arnir verða jafnharðan hvassir og
hættulegir. Þá eru að auki á vegin-
um einbreiðar brýr sem auka ekki á
öryggi vegfarenda á þessari fjölsóttu
leið. -NH
Nú skolasf allt út
40% afsláttur
á 1 reiðhjólum ,
Áður 28.900 nú 17.900
úrvaI aukahlut' I
með 50% afslættí HÖ hjól
Opið 10-18 virka daga
Wmm lr n sendum um allt land
----------------------|-----—; i-----
Skeifunni • Grensásvegi 3
Sími: 533 1414 • Fax: 533 1479 • www.evro.is
Campylomengun íVesturby
’i.ji.í
DV-MYND SIBBI
Þarna er hún!
Campylobacter hefur oröiö vart í drykkjarvatni á Patreksfirði. Þarna hafa strákar úr plásinu greinilega komiö auga á
þennan óboöna gest.
Mannval þegar Garðabær velur:
Fjórtán vilja í bæjarstjórastól
DV, GARÐABÆ:________________________
Bæjarráð Garðabæjar á vanda-
samt verk fyrir höndum, ijórtán
sækjast eftir að fá starf bæjarstjóra,
og mannvalið gott, en umsóknar-
frestur um stöðuna rann út í gær.
Umsækjendur eru eftirtaldir:
Ásdís Halla Bragadóttir, Hrísholti
2, Garðabæ, framkvstjóri Háskólans
í Reykjavík; Ella Kristín Karlsdótt-
ir, Holtsbúð 41, Garðabæ, félagsráð-
gjafi; Gísli Þór Gunnarsson, Óðins-
götu 21, Reykjavík, sálfræðingur;
Guömundur Björnsson, Hléskógum
17, Reykjavík, viðskiptafræðingur
og fyrrverandi forstjóri Pósts og
síma; Gunnar Valur Gíslason, Aust-
urtúni 13, Bessastaðahreppi, sveit-
arstjóri þess hrepps; HaUdór Ing-
ólfsson, Birkihæð 5, Garðabæ, verk-
fræðingur; Hjálmar Kjartansson,
Stigahlíð 92, Reykjavík, rekstrar-
hagfræðingur; Kristinn Hugason,
Löngumýri 7, Garðabæ, MA-nemi;
Ólafur H. Sverrisson, Logafold 83,
Reykjavík, viðskiptafræðingur; PáU
Jóhann HUmarsson, BæjargUi 89,
Garðabæ, framkvæmdastjóri; Sig-
bjöm Gunnarsson, Skútuhrauni 2,
Mývatni, sveitarstjóri Skútustaða-
hrepps; Viðar Helgason, Reykási 29,
Reykjavík, rekstrarráðgjafi; Þor-
steinn P. Einarsson, Hverfisgötu
35b, Hafnarfirði, verkstjóri, og Þor-
steinn Fr. Sigurðsson, SunnuUöt 26,
Garðabæ, framkvæmdastj.
Umsóknir verða formlega lagðar
fram í bæjarráði á þriðjudag.
-DVÓ
VW U 45 2800, f. skrd. 30.06.1999, 5 VWVento GL1600, f. skrd. 02.04.1998, VWGolf1600, f. skrd. 10.09. 1998, 5 VW Caravelle 2500, f. skrd. 22.06.1998, VW Transporter 2000, f. skrd. 06.01.1999,
dyra, 5 gíra, ekinn 40 þ. km, dísil, 17 manna, 4 dyra, 5 gíra, ekinn 53 þ. km, bensín, dyra, 5 gíra, ekinn 46 þ.km, bensin, 5 dyra, 5 gíra, ekinn 8 þ. km, dísil, blár. 4 dyra, 5 gíra, ekinn 30 þ. km, bensín, hvitur.
hvftur. ___________________________silfurl._________________________ orænn. .____________Verð 2.320.000________________Verð 1.500.000
Verð 4.800.000 Verð 1.110.000 Verð 1.360.000
Urval no-fa&ra bíla aG ö||umi s-ter&uttj og ger^o^!
Margar bifreiðar á söluskrá
okkar er hægt að greiða með
Visa eða Euro raðgreiðslum