Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2000, Qupperneq 2
2
MIÐVTKUDAGUR 30. ÁGÚST 2000
Fréttir
Aðeins einn starfsmaður Byggðastofnunar til Sauðárkróks:
Forstjórinn hættir
- heppilegur tími, segir Guðmundur Malmquist
DV, SAUÐÁRKRÓKI:
Guðmundur Malmquist, fram-
kvæmdastjóri Byggðastofnunar,
mun láta af því starfi um mitt
næsta ár eða um það leyti sem
stofnunin flytur til Sauðárkróks.
Þá er ljóst að einungis einn af
fimmtán starfsmönnum stofnun-
arinnar i Reykjavík flytur með
henni til Sauðárkróks, Friðrik
Max Karlsson, yfirmaður rekstr-
arsviðs.
„Ég er búinn að starfa hjá
stofnuninni í 15 ár og það er sýnt
að við flutninginn á Sauðárkrók
verða miklar breytingar á stofn-
semina. Það er fjarri lagi að ég
hafi eitthvað á móti því að starfa
á Sauðárkróki en það hefði hvort
eð er orðið til skamms tíma,“
sagði Guðmundur Malmquist í
samtali við DV en Guðmundur
er á 57. aldursári.
Ekki hefur enn verið gengið
frá starfslokasamningi við
Guðmund en hann hefur að
baki langan starfsaldur hjá op-
inberum stofnunum, var t.d. í
15 ár hjá framkvæmdasjóði og
Seðlabanka áður en hann
réðst til Byggðastofnunar en
þar áður starfaði Guðmundur
uninni. Ég mat
það svo að þetta
væri heppilegur
tími til að hætta
þannig að nýr
maður kæmi
að því strax
í upphafi að
móta starf-
i Vestmannaeyjum þannig að
hann segist hafa reynslu af því að
búa og starfa á landsbyggðinni.
Það er því ljóst að við flutning-
inn til Sauðárkróks mun að
mestu koma nýtt fólk til starfa
hjá Byggðastofnun sem verður til
húsa i stjórnsýsluhúsinu en
stofnunin á þriðjung í því húsi og
þar er þróunarsviöið. Stærsti eig-
andi hússins er sveitarfélagið
Skagafjörður og i nýútkominni
þriggja ára áætlun kemur fram
að sveitarstjórnin hefur fyrirætl-
anir um að selja sinn hlut í því.
-ÞÁ
Kurteisir
Rússar vilja
pólitískt hæli
Tveir Rússar komu til lögregl-
unnar á Fáskrúðsfirði sl. laugardag
og óskuðu eftir pólitísku hæli á ís-
landi. Þeir dvelja nú á vegum Rauða
krossins á Hótel Bjargi á Fáskrúðs-
firði meðan Útlendingaeftirlitið at-
hugar þeirra mál.
Að sögn lögreglunnar á Fáskúðs-
firði virðist helst sem mennimir
hafi komið „á puttanum" þangað.
Þeir voru vegabréfs- og skilríkja-
lausir og vildu ekki gefa upp hvern-
ig þeir hefðu komið til landsins.
Lögreglan sagði að þeir hefðu verið
vel haldnir, kurteisir og vel til fara.
Útlendingaeftirlitið kannar nú
deili á mönnunum, hvemig þeir
hafi komist til landsins, hvort þeir
hafl gefið upp rétt nöfn o.s.frv. Er
gert ráð fyrir að þeir verði sendir til
Reykjavíkur þegar fyrstu athugun-
um er lokið. Þar heldur áfram það
ferli sem unnið er eftir þegar óskað
er eftir pólitísku hæli hér á landi.
-JSS
mwiKufí
DV-MYND KK
Tveir fluttir á slysadeiid
Harður árekstur varö á mótum Nýbýlavegar og Þverbrekku í Kópavogi seinnipartinn í gærdag. Farþegi annars bílsins
kvartaði undan eymslum í höfði og fæti og annar ökumaðurinn fékk hnykk á bak og háls.
Báðir voru fluttir á slysadeild.
Víðir Valgeirsson, faðir Valgeirs sem hvarf af heimili sínu á Laugaveginum 1994:
Tel mig vita hverjir
frömdu verknaðinn
Fjölskyldan varö ffyrir áfalli á síöasta ári
Víðir missti eiginkonu sína og barnsmóður, Guðrúnu ípsen, á síðasta ári þeg-
ar hún lést úr krabbameini. Börnin tvö, Ingólfur Snær, 4ra ára, og íris Björk,
8 ára, eru hálfsystkini Valgeirs heitins. „Ég einbeiti mér nú aö því að ala
börnin mín upp, “ segir Víöir.
„Ég ann mér ekki hvildar fyrr en
þetta mál skýrist. Þetta hefur tekið
mikið á þau sex ár sem liðin em frá
því að Valgeir hvarf. Ég hef stöðugt
unnið að því, ekki síst með lögregl-
unni, að reyna að fá hið rétta fram.
Ég tel mig nú vita hverjir frömdu
verknaðinn - þau atriði eru í rann-
sókn hjá lögreglunni," sagði Víðir
Valgeirsson, faðir Valgeirs Víðisson-
ar sem minnst var á mánudag í Graf-
arvogskirkju, rúmum sex árum eftir
að hann yfirgaf heimili sitt á Lauga-
vegi þar sem sjónvarpið var skilið
eftir í gangi og mynd sem hann hafði
verið að teikna lá ókláruð. Faðirinn
segir að um 8 þúsund ánamaðkar
sem Valgeir hafði tínt hafi auk þess
verið í kössum og boxum niðri í
kjallara hússins.
„Valgeir ætlaði sér greinilega að
koma mjög fljótt aftur heim,“ segir
Viðir. „En maður sá á ummerkjum,
sjónvarpinu sem var í gangi og öðru,
að hann hafði ekki komist," sagði
Víðir sem missti eiginkonu sína,
Guðrúnu Jónu fpsen, á síðasta ári.
Banamein hennar var krabbamein.
„Ég er alfarið að sjá um bömin okk-
ar í dag,“ segir Víðir og bendir stolt-
ur á lítil hálfsystkini Valgeirs heit-
ins, þau Ingólf Snæ, fjögurra ára, og
írisi Ósk, átta ára.
„Ég hef trú á því að Valgeir hafi
verið ginntur niður í bæ - honum
hafi verið sagt að menn sem skuld-
uðu honum pening hefðu sagst ætla
að greiða honum. Síðan hefur hann
verið barinn, settur í skott á bil og
ekið með hann á brott. Valgeir hafði
verið í óreglu og var búinn að vera
að rukka aðra fyrir fíkniefni," segir
Víðir. „Ég hef trú á því að hálfu kílói
af amfetamíni hafl verið stolið frá
honum eftir að honum var banað,“
segir faðirinn.
Víðir er búinn að vera meira og
minna að grennslast fyrir um afdrif
sonar síns öll þau sex ár sem liðin
eru frá hvarfi hans. „Þetta mál hefur
aldrei verið rannsakað sem hefð-
bundið morðmál. En ég sef ekki og
verð ekki rólegur fyrir en þetta
skýrist," segir Víðir. Hann segir að
þegar Valgeir hvarf hafi flkniefna-
deild lögreglunnar í Reykjavík rann-
sakað málið og mönnum gengið vel
að reyna að afla upplýsinga. „Mér
fannst þeir hafa nánast verið að upp-
lýsa málið. Siðan var málið flutt til
RLR vegna ákveðinna reglna,“ sagði
Viðir. Málið fór síðan til Lögreglunn-
ar í Reykjavík þegar RLR var lagt
niður þar sem því er nú haldið opnu.
DV hefur heimildir fyrir því að
lögreglan sé sem stendur að kanna
ákveðna þætti í Valgeirsmálinu - nú
eins og áður, sérstaklega á síðasta ári
þegar ýmsar upplýsingar bárust og
voru kannaðar, án þess þó að nægi-
leg efni væru til kæru á hendur ein-
hverjum.
Hörður Jóhannesson, yfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík, segir að Valgeirs-
málið sé óupplýst. Ýmsar upplýsing-
ar og tilgátur hafi komið fram en þær
hafi ekki leitt til neins sem hönd á
festi. -Ótt
Veíðimálastofnun á Hóla?
Sveitarstjómarmenn á Norðurlandi
vestra vilja að aðalstöðvar Veiðimála-
stofnunar verði fluttar að Hólum í
Hjaltadal. Framkvæmdastjóri samtak-
anna segir eðlilegt að flytja starfsemi
Veiðimála- stofnunar, þar sem hún sé
þegar með rannsóknarstarfsemi fyrir
norðan. RÚV sagði frá.
Barnaspítali á áætlun
Hjálmar Ámason, formaður bygg-
inganefndar Barnaspítalans, segir áætl-
anir um nýjan spítala óbreyttar þó
framkvæmdum við flutning Hring-
brautar sé frestað. Ingibjörg Sólrún
Gisladóttir borgarstjóri segir að ríki og
borg hafi gert samkomulag um að þetta
tvennt yrði ekki slitið úr samhengi.
RÚV sagði frá.
Gullæði í kræklingaræktinni?
íslendingar taka kræklingarækt með
trompi þótt margt sé óljóst varðandi
framtið atvinnugreinarinnar. Mikill
áhugi er á kræklingarækt hérlendis
sem stendur og em tilraunir til ræktun-
arinnar gerðar víða um land. Dagur
sagði frá.
Heimasíða ÁTVR ólögleg?
Að mati tvennra
samtaka sem vinna
að vímuefhayömum
er heimasíða Áfengis-
og tóbaksverslunar
ríkisins brot á lögum.
Þar em myndir af
áfengi ásamt stuttri
innihaldslýsingu.
Samtökin Vímulaus æska og Stórstúka
íslands telja vefinn brot á lögmn um
áfengisauglýsingar. RÚV greindi frá.
Ungar konur fá HIV
Undanfarin ár hefur einn einstak-
lingur greinst á eins til tveggja mánaða
fresti með HlV-smit.
Sjúkdómurinn greinist æ sjaldnar
meðal samkynhneigðra og er nú al-
gengastur hjá gagnkynhneigðum kon-
um á aldrinum 20-29 ára. 136 einstak-
lingar hafa greinst HlV-smitaðir frá ár-
inu 1983. Almæmi sem lokastig greinist
æ sjaldnar. Stöð 2 greindi frá.
Hundar drápu 60 kindur
Tveir hundar virðast hafa hrakið
Qárhóp, 450 ær og lömb, um beitarhólf
skammt ffá golfvelli á Rangárvöllum og
drepið ails 60 kindur, þar af 57 lömb.
Aðkoman var ömurleg, dautt og sært og
hrakið fé um allt. RÚV sagði frá.
Lést í vinnuslysi
Maðurinn sem lést er hann var að
vinna við rúllubaggavél i Breiðdal á
sunnudaginn hét Trausti Jónsson og
var frá Grænuhlíð á Fljótsdalshéraði.
Hann var ábúandi á Randversstöðum.
Trausti var 23 ára, ókvæntur og bam-
laus. Mbl. sagði frá.
Ásdís Halla líkleg
Yfirgnæfandi líkur
era á því að bæjar-
stjómin í Garðabæ
ráði Ásdísi Höllu
Bragadóttir sem
næsta bæjarstjóra.
Ásdís Haila, sem er
fyrrverandi formaður
ungra sjálfstæðis-
manna og aðstoðarmaður menntamála-
ráðherra, er ein 14 umsækjenda. Stöð 2
greindi frá.
Evrópumálin á dagskrá
Evrópumálin eru
ofarlega á dagskrá á
fundi Samfylkingar-
innar á Amarstapa.
Framkvæmdastjóm-
in hefur ákveðið að
kalla til hóp sérfræð-
inga til að semja
skýrslu um samn-
ingsmarkmið ef kæmi til aðildarvið-
ræðna. RÚV sagði ffá.
-GAR