Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2000, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2000, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2000 DV 5 Fréttir Lögfræðingur með mál framleigðu Pólverjanna: Snuðaðir um milljónir Ljóst þykir að útlendingar þeir sem hafa unnið hér á landi með milligöngu íslensks fyrirtækis hafi verið hýrudregnir um milljónir króna. Lögfræðingur Samiðnar, sambands iðnfélaga, hefur verið með mál fimm Pólverja til athug- unar. Einn þeirra hefur unnið hér frá því í ágúst á sl. ári og fjórir frá því í október. Sá fyrstnefndi hefur unnið sér inn laun upp á ríflega 3 milljónir króna. Enn er ekki vitað hvað hann hefur fengið í sinn hlut af þeirri upphæð. Annar sem unn- ið hefur hér frá því í október hef- ur unnið sér inn laun upp á 2,3 milljónir. Af þeirri upphæð hefur hann einungis fengið greiddar 700 þúsund krónur. Af þessu má ráða að þeir útlendingar sem íslenska fyrirtækið hefur fengið hingað og ráðið til vinnu hjá öðrum fyrir- tækjum hafi verið snuðaðir um milljónir króna þegar öll kurl eru komin til grafar. Umræddir fimm Pólverjar eru með atvinnuleyfi hér. Þá er vitað um hóp Pólverja og Litháa, sem umrætt fyrirtæki hefur fengið hingað, sem eru ekki með atvinnu- leyfi. Talið er að þeir séu rétt inn- an við 20 talsins. Þessir menn eru, að sögn viðmælenda DV sem hafa unnið að þessum málum, mjög hræddir og erfitt hefur reynst að ná sambandi við þá. „Þetta er ólögleg starfsemi,“ sagði Finnbjörn Hermannsson, formaður Samiðnar, við DV. „Svo hafa þeim verið greidd laun sem eru langt undir öllu velsæmi. Þeir sem eru með atvinnuleyfi hafa verið að vinna yfir 300 stundir á mánuði. Þeir eru að meðaltali með um 400 krónur á tímann. Ég veit ekki hvað umbjóðandinn hefur verið að selja vinnu þeirra á, það er eitthvað misjafnt." Finnbjörn sagði að búið væri að finna vinnu fyrir Pólverjana fimm sem verið hefðu með atvinnuleyfi. Þar ynnu þeir nú milliliðalaust og fengju það kaup sem þeim bæri. Að sögn viðmælenda DV sem þekkja til aðbúnaðar útlending- anna mun hann ekki vera upp á marga fiska. Eru nefnd dæmi um að allt að tíu menn búi í 60 fer- metra íbúð. Þar þurfi þeir m.a. að liggja á dýnum. Þessir einstakling- ar sem eru án atvinnuleyfis hér verða væntanlega sendir úr landi þegar til þeirra næst. Finnbjörn sagði að Samiðn hefði fullan hug á að komast í samband við þá til þess að sjá til þess að þeir fái rétt laun fyrir þann tíma sem þeir hafa unnið hér. -JSS stgr. verð aðeins D4nZfllU kr. stgr. verð aðeins D4iUUU kr. / AEG hefur verið / í öruggum höndum hjá Bræðrunum Ormsson síðan 1922 og unnið sér sess sem merki sem stendur fyrir gæði og langlífi i á heimilum íslenskra fjölskyldna. i Það er 3 ára ábyrgð á vélunum frá m okkur og afbragðs viðgerðarþjónusta auk þess sem við M bjóðum uppá fría heimsendingarþjónustu á fl Stór-Reykjavikursvæðinu. Allir þessir þættir gera það að verkum, að þegar þú þarft á góðum og traustum heimilistækjum að halda, er öruggt að leita til okkar. Elsta verslunarhúsið í Borgarnesi: Fer ekki á flakk - Húsfriðunarnefnd lagðist gegn flutningi 123 ára húss DV-MYND DANÍEL vi ÓlAFSSOTJ 123 ár á sama staö Búðarklettur verður enn um sinn á sínum stað að kröfu Húsfriðunarnefndar. Húsið hefur staðið þarna við Brákarsund síðan 1877. Eyrarbakki: \ Ekið á hross ! DV, BORGARNESI: Frá því var greint í vor að Spari- sjóður Mýrarsýlu hefði keypt Veit- ingahúsið Búðarklett en húsinu hafði verið mikið breytt enda elsta verslunarhúsið í Borgarnesi. Árið 1877 lét Akra-Jón byggja verslunar- húsið við Búðarklett í Borgamesi og ári síðar íbúðarhús skammt þar frá og stendur það enn lítið breytt. Forráðamenn Sparisjóðsins hugðust flytja húsið nær þjóðvegi 1 og töldu að það myndi auðvelda sölu hússins. Húsfriðunarnefnd skoðaði málið og lagðist eindregið gegn því að húsið yrði fært. Og það stendur, húsið sem þama hefur staðið í 123 ár verður þar áfram. -DVÓ DV-MYND DANIEL V. ÓLAFSSON Rúðamenn á fullu Smiðir frá Límtré hf. á Flúðum á fullu við að byggja nýju verstunarmiðstöðina. Ný verslunar- og þjónustumiðstöð í Borgarnesi: Rís með ótrú- legum hraða DV, BORGARBYGGD:______________________ Jólaverslun Borgfirðinga mun án efa verða fjörleg í nýrri verslanahöll sem er að risa í Borgamesi. Verslanir þar verða tilbúnar undir lok nóvember. Kaupfélag Borgfirðinga byggir nýju verslunarmiðstöðina á Borgarbraut 58-60 í samstarfi við Ohufélagið hf. og Samvinnulífeyrissjóðinn. Ný verslun KB verður í húsinu, auk þjónustuaðila eins og Sparisjóðs Mýrasýslu, Apóteks Borgamess, VÍS og fleiri aðila. Félagið sem stendur að framkvæmdum heitir Borgarland ehf. Sólfell ehf. í Borgamesi sér um framkvæmdir i alverktöku. Grindin er reist úr límtré frá Límtré h/f á Flúðum og em smiðir í óðaönn að koma grind hússins fyrir. Byggingar- hraði er mikiil og áætlað er að taka hús- ið í notkun í lok nóvember þannig að Borgfirðingar og Borgnesingar geta keypt seinna aldamótakampavinið í áfengisútsölunni hjá KB í nými verslun- armiðstöð. Sparisjóður Mýrasýslu hefur keypt eldra verslunarhúsæði KB og er verið að fara yfir kauptilboð sem Sparisjóðn- um hafa borist. -DVÓ aðeins 99.900 stgr. Tvær í takinu Ef þú skellir þér á bæði þurrkarann og þvottavélina kostar parið AEG lengi lifir Ökumaður jeppa ók á hest á vegi á Gaulverjabæjarvegi skammt frá Eyrarbakka um klukkan 22.30 í fyrradag. Fólkið í bílnum sakaði ekki og hesturinn virtist vera ómeiddur eftir atvikið. Jeppinn er hins vegar smávægilega skemmdur. Lausaganga búfjár er bönnuð á svæðinu, en að sögn lögreglunnar á Selfossi gengur erfiðlega að kenna þeim fiórfættu umferðarreglurnar og vill hún minna ökumenn á að hafa augun hjá sér og aka varlega, sérstaklega þegar dimmt er. -SMK AEG W 1220 Alvöru þvottavél með 1200 snúninga þeytivindu • Tekur 5 kg af þvotti • Þvottahæfni: A flokkur • Öll hugsanleg þvottakerfi • Skynjunarkerfi • Ullarvagga • Ryðfrí tromla og belgur AEG T50 Barkarlaus þurrkari sem þéttir gufuna • Stór tromla sem snýst í báðar áttir • 2 hitastig ____nfirL • Tekur RdDIOfMIIST Gcislagötu 14 * Símí 462 1300 B R Æ Ð U R N I R Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.