Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2000, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2000, Síða 10
10 Útlönd MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2000 DV Anna Lindh Utanríkisráöherra Svíþjóðar ræddi sameiginlegan gialdmiöil ESB viö norræna starfsbræður sína í gær. Vona að Danir samþykki evruna Utanríkisráðherrar Norðurland- anna vona að danskir kjósendur fallist á að taka upp evruna, sameig- inlegan gjaldmiðil Evrópusam- bandsins, í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni í næsta mánuði. Ráðherramir telja að með þvi myndi fara af stað keðjuverkun i Svíþjóð, Noregi og ís- landi. Hafni Danir aftur á móti evrunni muni það hafa afleiðingar alls staðar á Norðurlöndunum, segja ráðherrarnir sem funduðu í gær í Middelfart í Danmörku. Danir og Svíar eru í ESB en hafa til þessa kosið að halda sig utan evrusamstarfsins. Að sögn Önnu Lindh, utanríkisráðherra Sviþjóðar, verður ekki haldin þjóðaratkvæða- greiðsla þar fyrr en efnahagslífið verður komið í það horf sem er í öðmm löndum sem hafa tekið upp sameiginlegan gjaldmiðil ESB. Timanna tákn „ Turninn hrynur ekki, “ segja Rússar. Sjónvarpsturninn hrynur ekki Sjónvarpssendingar rússneska rikissjónvarpsins eiga að hefjast í kvöld eftir að varasendi hefur verið komið fyrir. Rússneskir ráðamenn hafa lýst því yfir að Ostankino-turninn muni ekki hrynja og að aðeins 25% stál- víranna 149 sem haldi turninum uppi séu skemmd. Umferð hefur verið leyfð að turninum að nýju og viðgerðir hefjast innan skamms. Tala látinna stendur nú í þremur og jafnvel er búist við að hún hækki. Vísa kúariðu- rannsóknum frá Matvælaeftirlitið í Bretlandi vís- ar frá getgátum um að fólk geti ver- ið i hættu eftir að rannsóknarmenn lýstu þvi yfir í vikunni að fjöldi dýra gæti borið kúariðusmit án þess að veikjast. „Við teljum enga ástæðu til að herða reglur eða breyta þar sem þær eru nægar fyrir,“ sagði tals- wo^iir dffirl’+cinQ limuux v/ilxiliUiXUU: Hingað til hafa menn aðeins beint sjónum sínum að kúm en nýjar rannsóknir sýna að svín, kjúklingar og menn geta hæglega borið smit lengi. Sjúkdómurinn er banvænn og leggst á heilann. Vitað erum 178.500 kúariðutilfelli i kúm í Bretlandi og innan við 100 manns hafa látist úr sambærilegum sjúkdómi í mönnum. Schaiible í vígahug Wolfgang Schaúble, fyrrum leiðtogi kristilegra demókrata í Þýska- landi, veittist í gær að fyrrum gjald- kera flokksins sem hann sagði að væri verkfæri í höndum þeirra sem vildu eyðileggja trúverð- ugleika hans sem flokksformanns. Schaúble lét orð í þá veru falla fyr- ir nefnd sem rannsakar leynireikn- ingahneyksli Helmuts Kohls, fyrr- um Þýskalandskanslara. Chevénement farinn Jean-Pierre Chevénement, innan- ríkisráðherra Frakklands, sagði af sér í gær vegna ágreinings við Jospin forsætisráðherra um aukin völd heimamanna á Korsíku. Þúsundir gegn Miiosevic Um tíu þúsund manns komu sam- an í miðhluta Serbíu í gær til að lýsa yfir stuðningi við helsta and- stæðing Milosevics forseta i kosn- ingunum í næsta mánuði. Walesa við hlið skipasmíðastöðvarinnar Lech Walesa, fyrrum forseti Póllands, stendur fyrir utan blómum skrýtt hliö skipasmíöastöðvarinnar í Gdansk þar sem verkalýöshreyfingin Samstaöa varð til. Walesa heimsótti Gdansk á tuttugu ára afmæli Samstöðu og sótti ráöstefnu um áhrif hennar á stjórnmál 21. aldarinnar. Barátta Samstöðu leiddi til falls kommúnistastjórnarinnar. Hague bakkar með loforð William Hague og breski íhalds- flokkurinn hafa fellt loforð um skattalækkun úr stefnuskrá sinni en segjast þess í stað myndu lækka skatta ef þeir kæmust til valda og aðstæður væru eðlilegar. Tildrög Kúrsk-kafbátaslyssins í Barentshafi taka að skýrast: Kafað eftir líkum skipverja Kúrsk í lok september Clinton til Kólumbíu BUl Clinton Bandaríkjaforseti flýgur til Kólumbíu í dag til að sýna samstöðu meö kólumbísku þjóðinni í baráttu hennar gegn flkniefnabar- ónum og uppreisnarmönnum. Barak veit ekki neitt Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels, sagði i gær að hann vissi ekkert um hvort ísraelar og Palest- ínumenn myndu jafna ágreining sinn og komast að samkomulagi um frið. Chelsea spáir í Oxford Chelsea Clinton, dóttir Bandaríkja- forseta, er spá í að feta 1 fótspor pabba gamla og stunda nám við hinn virta í Englandi. Hún hef- ur þó ekki enn tek- ið lokaákvörðun þar um, að sögn talsmanna Hvíta hússins. Stöðvið ofbeldið Norður-írlandsmálaráðherra bresku stjórnarinnar og stjómmála- menn á Norður-írlandi kröfðust þess í gær að skæruliðahópar mót- mælenda hættu innanbúðarátökum sínum sem hafa orðið þremur að bana í mánuðinum. Ákallið kom í kjölfar þess að ellefu ára gömul stúlka særðist í einni árásinni. Klónun óásættanleg Jóhannes Páll páfi sagði f gær að öll klónun á fóstur- vísum manna væri siðferðilega óásætt- anleg. Á sama tíma notaði hann tæki- færið til að bera lof á vísindamenn fyr- ir þrotlaust starf sitt við að varð- veita mannslíflð. Þá sagði páfi að ekki ætti að gera líffæraflutninga að verslunarvöru. Allt bendir nú til þess að gallað tundurskeyti um borð í Kúrsk hafl grandað kafbátnum þann 12. ágúst sl. í Barentshafl. Tveir bandarískir kafbátar og njósnaskipið Loyal voru á svipuðum slóðum og Kúrsk viö það að fylgjast með æflngum rúss- neska hersins. Upptökur og hljóðbönd em í rannsókn en tvær sprengingar em sagðar hafa heyrst, önnur minni en sú seinni mun kröftugri. Rússar hafa hingað til haldið því fram að Kúrsk hafi lent í árekstri við annan kafbát eða gamalt tundur- skeyti úr seinni heimsstyrjöldinni. William Cohen vamarmálaráðherra hefur vísað getgátum um árekstur við bandarískan kafbát á bug. Aöeins rússnesk aögerö Rússnesk yfirvöld hafa greint frá Sveimað yfir slysstaðnum Ná á Kúrsk upp úr votri gröfinni á innan viö ári. þvi að tilraunir til að ná líkum skipverjanna 118 muni hefjast í lok september. Lítið er gert úr því þar f landi að gallað tundurskeyti Kúrsk sjálfs hafl sprengt gat á bátinn. Forsætisráðherrann Klebanov sagði sömu skeytin hafa verið í notkun í 20 ár og ekki hafa getað sprungið. Köfunarbjöllumar sem fara munu niður á 108 m dýpi, verða mannaðar tveimur Rússum og einum Norðmanni hver. Sex göt verða gerð á flakið og aðeins rúss- neskir kafarar munu fara inn í það. Þá hafa Rússar geflð sér ár til að ná bátnum upp á yfirborðið. „Sú aðgerð verður að öllum lík- indum algjörlega rússnesk," sagði forsætisráðherrann Klebanov. Mannræningjar á Filippseyjum taka bandarískan mann: Hóta að taka gíslinn af lífi Bandarísk stjómvöld fóru í morgun formlega fram á aðstoð stjómvalda á Filippseyjum við að tryggja lausn bandarísks karl- manns sem uppreisnarmenn múslíma námu á brott og halda í gislingu á Joloeyju, ásamt sex evr- ópskum gíslum. Ráðamenn vestra sögðu að ekki yrði gengið að kröfum uppreisnar- manna en stjómvöld á Filippseyj- um sögðust myndu reyna að semja um lausn hins 24 ára gamla Jeffreys Schillings. Honum var rænt á mánudag i borginni Zam- boanga á sunnanverðum Filipps- eyjum. Uppreisnarmennirnir hótuðu að taka Schilling af lífi eftir að bandarisk stjórnvöld sögðust ekki myndu semja við þá. „Við höggvum kannski af hon- um höfuðið," sagði talsmaður Leystur úr haldi Filippseyskur samningamaöur fýigir suöur- afrískum manni sem mannræningjar slepptu á mánudag. uppreisnarmanna í símtali við út- varpsstöðvar á Filippseyjum. Embættismenn á FUippseyjum sögðu að uppreisnarmenn Abu Sayyafs hefðu rænt Schilling. Hann hefur búið á Filippseyjum síðan í mars og kvænst konu þaðan. Hann er frá Oakland i Kalifomíu og hefur snúist til íslamstrúar. Uppreisnarmennimir vilja að bandarísk yfirvöld láti lausa þrjá ís- lamska bókstafstrúarmenn sem sitja í bandarískum fangelsum fyrir sprengjutilræði í World Trade Cent- er byggingunni í New York. Uppreisnarmennirnir halda enn sjö gíslum, þar af sex evrópskum. Síðustu daga hefur nokkrum gíslum verið sleppt að tilstuðlan líbýskra stjómvalda sem talin eru hafa greitt mannræningjunum tugi milljóna króna fyrir hvern gísl í þeirri von að auka álit sitt á alþjóðavettvangi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.