Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2000, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2000
r>v
11
Útlönd
Joseph Lieberman fær áminningu frá trúbræðrum sínum:
Skammaður fyrir óvið-
eigandi áherslur á trúna
Ofuráhersla á trúna
Joseph Lieberman, varaforsetaefni demókrata, er strangtrúaöur gyöingur og
hefur lagt mikla áherslu á hlutverk trúarinnar í bandarísku þjóölífi í kosninga-
baráttu sinni. Nú hefur hann fengiö skammabréf vegna þess frá trúbræörum
sínum sem berjast gegn hleypidómum af öllu tagi.
Jospeh Lieberman, varaforseta-
efni demókrata í Bandaríkjunum,
fékk heldur kalda kveðju frá áhrifa-
miklum hópi gyðinga í vikubyrjun
þegar hann var beðinn um að hætta
að leggja jafnmikla áherslu á trú
sína í kosningabaráttunni og hann
hefur gert hingað til.
Trúbræður Liebermans i Anti-
Defamation League, samtökum sem
stofnuð voru 1913 til að berjast gegn
andgyðinglegum skoðunum og ann-
ars konar hleypidómum, sögðu það
einfaldlega óviðeigandi að hann
flikaði svona trú sinni. Lieberman
er fyrsti gyðingurinn i framboði til
forseta eða varaforseta á vegum
stóru flokkanna tveggja.
Virðing fyrir öllum
Hópurinn sendi Lieberman bréf á
mánudag þar sem sérstaklega var
gerð athugasemd við orð sem fram-
bjóðandinn lét falla i kirkju einni í
Detroit á sunnudag. Lieberman
hvatti þar til þess að trúin fengi
stærra hlutverk i lífi Bandaríkja-
manna.
Kiki McLean, talsmaður kosn-
ingabaráttu Liebermans, svaraði
bréfinu frá ADL-samtökunum og
sagði öldungadeildarþingmanninn
frá Connecticut bera mikla virðingu
fyrir fólki úr öllum þjóðfélagshóp-
um. Þá sagði talsmaðurinn að
Lieberman hefði lýst yfir stuðningi
sínum við aðskilnað ríkis og kirkju.
Abraham Foxman, framkvæmda-
stjóri ADL, sagði i viðtali við frétta-
mann Reuters í gær að George W.
Bush, forsetaefni repúblikana, og A1
Gore, forsetaefni demókrata, hefðu
einnig höfðað til trúar á óviðeigandi
hátt í kosningabaráttunni.
Jesús í uppáhaldi
Bush reið á vaðið í desember þeg-
ar hann sagði í kappræðum að
Jesús Kristur væri uppáhaldsheim-
spekingurinn hans. Gore lýsti síðan
sjálfum sér sem endurfæddum
kristnum mann í sjónvarpsþættin-
um 60 mínútum.
Þegar þessi orð höfðu fallið sendi
ADL bréf til allra frambjóðendanna
átta sem kepptust um að verða
frambjóðendur flokka sinna og lýsti
áhyggjum sínum. Itrekuðu samtök-
in að viðhalda bæri aðskilnaði ríkis
og kirkju.
Stöndum meö Lieberman
Hópar kaþólskra og múslima
lýstu yftr ánægju sinni með áhersl-
ur Liebermans á trúna og sögðust
ósammála afstöðu ráðamanna ADL.
William Donahue, formaður Kaþ-
ólsku fylkingarinnar, sagði: „Við
styðjum Lieberman í þessu máli.
Það er kallað tjáningarfrelsi."
Hann sagði einnig að klerkar
mótmælenda og múslíma ættu að
fara að dæmi kaþólskra presta og
bjóða stjómmálamönnum ekki að
halda kosningaræður í kirkjum sín-
um.
Austur-Tímorar
minnast látinna
Xanana Gusmao, frelsishetju
Austur-Tímor, var ákaft fagnað í
morgun þegar hann flutti ræðu til
að minnast þess að eitt ár er nú lið-
ið frá því íbúamir greiddu um það
atkvæði að binda enda á grimmdar-
lega stjórn Indónesa í landinu.
Niöurstöður atkvæðagreiðslunn-
ar sem Sameinuðu þjóðimar skipu-
lögðu urðu til þess að vígasveitir
stuðningsmanna stjórnvalda í
Jakarta gengu berserksgang, drápu
þúsundir manna og lögðu fjölda
þorpa í rúst.
„Þetta er ykkar dagur. Dagur
þjóðar okkar,“ sagði skæruliðafor-
inginn fyrrverandi klökkum rómi.
Skömmu eftir dögun komu sex
þúsund manns saman við dómkirkj-
una í höfuðborginni Dili til að
minnast þeima sem féllu og til að
hlýða á Carlos Belo biskup.
Xanana Gusmao
Frelsishetju Austur-Tímor var vel
fagnaö á minningarhátíö í morgun.
Æft fyrir þjóðhátíðardaginn
Malasíumenn halda upp á 43 ára afmæli sjálfstæöis landsins á morgun. Af því tilefni sungu þessir snyrtilega klæddu
skóladrengir ættjaröarsöngva fyrir skólafélaga sína í borginni Sungai Merap í morgun.
Chrysler P.T. Crusier Limited, árg. 2001, leður, sjálfsk., topplúga,
16“ álfelgur, c.d. o.m.fl.
Verð 3.890.000.
Dodge Dakota 4 dyra, nýr, 4,7 vél, sjálfsk., cruise, loftkæling, dc o.fl.
Verö 3.590.000.
ylg ______________________________________ y
t—
cx
i
Bílasala Akureyrar
Sími 461 2533
Yfirvöld hefta enn för leiðtoga lýðræðissinna í Burma:
Suu Kyi situr enn föst
Leiðtogi lýðræðissinna í Burma,
Aung San Suu Kyi, heldur enn til í
bifreið sinni ásamt 15 manna fylgd-
arliði eftir að hafa verið stöðvuð 24.
ágúst sl. Herforingjastjómin í
Burma heldur Suu Kyi í nokkurs
konar hverkví sem á morgun hefur
varað í viku.
Bílamir tveir sem leiðtogi Lýð-
ræðisfylkingarinnar, Suu Kyi, var í
eru við smábæinn Dala suður af
höfuðborginni Yangoon í Burma.
Framkvæmdastjóri SÞ, Kofi Ann-
an, lítur málið alvarlegum augum. I
yfirlýsingu frá honum hvetur hann
til að málið verði leyst á fljótlegan
en friðsamlegan hátt.
Suu Kyi vann yflrburðasigur fyr-
ir Lýðræðisfylkinguna (NLD) í sein-
ustu kosningum á landsvísu árið
1990 en hefur þó aldrei komist til
Nóbelsverölaunahafinn Suu Kyi
Lýöræöissinnanum Suu Kyi er enn
haldiö í smábænum Dala.
valda þó að hún sé réttkjörin. Henni
var haldið í stofufangelsi í 6 ár, allt
til ársins 1995, og fylgst er með öll-
um hennar ferðum.
Þetta er í fyrsta skipti sem Suu
Kyi reynir að fara frá Yangoon síð-
an 1998 en einnig þá var ferð henn-
ar stöðvuð sem lauk með því að eft-
ir 13 daga sneri þessi 55 ára gamla
kona til borgarinnar í sjúkrabíl.
Aðgerðir yfirvalda hafa verið for-
dæmdar og þeim mótmælt víða.
Herforingjastjómin segist hafa
stöðvað Suu vegna hennar eigin ör-
yggis því hryðjuverkasamtök að-
skilnaðarsinna hafi verið í nágrenn-
inu. Þeir segja henni frjálst að dvelja
áfram í Dala en hvetja til að hún snúi
til Yangoon. Stjórnin hefur dreift
ljósmynd af herkvínni en blaðamönn-
um er meinaður aðgangur.
Nú skolast allt út
40% afsláttur
á fSMEl reiðhjólum
Áður 28.
úrval aukahlutá^
með 50%afslættP'
1
nú 17.900
hjól
Opið 10-18 virka daga
sendum um allt land
Skeifunni • Grensásvegi 3
Sími: 533 1414 • Fax: 533 1479 • wwW.evro.is