Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2000, Page 23
43
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2000_______________
jov Tilvera
Cameron
28 ára
Cameron Diaz
fæddist í San Diego í
Kaliforníu þennan
dag árið 1972. Hún
fór að heima 16 ára
og bjó víða um
heim; í Japan,
Frakklandi og Ástralíu, svo eitthvað sé
neöit. Hún var 21 árs þegar hún kom
fyrst til Hollywood og vann þá fyrir sér
sem fyrirsæta. Síðan þá hefur hún
leikið í 21 kvikmynd og þykir á góðri
leið með að verða meðal skærustu
stjama kvikmyndaborgarinnar.
inauLiu i^u. ai
verki og en
Gildir fyrír fímmtudaginn 31.
Vatnsberinn (?o. ian.-ra. fehr.):
»Fólk í þessu merki getur
' verið hamhleypa til verka
en svo koma dagar dag-
draumanna þar sem það
kemur engu í verk. Þannig er ástandið
núna og þú þarft að fara að vakna.
Rskarnir (19. febr.-20. mars):
Þú hefur samúð með
einhverjum, jafiivel þó
að hann sé ekki tengd-
ur þér á nokkum hátt.
Farðu varlega með upplýsingar
eða skjöl í þinni vörslu.
Hrúturinn (21. mars-19. apríl):
Ferðalag í dag er ekki
^*^&«®líklegt til að heppnast
* sem Hætta er á
seinkunum og jafhvel
vegvillum. Samkomulag ástvina
fer batnandi.
Nautið (20. april-20. maíl:
Mun betur rætist úr
þessum degi en þú
hafðir þorað að vona.
Böm em í aðalhlut-
. og era þér sannir gleðigjctf-
ar.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúní):
Eitthvað sem kemur
y^^þér ekki beint við gæti
f komið þér til að sýna
óþarfa sveigjanleika.
Nú er gott að gera áætlanir en
ekki útvarpa þeim.
Krabbinn (22. iúní-22. iúiíl:
Ef þú ert aö huga að
i breytingum til fram-
' fara á heimilinu skaltu
____ láta til skarar skríða
innan mánaðar, annars gætu þær
gengið treglega.
Liónið (23. iúlí- 22. áeúst):
Þetta er ekki hagstæö-
ur tími fyrir rómantik-
ina eða ástarmálin yf-
irleitt. Flutningum
sem hafa staðið fyrir dyrum
seinkar.
Mevian (23. áeúst-22. sept.t
a* Streita liggur í loftinu
fyrri hluta dags. Samt
^^^^ifcsem áður verður þetta
' f einkar ánægjulegur
dagur fyrir þig.
Turtildúfurnar Liz og Hugh aftur komnar í loftið:
A snekkju í
Miðjarðahafi
Bara að það væri nú satt.
Breskh fjölmiðlar velta nú vöngum
yfir því hvort fallegasta parið úr heimi
kvikmyndanna, þau Liz Hurley ofúr-
fyrhsæta og Hugh Grant stórleikari,
séu aflur byijuð saman. Skötuhjúin
eru að minnsta kosti saman í fríi á
snekkju einni á hinu bláa Miðjarðar-
hafi.
Liz og Hugh slitu ástarsamandi sínu
fyrr í sumar, aðdáendunum til sárrar
armæðu. Þau höfðu þá verið saman i
þrettán ár, hvorki meira né minna, og
þvi orðnh háifgerðh fomgriph á
Hollywoodmælikvarða. Síðan sam-
bandinu lauk hafa þau öðru hverju
sést í fylgd annarra karla og kvenna.
Nokkur bresk blöð birtu myndh af
hjónaleysunum þar sem þau kysstust
Saman á ný?
Liz Hurley og Hugh Grant fóru sam-
an í snekkjufrí en hvort þau hafa
endurnýjaö samband sitt er óvist.
og létu vel hvort að öðru á sumarleyf-
isstað ríka og fallega fólksins á ítölsku
Miðjarðarhafseyjunni Sardiníu.
„Þau skemmtu sér greinilega vel
saman. Af framferði þehra að dæma
eru þau alltaf saman,“ sagði ónafn-
greindur sjónarvottur við Daily Ex-
press i London. „Það eru ekki mörg
pör sem fara saman í frí aðeins
nokkrum vikum efth að þau skilja."
Af þessu að dæma vhðist sem Hugh
hafi ekki tekið óstinnt upp orð sem
höfð eru efth Liz í ágústhefti tímarits-
ins Jane þess efhis að hjartaknúsarinn
sé langt frá því að vera boðlegur þegar
hvílubrögð eru annars vegar. Stúlkan
sagði að vísu efth á að blaðamaðurinn
hefði mistúikað orö sín, nema hvað, og
hótaði lögsókn.
Beckham-hj ónin
vilja stööva útgáfu
Victoria og David Beckham undh-
búa nú málsókn til að stöðva útgáfu
bókar um þau sem er væntanleg á
markað innan skamms. Þau eru reiðu-
búin að kosta til milljónum til að
hindra útgáfu. Lögfræðingar skoða nú
handrit að bókinni ef ske kynni að
hægt væri að höfða meiðyrðamál.
Höfundurinn er Andrew Morton
sem skrifaði um Díönu hér um árið og
hlaut heimsfrægð fyrir. Og nú er röðin
komin að Beckham-hjónunum. Aðal-
heimildamaður er fýrrum lífvörður
parsins sem nú græðh á tá og fingri á
vitneskju sinni. Þau segja hann hafa
verið bundinn þagnareið sem hann
kannast ekki við.
Höfundurinn, Morton, fékk reyndar
að kenna á sínum eigin brögðum ný-
lega þegar breskt blað birti myndh af
Victoria og David
Ævareiö og undrandi því lífvöröurinn
brást trausti þeirra.
honum með náinni vinkonu í Qarveru
eigin-konunnar.
DV-MYNDIR JÚLÍA IMSLAND
Sýna í Pakkhúsinu á Höfn
Listamennirnir sem sýna verk sín í Pakkhúsinu eru Felictas Gerstner, Jockel Heenes, Inga Sigga
Ragnarsdóttir og Inga Jónsdóttir.
Vogin (23. sept.-23. okt.l:
J Einhveijir erfiðleikar,
sem þú færð ekki ráð-
V f ið við, gera vart við
r J sig. Réttast væri fyrir
þig að slappa af yfir þessu og
hugsa um eitthvað annað.
Sporddreki (24. okt.-2i, nóv.i:
■Hugmyndir þínar ná
ekki fram að ganga,
enda ertu kannski
óþarflega bjartsýnn.
Þú ættir að temja þér ögn meira
raunsæi.
Bogamaður (22. nóv.-2i. des.):
|Þú hefúr stjómina í
Fþínum höndum og það
gefur þér mun meiri
tækifæri. Þetta er góð-
ir tími til aö fást við erfiða ein-
staklinga.
Steingeitin (22. des.-19. ian.):
Gestakomur og gesdr
setja mikinn svip á dag-
inn í dag. Það aö um-
gangast nýtt fólk vhkar
eins og vítamínsprauta á þig.
Happatölur þínar era 4, 23 og 27.
Listsýning í Pakkhúsinu á Höfn:
Brauðskorpur, pening-
ar og biblíumyndir
Sýning á skúlptúr, lágmyndum og
málverkum var opnuð í Pakkhús-
inu á Höfh 16. ágúst og stendur hún
til 3. september. Listamennimh
sem þar sýna eru Inga Jónsdótth á
Höfn, Inga Sigga Ragnarsdóttir, bú-
sett í Þýskalandi, Felictas Gerstner
og Jockel Heenes frá Þýskalandi.
Inga og Inga Sigga hafa háðar lokið
námi frá Myndlista- og handíða-
skóla íslands og Diploma frá Lista-
akademíunni í Múnchen í Þýska-
landi og hafa þær báðar hlotið
margvíslegar viðurkenningar fyrh
verk sín. Felictas Gerstner og
Jockel Heenes hafa víða hlotið við-
urkenningar fyrh verk sín.
JI
Eitt listaverkanna.
Þetta er túlkun listafólksins í einni myndanna á sýningunni á Höfn.
Menn veröa óneitanlega hugsi.
Dýravinir á
móti Brad Pitt
Dýravinir óttast mjög að nýjasta
mynd Brads Pitts, Snatched, gangi á
dýravemdunarsjónarmið. í henni
eru atriði þar sem hundar sjást slást
og eru látnir keppa. Dýravinh hafa
beðið um að sjá myndina áður en
hún verður sýnd og henni dreift.
Handritshöfundur og leikstjóri
myndarinnar er barnsfaðir
Madonnu, Guy Richie, og fer Pitt
með aðalhlutverkið sem ætti að
draga að áhorfendur. „Verði
Snatched stórmynd gæti þessi r
meðferð orðið eðlilegur hlutur,"
segja dýraverndunarsinnar.
Oasis ekki
að hætta
Hljómsveitarmeðlimir segjast
þreyttir á þeim sögusögnum að
bandið sé að hætta. Þær sögur séu
stórlega ýktar og ekkert hæft i
þeim.
Sannleikurinn sé sá að þeir séu
að vinna af fullum krafti að næstu
plötu. Rétt er að Noel Callagher
hefur sagt að sveitin þurfi að setjast
niður og ákveða hver framtíð
hennar og stefna verði. Umboðs-
maður Oasis segir strákana verð-
skulda gott fri.
Fékk stól
í höfuðið
Það er víðar en á íslandi sem
poppstjömur verða fyrir aðkasti. r
Robbie Williams var í Frakklandi á
dögunum, á St. Tropez með vinum
sínum. The Sun greindi frá því að
slagsmál hefðu brotist út í veislu
hjá kappanum sem hefði endað með
því að lögregla var kölluð út.
Robbie á að hafa fengið stól í
höfuðið og einn félaga hans var
stunginn með hnífi í fótinn. „Þetta -F
var eins og í vestra," sagði vitni.