Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
Frettir
DV
Rannsókn fíkniefnamála í uppnámi og dópsalar kætast:
Fíkniefnalögregla lömuð
- vegna fjárskorts. Yfirvinnubann sett á í vikunni
Hátíö hjá dópistum
Dópsalar landsins gleðjast þessa dagana því Fíknó er farin í frí nema yfir há-
bjartan daginn. Myndin er frá því sakborningar í Stóra-fíkniefnamálinu voru
leiddir fyrir dómara.
Fíkniefnalögreglan í Reykjavík er
lömuð vegna fjárskorts. Á mánudag-
inn var starfsmönnum deildarinnar
tilkynnt að yflrvinna væri ekki leng-
ur heimil og hafa lögreglumenn síð-
an aðeins unnið í dagvinnu að rann-
sóknum. Alls starfa 11 manns í
deildinni sem að sögn heimildar-
manna DV er a.m.k. fjórum mönn-
um of lítið. Það þýðir að deildin er
þegar undirmönnuð þegar ofan á
bætist að yfirvinnubann tekur gildi.
Rannsókn þriggja stórra fíkniefna-
mála er í uppnámi vegna þess auk
þess að rannsókn nýrra mála er vart
á færi deildarinnar. Sjö manns sitja
nú í gæsluvarðhaldi og það er sam-
dóma álit þeirra sem DV ræddi við
að rannsókn þeirra mála muni tefj-
ast og sé hugsanlega í uppnámi. Um
er að ræða smygl á 10 kílóum af
hassi þar sem þrír menn eru í haldi.
Þá eru tveir í gæsluvarðhaldi vegna
smygls á 5000 e-töflum. Loks eru
tveir menn í haldi vegna smygls á 8
kílóum af amfetamíni. Rannsókn
allra þessara mála er i óvissu. „Það
er glatt á hjalla hjá þeim sem flytja
inn og selja dóp. Við höfum enga
burði til að rannsaka mál af neinu
viti. Ég þori ekki að hugsa það til
enda ef stórmál koma upp. Við get-
um ekki fylgst með mönnum allan
sólarhringinn eins og þarf þegar
stærri mál koma upp,“ sagði fíkni-
efnalögreglumaður sem DV ræddi
við í gær.
Heimildarmenn blaðsins segja
niðurskurð yfirvinnunnar koma
mjög á óvart þar sem yfirlýsingar
stjómvalda hafa allar verið í þá átt
að efla ætti rannsóknir fíkniefna-
mála og sú stefna sé uppi að hreinsa
ísland af eiturlyfjum.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni-
efnalögreglunnar, vildi í samtali við
DV ekkert tjá sig um þær ógöngur
sem deild hans er komin í. „Ég segi
ekki orð,“ sagði Ásgeir í gær.
Fíkniefnadeildin er undir emb-
ætti Lögreglustjórans í Reykjavík en
auk hennar eru einstakir lögreglu-
menn vítt og breitt um landið í
fikniefnarannsóknum. Það er því að-
eins á færi deildarinnar að rann-
saka stærri mál en hún hefur átt
samstarf við lögreglumenn á lands-
byggðinni.
Ástæða yfirvinnubannsins er sú
að fjárveitingar til deildarinnar eru
uppumai'. Helsta ástæðan er sú að
deúdin hefur unnið að rannsókn
stórra fíkniefnamála á árinu sem
stefnt hafa fjárhag hennar í voða.
Ingimundur Einarsson varalög-
reglustjóri staðfesti í samtali við DV
að gripið hefði verið til niðurskurð-
ar í deildinni.
“Þetta er vissulega afskaplega erf-
ið ákvörðun en fjárveitingar til emb-
ættisins eru ekki meiri og þá verður
að skera niður. Rekstur fíkniefna-
deildarinnar hefur verið óheyrilega
þungur vegna þeirra erfiðu mála
sem komið hafa upp á árinu. Við
gerðum fjárhagsáætlun fyrir allar
deildir í upphafi ársins þar sem
áætlað var hvað hver deild þyrfti til
að halda úti dagvinnu annars vegar
og eftirvinnu hins vegar. Fíkniefna-
deildin er búin með þá peninga sem
henni voru ætlaðir til yfirvinnu og
því varð að grípa til þessa úrræðis,"
segir Ingimundur. -rt
Verkfall boðað á sjúkrahúsinu á Selfossi:
Ófaglærðir missa
þolinmæðina
- hafa ræðst við síðan í vor
DV, SELFOSSI:______
„Við erum að hreinlega að
missa þolinmæðina," sagði Ingi-
björg Sigtryggsdóttir, formaður
verkalýðsfélagsins Bárunnar-
Þórs, á Selfossi i gær. Félagið
boðar verkfall 50 starfsmanna hjá
heilbrigðisstofnunum Árborgar-
svæðis eftir rúman hálfan mán-
uð. Ófaglært fólk á sjúkrahúsum
á höfuðborgarsvæðinu og víðar
um landið hefur fyrir alllöngu
fengið leiðréttingu sinna mála.
í atkvæðagreiðslu ófaglærðs
starfsfólks Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands á Selfossi á mánudag-
inn var samþykkt að boða til
verkfalls hjá Heilbrigðisstofnun-
inni frá og með miðnætti 29. sept-
ember næstkomandi.
Verkfallsboðunin var sam-
þykkt með öllum greiddum at-
kvæðum, eða 35. Enginn seðill
var auður og engin mótatkvæði
voru greidd. Samningur ófag-
lærðs starfsfólks rann út í maílok
og sáttaumleitanir hafa enn ekki
borið árangur. -JBP
Karlinn í brúnni dv-mynd hiimar
Engilbert Engilbertsson, skipstjóri á Goðafossi, í brú hins nýja skips.
Goðafoss kominn
Eimskipafélagið hefur tekið í
notkun stærsta og fullkomnasta
gámaskip sitt til þessa. Skipið, sem
hefur hlotið nafnið Goðafoss, er ann-
að tveggja systurskipa sem smíðuð
voru í Danmörku árið 1995, en hitt
skipið, sem fær nafnið Dettifoss,
verður afhent í október. Hvort skip
er um 166 metrar á lengd, 27 metrar
á breidd og 17.100 brúttótonn og get-
ur tekið 1457 gámaeiningar, en með
því mun flutningsgeta til Evrópu
aukast verulega. Siglingarhraði er 20
sjómílur/klst. miðað við 15-16 sjó-
mílur/klst. hjá eldri skipum fyrir-
tækisins. Skipin verða á siglingu á
nýrri norðurleið til Evrópu sem sam-
einar strandleið og gömlu norður-
leiðina en viðkomustaðir i útlöndum
verða Þórshöfn, Rotterdam, Ham-
borg og nokkrar hafnir annars stað-
ar á Norðurlöndunum. Nýi Goðafoss-
inn er sjötta skipið með því nafni í
eigu félagsins frá upphafi en fyrsti
Goðafossinn var afhentur Eimskipa-
félaginu árið 1915. -MT
Langeygar eftir launahækkun dv-mynd nh.
Frá daglegum störfum við sjúkrahúsiö á Selfossi í gær. Hér eru þær Guðrún
Þorláksdóttir og Hulda Snorradóttir viö vinnu sína í eldhúsinu.
Hólmavíkurhreppur bregst hart við campylobacter:
Kaupir geislunarbúnað
- ef vatnssýnin sem tekin voru reynast jákvæð
Sveitarstjórn Hólmavíkur hyggst
bregðast hart við campylobact-
ermenguninni í neysluvatni staðar-
ins. Hún ætlar að festa kaup á geisl-
unarbúnaði til að stöðva mengunina
ef vatnssýni þau sem hafa verið tek-
in reynast jákvæð. Niðurstöður úr
þeim eiga að
liggja fyrir á
morgun. Nýrri
sýni voru
einnig tekin í
gær og liggja
niðurstöður úr
þeim fyrir um
eða eftir helgi.
Þegar
campylobact-
ermengun
mældist í
neysluvatni
Hólmavíkur
fyrr í vikunni
stöðvaði Fiski-
stofa alla fiskvinnslu í rækjuverk-
smiðjunni og saltfiskverkuninni Sæ-
roða á staðnum. Yfirdýralæknir
stöðvaði slátrun í sláturhúsinu.
Þeim tilmælum var beint til íbúa að
sjóða allt neysluvatn.
Þór Örn Jónsson, sveitarstjóri á
Hólmavik, sagði við DV í gær, að
verið væri að setja upp klórbúnað í
sláturhúsinu og rækjuverksmiðj-
unni. Fyrirtækin hefðu átt búnað-
inn fyrir. Algengt væri að verk-
smiðjur í matvælaiðnaði ættu slík-
an búnað.
Hann sagði enn fremur að um-
ræddur geislunarbúnaður væri
kominn upp á
allmörginn
stöðum, svo
sem Skaga-
strönd og Bol-
ungarvík.
Tækinu væri
komið fyrir í
dæluhúsum
við vatns-
bólin. Útfjólu-
bláir geislar
dræpu
campylobakt-
eríumar.
Búnaður af
þessu tagi
kostaði um þrjár milljónir króna.
„Þessi mengun kom mönnum
verulega á óvart,“ sagði Þór Öm,
„en það er mjög mikið að gera á
öðrum vígstöðvum. Við bregðumst
hart við þessu og umrædd fyrirtæki
verða komin á fulla ferð aftur eftir
nokkra daga“ -JSS
Gegn campylobacter
Sveitarstjórn Hólmavíkurhrepps ætlar að
kaupa geislunarbúnað ef með þarf í barátt-
unni við campylobacter í neysluvatni.
\ Minni bensínsala
Dregið hefur úr
bensínsölu hér á
landi miðað við sama
tíma í fyrra. Kristinn
Bjömsson, forstjóri
Skeljungs, segir í
vitali við Viðskipta-
blaðið að samdráttur
sé 2% - 3% miðað við
sama tíma og í fyrra.
Þörf á lagabreytingu
Bragi Guðmundsson, forstöðumaður
Bamavemdarstofu, segir þörf á laga-
breytingu sem tryggi réttarstöðu bama
í kynferðisafbrotamálum. Dómur
Hæstaréttar í fyrradag, þar sem hafnað
var kröfu um að yfirheyrsla yfir sex
ára stúlku færi fram í Bamahúsinu,
sýni þetta glögglega. RÚV sagði frá.
Auðgunarbrotum fjölgar
Auðgunarbrotum í umdæmi lög-
reglustjórans í Reykjavík ijölgaði um
1300 í fyrra. Þá vom rán tvöfalt fleiri og
ofbeldisbrotum flölgaði um 70. RÚV
sagði frá.
RÚV kannar kostun
Að sögn Þorsteins Þorsteinssonar,
forstöðumanns markaðssviðs Ríkisút-
varpsins, er það til skoðunar hjá Sjón-
varpinu hvort af kostun veðurfregna
verður eða ekki en ákveðnir auglýsend-
ur hafa sýnt þvi áhuga. Sem kunnugt
er kostar Tal veðurfregnimar á Stöð 2.
Mbl. segir frá.
Leiguíbúöir með rottum
Dæmi em um að heilbrigðiseftirlitið
hafi þurft að fá þinglýst leigubann á
heilsuspillandi húsnæði vegna rottu-
gangs og jafnvel húsnæði með moldar-
gólfi. í mörgum þessum tilfellum var
leigutakinn búinn að greiða leiguna
fyrirfram. Dagur segir frá
Jöklaferðir til sölu
Rekstarfélag Jöklaferða ehf., Höfn í
Homafirði, hefur verið auglýst til sölu,
en að sögn Sigurðar Sigurðarsonar,
framkvæmdastjóra Jöklaferða, er það
gert til að hægt verði að auka umfang
starfseminnar. Mbl. sagði frá.
Fékk ekki verkefni
Fritz Már Jörgensson, framkvæmda-
stjóri íslenskrar miðlunar i Reykjavík
og fyrrverandi stjómarformaður ÍM á
Vestfjörðum, vísar á bug ummælum
bæjarstjórans í Bolungarvík um
klaufaskapur og samskiptaörðugleika.
Hann segir að vilyrði um verkefni fyr-
ir fyrirtækið hafi ekki gengið eftir.
RÚV sagði frá.
Útboð kom ráðherra á óvart
Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra
sagði í samtali við
Morgunblaðið að því
væri ekki að leyna að
niðurstöður útboðs-
ins vegna ferjusigl-
inga Herjólfs hefðu
komið sér á óvart.
Mbl. sagði frá.
Nýjar höfuðstöðvar UVS
Framkvæmdir eru nú í fúllum gangi
á vegum líftæknifyrirtækisins Urðar,
Verðandi, Skuldar í gamla Skátahús-
inu við Snorrabraut. Fyrirtækið keypti
húsið sl. vor og hyggst flytja höfuð-
stöðvar sínar þangað af Lynghálsinum.
Kvenlöggum fjölgar töluvert
Ríkislögreglustjóri hefur skipað
Rósamundu Jónu Baldursdóttur í stöðu
varðstjóra í lögregluliði ísaflarðar frá
10. september 2000. Hún er fýrsta kon-
an sem skipuð er í stöðu varðstjóra
utan höfuðborgarsvæðisins. Vísir seg-
ir frá.
Enn í heyskap
Einstaka bændur í Eyjafirði era enn
í heyskap þótt komið sé fram í miðjan
september.
-HKr