Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 Fréttir JOV Engjaskóli í Grafarvogi: Skólastjórinn óskar eftir dóprannsókn - ætlar ad færa fíkniefnafræðslu niður í yngri árganga „Ég hef sent lögreglunni og félags- málayflrvöldum í Grafarvogi formlegt bréf þar sem ég fer fram á rannsókn á meintri neyslu og sölu fíkniefna meðal skólabama í hverfinu. Ég verð að vita umfang málsins til að bregðast við,“ segir Hildur Hafstað, skólastjóri í Engjaskóla í Grafarvogi. „Þetta er mjög alvarlegt mál. Þó ég hafi ekki orð- ið vör við fikniefnaneyslu hér í skólan- um þá veit ég ekki hvað er að gerast i hverfinu." Hér er um sinnaskipti skólastjórans að ræða því Hildur gagnrýndi DV i sjónvarpsfréttum eftir að blaðið benti á vandann í hverfinu. Það er uggur í foreldrum táninga í Grafarvogi sem verður til þess að skólastjór- inn sér sig knúinn til að leita liðsinnis lögreglu og félags- málayfirvalda. Vandamálið er nýtt i Engjaskóla því það var fyrst i fyrra sem skólinn var með tíunda bekk: „Engjaskóli hefur verið smábarnaskóli fram til Skólastjórinn, þessa. í fyrra vorum við í Hildur Hafstaó. fyrsta sinn með 30 nemendur í tíunda bekk, nú eru þeir 40 og 60 í níunda bekk. Við erum fyrst að sjá unglingana núna,“ segir Hildur, skólastjóri í Engjaskóla, sem stefnir að því að færa forvamar- og fikni- efnafræðslu niður i yngri ár- ganga og láta 9. og 8. bekk njóta þeirrar fræðslu sem hingað til hefur eingöngu ver- ið ætluð 10. bekkingum. „Það verður að endurskoða allan þennan pakka, það er alveg ljóst. Þó ég hafi alltaf verið stolt af krökkunum mínum hér i skólanum hefur margt getað gerst i sumar. Ágústmánuður er alltaf hættulegur mánuður, þegar vinnuskólum er lokið og krakkamir era með fullar hendur fjár en hafa ekkert fyrir stafni. Ég fæ oft sting í magann í ágúst þegar ég hugsa til þess hvað getur gerst við þessar aðstæður," segir Hildur Haf- stað, skólastjóri i Engjaskóla, sem bíð- ur niðurstöðu rannsóknar yfirvalda í Grafarvogi á fikniefnamálum unglinga í hverfinu. -EIR Ótti vegna Herjólfsútboðs: Ekki rugga bátnum - segir bæjarstjórinn „Herjólfur er þjóð- vegur okkar Eyja- manna tO megin- landsins og því er mjög mikfivægt að stjórnendur séu heimamenn og skynji það umhverfi sem við Guðjón lifum í,“ segir Guðjón Hjörleifsson. Hjörleifsson, bæjar- stjóri í Vestmannaeyjum, um þá stað- reynd að rekstur Vestmannaeyjaferj- unnar Herjólfs stefnir úr höndum heimamanna tfi Samskipa. „Það em margir starfsmenn og margar fjölskyldur sem hafa atvinnu af Herjólfi og við þjónustu tengda honum og því er mikilvægt að rekst- urinn sé í höndum heimamanna, það skapar þessu fólki mikið atvinnuör- yggi,“ heldur bæjarstjórinn áfram. Guðjón segir Vestmannaeyinga hafa reynslu af því að yfirstjóm sé tekin úr höndum þeirra: „En samt á að þjónusta Eyjar af meginlandinu og því miður er saman- burðurinn ekki góður. Sérstaða Vest- mannaeyja er svo mikil, bæði sem samfélags og ferðamannastaðar, að það er ekki bjóðandi að ragga bátnum í þessum efnum án þess að það séu rök fyrir því. Þetta er líka spurning um sjálfstæði bæjarfélagsins og landsbyggðarstefnu," segir Guðjón Hjörleifsson. -GAR íbúi við Laufengi leitaði til lögreglu: Fjögur heimili eru bendluð við dópsölu - og stöðugur stramnur unglinga að Laufengi 6 /. Ibúi við Laufenct sdgöur halda vimutfuum «ð ungliagum: Eg er ekki dópisti - *e*ir Daftný ólafsúóttir. Náftrannar krofðust útburðar Ekki ég! Dagný Ólafsdóttir, íbúi viö Laufengi 6, þvertók fyrir það í DV að hafa útvegaö unglingum fíkniefni; þvert á móti ynni hún að forvörn- um og hellti niöur landa. „Ég fór til lögregl- unnar fyrir nokkrum vikum vegna þess ástands sem er í göt- unni. Hingað liggur stöðugur straumur ung- linga í mismunandi ástandi. Þeir sögðu mér orðrétt að fjögur heim- ili við götuna væru bendluð við dópsölu," segir María Vala Frið- bergs, íbúi við Laufengi í Grafarvogi, sem of- bauð þau læti sem verið hafa í götunni. Eins og DV greindi frá kom fram á fundi foreldra i Engjaskóla að unglingar ættu greiðan aðgang að landa, tóbaki og jafnvel eiturlyfjum í Laufengi. Dagný Ólafsdóttir, íbúi við Laufengi 6, telur að foreldrarnir hafi átt við sig og sína fjölskyldu og hafnaði því alfarið í samtali við DV í gær að hún hefði staðið fyrir því að selja landa eða eiturlyf börnum undir lögaldri. Hún sagðist þvert á móti berjast gegn slíkri neyslu unglinga og hefði í því skyni tekið landa af krökkum. Dagný og maður hennar sættu lög- sókn þar sem þess var krafist að þau yrðu borin út vegna óreglu. Því máli lauk með sátt þar sem hjónin fengu að dvelja áfram í íbúðinni um hríð gegn því að „algjör reglusemi" yrði innandyra. Sjálf sagði Dagný við DV að hún væri fómarlamb kjafta- gangs sem sprottið hefði upp eftir að strokufang- inn Beggi litli gekk laus. Vinir strokufang- ans hefðu komið í heim- sókn og einn þeirra hefði verið að pukrast með eiturlyf. Hún kvaðst hafa verið edrú allt þetta ár. María Vala, sem býr í sömu götu, segist ekki vilja fella neinn dóm um það hvað fólkið hafi aðhafst. Hún hafi, eins og aðrir íbúar, orðið vör við mikla umferð unglinga að Laufengi 6 og þess vegna óskað skýringa frá lögregl- unni. „Ég á 14 ára son og mér er ekki sama um það hvað gengur á hér og vil vita hvað er í gangi. Lögreglan fullvissaði mig um að grannt væri fylgst með framvindu mála i göt- unni,“ segir María Vala. -rt Söngvari Skítamórals: Fékk glas í augað DV. AKRANESI: Það varð uppi fótur og fit á skemmtistaðnum Bárunni á Akra- nesi síðastliðið laugardagskvöld þeg- ar hljómsveitin Skítamórall, sem lék fyrir dansi, tilkynnti skyndilega að hljómsveitin væri hætt að spila. Þetta kemur fram í fréttablaðinu Skessuhomi á morgun. Ástæðan fyrir þvi að hljómsveitin hætti að spila, að sögn eins meðlima hljómsveitarinnar, var sú að söngv- ari hljómsveitarinnar hafði fengið glas í augað með þeim afleiðingum að augað sprakk! Söngvarinn var fluttur á sjúkrahús í skyndi á meðan áheyrendur gerðu sitt besta til þess að komast að því hvaða ódæðismað- ur hefði kastað glasinu. Þeir hljóm- sveitarmeðlimir sem eftir vora voru ósparir á yfirlýsingamar og sögðu meðal annars að sökudólgurinn væri réttdræpur og að þeir myndu „stúta honum þótt síðar yrði“. Samkvæmt fréttatilkynningu frá hljómsveitinni hefur verknaðurinn verið kærður. Þar segir enn fremur. „Mál þetta er litið mjög alvarlegum augum hjá íslenskum tónlistarmönn- um sem margir hafa haft samband við okkur og lýst áhyggjum sínum af verknaði sem þessum, og er það til skammar hvernig einn einstaldingur getur jafnvel orðið til þess að eyði- leggja áframhaldandi dansleikjahald í hefiu byggðarlagi". -DVÓ Fjölnota hús við Laugardalshöll Borgarráð Reykjavíkur ræddi í fyrradag stofnun hlutafélags með Samtökum iðnaðarins (SI) um bygg- ingu og rekstur fjölnota íþrótta- og sýningahúss við Laugardalshöll. íþróttabandalag Reykjavikur hefur hins vegar dregið sig út úr verkefn- inu. Samþykkt var að drög að samn- ingi um rekstur hússins verði lagð- ur fyrir borgarráð síðar. Hlutafé hins nýja hlutafélags verður tíu milljónir króna í fyrstu og mun Reykjavíkurborg eiga félag- ið til helminga á móti SI. Gert er ráð fyrir að hlutaféð muni síðar hækka í allt að 100 milljónir króna og hafa stofnendur félagsins þá for- kaupsrétt. Eins og áður hefur komið fram í DV ætlar Reykjavíkurborg að gefa SI eftir 23,7 milljónir króna sem SI bar að greiða vegna leigu Laugar- dalshallar undir sjávarútvegssýn- ingu sem samtökin hugðust halda þar haustið 1999 en komu ekki á laggimar. Þessa fiárhæð eiga SI að nota sem hlutafiárframlag til nýja hlutafélagsins. -GAR Veörið i kvóld Þurrt austanlands Sunnan 8—13 m/s og rigning tyrst vestanlands en þurrt austanlands. Snýst til vestanáttar meö skúrum fyrst vestan til nálægt miðnætti. Solargangur og sjavarföll REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 19.56 19.47 Sólarupprás á morgun 06.51 06.28 Síödegisfló& 18.58 23.31 Árdegisfló& á morgun 07.14 11.47 Skýringar á veöurtáknum Veðríö á morgun )*--VINDÁTr —Hfn íSL -io° “^VVINDSTYRKUR VconcT í nnrtium á sckíimfu ■'fKua i HHÐSKÍRT íD o UÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ Q W Q RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA w • ÉUAGANQUR ÞRUMtF VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞGKA Greiöfært á landinu Helstu þjóðvegir landsins eru greiöfærir. Flestir hálendisvegir eru færir stærri bílum og jeppum. Vegurinn er í Hrafntinnusker er lokaður. Vegur F88 í Herðubreiðarlindir er líka lokaður vegna vatnavaxta við Lindaá. Ástand Qallvega / r . v/Dýj -4 v’", fÁj ufi) v, -/8 , v , f'.- . ; V5 Vegir á akygg&um ivaðum ., ^ oru loka&lr þar tll anna& var&ur auglýa) WWW.Vegag.ls/faerd Hlýjast austan til Suðvestan og vestan 5 til 10 á morgun, skúrir verða sunnan- og vestanlands en annars skýjaö meö köflum eöa léttskýjaö. Hiti 6 til 12 stig aö deginum, hlýjast austanlands, en 2 til 6 í nótt. Laugard Vindur: 5—8 m/s BM SiiniiiidS Maiiiid:i I Híti 7° til 13“ Vindur: /S~~ 8-13 m/s Hiti 5“ tii 11® W1!* $8 Hiti 2° til 8° Vindur: 5-8 rn/s Fremur hæg norfianátt norfianlands en suðvestlæg sunnanlands. Léttskýjafi austanlands en dálltlar skúrir i ófirum landshlutum. Norfiaustan 8-13. Skúrlr norfianlands og rlgnlng suðaustanlands, en annars úrkomulítlfi. Kfilnar i vefirt. Breytlleg átt og vífia léttskýjað. Hltl verfiur 2 tll 8 stlg. m Sfjpðiilfa AKUREYRI súld 5 BERGSTAÐIR þoka 2 BOLUNGARVÍK alskýjaö 3 EGILSSTAÐIR 7 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 7 KEFLAVÍK skýjaö 8 RAUFARHÖFN þoka 3 REYKJAVÍK léttskýjaö 5 STÓRHÖFÐI hálfskýjaö 7 BERGEN skýjaö 10 HELSINKI skýjaö 6 KAUPMANNAHÖFN skýjaö 12 OSLÓ skýjaö 9 STOKKHÓLMUR súld 7 ÞÓRSHÖFN rigning 12 ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 9 ALGARVE léttskýjaö 20 AMSTERDAM þokuruöningur 14 BARCELONA þokumóöa 19 BERLlN alskýjaö 14 CHICAGO skýjaö 18 DUBLIN skýjaö 10 HALIFAX alskýjaö 17 FRANKFURT þokumóða 13 HAMBORG súld 15 JAN MAYEN rigning 6 LONDON skýjaö 14 LÚXEMBORG þokumóöa 13 MALLORCA léttskýjaö 16 MONTREAL skýjaö 17 NARSSARSSUAQ súld 7 NEWYORK léttskýjað 21 ORLANDO heiöskírt 23 PARÍS skýjaö 16 VIN skýjaö 18 WASHINGTON hálfskýjaö 16 WINNIPEG léttskýjaö 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.