Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Side 7
FTMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
7
Fréttir
I>V
Reynir Traustason
notfang; sandkomOff.ls
Klárir í bátana
Kynning ís-
landssíma á
GSM-áformum
sínum vakti
talsverða at-
hygli í síðustu
viku. Þar voru
flestir fjölmiðl-
ar samankomn-
ir og hver
gerði frétt um
málið eftir sínu höfði. Stöð 2 fór þá
leið að ræða við keppinaut íslands-
síma, Landssímann. Þar spurði
Hulda Gunnarsdóttir fréttamaður
Þórarin V. Þórarinsson forstjóra
eitthvað á þá leið hvort fyrirtækið
væri búið undir aukna samkeppni
á farsímasviðinu. Þórarinn var
kokhraustur að vanda en virðist
hafa misstigið sig eitthvað í mynd-
málinu þegar hann svaraði keikur.
„Við hjá Landssímanum erum klár-
ir í bátana.“
Nú velta menn því fyrir sér
hvort forstjórinn ætli í bátinn og
verða fyrstur til að yfirgefa hið
sökkvandi skip...
Endurvinnsla
Augljósrar
taugaveiklunar
gætir á Stöð 2 í
fréttastríðinu.
Fréttastofan er
svo óheppin að
hafa lent undir
fréttatímum
Sjónvarpsins
með sinn
fréttatíma. Þá
þykir Sjónvarpið hafa glansaö í
gegnum flutningana í Útvarpshúsið
og fréttatímarnir frísklegri en
áður. Ein helsta iðja Páls Magn-
ússonar og félaga hans á Stöð 2 er
að endurvinna fréttir annarra
miðla. Þannig vakti athygli snörp
innkoma þeirra í frétt DV um þau
vandamál sem foreldrar unglinga í
Engjahverfi glíma við þar sem
landasala fuliorðinna og eiturlyf
vekja ugg. Allt sem Stöð 2 hafði um
málið að segja var að lýsa því að
fréttin væri röng og setja skóla-
stjóra Engjaskóla í það samhengi
að lýsa foreldrunum í hverflnu sem
ómerkingum...
Vofa Alfreðs
Yfirheyrsla
DVyfir Alfreð
Þorsteinssyni
á dögunum, þar
sem hann lýsti
frati á Sjálf-
stæðisflokkinn,
vakti feiknar-
lega athygli
enda er hann
einn valda-
mesti maður Framsóknar-
flokksins. Alfreð slær- enn í klár-
inn í Mogga í gær og ítrekar að
Sjálfstæðisflokkurinn þurfi hvíld.
Kjaftháttur borgarfulltrúans hefur
sett Halldór Ásgrímsson, núver-
andi formann Framsóknarflokks-
ins, í mikinn bobba. Heimildir
herma að á ríkisstjómarfundum
svífi vofa Alfreðs yfir vötnum.
Sumir spá því að stjómin endist
ekki kjörtímabilið....
Deildarstjórinn
Þjóðin bíður
þess með önd-
ina í hálsinum
að Egill
Helgason birt-
ist á Skjáein-
um með silfur
sitt. Egill hef-
ur eytt sumr-
inu víða um
heimsbyggð-
ina og safnað kröftum til að geta
haldið áfram að skúbba pólitískum
yfuiýsingum Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra og fleiri þunga-
vigtarmanna. En Egill er ekki ein-
hamur því ef menn skoða skipurit
vefiýrirtækisins íslandsnets ehf.
kemur í ljós að hann er þar milli-
stjómandi. Kappinn ber þar starfs-
heitið deildarstjóri en ekki fer
neinum sögum af daglegri stjóm-
un...............................
Fengu lán og lýstu yfir gjaldþroti mánuöi seinna:
Mjog undarleg viöskipti
- segir forstjóri Byggöastofnunar um málefni ÍM á Vestfjörðum
„Byggðastofnun lánaði íslenskri
miðlun á Vestfjörðum tíu milljónir.
Það var gert á sama tima og hlutafé
var aukið í fyrirtækinu. Við bentum
á að þá yrði að gera upp við starfs-
fólk. Þá reyndum við að fylgja því
eftir eins vel og við gátum,“ segir
Guömundur Malmquist, forstjóri
Guömundur
Malmquist
forstjóri
Byggöa-
stofnunar.
Gunnhildur
Elíasdóttir
formaöur verka-
lýösfélagsins
á Þingeyri.
Byggðastofnunar, yarðandi fréttir
um að ekki hafl verið staðið við
skilyrði Byggðastofnunar vegna
þessara fjármuna.
Guðmundur sagðist þó ekki þora
að segja til um hvort öll laun hafi
verið gerð upp. „Lánið var veitt til
að fyrirtækið héldi áfram og gerði
upp við sitt fólk. Við reiknuðum
ekki með að fyrirtækið stæði síðan
í því að lýsa sig gjaldþrota mánuði
Flugslysið í Skerjafirði:
Annar pilt-
anna kominn
úr öndunarvél
Annar piltanna tveggja sem lifðu
af flugslysið sem varð í Skerjaflrði
er kominn úr öndunarvélinni. Báð-
ir liggja þeir enn á gjörgæsludeild
Landspítalans í Fossvogi og er líðan
þeirra að mestu leyti óbreytt að
sögn læknis þeirra.
Piltarnir, sem báðir eru 17 ára,
lifðu af flugslys í Skerjafirðinum 7.
ágúst síðastliðinn þegar lítil flugvél,
sem var að koma frá Vestmannaeyj-
um, hrapaði í sjóinn er hún var að
búa sig til lendingar á Reykjavíkur-
flugvelli. Slysið varð hinum fjórum,
sem í vélinni voru, að bana. Lög-
reglan rannsakar nú slysið. -SMK
Keflavíkurmorðið:
Rannsókn
er lokið
Rannsókn lögreglunnar í Reykja-
nesbæ á morði sem framið var í
íbúðarhúsi við Skólaveg í Keflavík
aðfaranótt 15. aprU síðastliðinn er
lokið. 21 árs gamall maður hefur
setið í gæsluvarðhaldi síðan en
hann er grunaður um að hafa ráðist
inn á heimUi 19 ára stúlku og
unnusta hennar og stungið hana tU
bana. Gæsluvarðhaldið yfir honum
rennur út hinn 15. október næst-
komandi.
Málið er nú komið i hendur sak-
sóknara en búist er við að dæmt
verði í morðmálinu og nauðgunar-
máli sem talið er tengjast morðinu á
sama tíma. -SMK
Skyndidalsá:
Mannbjörg
þegar jeppi
festist í jökulá
Betur fór en á horfðist í fyrstu
þegar jeppi festist í Skyndidalsá við
Lónsöræfi um níuleytið í gærmorg-
un. Einn maður var í bUnum og
tókst honum að klifra upp á þak
hans þar sem hann beið hjálpar.
Lögreglan á Höfn og björgunarsveit-
ir komu svo til hjálpar og var mað-
urinn ómeiddur.
Unnið var að því að ná jeppanum
úr ánni í gærdag. -SMK
seinna. Þetta eru auðvitað mjög
undarleg viðskipti."
Samkvæmt heimUdum DV munu
samt miUjónir króna í launum hafa
verið óuppgerðar þegar fyrirtækið
hóf aftur rekstur í ágúst eftir endur-
skipulagningu í sumar. Þau voru
það enn þegar fyrirtækið var lýst
gjaldþrota. GunnhUdur Elíasdóttir,
formaður verkalýðsfélagsins á Þing-
eyri, hefur staðfest að ekki hafi tek-
ist að fá þeirra framlag í launum
starfsfólks uppgert. „Fritz Már Jörg-
ensson stjórnarformaður sagði að
sér kæmu málefni fyrirtækisins fyr-
ir vestan ekki við,“ sagði GunnhUd-
ur í samtali við DV. Fritz Már er
framkvæmdastjóri íslenskrar miöl-
unar í Reykjavík og enn skráður
stjórnarformaður fyrirtækisins
vestra í plöggum Hagstofunnar.
Hann mun hins vegar hafa sagt af
sér stjórnarformennskunni fyrir
skömmu.
Guðmundur Malmquist sagði, að-
spurður um það hvernig lán
Byggðastofnunar hefði verið tryggt,
aö tekið hefði verið veð í hringibún-
aði, tölvum og öðru slíku. „Við
erum því að einhverju leyti tryggð-
ir fyrir þessum áfóllum. Það sem
við ætluðum þó fyrst og fremst að
tryggja var að þarna yrði áfram at-
vinna en það lítur ekki nógu vel út
núna,“ sagði forstjóri Byggðastofn-
unar. -HKr.
Jeep Grand Cherokee
Netsalan ehf
Garðatorgi 3, 210 Garðabæ.
Sími: 565-6241,893 7333.
Fax: 544-4211
Opið: Mánudaga - Föstudaga 10-18 • Laugardaga 10-14
Palla
eigendur
Nauðsynlegt er að
bera á nýja palla og
tréverk fyrir veturinn.
Eldri palla þarf að
bera á árlega.
Viðarvörn í rétta litnum
Við blöndum rétta litinn á pallinn þinn
_td00kr.
50% afsláttur
HÚSASMIÐJAN
S/mi 525-3000 • www.busa,i«