Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Side 10
10
FTMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
Hagsýni
r>v
Skólabörn þurfa sína næringu þótt þau geri lítið annað en að sitja:
Hvað borðar barnið í skólanum?
Skólanestið er eilífðarvandamál
hjá foreldrum sem sumir hverjir
hafa lítið hugmyndaflug og sjá svo
dag eftir dag nestið koma óhreyft
heim aftur. „Þetta er svo vont,“
segja blessuð börnin sem daginn
áður átu samloku með osti og
gúrku með bestu lyst. „Alltaf það
sama í nestisboxinu," heyrist líka
og fýlusvipurinn leynir sér ekki.
Nokkrir skólar hafa selt heitan
eða kaldan mat í hádeginu og aðr-
ir bjóða upp á samlokur eða jógúrt.
í öllum skólum er hægt að kaupa
drykki þótt foreldrar séu misglaðir
yflr úrvalinu og vilji sumir ekki
kaupa sykurvatn með ávaxta-
bragði fyrir bömin.
Mun algengara er að boðið sé
upp á matarkaup í unglingadeild-
um, 8., 9. og 10. bekk, en í yngri
bekkjum og hafa gjarnan 10. bekk-
ingar eða elstu nemendur umsjón
með „sjoppunni." Þar sem heils-
dagsskóli er til staðar er oft hægt
að fá létta máltíð handa bömunum
í honum og þá einnig öörum börn-
um á sama aldri en hann nær ekki
nema upp í 4. bekk. Það skilur eft-
ir gat þeirra sem em á aldrinum
10-13 ára.
„Áskrift" aö mat
DV kannaði ástandið í nokkrum
skólum.
- í sumum skólum er hægt að kaupa mat, heitan eða kaldan
í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði
getur unglingadeildin keypt sér
samlokur og ýmislegt annað en
verðið er misjafnt eftir því hvað
keypt er.
Engin slík þjónusta er í Hvassa-
leitisskóla og Borgarskóli er í ófull-
gerðu húsnæði enn sem komið er
en strax og húsnæði leyfir verður
sett upp mötuneyti nemenda þar.
í Langholtsskóla geta eldri nem-
I Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi
- er löng hefö fyrir því aö vera meö
mötuneyti nemenda sem kunna svo
sannarlega aö meta þaö.
og hádegisverði fyrir nemendur í
1.-9. bekk og kostar hádegisverður
130 krónur en 1. og 2. bekkur geta
keypt 1/2 hádegisverð sem þá kost-
ar 75 krónur hver máltið. Hægt er
að kaupa ýmsa drykki: mjólk, létt-
mjólk, kókómjólk, eplasafa og app-
elsínusafa og svo brauðsneið,
jógúrt og ávöxt í morgunverð.
í Valhúsaskóla á Seltjarnamesi
endur keypt sér heitan eða kaldan
mat í hádeginu og kostar máítíöin
170 krónur, einnig 1- 4. bekkur,
börn sem eru í heilsdagsskólanum.
Þar skortir einfaldlega pláss svo
hægt sé að bjóða öllum nemendum
upp á mat.
1 Lindaskóla í Kópavogi geta
nemendur verið í „áskrift" að mat.
Boðiö er upp á áskrift að morgun-
er löng hefð á mötuneyti og þar er
matráður sem nemendur hafa mat-
arást á. Boðið er upp á langlokur,
grjónagraut,. pasta og Qeira sem
þykir gott og kostar máltíðin frá
50-100 krónum eftir því hvað i boði
er. Þetta hefur komið ákaflega vel
út að mati foreldra og skólastjórn-
enda.
Mötuneyti í skólana
í framhaldi af þessari könnun
kemur svo hin sívinsæla spuming
um það hvort ekki eigi að leggja
meiri áherslu á að gera nemendum
fært að fá heita máltíð í skólanum
þótt það kosti sitt. Margir nemenda
fá enga heita máltíð því foreldrar
borða gjaman í vinnunni og þykir
þá óþarfi að elda á kvöldin eða
eyða í það litlum tíma þannig að
þrautaráðið verður gjarnan að
vera með brauðmat og eitthvað
létt, eins og skyr eða súrmjólk, í
stað fullbúinnar máltíðar.
Þar með er ekki verið að taka
ábyrgðina af foreldrum sem auðvit-
að eiga að sjá til þess að böm
þeirra fái mat við hæfi og notalegt
andrúmsloft við sameiginlegt mat-
arborð heldur er aðeins verið að
horfa á staðreyndir sem eru þær að
fólk er tímalaust - eða setur annað
í forgang. -vs
Dýrir dropar
íslendingar eru seinþreyttir til al-
mennra mótmæla gegn verðhækk-
unum og láta þær gjama eiga sig að
mestu á meðan sumar aðrar þjóðir
fara í harðar aðgerðir líkt og Frakk-
ar og Bretar hafa sýnt upp á síðkast-
ið. Verð á 95 oktana bensíni er nú
rúmar 94 krónur lítrinn á meðan
Frakkar borga tæpar 80 krónur og
þykir mörgum sem nú
hafi dropinn fyllt mæl-
inn.
Ekki megi líða frek-
ari verðhækkanir á
þessum „lífsnauðsyn-
lega“ vökva og að draga
muni til tíðinda ef ekki
verði breyting á. Margir
hafa haft samband við
FÍB og kvartað og stung-
ið upp á því að farin
verði sama leið hér á
landi og í Frakklandi,
bílar einfaldlega stöðvi
umferðina á stærstu um-
ferðargötum til mót-
mæla.
Að sögn Runólfs
Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra FÍB,
vannst smááfangasigur í skattlagn-
inu á bensíni þegar 97% vörugjald
var aflagt en í staðinn tekin upp föst
krónutala, 10,5 krónur á hvern lítra.
Það gerði að verkum aö í stað þess
að bensínið kostaði 105 krónur nú
hefðu neytendur „grætt" 10-11 krón-
ur á hvem litra síðan.
íslenskir einkabíleigendur eru
meðal þeirra skattpíndustu í heimi
og eru á lista með Frökkum, Bret-
um og Norðmönnum hvað snertir
skattlagingu á bensíni en virðis-
aukaskatturinn einn og sér stendur
fyrir tæplega 20% af verði hvers
lítra eða tæplega 19 krónum sem
þýðir að í hvert skipti sem meðalbíll
sem tekur 40 lítra af bensíni er fyllt-
ur, fær ríkið 760
krónur í sinn hlut.
Aðeins það að
lækka virðisauka-
prósentuna myndi
þýða verulega búbót
heimila í landinu
þar sem nær allir
eiga bíl og margir
tvo.
Sé svo farið út í
hugleiðingar um
mótmæli bíleigenda
mætti hugsa upp
ýmsar leiðir.
Hætta að nota bíl-
inn nema um lengri
ferðir væri að ræða
eða mjög óhentugt
að nota almennings-
vagna.
Bensínsparnaöur
Þessi hentar vel þegar bensíniö er jafn dýrt og raun ber vitni.
Vera duglegri að taka farþega
bjóða nágrannanum með i vinnuna
og heim. Láta krakkana nota strætó
meira í stað þess að skutla þeim
nær allt sem þau fara.
Sniðganga dýrari bensínstöðvar
og nota eingöngu stöðvar sem bjóða
upp á lágmarksverð með sjálfsaf-
greiðslu.
Boða til sameiginlegra aðgerða af
ýmsu tagi.
Kaupa dísilbíl, helst stóran, því
þeir borga hlutfallslega minnst.
Eða kaupa bíl sem aðeins eyðir
3-4 lítrum á hundraðið - það er
framtiðarstefnan. -vs
Tilboð verslana
Hraöbuölr Esso
Tilboöin gilda til 30. september. |
0 Merrlld kaffí 103, 500 g 339 kr.
Q Stjörnupopp, 100 g 75 kr.
0 Stjörnu-ostapopp, 100 g 75 kr.
0 Llndubuff, 40 g 49 kr.
0 Egils Orka, 1/21 119 kr.
0 Heyrnatæki 895 kr.
0 Fiesta gasgrlll meö hellu 18.900 kr. |
o
o
© .
Skeiiungur
Tilboöln gilda til 27. september. 1
0 Plcnlc súkkulaöi 49 kr.
0 Bouche súkkulaölmolar 45 kr.
0 Magic orkudrykkur, 250 ml 135 kr.
0 Cocoa Puffs, 390 g 269 kr.
0 Flzzy sælgætislelkföng 149 kr.
0 Pennaveski 195 kr.
Q Turtle Back in fíash 299 kr.
0 Raln-X glerfílma, 200ml 559 kr.
0 llm gormar 249 kr.
10 Ostapylsa m/ kartöfíusalatl 229 kr.\
Samkaui
Tllboöln gilda til 20. september.
Q Waslngton epli rauö 139 kr.
0 Kalkúnn 1 fí. 695 kr. kg
0 Amerískar Cantalopur 269 kr. kg
0 Amerísk bláber, 552 ml 259 kr.
0 Chicago örb.pizzur, 4 teg. 295 kr.
0 Amcrískur maísstöngull 129 kr.
Q Hunts tómatsósa 96 kr.
0 Champion rúsínur, 5OOg 99 kr.
0 Champlon sveskjur steinl 99 kr.
0 Nautahakk UNl 695 kr. kg
Nóatún
Tilboöln gilda á meöan birgölr endast.
0 Luxus mals 3 x 340g 125 kr.
Q Luxus sveppir, 4 x 184 g 125 kr.
Q Luxus ananasbitar, 3 x 227gl25 kr.
Q Gevalla rauöur, 500 g 299 kr.
0 Gevalia koffinlaust, 250 g 219 kr.
0 Gevalia Irich cream, 125 g 219 kr.
Q Kexsmiöjan Muffíns, 400 g 259 kr.
0 Kexsmlöjan tebollur, 300 g 229 kr.
o
©
Sparversiun.is
Tilboöin gilda til 19. september. |
0 Hamborgarar, 10 stk. 581 kr.
0 Blómkál 169 kr.
0 Hvítkál 99 kr. kg
0 Kínakál 169 kr. kg
0 Gulrófur 99 kr. kg
0 Kartöfíur 99 kr. kg
Q Svlö frosin verkuö 229 kr. kg
0 Naggar, 400 g 389 kr. kg
Q
^
1
Tilboöin gllda út ágúst.
0 Prlnce póló, 3 stk., 132 g 109 kr.
0 Maryland Fudgies, 150 g 89 kr.
0 Maryland hetu, 150 g 89 kr.
0 Maryland kókos, 150 g 89 kr.
0 Maryland súkkulaöl, 150 g 89 kr. <
0 Strumpar appelsínugullr 40 kr.
Q Strumpar bleikir 40 kr.
0 Strumpar grænir 40 kr.
0 Strumpar gulir 40 kr.
0 Strumpar rauölr 40 kr.
Fjarðarkaup
| Tilboöin gilda til og meö 16. september. í
0 Kjúkllngabollur 690 kr. kg
0 Mexico vænglr 880 kr. kg
0 M.S. Hversdagsís, 2 1 295 kr.
0 BKI kaffí extra, 400g 199 kr.
0 Kelloggs Spes. + 50% 329 kr.
0 Dahli vöffíur, 250g 149 kr.
Q Arial jumbo, 3,375 g 878 kr.
0 Danté olía 11 o 448 kr.
©
Þín verslun
Tilboöln gilda til 20. september.
0 Púrtvíns helgarstelk 20% afsl.
Q Tiger ostur, 150g 149 kr.
0 Peter Pan hnetusmjör 189 kr.
0 Cocoa Crunchies, 390 g 189 kr.
0 Granlni appelsínusafí, 750 mll39 kr.
0 Keebler Delux kex, 345 g 199 kr.
Q Swiss Mlss, 737 g 369 kr.
Q
Q
©
Tilboöin gilda til 27. september.
0 VSOP innralæri 1822 kr. kg
0 VSOP lærissneiöar 1319 kr. kg
0 Búrfells brauöskinka 798 kr. kg
0 Neiv Yorkers stroganoff 1438 kr. kg
0 Betty Crocker kökumix 239 kr.
0 Betty Crocker kökukrem 179 kr.
Q BKI Gourmet kaffí, 250 g 279 kr.
0 Cheerlos, 567 g 289 kr.
0 lcebergsalat 179 kr. kg
0 Comi musfíbar, 4 teg 129 kr.
10-11
Tilboöin gllda til 21. september. j
0 Kryddaö kindainnra-læri 1598 kr.
0 Nautabuff I raspi 498 kr.
0 Aviko franskar 219 kr.
0 Colombia kaffí 305 kr.
0 Ríó kaffi 313 kr.
0 Dllettó kaffí 330 kr.
Q Rafmagnstannbursti 1399 kr.
0 Tannburstafylllngar 499 kr.
0 Cote D’or fílakaramellur 189 kr.
©