Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Blaðsíða 11
PTMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
11
DV
Hagsýni
Garðshorn:
Litrikt vor með laukum
skyldu menn ekki hika viö aö not-
færa sér þjónustu þeirra.
Einfóld þumalfingursregla segir aö
setja skuli laukana niður á dýpi sem
nemur tvisvar til þrisvar sinnum
hæð þeirra, heldur dýpra í lausum
jarðvegi. Bilið á milli laukanna skal
nema tvöfoldu þvermáli þeirra. Best
er að grafa holu í rétta dýpt og losa
jarðveginn, síðan skal setja lífrænan
áburð eins og þangmjöl eða hænsna-
skít, í botninn. Einnig má blanda
eilitlu af tilbúnum áburði við mold-
ina áður en hún er sett yfir. Þegar
búið er að hylja laukana skal þjappa
jarðveginn varlega og hylja hann
með laufi eða trjákurli.
Gróðursetning
Laukar þrífast best á þurrum stað.
Því skal velja þeim stað í vel fram-
ræstum og sendnum jarðvegi. Flestar
tegundir kjósa skjól og birtu þó finna
megi tegundir, eins og anemónur og
hátíðarliljur, sem þola nokkurn raka
og skugga.
Þegar laukar eru valdir skal gæta
þess vel að velja þá með tilliti til þess
hvar á að setja þá niður. Gróðrar-
stöðvar veita upplýsingar um hvaða
laukar henta best á hverjum stað og
Darwintúlipanar - Apeldoorn
Túlipanar eru til í mörgum stæröum
og litum, þeir blómstra einnig á mis-
munandi tíma en algengt er aö þeir
blómstri um 17. júní.
Hátíöarlilja
Hátíöarliljur ættu aö fá aö standa iengi á sama staö því þær eru harögeröar
og fjölga sér meö tímanum.
Vorboðar blómstra gulum blóm-
um eldsnemma á vorin, jafnvel í
febrúar eða snemma í mars. Þeir er
mjög harðgerðir og eiga það til að
þroska fræ og fjölga sér þannig.
Laukurinn eða hnúðurinn er frem-
ur lítill og því gróðursettur grunnt í
jarðvegi.
Vetrargosar er mjög harðgerðir
og meö fyrstu laukunum sem koma
upp á vorin. Þeir fjölga sér mikið og
því auðvelt að skipta þeim á nokk-
urra ára fresti. Gosar eru ljósir á lit-
in og verða 10-20 sentímetra háir.
Þeir eru skuggþolnir og því gott að
planta þeim í beð milli trjáa og
runna.
Af hátíðarliljum er til fjöldi rækt-
unarafbrigða og sum afbrigðin þol
vel skugga. Hátíðarliljur ættu að fá
að standa lengi á sama stað því þær
eru harðgerðar og fjölga sér með
tímanum. Þær blómsta í lok apríl og
ná 30-50 sentímetra hæð. Gul af-
brigði þrífast best.
Túlipanar eru til í mörgum gerð-
um og litum. Þeir eru til einlitir og
marglitir og í ýmsum stærðum. Al-
gengustu sortirnar eru villitúlipan-
ar sem eru 10-20 sentímetra háir og
lifa oft árum saman. Kaupmanna-
túlipanar eru um 20 sentímetra háir
og blómstra snemma á vorin. Dar-
vinstúlipanar eru langvinsælastir
og verða allt að 60 sentímetra háir.
Þeir þola vel rok. Þeir blómstra í
júní og blómin standa lengi. Díla-
túlipanar eru með röndótt blóm og
blómstra í lok maí og ná 35-45 sentí-
metra hæð.
Keisarakróna nær ekki að
blómstra nema einu sinni hér á
landi. Hún getur orðið allt aö 1
metri á hæð og er yfirleitt rauð á lit-
inn. Keisarkrónan er stórglæsileg
planta sem sómir sér vel á sólríkum
og skjólgóðum stöðum. Plantan þol-
ir illa hvassviðri og því nauðsynlegt
að binda hana upp sé hætta á roki.
Goðaliljur eða hýjasintur, eins og
þær eru oft kallaðar, eru frekar við-
kvæmar og blómstra ekki nema
einu sinni. Þær þurfa besta staðinn
í garðinum til að verða fallegar og
sé vorið slæmt misheppnast blómg-
un yfirleitt.
Nú er rétti tíminn til að undirbúa
litríkt vor með því að setja niður
lauka. Laukar eru auðveldir í rækt-
un og þurfa litla sem enga umhirðu
og því tilvaldir fyrir byrjendur í
garðyrkju að spreyta sig á. -Kip
Mercedes Benz c 220. árg 1994, ekinn 90 þús,
silfurgrár, ssk, raf í rúð, saralæs, topplúga, leður,
álfelgur, mjög vel búinn bíll.
verð 1990 þús.
Allar nánari upplýsingar veitir hin geðþekki bílasali
Ástmar Ingvarsson á BÍLL.IS í síma 5773777
Ræktun í kerum og pottum
Þeir sem ekki eiga garð geta sett
niður lauka í ker eða potta úti á svöl-
um eða á tröppunum. Blanda þarf
moldina í kerunum með sandi eða
vikri og setja möl í botninn til þess
að hún verði ekki of blaut. Lágvaxn-
ar tegundir, eins og krókusar og vetr-
Beint samband
við neytendasíðu
Lesendur sem vilja ná sambandi
við neytendasíðu DV hafa til þess
nokkrar leiðir.
í fyrsta lagi geta þeir hringt í
beinan síma: 550 5821.
Faxnúmerið er: 5505020 og svo er
það tölvupósturinn en póstfangið er:
vigdis@fr.is.
Tekið er á móti öllu þvi sem
neytendur vilja koma á framfæri,
hvort sem það eru kvartanir,
hrós, nýjar vörur eða þjónusta -
eða spumingar um eitt og annað
sem kemur upp á í daglegu lífi.
Sé umsjónarmaður ekki við er
tekið við skilaboðum.
Vigdís Stefánsdóttir
umsjónarmaður neytendasíðu
Krókusar - Flower Record
Krókusar eru snemmbiómstrandi, þeir eru til í mörgum litum og veröa um 15
sentímetra háir.
argosar, fara betur i kerum en há-
vaxnar tegundir og auðveldara er að
færa kerin séu plönturnar lágar.
Lítil umhirða
Laukar þurfa litla sem enga um-
hirðu eftir að þeir eru settir niður.
Ef þeir blómstra illa eftir að þeir
koma upp er ástæðan líklega sú að
þeir standa í bleytu eða of miklum
skugga. Margar tegundir ná ekki að
safna nægum forða yfir sumarið til
að blómstra árið eftir. Þetta á sér-
staklega um túlipana og ýmsar viö-
kvæmar tegundir, eins goðaliljur og
keisarakrónu. Æskilegt er að skipta
um túlipana annað hvert ár og aör-
ar viðkvæmar tegundir þarf að setja
niður á hverju ári. Krókusar og há-
tíðarliljur eru aftur á móti mjög
harðgerðar og blómstra ár eftir ár.
Laukjurtir þola illa köfnunarefn-
isrikan áburð þar sem hann eykur
ofanjarðarvöxt á kostnað neðanjarð-
arhlutans. Kali og fosfóráburður
hentar því betur þar sem hann eyk-
ur blómgun og frostþol.
Eftir blómgun á að klippa blóm-
stöngulinn burt svo plantan eyði
ekki orku í að mynda fræ. Blöðin
þurfa aftur á móti að fá að sölna
áöur en þau eru klippt burt. Ef þau
eru klippt of snemma nær laukur-
inn ekki að safna forða fyrir vetur-
inn og blómstrar ekki árið eftir.
Mörgum finnst ljótt að sjá sölnuð
blöðin eftir blómgun og er þeim
bent á að klippa helminginn burt og
binda þau svo saman meö teygju.
Litríkt vor
Krókusar blómstra snemma á
vorin. Þeir eru lágvaxnir og í mörg-
um litum. Það er mjög fallegt að
planta þeim í litlar þyrpingar, 10-20
stykkjum saman í grasflötina, og
fylgjast með þegar þeir koma upp á
vorin.
fullorðinsfræðslan
Matshæft eininganám: skólanám & fjarnám
Krókhálsi 5a - 110 R. Sími/fax 557 1155
Netfang: f-f@islandia.is - Vefsíða: www.peace.is/f-f
Námskeið, grunnskólanám og fyrstu prófáfangar
framhaldsskóla allt árið : ÍSL, DAN, NOR, SÆN, ENS, ÞÝS,
SPÆ, FRA, POR, RUS, STÆ, TÖL, EÐL, TOLVUGRUNNUR
Litlir hópar: Nám fyrir alla NÁMSAÐSTOÐ: öll stig
Námskeiðin hefjast 18. september
SCHOOL OF ICELANDIC
4 Week Intensive Courses All Year
Phone/fax: 557 1155 - E-mail:f-f@islandia.is
http://www.angelfire.com/biz/icelandiclanguage
- setja skuli laukana niður á dýpi sem nemur tvisvar til þrisvar sinnum hæð þeirra
Laukar og hnúðar eru forðarætur ^
sem safna í sig næringarforöa og Jw.jP -Jf
geyma hann yfir veturinn. Lauk- .vjSMk MjfHT mM
eru þvi tilbúnar aö vaxa Q^^^HggÁ f J9
snemma á vorin, sumar jafnvel æk
áöur en snjóa leysir. Haustlaukar h-.
eru niður fyrir fyrsta frost, xTS JgQ
september eða október. Fyrstu krók- HK
usarnir skjóta upp koliinum
eldsnemma á vorin, jafnvel í febrú- ' ýv- V H
ar. Á eftir fylgja svo stjörnuliljur, VjL .JlMk v J'JBBHT H
vorboðar, hátíðarlilijur (páska- og MHPp H ‘ H
hvítasunnuliljur), túlipanar og aðr- K
ar síður harðgerðar tegundir. wfe1 1 A • , J
Hversu djupt a að setja lauka?