Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Qupperneq 28
JC AVIS Frábær kjör á bílaleigu- bílum Sími: 533 1090 Fax: 533 1091 E-mail: avis@avis.is Dugguvogur10 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö f DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 Hreindýra- skrokkar ófundnir Enn hafa flmm hreindýra- skrokkar, sem hurfu úr innsigl- uðum frystigámi við bæinn Skjöldólfsstaði um helgina, ekki fundist. Lögregl- an á Egilsstöðum lagði hald á skrokkana í Jökuldal síðastliðinn föstudag og kom þeim fyrir í frystigámnum, með það í huga að sækja skrokkana eftir helg- ina. Þegar hún svo kom til að sækja kjötið á mánudag hafði innsiglið verið brotið og kjötið horfið. Heimilisfólk á Skjöldólfsstöðum ■^■gat engu ljósi varpað á hvarf skrokkanna en einn maður þaðan hefur gengist við að hafa skotið hluta dýranna sem í frystigámnum voru. Skrokkarnir fundust við hús- leit sem gerð var á bænum í kjölfar kæru hreindýraráðs sem taldi hugs- anlegan veiðiþjófnað hafa átt sér stað úr hreindýrahjörð fyrir austan. Helgi Jensson sýslufuiltrúi neit- aði að tjá sig um þetta mál við DV í morgun. -SMK Frægð og óeirðir í Fókus á morgun færð þú að vita allt um fyrstu skref frægðarinnar hjá íslendingum, Guðrún Bjamadóttir skýrir frá reynslu sinni af óeirðum í Gambíu og Laufey plötusnúður segir frá því hvemig er að ala upp svart barn á íslandi. Díana Ómel segir frá fatahönnun sinni í Asíu og rætt er við Siggu Láru, nýjan umsjónar- mann Mótors á SkjáEinum. Nokkrir íslendingar segja frá haustheitum sínum og Svavar Sigurðsson segir frá heilögu stríði sínu við fíkniefnin. i »i Þá er Lífið eftir vinnu á sínum stað, nákvæmur leiðarvísir um skemmt- ana- og menningarlífið. DV-MYND SKÚLI Féll við Eyjabakka Bandaríkjamaöurinn Larry Epping felldi þennan myndarlega hreindýrstarf á melöldu rétt austan viö Eyjabakka á dög- unum. Larry, sem er á áttræöisaldri og býr í Salem í Oregon, feröast um heiminn meö framhlaöning sinn og veiöir þar sem því veröur viö komiö. Tarfurinn sem hann felldi viö Eyjabakka vó 102 kíló og Larry ætlar aö stoppa hausinn á honum upp og setja hann á vegg heima í Salem. Norðurárdalur: Jeppi hafnaði úti í Norðurá Jeppi rann niður bratta brekku og hafnaði úti í Norðurár í nótt eft- ir að ökumaður hans reyndi að af- stýra árekstri við kindahóp á vegin- um. Ökumaður jeppans var á norð- urleið eftir Norðurárdalnum, skammt frá bænum Sveinatungu, þegar óhappið varð. Pjárhópur hljóp upp á veginn og maðurinn sveigði frá honum til þess að afstýra árekstri. Við það missti hann stjóm á jeppanum sem valt niður 50 metra snarbrattan bakka og út í á. Maður- inn, sem var spenntur í bílbelti, komst úr bílnum af sjálfsdáðum og hringdi í lögreglu. Að sögn lögreglunnar í Borgar- nesi óku flutningabílar fram hjá blautum og köldum manninum þar sem hann stóð viö veginn. Aðrir vegfarendur, sem áttu leið hjá, stoppuðu svo og aðstoðuðu mann- inn. Hann kenndi eymsla i hálsi og baki og var fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi til eftirlits. Bíllinn er mik- ið skemmdur. Lögreglan í Borgamesi vill biðja ökumenn um að vara sig á lausa- göngufé sem hefur verið mikið á vegum í þeirra umdæmi í sumar. Nú þegar hausta tekur færir féð sig niður úr fjöllunum og er þá hætta á að það liggi við vegi landsins.-SMK Mistök við flutning Landmælinga íslands upp á Akranes: Kortasógu íslands eytt fyrir slysni - menningarsögulegt slys, segir fyrrum yfirmaöur kortadeildarinanr „Þetta voru hreinir safngripir, gömul kort sem í heild sinni mynd- uðu kortasögu þjóðarinnar. Ef þetta finnst ekki þá erum við að tala um menningarsögulegt slys,“ sagöi Ólafur Valsson, fyrrnm yfimaður kortadeildar Landmælinga íslands, um afdrifarík mistök sem urðu við flutning stofhunarinnar upp á Akra- nes. Ólafur hafði ásamt Svavari Bergi Pálssyni, útgáfustjóra stofn- unarinnar, verið falið aö yfirfara allt kortasafn Landmælinga íslands sem var geymt á fjórðu hæð i fyrr- um höfuðstöðvum stofnunarinnar á Laugavegi 178. Ólafur og Svavar unnu verk sitt af skyldurækni og tóku sýnishom af öllum kortunum og settu á eitt bretti sem flytja átti upp á Akranes til varðsveislu. Allt annað var sent í prentsmiðju til nið- urskurðar og notað í minnisblokkir og ljósritunarpappír fyrir stofhun- ina. Breyttust í minnisblokkir „Þegar til átti að taka eftir flutn- ingana fannst brettið með fráteknu kortunum ekki og enginn virtist vita hvað af því hefði orðið,“ sagði Ólafúr Valsson, sem starfaði hjá Landmælingum íslands um 30 ára skeið þar til hann lét af störfum skömmu eftir flutninginn upp á Akranes. Eina skýringin sem menn hafa er sú að flutningsaðili hafi fyr- ir misgáning og af slysni farið með öll kortin í niðurskurð hjá prent- smiðjunni þannig að þau menning- arverðmæti sem áttu að varðveitast til handa komandi kynslóðum breyttust í minnisblokkir fyrir starfsmenn Landmælinganna á Akranesi. Hér var um að ræða öll kort út- gefinn af Landmælingum íslands frá árinu 1956, auk fjölda danskra herforingjaráðskorta frá fyrri hluta 20. aldar, svo og bandarísk herkort frá því um 1950. Einnig glötuðust þarna gömul Reykjavíkurkort, jarð- fræðikort og margvísleg segulkort. Þaö var Þorvaldur Bragason, for- stöðumaður markaðs- og upplýs- ingasviðs Landmælinga íslands, sem fól þeim Ólafi og Svavari að yf- irfara kortin og flokka en hann er nú staddur erlendis á vegum stofn- unarinnar. Það sama á við um for- stjóra stofnunarinnar, Magnús Guð- mundsson. Bannaö að tala „Ég má ekki svara þessu. Vissu- lega vann ég verkið ásamt Ólafi Valssyni en það er vinnuregla héma hjá okkur að yfirmenn svara fyrir svona lagaö,“ sagði Svavar Berg Pálsson í gær. - Hefur brettið með þeim menn- ingarverðmætum sem í kortunum fólust þá komið í leitimar? „Þú mátt ekki spyrja mig um þetta. Ég má ekki tjá mig,“ sagði Svavar Berg. Flutningur Landmælinga Islands frá Reykjavík til Akraness virðist því hafa haft ýmsar afleiöingar. DV greindi frá því á laugardaginn að kostnaðaraukning og tekjuhrun af kortasölu hefði fylgt í kjölfar flutn- inganna. Sú frétt var studd tölum en vakti mikla reiði Gísla Gíslasonar, bæjar- stjóra á Akranesi. Hann notaði Rás 2 Ríkisútvarpsins til þess, rakalaust en með upphrópunum, aö ata blaðið auri. -EIR Fjárveitingar búnar og fíkniefnalögregla lömuð: Fagurgali kostar peninga - segir Bryndís Hlöðversdóttir alþingismaður Fíkniefnalögreglan í Reykjavík er lömuð þar sem ekki fæst fjárveiting til að halda úti yfirvinnu. Lögreglu- menn vinna því aðeins frá 9 til 5. Þijú stórmál eru i gangi þar sem sjö manns sitja i gæsluvarðhaldi. Deildin er und- irmönnuð. Þeir fikniefnalögreglu- menn sem DV ræddi við voru sam- mála um að dópsalar lékju lausum hala utan dagvinnutíma þar sem eng- in frumrannsókn ætti sér staö. „Þetta er gamla sagan. Stjómar- flokkarnir héldu því mjög á lofti í kosningarbaráttunni að taka ætti á eiturlyfjavandanum en þegar i ljós kemur að fagur- galinn kostar peninga falla loforðin," segir Bryndís Hlöðversdóttir, alþingismað- ur Samfylkingar. Bryndís kom af fjöllum þegar DV kynnti henni málið í morgun og sagðist aðeins hafa heyrt af hinum mikla árangri sem fikni- efnalögreglan hefði náð það sem af er árinu. „Það er auðvelt að gefa kosn- ingaloforð en fólk verður jafn- framt að sýna ábyrgð og fylgja þeim málum eftir á fjárlögum. Það verður að auka fjárveiting- ar til þessa málaflokks,“ segir Brjmdís. Dómsmálaráðuneytið fer með yfirumsjón löggæslu. Leitað var eftir viðbrögðum Sólveigar Pétursdóttur dóms- málaráðherra vegna málsins en hún gaf ekki færi á viðtali í morgun. Nán- ar á bls. 2. -rt Bryndís Hlööversdóttir. Tilboósveró kr. 4.444 brother p-touch 1250 Lftil en STORmerkileg merkivél 5 leturstæröir 9 leturstillingar prentar í 2 linur boröi 6, 9 og 12 mm 4 gerðir af römmum Rafoort Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport SYLVANIA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.