Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Qupperneq 9
í einangruninni á Grenivík dundaði hin
unga Díana sér við að eignast asíska
pennavini og lesa kynstrin öll af bókum.
Afleiðingar þess eru mikil og sterk áhrif
á líf hennar. í raun er Díana Ómel ekki
skírnarnafn hennar heldur nafn sem hún
tók sér í stað tveggja langra víkinga-
nafna. Díana fæddist nefnilega sem
drengur og er í dag það sem einu sinni
var kallað stelpustrákur. Margrét
Hugrún ræddi við Díönu um fatahönnun
í Asíu og lífið almennt.
„Ég kalla mig Ómel eftir taí-
lenskri vinkonu minni sem lést úr
alnæmi þegar hún var 18 ára. Hún
var pennavinur minn frá því við
vorum 10 ára og hafði unnið fyrir
sér sem gleðikona frá 14 ára aldri
en hætti svo þegar hún vissi að
hún var veik. Þessi stelpa hét Ómel
að millinafhi. Við hittumst aðeins í
Taílandi rétt áður en hún lést, eftir
að hafa skrifast á í mörg ár. Nafn-
ið kemur líka fyrir í bók sem ég las
einu sinni, Seiður sléttunnar, eftir
Jean M. Auel, og er hún fjórða bók-
in í sex bóka röð sem kallast Böm
jarðar. Ómel er manneskja sem
kemur þar fyrir og enginn vissi
hvors kyns hún var.“
Kærastinn skar af sér
puttana
Síðastliðinn vetur var Díana í
sambúð með manni frá Grænhöfða-
eyjum. Hann kom hingað 1996 til
að fara á sjó með bróður sínum
sem hefur búið hér í 16 ár. „Síðan
hann kom hingað er hann búinn að
gera ýmislegt: vinna í niðursuðu-
verksmiðju, skera framan af fingr-
unum í fiskvinnu, vinna í Kassa-
gerðinni, strippa á Þórskaffi og
kvennakvöldum hingað og þangað
um bæinn. Já, alls konar skít.
Vinnur núna á kjúklingabúi á
Hellu,“ segir hún og skellir upp úr.
Dlana er spurð hvort hún hafi ekk-
ert farið að hugsa um bameignir,
ættleiðingar og eitthvað í þeim
dúr: „Þegar ég er að leika mér við
böm og eitthvað að stússast í
kringum þau er ekki laust við að
það komi klakhljóð í mann en eftir
fjóra tíma eru eggin orðin harðsoð-
in. Sambandið kenndi mér að karl-
menn era aumingjar.“ Hún segist
þó ekki ætla að gerast lesbía.
„Nú ætla ég bara að vera ein,
nota þá ef ég get það, annars sleppa
þeim. Karlmenn era ekki allt, ég
komst að því, þeir halda það marg-
ir en það er ekki þannig. Ég gæti
heldur ekki hugsað mér að ganga í
hjónaband nema ef ég græddi eitt-
hvað á þvl. Allt i lagi kannski að
hafa einhvern lifsförunaut sem
maður gæti spjallað við og kannski
stundað einhver kynmök með, fara
í gegniun einhveija „cut clean“-
hjónavígslu og líta á hana sem
stofnun, en ég trúi ekki á riddar-
ann á hvíta hestinum og hef aldrei
gert.“ .
Stelpustrákur í Taílandi
Eftir að slitnaði upp úr þessari
stormasömu sambúð við eyja-
skeggjann fór Díana í andlega lægð
sem hafði þó ekki aðeins að gera
með sambúðina heldur einnig
ýmis mál í vinahópnum o.f.l. Nú er
hún komin upp úr lægðinni og
horfir björtum augum til framtið-
arinnar. Stefnan er tekin á Taíland
eftir örfáa mánuði þar sem Díana
er að fara að setja á markað fata-
línu eftir sig sem hún kallar Omel
Design. Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem hún fer þangað. Fyrir
nokkrum árum kynntist hún tai-
lenskri stelpu í Amsterdam og í
gegnum kynni sín af henni fór hún
í fyrsta sinn til Taílands. Hún
kynntist landinu frá sjónarhóli
innfæddra og fyrir stelpustrákinn
var það algjör draumm- að koma í
land sem þetta „Mér leið alveg
óstjómlega vel, alveg frábærlega.
Það er allt svo rólegt þama, ekkert
stress og ég held að það sé varla til
betra fólk í heiminum. Gagnvart
hommum, lesbíum og fólki eins og
mér þá er það alveg rosalega for-
dómalaust. Asíubúar yfirhöfuð eru
alveg ferlega afslappaðir gagnvart
öllu því sem Vesturlandabúum
finnst afbrigðilegt."
Kona á framabraut
Díana hefur hannað og teiknað
föt frá því hún man eftir sér, hvort
sem þau voru á hana sjálfa eða vini
og kunningja. „Ég hef haft þar er-
indi sem erflði." Tískubransinn í
Taílandi tók henni opnum örmum.
„Ég er komin í sambönd við mjög
góða fjársterka aðila þama úti og
ég er búin að vera að teikna mikið.
Sendi út tvær möppur í fyrra og
tvær í ár og það er allt komið á
fullt. Það er verið að framleiða lín-
ima núna og stefnt á að koma
henni á markað í vetur. Ég hugsa
samt að fötin komi ekki í búðir hér
fyrr en í fyrsta lagi 2002. Þetta eru
eingöngu kvenmannsföt og hér er
enginn minimalismi. Fötin eru öll
alveg rosalega litrík og glamourus.
Klassísk en líka rokkuð. Þau verða
seld þessum fínni verslunum í
Bangkok," segir hún og brosir lúm-
sku brosi.
Er ekkert stefnt á aö sýna hérna
heima?
„Ég er búin að vera aðeins að
pæla i því. Kannski set ég upp sýn-
ingu ef línan sem verið er að gera
núna héma heima verður tilbúin
áður en ég fer út.“ Markmið Díönu
eru ekki í neinni móðu. Hún er
með sjálfa sig og framtíðina á
hreinu.
„Ég stefni á að koma mér upp
veldi, setja markið hátt. Það eina
sem ég á eftir er að ljúka andlega
hlutanum, binda endahnútinn á
lægðina, og klára þann likamlega
og þá verð ég það sem ég er í raun
og vera - ung kona á framabraut."
fókusvefurinn
IÞeir sem fara inn á
Fókusvefinn í
og næstu daga
eiga kost á að
taka þátt í
skemmtilegum
leik í tilefni
frums ýningar
Dancer in
Dark.
iskar
í verðlaun
Bjork
í tilefni af frumsýningu stór-
myndarinnar Dancer in the Dark
um næstu helgi verður nóg um að
vera í Fókus. í Lífinu eftir vinnu
er að finna miða á myndina í kvöld
og í dag hefst skemmtilegur leikur
á Fókusvefnum á Vísi.is þar sem
fólki gefst kostur á að vinna geisla-
diska úr kvikmyndinni.
Það er hún Björk okkar Guð-
mundsdóttir sem leikur aðalhlut-
verkið í myndinni eins og alkunna
er en hún semur einnig tónlistina
fyrir myndina. Geisladiskurinn
ber heitið Selma’s Songs, eftir
persónu hennar í myndinni, og
hefur dúett hennar með Thom
Yorke úr Radiohead þegar komist
í spilun á útvarpsstöðvunum.
Leikurinn fer þannig fram að
fólk fer inn á Vísi.is og þaðan inn
á Fókusvefínn. Þar er hnappur fyr-
ir leikinn sem heitir Gettu enn
betrn- og þar kemst fólk í spurn-
ingamar sem era, eins og venju-
lega, níðþungar. Þeir sem svara
flestum spurningum á sem
skemmstum tíma eiga von á verð-
launum. Leikurinn fer í gang eftir
hádegi í dag. Gangi ykkur vel.
15. september 2000 f Ókus
9