Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Page 12
H I vikuna 16.9-23.9 2000 37. vika Robbie Williams er kóngurinn á íslenska lis- tanum þessa vikuna enda hefur kappinn gjör- samlega lagt heiminn að fótum sér með laginu Rock Dj að undanförnu. Gamli kallinn Bon Jovi er snúinn aftur úr leiklistarfríi og skýst upp í annað sætið en stjarna vikunnar er auðvitað stelpan frá Bandarikjunum sem allir þekkja. Britney Spears er komin í fimmta sætið meö nýja lagið Lucky og má fastlega búast við því að hún skjótist á top- pinn fyrr en varir. Við bíðum spennt. Topp 20 ® Rock Dj Robbie Williams (i02) It’s my life Bon Jovi (03) Life is a ... Ronan Keating 04) Let’s get loud Jennifer Lopez (05) Jumpin’Jumpin’ Destiny’s Child (06) Lucky Britney Speras (07) Spinning Around Kylie Minogue (08) Mybitch Tvíhöfði (09) Music Madonna (70) We Will Rock You Five & Queen (íl) Mostgirls Pink (12) Öllsemeitt Sálin hans Jóns míns (73) Could I have this kiss Houston/lglesias (74) Seven Days Craig David 75 Natural Blues Moby ® Lady Modjo (77) Með þér Skítamórall (73) Generator Foo Fighters (79) Out of your mind Stepper & Victoria (20) Why didn’t you Call me Macy Gray Víkur: illsta 't' 6 t 2 4- 6Í * 4 t 4| l' 3 6 4r 5 l' 2 <P* 5 4* 3 4r 5 •T* 4 , <& 6 4r 7 x 1| t 31 4* 7 t 3 4, 5 Sætin 21 til 40 @ topplag vikunnar Good Stuff Kelis feat. Terrar 4, 9 X 1 4- 1! 4 9 / hástökkvari vikunnar Yellow Coldplay / Try Again Aaliyah nýtt á listanum Take a look... Limp Bizkit X Doesn't really... Janet Jackson 5 7 o u stenduristað Absolutely Nine Days ? 3 A hækkar sig frá siðustu viku Californication Red Hot Chllli... J, 9 T Eins og þú ert Greifarnir t 4 4 iækkarsigtrá Wasting time Kid Rock X 1 4 11 siðustu viku The Real Slim... Eminem ? fall vikunnar Tom’s Diner Kenny Blake T 2 If I told you that Whitney/Michael 4, h 4 8 |j|Stopp nr. 7 200.000 naglbítar l’m outta love Anastacia 4 11 Hvar er ég? írafár 4 1« í Vestmannaeyj.. Magni & fél. 4, 8 I think l’m in love Jessica Simpson 4 1í Groovejet Spiller X 1 Þær tvær Land & Synir 4 1C Shackles Mary Mary 4 1£ i Ifókus islenski listinn er samstarfsverkefni DV og FM 957 og birtist vikulega í Fókus. Listinn er fluttur á FM i umsjá Einars Ágústs Víðissonar. Annálaðir smekk frá Washington Tnievery Corporation eru alltaf i flottum jakkafotum. Bandar-íská ■hjjómsveitin Thievery Corporatíon verður á meðal atriöa a lcelandic Airwaves-tónlistalhátíðinni í oktober. Trausti Júlíusson'skoðaði sögu hennar/ogihlustaði á nýju Conspirac^ mmm * Seint í ágúst kom út ný plata bandarísku hljómsveitarinnar Thi- every Corporation. Platan heitir The Mirror Conspiracy og er önn- ur plata sveitarinnar með eigin efni. Sú fyrri, Sounds from The Thievery Hi-Fi, kom út fyrir þrem- ur árum og þó að hún hafi vakið töluverða athygli náði hún ekki þeirri útbreiðslu sem margir töldu að hún ætti skilið. Tónlist Thi- every Corporation á margt skylt með hljómsveitum eins og Massi- ve Attack og Air og enn þá meira með austurrísku trip hop-snilling- unum Kruder & Dorfmeister. En kikjum aðeins á sögu þeirra. Fyrrum pönkarar frá DC Thievery Corporation er skipuð tveimur Washington DC-búum, þeim Rob Garza og Eric Hilton. Þeir voru kynntir af sameiginleg- um vini í maí árið 1995 og komust fljótt að því að þeir áttu margt sam- eiginlegt. Þeir voru t.d. báðir mikl- ir áhugamenn um brasilísku tón- listarmennina Antonio Carlos Jobim og Joao Gilberto og bossa- tónlist sjöunda áratugarins og ákváðu fljótlega að fara að búa til tónlist saman. Þeir Rob og Eric voru reyndar báðir pönkarar á yngri árum og voru harðir aðdáendur hardcore pönk-senunnar í DC sem náði töluverðri útbreiðslu með hljóm- sveitum eins og Minor Threat, en höfðu þróast út í aðra hluti. Eric Hilton byrjaöi 11 ára í rokkhljómsveit og uppgötvaði pönkið skömmu seinna með hljómsveitum eins Clash og Sex Pistols. Hann kynntist soul, djass og Jamaica-tónlist í gegnum bresku nýbylgjuna og hljómsveitum eins og Specials, Madness og Syle Coimcil. Seint á ní- unda áratugnum gerðist hann plötusnúður og stofnaði seinna klúbbinn Exodus. Þar spilaði hann m.a. við hlið Dubfire, sem nú er annar tveggja meðlima house-sveitar- innar Deep Dish. Rob Garza byrjaði að fikta við raftónlist í gaggó, þar sem hann lærði m.a. að sampla og á trommuheila. Hann fór svo í listaskóla en hélt áfram að fylgjast náið með tónlist. Eftir að hardcore-senan í D.C. fór að dala hlustaði hann á hljómsveitir eins og Pixies, Renegade Soundwave og Hugo Largo og fékk svo nokkru seinna djass og bossa-nova-dellu. Róleg stemning og fullkomið sánd Bakgrunnur þeirra félaga endur- speglast vel í tónlist Thivery Cor- poration. Hún er undir áhrifum frá gamalli brasiliskri tónlist, reggí frá Jamaica, lyftutónlist frá áttunda áratugmun, kvikmyndatónlist frá sjöunda áratugnum, jass, soul, betristofutónlist, bossa nova og dub. Allt hangir þetta svo saman á hæggengu tempóinu, stemning- unni og fullkomu sándi. Á nýju plötunni njóta þeir aðstoðar nokk- urra öndvegis söngvara þ.á m. Lou Lou, sem er frönsk og þeir hittu þar sem hún var að uppvarta á matsölustað í grennd við stúdíóið þeirra, Pam Bricker, Bebel Giberto og Jamaíkumannsins Brother Jack sem setur ekta reggísvip á opnunarlagið Trea- sures. Flottir í tauinu Eitt af því sem þeir í Thievery Corporation eru þekktir fyrir er hvað þeir eru miklir stílistar og alltaf flottir í tauinu. Þeir reka klúbbinn Eighteenth Street Longue í DC, þar sem samba og rafdjass hljómar fyrri hluta kvölds en hrað- ari danstónlist tekur við þegar líð- ur á nóttina. í bakhúsinu hafa þeir svo stúdíóaðstöðu sem er hentugt því þegar þeir hlusta á plötusnúð- ana spila í klúbbnum fá þeir hug- myndir og geta þá verið snöggir að skella sér í stúdíóið og vinna úr þeim. Jakkafötin eru sérstakt áhugamál sem rekja má til mod- tískunnar og ska-hljómsveitanna sem oft klæddust flottum jakkafot- um. „Ég þekki léleg jakkaföt úr mílu fjarlægð," segir Éric Hilton, „og ég get strax séð hvort jakkafot- in eru framleidd á Ítalíu eða í London. Ef þú kaupir þér 1500 doll- ara jakkaföt í London geturðu gengið í þeim í 30 ár. Þau fara aldrei úr tísku.“ Þá vitum við það. Stela hugmyndum, ekki tónnst Auk Sounds From The Thievery Hi-Fi og The Mirror Conspiracy hafa Thievery Corporation gefið út tvær plötur með efni eftir aðra. Þeir áttu mix-plötu í „DJ Kicks“- seríunni sem þýska plötuútgáfan Studio K7 gefur út þar sem þeir spila m.a. efni með Les Baxter, DJ Cam og Fun-Da-Mental og svo gáfu þeir út safn- plötu með remixum sem þeir hafa gert af tónlist annarra. Sú plata heitir Abd- uctions & Reconstructions og inniheldur m.a. lög með David Byme, Gus Gus, Pizzicato 5 og Stereolab. Thievery Cor- poration er að spila víða í Evrópu og Bandaríkjunum um þessar mundir, auk þess sem þeir félag- ar eru að vinna að nýrri útgáfu af Computer Love með Kraftwerk. Hvað nafnið varðar þá vísar það auðvitað til þess hvað þeir nota mikið af tónlist annarra í sinni eig- in tónlist. „I dag erum við aðallega að stela stílum og hugmyndum en ekki hljóðritaðri tónlist," segja þeir. „Það verða allir fyr- ir áhrifum, við bara viðurkennum það.“ 1 m I » 12 f Ó k U S 15. september 2000 J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.