Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Qupperneq 12
H
I
vikuna
16.9-23.9 2000
37. vika
Robbie Williams er kóngurinn á íslenska lis-
tanum þessa vikuna enda hefur kappinn gjör-
samlega lagt heiminn að fótum sér með laginu
Rock Dj að undanförnu. Gamli kallinn Bon Jovi er
snúinn aftur úr leiklistarfríi og skýst upp í annað
sætið en stjarna vikunnar er auðvitað stelpan frá
Bandarikjunum sem allir þekkja. Britney Spears
er komin í fimmta sætið meö nýja lagið Lucky og
má fastlega búast við því að hún skjótist á top-
pinn fyrr en varir. Við bíðum spennt.
Topp 20 ® Rock Dj Robbie Williams
(i02) It’s my life Bon Jovi
(03) Life is a ... Ronan Keating
04) Let’s get loud Jennifer Lopez
(05) Jumpin’Jumpin’ Destiny’s Child
(06) Lucky Britney Speras
(07) Spinning Around Kylie Minogue
(08) Mybitch Tvíhöfði
(09) Music Madonna
(70) We Will Rock You Five & Queen
(íl) Mostgirls Pink
(12) Öllsemeitt Sálin hans Jóns míns
(73) Could I have this kiss Houston/lglesias
(74) Seven Days Craig David
75 Natural Blues Moby
® Lady Modjo
(77) Með þér Skítamórall
(73) Generator Foo Fighters
(79) Out of your mind Stepper & Victoria
(20) Why didn’t you Call me Macy Gray
Víkur:
illsta
't' 6
t 2
4- 6Í
* 4
t 4|
l' 3
6
4r 5
l' 2
<P* 5
4* 3
4r 5
•T* 4
, <& 6
4r 7
x 1|
t 31
4* 7
t 3
4, 5
Sætin 21 til 40
@ topplag vikunnar Good Stuff Kelis feat. Terrar 4, 9 X 1 4- 1! 4 9
/ hástökkvari vikunnar Yellow Coldplay
/ Try Again Aaliyah
nýtt á listanum Take a look... Limp Bizkit
X Doesn't really... Janet Jackson 5 7 o
u stenduristað Absolutely Nine Days ? 3
A hækkar sig frá siðustu viku Californication Red Hot Chllli... J, 9
T Eins og þú ert Greifarnir t 4
4 iækkarsigtrá Wasting time Kid Rock X 1 4 11
siðustu viku The Real Slim... Eminem
? fall vikunnar Tom’s Diner Kenny Blake T 2
If I told you that Whitney/Michael 4, h 4 8
|j|Stopp nr. 7 200.000 naglbítar
l’m outta love Anastacia 4 11
Hvar er ég? írafár 4 1«
í Vestmannaeyj.. Magni & fél. 4, 8
I think l’m in love Jessica Simpson 4 1í
Groovejet Spiller X 1
Þær tvær Land & Synir 4 1C
Shackles Mary Mary 4 1£
i
Ifókus
islenski listinn er
samstarfsverkefni DV og
FM 957 og birtist vikulega í
Fókus. Listinn er fluttur á
FM i umsjá Einars Ágústs
Víðissonar.
Annálaðir
smekk
frá Washington
Tnievery Corporation eru alltaf i flottum jakkafotum.
Bandar-íská ■hjjómsveitin Thievery Corporatíon verður á
meðal atriöa a lcelandic Airwaves-tónlistalhátíðinni í oktober.
Trausti Júlíusson'skoðaði sögu hennar/ogihlustaði á nýju
Conspirac^
mmm *
Seint í ágúst kom út ný plata
bandarísku hljómsveitarinnar Thi-
every Corporation. Platan heitir
The Mirror Conspiracy og er önn-
ur plata sveitarinnar með eigin
efni. Sú fyrri, Sounds from The
Thievery Hi-Fi, kom út fyrir þrem-
ur árum og þó að hún hafi vakið
töluverða athygli náði hún ekki
þeirri útbreiðslu sem margir töldu
að hún ætti skilið. Tónlist Thi-
every Corporation á margt skylt
með hljómsveitum eins og Massi-
ve Attack og Air og enn þá meira
með austurrísku trip hop-snilling-
unum Kruder & Dorfmeister. En
kikjum aðeins á sögu þeirra.
Fyrrum pönkarar frá DC
Thievery Corporation er skipuð
tveimur Washington DC-búum,
þeim Rob Garza og Eric Hilton.
Þeir voru kynntir af sameiginleg-
um vini í maí árið 1995 og komust
fljótt að því að þeir áttu margt sam-
eiginlegt. Þeir voru t.d. báðir mikl-
ir áhugamenn um brasilísku tón-
listarmennina Antonio Carlos
Jobim og Joao Gilberto og bossa-
tónlist sjöunda áratugarins og
ákváðu fljótlega að fara að búa til
tónlist saman.
Þeir Rob og Eric voru reyndar
báðir pönkarar á yngri árum og
voru harðir aðdáendur
hardcore pönk-senunnar í
DC sem náði töluverðri
útbreiðslu með hljóm-
sveitum eins og Minor
Threat, en höfðu þróast
út í aðra hluti.
Eric Hilton byrjaöi 11
ára í rokkhljómsveit og
uppgötvaði pönkið
skömmu seinna með
hljómsveitum eins Clash
og Sex Pistols. Hann
kynntist soul, djass og
Jamaica-tónlist í gegnum
bresku nýbylgjuna og
hljómsveitum eins og
Specials, Madness og
Syle Coimcil. Seint á ní-
unda áratugnum gerðist
hann plötusnúður og
stofnaði seinna klúbbinn
Exodus. Þar spilaði hann
m.a. við hlið Dubfire,
sem nú er annar tveggja
meðlima house-sveitar-
innar Deep Dish.
Rob Garza byrjaði að
fikta við raftónlist í
gaggó, þar sem hann
lærði m.a. að sampla og á
trommuheila. Hann fór
svo í listaskóla en hélt
áfram að fylgjast náið
með tónlist. Eftir að
hardcore-senan í D.C. fór
að dala hlustaði hann á
hljómsveitir eins og Pixies,
Renegade Soundwave og Hugo
Largo og fékk svo nokkru seinna
djass og bossa-nova-dellu.
Róleg stemning og
fullkomið sánd
Bakgrunnur þeirra félaga endur-
speglast vel í tónlist Thivery Cor-
poration. Hún er undir áhrifum frá
gamalli brasiliskri tónlist, reggí frá
Jamaica, lyftutónlist frá áttunda
áratugmun, kvikmyndatónlist frá
sjöunda áratugnum, jass, soul,
betristofutónlist, bossa nova og
dub. Allt hangir þetta svo saman á
hæggengu tempóinu, stemning-
unni og fullkomu sándi. Á nýju
plötunni njóta þeir aðstoðar nokk-
urra öndvegis söngvara þ.á m. Lou
Lou, sem er frönsk og þeir hittu
þar sem hún var að uppvarta á
matsölustað í grennd við stúdíóið
þeirra, Pam Bricker, Bebel
Giberto og Jamaíkumannsins
Brother Jack sem setur ekta
reggísvip á opnunarlagið Trea-
sures.
Flottir í tauinu
Eitt af því sem þeir í Thievery
Corporation eru þekktir fyrir er
hvað þeir eru miklir stílistar og
alltaf flottir í tauinu. Þeir reka
klúbbinn Eighteenth Street Longue
í DC, þar sem samba og rafdjass
hljómar fyrri hluta kvölds en hrað-
ari danstónlist tekur við þegar líð-
ur á nóttina. í bakhúsinu hafa þeir
svo stúdíóaðstöðu sem er hentugt
því þegar þeir hlusta á plötusnúð-
ana spila í klúbbnum fá þeir hug-
myndir og geta þá verið snöggir að
skella sér í stúdíóið og vinna úr
þeim. Jakkafötin eru sérstakt
áhugamál sem rekja má til mod-
tískunnar og ska-hljómsveitanna
sem oft klæddust flottum jakkafot-
um. „Ég þekki léleg jakkaföt úr
mílu fjarlægð," segir Éric Hilton,
„og ég get strax séð hvort jakkafot-
in eru framleidd á Ítalíu eða í
London. Ef þú kaupir þér 1500 doll-
ara jakkaföt í London geturðu
gengið í þeim í 30 ár. Þau fara
aldrei úr tísku.“ Þá vitum við það.
Stela hugmyndum,
ekki tónnst
Auk Sounds From The Thievery
Hi-Fi og The Mirror Conspiracy
hafa Thievery Corporation gefið út
tvær plötur með efni eftir aðra.
Þeir áttu mix-plötu í „DJ Kicks“-
seríunni sem þýska plötuútgáfan
Studio K7 gefur út þar sem þeir
spila m.a. efni með Les Baxter, DJ
Cam og Fun-Da-Mental og svo
gáfu þeir út safn-
plötu með remixum
sem þeir hafa gert
af tónlist annarra.
Sú plata heitir Abd-
uctions &
Reconstructions og
inniheldur m.a. lög
með David Byme,
Gus Gus, Pizzicato
5 og Stereolab.
Thievery Cor-
poration er að spila
víða í Evrópu og
Bandaríkjunum um
þessar mundir, auk
þess sem þeir félag-
ar eru að vinna að
nýrri útgáfu af
Computer Love með
Kraftwerk. Hvað
nafnið varðar þá
vísar það auðvitað
til þess hvað þeir
nota mikið af tónlist
annarra í sinni eig-
in tónlist. „I dag
erum við aðallega
að stela stílum og
hugmyndum en
ekki hljóðritaðri
tónlist," segja þeir.
„Það verða allir fyr-
ir áhrifum, við bara
viðurkennum það.“
1
m
I
»
12
f Ó k U S 15. september 2000
J